Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.11.1999, Blaðsíða 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 C ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR ■ ÞORMÓÐUR Egilsson, fyrirliði Islands- og bikarmeistara KR í knattspyrnu, hefur rætt við for- ráðamenn Fylkis um að leika með liðinu næsta sumar. Hann sagði jafnframt hugsanlegt að hann yrði aðstoðarþjálfari liðsins ef hann færi tii þess. Þormóður hefur jafnframt rætt við KR-inga en sagðist ætla að taka sér tíma í að ákveða hvar hann léki næsta sumar. ■ HELGI Frímannsson, 19 ára leikmaður Fram í knattspyrnu, er á förum til Skotlands og mun dvelja hjá 1. deildarliðinu Inverness Caledonian Thistle til reynslu í hálfan mánuð. Helgi lék áður með Fjölni. ■ ARSENAL lagði Real Madrid að velli í ágóðaleik fyrir Lee Dixon á mánudagskvöldið, 3:1. Patrik Vi- eira, Dennis Bergkamp og Stefan Malz skoruðu mörk Arsenal og Christian Karembeu mark Real. 22.486 áhorfendur sáu leikinn á Highbury. ■ DIXON, sem lagði upp fyrsta mark leiksins, er 36 ára. Hann kom til Arsenal frá Stoke 1988 og hefur leikið 527 leiki fyrir Lundúnaliðið. ■ IAN Wright, markahæsti leik- maður í sögu Arsenal, sem leikur nú með Celtic, kom inná við mikinn fögnuð áhorfenda og lék síðustu 20 mín. leiksins. ■ FRANSKI landsliðsmaðurinn Nicolas Anelka, íyrrverandi leik- máður Arsenal, kom ekki til Hig- hbury með Real Madrid. Hann hefði ekki fengið góðar viðtökur þar. ■ STEVE McManaman lék með Real, en hann hefur verið meiddur. McManaman lét reyna á hvort hann sé tilbúinn að leika með Eng- lendingum gegn Skotum á laugar- daginn í Glasgow. ■ „EG er ánægður með hvað vel hefur gengið hjá mér - fmn ekki til,“ sagði McManaman, sem er klár fyrir oirustuna í Glasgow. ■ ALLT bendir nú til að norski landsliðsmaðurinn Stig Inge Bjornebye sé á förum frá Liver- pool. Rosenborg hefur áhuga á að fá hann til sín og þá er einnig möguleiki á að Liverpool láti hann fara til Wimbledon í skiptum fyrir Ben Tacher, auk þess sem Liver- pool borgi 250 millj. ísl. kr. ■ ARSENAL hefur boðið Nígeríu- manninum Nwankwo Kanu nýjan samning, sem gerir hann launa- hæsta leikmann liðsins, með 4,6 millj. ísL kr. í vasann á viku. Kanu, sem er 23 ára, hefur óskað eftir að Arsenal hjálpi fjölskyldu hans - foreldrum, tveimur bræðrum og systur, að fá vegabréfsáritun til Englands. Ef það tekst, er reiknað með að hann skrifi undir nýjan samning. ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Úrsiit leikja í fyrrinótt: Philadelphia - Seattle ...........117:98 New York - Milwaukee.............111:101 Houston - Orlando.................97:102 Denver - Atlanta.................115:100 LA Clippers - Utah.................79:94 í KVÖLD Handknattleikur 1. dbild karla: Varmá: Afturelding - HK ............20 1. deild kvenna: Kaplakriki: FH - Grótta/KR..........20 Strandgata: Haukar - Stjarnan.......20 Valsheimili: Valur - ÍR.............20 Varmá: Afturelding - Fram...........18 Vestmannaeyjar: ÍI3V - Víkingur.....20 2. deild karla: Húsavík: Völsungur - Þór A..........20 Selfoss: Selfoss - ÍH...............20 Körfuknattleikur 1. deild karla: Borgarnes: Stafholtstungur - ÍS.....20 Herrakvöld Víkings verður haldið föstudaginn 12. nóv. í Víkinni og hefst kl. 20. Veislustjóri: Þorbergur Aðalsteinsson Ræðumaður og gestur: Illugi Jökulsson rithöfundur Skemmtiatriði og happdrætti. Miðar til sölu