Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
SUND
SH bar ægishjálm
yfir önnur félög
Sigraði í bikarkeppni SSI fimmta árið í röð og setti stigamet
SUNDFÉLAG Hafnarfjarðar undirstrikaði yfirburði sína enn einu
sinni með því að hampa bikarmeistaratitlinum fimmta árið í röð
er bikarkeppni SSÍ fór fram í Sundhöll Reykjavíkur um helgina.
Félagið hafði mikla yfirburði, setti nýtt stigamet og nældi í
rúmlega tvö þúsund stigum meira en Ægir, sem varð í örðu
sæti. Kefvíkingar urðu í þriðja sæti, rúmlega þúsund stigum á
eftir Ægi. ÍA og Njarðvík féllu í 2. deild og KR og Breiðablik
taka sæti þeirra á næsta bikarmóti. Þrjú íslandsmet féllu á
mótinu og þrjú unglingamet.
FOLK
■ BIRKIR Már Jónsson úr Kefla-
vík setti sveinamet í 200 m skrið-
sundi, synti á 2:19.43 mín. Eldra
metið var 2:19.78 mín. sem Gunnar
Steinþórsson, UMFA, átti frá 1996.
■ BREIÐABLIK keppti í fyrsta
sinn í 15 ár í bikarkeppninni undir
eigin merki. Á síðustu árum hafa
sunddeildir félaganna í UMSK
(Breiðabliki, Afturelding og
Stjarnan) keppt sameinuð undir
merkjum UMSK.
■ EYDIS Konráðsdóttir, sundkona
úr Keflavík, keppti ekki í bikar-
keppni SSÍ um helgina þar sem
hún æfir í Ástralíu. Ríkarður Rík-
arðsson, Ægi, var einnig fjarri
góðu gamni því hann æfir í Banda-
rikjunum og Halldóra Þorgeirs-
dóttir, SH, æfir með danska liðinu
Óðinsvé og keppti með liðinu í
dönsku bikarkeppninni um helgina.
■ FRAMUNDAN eru þrjú alþjóð-
leg meistaramót í sundi sem ís-
lenskir keppendur taka þátt í. Þau
eru: Evrópumeistaramót í 25 m
laug sem fram fer 9.-12. desember
í Portúgal og Norðurlandamót
unglinga á sama tíma í Sviþjóð.
Síðan mun afreksfólkið reyna við
ólympíulágmörkin á sundmóti í
Danmörku í lok janúar.
■ ORN Arnarson úr SH hlaut
Sundhallarbikarinn, sem gefinn
var af Sundhöll Reykjavíkur í til-
efni 50 ára afmælis laugarinnar
1987. Hann er veittur fyrir beta
sundafrek í Sundhöllinni, sam-
kvæmt stigatöflu, síðasta keppnis-
tímabil. Hann fékk bikarinn fyrir
100 metra baksund, sem hann
synti á 55,72 sek. í bikarkeppni SSI
í fyrra.
■ BERGLIND Bárðardóttir úr SH
hlaut Stigabikar SSÍ, sem veittur
er fyrir mestu bætingu á milli fs-
Iandsmóta í 50 metra laug.
Yfirburðir Hafnfirðinga komu
ekki á óvart því vösk sveit
þeirra er skipuð flestum af bestu
sundmönnum lands-
ValurB. ins. Það er greini-
Jónatansson ]ega vel haldið á
skrífar málum sundfélags-
ins og fátt í farvatn-
inu sem virðist geta breytt því á
næstu árum. Uppskeran var eins
og sáð hefur verið til undanfarin ár
af enska þjálfaranum, Brian Mars-
hall.
SH hlaut samtals 30.476 stig,
Ægir kom næstur með 28.267 stig
og Keflavík í þriðja með 26.932
stig. Þá Ármann með 24.141 stig og
síðan ÍA með 22.324 stig og Njarð-
vík rak lestina með 21.720 stig. ÍA
og Njarðvík féllu í 2. deild en sæti
þeirra taka KR og Breiðablik. Stig
eru gefin eftir árangri, en ekki eftir
sætum. Það er því tími sundfólks-
ins sem ræður stigafjölda fyrir
hvert sund, en ekki sætaskipan.
íslandsmet
Jakob Jóhann Sveinsson úr Ægi
var maður mótsins. Hann setti
glæsilegt íslandsmet í 200 metra
bringusundi, synti á 2.14,52 mín. og
bætti met Hjalta Guðmundssonar
frá þvi 1997 um rúmlega tvær sek-
úndur. Hann setti einnig piltamet í
greininni og það gerði hann einnig
í 100 metra bringusundi, synti á
1.03,66 mín. Þá var hann í sveit
Ægis sem setti piltamet í 4x100
metra skriðsundi.
Lára Hrund Bjargardóttir úr
SH setti Islandsmet í 200 metra
skriðsundi, synti á 2.03,33 mín. og
bætti met Eydísar Konráðsdóttur
um 0,34 sek. Lára var einnig í sveit
SH sem setti íslandsmet í 4x100
m fjórsundi, sem synti á 4.26,77
mín. en eldra metið átti SH og var
4.27,46 mín. Þá sigraði hún í 200 m
fjórsundi og 100 m skriðsundi.
Örn öryggið
uppmálað
Sundkappinn Örn Arnarson úr
SH sigraði örugglega í sínum
greinum, 100 og 200 metra
baksundi, eins og vænta mátti og
eins í 200 m fjórsundi. Hann hefur
verið í erfíðum æfingum undan-
farnar vikur og því lét hann ís-
landsmetin bíða betri tíma. Tími
hans í 100 metra baksundinu var
reyndar athyglisverður, 54,53 sek.,
sem er aðeins 0,82 sek. frá Is-
landsmeti hans. Þessi árangur ætti
að vera góð vísbending fyrir Evr-
ópumótið í Portúgal í næsta mán-
uði, en þar hefur hann titil að
verja.
Stemmningin í Sundhöllinni var
gífurleg eins og ávallt á