f Vfkinni og hjá Emi s. 897 9247. Aðalfundur fulltrúaráðsins verður fimmtudaginn 11. nóv. í Vfkinni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Stjómin ■ PETER Schnieichel markvörður danska landsliðsins verður væntan- lega klár í tvo leiki í undankeppni EM með landsliði sínu, gegn ísrael um næstu helgi og á miðvikudaginn í næstu viku. ■ SCHMEICHEL meiddist á kálfa í lok síðasta mánaðai- og talið var að hann myndi ekki vera búinn að ná sér þegar til landsleikjanna tveggja kæmi. „Ég er á batavegi og verð til- búinn þegar að leikjunum kemur,“ sagði Schmeichel í gær. ■ LANDI hans Stig Töfting, leik- maður Duisburg í Þýskalandi, er einnig að jafna sig af meiðslum og verður væntanlega einnig með danska landsliðinu í leikjunum tveimur. Fyrri leikur þjóðanna verð- ur í Tel Aviv á laugardaginn en sá síðari í Kaupmannahöfn á miðviku- daginn eftir viku. Sú þjóð sem hefur betur vinnm- sér sæti í lokakeppni EM í Hollandi og Belgíu næsta sumar. ■ STEFAN Schwarz leikmaður Sunderland var á mánudaginn út- nefndur besti knattspymumaður Svíþjóðar fyrir yfirstandandi ár. Schwarz, sem kom til Sunderland frá Valencia í sumar, hefur leikið einstaklega vel fyrir enska félagið það sem af er leiktíðinni. ■ ROLAND Nilsson, leikmaður Helsingborgar, var um helgina út- nefndur besti leikmaður sænsku úr- valsdeildarinnar. Nilsson er orðinn 36 ára og var lykilmaður í vörn Hels- ingborgar síðasta tímabil. ■ BEBETO er afar óánægður í her- búðum Neza í Mexíkó og segist fara frá félaginu innan skamms verði ekki breyting til batnaðar á fram- komu forráðamanna félagsins í hans garð. Bebeto, sem var í landsliði Brasilíu á HM 1994 og 1998, segir m.a. að forráðamenn félagsins neiti að greiða honum laun nema hann leiki, gildir þá einu hvort hann geng- ur heill til skógar eða ekki. ■ BEBETO segist ekkert vera á flæðiskeri staddur þótt hann yfirgefi Neza því honum standi til boða að leika með félögum í Bandaríkjun- um, í Brasilíu og eins í Mexíkó. ■ FRANK Rijkaard landsliðsþjálf- ari Hollands hefur valið Jimmy Floyd Hasselbaink í landslið sitt í stað Pierre van Hooijdonk, sem er lasinn. Hollendingar mæta Tékkum í * vináttulandsleik í Eindhoven á laugardaginn. ■ LIVERPOOL er í viðræðum við Berti Vogts um að hann gerist yfir- njósnari liðsins, ferðist víða og bendi á efnilega leikmenn. Vogts, sem er fyri’verandi landsliðseinvaldur Þjóð- verja í knattspyrnu, er ætlað það starf sem áformað var að landi hans Karlheinz Riedle tæki að sér. Það breyttist er Riedle var seldur á dög- unum til Fulliam. Grunfeld ekki sýnd gestrisni Stjórnarseta í Stoke til GREINT hefur verið frá því í enskum fjötmiðlum að fráfarandi hæstráðendur Stoke City, þeir Peter Coates og Keith Hump- hreys, haldi sætum sínum í stjórn knattspyrnufélagsins fyrir lífstíð. Fregnunum var illa tekið í Stoke- borg í gær, enda þeir félagar með eindæmum óvinsælir meðal stuðn- ingsmanna liðsins sem saka þá um dugleysi í stjórnun liðsins á und- anförnum árum. Islenskir fjárfestar ráða form- lega yfir meirihluta í stjórn Stoke frá og með lS. nóvetnber nk. og verða þá þrír íslendingar í stjórn- inni auk þeirra Coates og Hump- hreys. Fram að kaupum Islend- inga á félaginu áttu þeir tveir samtals 95% hlutafjár (félaginu. Coates var stjórnarformaður Stoke í þrettán ár, en Humphreys tók við af honum í fyrra. Sam- kvæmt fregnum á spjallsíðu Stoke / gær var skilyrði af hálfu þeirra félaga að þeir héldu sætum s/num í stjórn. Endanlega vcrður tilkynnt um nýja skipan stjórnar á blaða- mannafundi nýrra eigenda í Stoke nk. mánudag, en Jez Mox- ey, framkvæmdastjóri félagsins, sagðist í gær ekki vilja spá fyrir um framtíð þeirra Coates og Humphreys innan félagsins. „Mik- ilvægast er ekki hverjir sæti eiga Irfstíðar í stjórninni, heldur hveijir eru þar í meirihluta. Það er augljóst að Islendingarnir eiga meirihiuta hlutafjár í félaginu og munu þar af leiðandi stjórna félaginu," sagði hann. Stoke gerði markalaust jafntefli á útivelli við Bury um helgina og hefur nú aðeins náð einu stigi úr si'ðustu þremur viðureignum sín- um. Næsti leikur liðsins er heima á sunnudag gegn Bristol City. Ríkharður og Auð- un sluppu við að hjóla til Oslóar LEIKMENN Viking frá Stavangri hétu því fyrir keppnistíma- bilið að ef liðið næði ekki einu af sex efstu sætunum í norsku deildinni myndu þeir hjóla frá Stavangri til Óslóar, alls um 220 km. Liðið hafnaði í áttunda sæti deildarinnar og nú þurfa leikmennirnir að standa við stóru orðin. Þeir héldu af stað frá Stavangri á mánudag og ætluðu sér þijá daga til að hjóla þessa rúmlega 200 kílómetra, koma væntanlega til Óslóar í dag. Tíu leikmenn liðsins tóku að sér að bjarga ærunni fyrir liðið með því að skiptast á að hjóla á tveimur hjólum. Þeir fara um Qallvegi og hafa m.a. lent í leið- inlegu veðri, roki og rigningu. Lagt var af stað frá Stavangri kl. 8 á mánudagsmorgun til Evje og þaðan í gegnum Arendal og Larvik og síðan til Óslóar. íslensku leikmennirnir í liði Viking, Ríkharður Daðason og Auðun Helgason, sluppu við að hjóla með félögum sfnum þar sem þeir ákváðu að bregða sér í frí til íslandsls Reuters Glenn Robinson og Walt Williams fóru halloka í fyrri- nótt. Robinson og félagar í Milwaukee Bucks töpuðu fyr- ir New York Knicks í fram- lengdum leik. KNATTSPYRNA Gunnleifur ekki á för- um frá KR „GUNNLEIFUR Gunnleifsson, markvörður KR-inga, er ekki á leiðinni í Fram,“ sagði Guð- mundur Pétursson, formaður Rekstrarfélags KR, aðspurður um þann orðróm sem hefur verið uppi að undanförnu - að Gunnleifur væri á förum frá fé- laginu. Gunnleifur er samningsbundinn KR til næstu tveggja ára og ég veit ekki til þess að hann sé á förum. Það er ekki fótur fyrir þessari frétt. Það hefur hins vegar verið spurst fyrir um Gunnleif af hálfu Framara. Við svöruðum því þá munnlega að við myndum ekki taka ákvörðun í markmannsmálunum fyrr en í fyrsta lagi þegar búið væri að ráða þjálfara. Pétur Björn til liðs við KA PÉTUR Björn Jónsson hefur gengið í raðir KA frá Akureyri. Pétur Björn var hjá enska 3. deildarliðinu Chester í sumar en sagði að félagið hefði ekki staðið við þann samning sem hann gerði við það. Hann segist hafa átt í viðræðum við fjögur úrvalsdeild- arlið undanfamar vikur, sem hann vildi ekki nafngreina, en kvaðst hafa afráðið að ganga til liðs við 1. deildarliðið til eins árs. „Ég fór norður um síðustu helgi og ræddi við forsvarsmenn liðsins. í framhaldi ákvað ég að ganga til liðs við KA. Mér líst vel á markmið liðsins, greinilegt að KA-menn eru stórhuga og stefna á að komast í úrvalsdeild.“ Pétur Björn lék áður með ÍR og Leiftri hér á landi en hélt það- an tO sænska liðsins Hammarby, en fór frá liðinu í vor. Pétur Björn sagðist ekki reikna með að halda aftur í atvinnumennsku er- lendis. Það er reyndar nýbúið að ráða Pétur Pétursson og lengra enim við ekki komnir,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að Kristján Finnboga- son markvörður væri samningslaus og það væri ljóst að Kristján og Gunnleifur færu ekki báðir frá félag- inu. Kristján er nú í Belgíu til reynslu hjá 1. deildarliðinu Lommel. „Við vitum ekki hvað Kristján gerir, en við höfum gert honum tilboð sem hann hefur verið að skoða. Hann hef- ur lengi haft áhuga á að leika erlend- is og það verður bara að koma í ljós hvað gerist í því. Ef Kristján fer frá okkur látum við ekki Gunnleif fara, það er nokkuð ljóst. Við ætlum ekki að standa uppi markmannslausir,“ sagði Guðmundur. Fyrsta æfingin hjá meistaraflokki KR undir stjórn Péturs Péturssonar verður í kvöld. Ekki hefur verið ákveðið hverjir aðstoðarmenn Pét- urs verða, en vilji er fyrir því innan stjórnar Rekstrarfélags KR að það verði þeir sömu og störfuðu með Atla sl. sumar. Pétur hefur þegar tjáð sig reiðubúinn að kanna grund- völl á samstarfi við þessa aðila. KNATTSPYRNA Haukur leikur með Rosenborg Haukur Ingi Guðnason, leikmaður Liverpool, verður við æfingar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Rosen- borg næstu daga. A þeim tíma mun hann leika einn æfingaleik með lið- inu. Haukur Ingi sagðist ekkert vita hvort norska liðið hefði áhuga á að fá hann leigðan frá Liverpool eða kaupa hann. „Ég var að koma í dag [þriðjudag] og vejt satt að segja lítið hvað norska félagið vill gera. Ég hef lítillega rætt við forráðamenn Rosenborg en það kemur í ljós á næstu dögum hvert framhaldið verður. Ferðin til Noregs kom skyndilega upp og þar sem ég hef lítið leikið fótbolta undanfarið vegna meiðsla ákvað ég að skella mér til Þrándheims," sagði Haukur Ingi, sem leikur æfingaleik ásamt Árna Gauti Ai-asyni og félögum í Rosenborg í þessari viku. Æfði hjá Start Haukur Ingi fór á æfingu hjá norska liðinu Start á mánudag en sagði að Erik Soler, umboðsmaður hans, hefði komið því í kring. „Erik er vinur Jan Halvorsen, þjálfara Start, og fékk mig til þess að koma á æfingu hjá liðinu.“ Haukur Ingi sagðist ekki vita hvort Start hefði áhuga á að skoða hann frekar. ENN á ný sýndu Latrell Sprewell og Marcus Camby hvers vegna Ernie Grunfeld fékk þá til New York Knicks. Sprewell skoraði þriggja stiga körfu er tæpar átta sekúndur lifðu leiks liðsins við Milwaukee Bucks, nýju félagi Grunfelds, í Madison Square Garden og knúði fram framlengingu, þar sem heima- menn réðu lögum og lofum - höfðu betur, 111:101. Eftir Edwin Rögnvaldsson Grunfeld er maðurinn sem fékk mig og Marcus hingað og stuðlaði þannig að góðum leik okk- ar um þessar mund- ir,“ sagði Sprewell, sem skoraði ellefu af 21 stigi sínu á fimm mínútna kafla í fjórða leikhluta og framlengingunni. „Við eigum honum miklar þakkir skild- ar. Þess vegna var gaman að gera þetta að honum viðstöddum.“ Grunfeld var rekinn frá Knicks í apríl eftir átján ár hjá félaginu, fyrst sem leikmaður og síðast sem framkvæmdastjóri. Hann átti í harðri valdabaráttu við þjálfarann Jeff Van Gundy vegna leiktíma Cambys, sem Grunfeld skipti fyrir Charles Oakley, sem var í miklu uppáhaldi hjá Van Gundy. „Sögu- sagnir af hatri á milli okkar tveggja eru stórlega ýktar. Við unnum sam- an hjá félaginu í tíu ár og áttum nutum oft mikillar velgengni,“ sagði þjálfarinn. Sjálfur dró Grun- feld úr sögusögnum af ósættinu og sagði fyrir leikinn að þetta væri í fyrsta sinn í nítján ár sem hann óskaði New York ósigurs. New York var fimm stigum undir er 55 sekúndur lifðu leiks. Sprewell tók þá völdin og veiddi villu á Ervin Johnson. Hann skoraði úr báðum vítum og munurinn varð því þrjú stig. Eftir að J.R. Reid hafði mis- notað skot fyrir Milwaukee, mistókst Allan Houston að jafna metin með þriggja stiga skoti. Bolt- inn var á leið útaf vellinum, en Johnson náði honum og henti hon- um beint til Charlie Ward. „Það var slæm ákvörðun af minni hálfu. Ég vildi ekki að boltinn færi útaf. Ég vissi ekki hvert ég var að henda boltanum. Þetta voru mikil 'mistök," sagði Johnson. Wai’d fór með boltann út fyrir • þriggja stiga línuna og sendi á ' Sprewell, sem skoraði frá hægri vængnum og stökk í fang Patricks Ewing á varamannabekknum. Þetta var fyrsta þriggja stiga karfa Sprewells á keppnistímabilinu. „Ég hugsaði ekká um öll skotin sem höfðu farið forgörðum. Ég vildi bara hitta úr þessu skoti,“ sagði Sprewell. Hann skoraði síðan góða körfu strax í upphafi framlengingar og eftir það litu Knicks aldrei um öxl. Camby var einnig lykilmaður í sigri liðsins í fyrrinótt, skoraði átta stig í síðasta leikhlutanum og var eins og klettur í vörninni, varði skot og tók góð fráköst, jafnvel þótt hann hafi snúið sig á ökkla um miðjan leikhlutann. „Hann er mun ákveðnari en í fyrra,“ sagði Chris Childs, leikstjórnandi New York um Camby. „Ef honum mistókst skot í fyrra varð hann oft neikvæð- ur, en núna tekur hann á rás í vörn- ina og reynir að bæta fyrir mistök sín með góðum varnarleik.“ „Við unnum þennan leik á barátt- unni. Sigurlöngun okkar var sterk- ari undir lokin. Við gáfumst ekki upp, minnkuðum muninn og síðan skoraði Latrell þessa gríðarlega mikilvægu þriggja stiga körfu,“ sagði Camby. Allan Houston var stigahæstur New York, skoraði þrjátíu stig - öll í fyrstu þremur leikhlutunum. Glenn Robinson skoraði 23 stig fyrii’ Milwaukee. Iverson tók við sér Allen Iverson, leikstjórnandi Philadelphia 76ers í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik, rak loks af sér slyðruorðið er lið hans vann fyrsta sigur sinn á leiktíðinni. KORFUKNATTLEIKUR Það lagði Seattle SuperSonics, 117:98, í fyrsta heimaleik sínum á keppnistímabilinu. Þetta var fyrsta tap Seattle. Iverson, stigakóngur síðasta tímabils sem hafði ekki náð sér á strik í fyrstu þremur leikjum liðsins, skoraði 37 stig og tók níu fráköst. Philadelphia hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum, öllum á útivelli, en í þeim hafði Iverson að vísu skorað tuttugu stig að meðal- tali, en aðeins hitt úr þriðjungi skota sinna. Hann hitti úr fjórtán af 29 skotum í fyrrinótt og gerði sautján stig í fjórða og síðasta leik- hlutanum, en í honum gerðu heima- menn 39 stig gegn nítján stigum Seattle. „Það hlaut að koma að því að færu að skjóta á körfuna," sagði Paul Westphal, þjálfari Seattle. „Ég óska þess að þeir hafi beðið að- eins lengur með það.“ Gary Payton var atkvæðamestur gestanna með 28 stig. Larry Hughes gerði 27 stig, en hann hefur aldrei áður gert svo mörg stig í NBA-deildinni. Þetta var fyrsti sigur Philadelphia á Seattle síðan í desember árið 1992. Félagið hafði skorað minnst allra NBA-liða eftir fyrstu þrjá leikina, aðeins skorað 79 stig að jafnaði, en gegn Seattle skoraði það 69 stig í síðari hálfleik. Liðið er án hinna há- vöxnu Theos Ratliff og Matts Gei- ger um þessar mundir vegna meiðsla. urðu 102:97. Þetta var tíundi sigur Orlando á Houston í röð. Gatling skoraði úr tveimur vítaskotum er fjórar og hálf mínúta var eftir, en þá höfðu heimamenn gert tíu stig í röð án þess að Orlando næði að svara. Eftir það gerðu gestirnir þrettán stig gegn fjóium stigum Houston, tvöfaldra NBA-meistara á þessum áratug sem hafa enn ekki unnið leik á keppnistímabilinu. Þeir hafa tapað öllum fjórum leikjum sínum, sem þeir hafa ekki gert síðan 1982. Hinn gamalreyndi Charles Barkley skoraði átján stig fyrir Houston og tók sautján fráköst, en gerði afdrifarík mistök undir lokin er hann tapaði boltanum. Hakeem Olajuwon misnotaði vítaskot er sextán sekúndur voru eftir og missti þannig af tækifæri á að minnka muninn í eitt stig. Orlando gerði fjögur síðustu stig leiksins. Raef LaFrentz gerði 24 stig og Nick Van Exel skoraði 23 stig og gaf tuttugu stoðsendingar fyrir Denver Nuggets, sem vann Atlanta Hawks á heimavelli, 115:100. Heimamenn gerðu þrjátíu stig gegn 19 stigum Atlanta í síðasta leikhlutanum. Isaiah Rider skoraði 28 stig fyrir gestina, en auðnaðist ekki að skora úr fjórum þriggja stiga skotum sínum. Raunar skoraði Atlanta-liðið enga einustu þriggja stiga körfu í leiknum. Karl Malone fór fyrir Utah Jazz, sem sótti gull í greipar Los Angeles Clippers á vesturströndinni. Ma- lone skoraði 24 stig og tók níu frá- köst, en lokatölur urðu 94:79. Jeff Hornacek gerði sextán stig og John Stockton skoraði ellefu stig, gaf tíu stoðsendingar og tók sex fráköst. Maurice Taylor var atkvæðamestur heimamanna með 23 stig, en nýlið- anum Lamar Odom, sem hafði skorað 23,7 stig að jafnaði, var haldið algerlega niðri af Malone og félögum hans í Utah-vörninni. Odom skoraði tíu stig. Versta byrjun Houston í sautján ár Houston Rockets tapaði enn og aftur er liðið tók á móti Orlando Magic í Texasríki. Chris Gatling skoraði 22 stig og tók sextán frá- köst fyrir Flórídaliðið, en lokatölur IRB mætir Huima í næstsíðustu umferð Reykjanesliðið ÍRB, sem myndað er af leikmönnum íslandsmeistara Keflavíkur og bikarmeistara Njarðvík- ur, leikur gegn finnska liðinu Huima ytra í næstsíðustu umferð riðlakeppni Korac-bikarkeppninnar í körfuknattleik í kvöld. Liðið á ekki lengur möguleika á að komast áfram í 32-liða úrslit hennar, því eftir tap á heimavelli fyrir sviss- neska liðinu Lugano í síðustu viku á IRB ekki lengur möguleika á að ná öðru sætinu í K-riðli, einum sextán undan- riðla keppninnar. Svisslendingamir hafa tryggt sér það og gætu jafnvel skákað Nancy frá Érakklandi, sem er taplaust. Suðurnesjamennirnir báru sigurorð af Huima, liðinu sem þeir mæta á úti- velli í kvöld, 84:76, í fyrri umferð riðla- keppninnar. Það var síðasti leikur Reylganessliðsins í keppninni með tvo erlenda leikmenn, því í kjölfarið leystu Njarðvíkingar Bandaríkjamanninn Purnell Perry undan samningi sínum. Erlendir staðgenglai’ hans eru ekki gjaldgengir í keppnina, hvorki Jason Hoover né Donell Morgan. Huima hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum í riðlakeppninni. Auk þess að eiga heimaleik eftir gegn IRB hefur það enn ekki leikið gegn Lugano í Sviss. Það mun því án efa freista þess að lyfta sér af botni riðilsins og koma fram hefndum eftir tap í Keflavík. Huima er í fjórða sæti finnsku úrvals- deildarinnar, hefur unnið fimm leiki og tapað fjórum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.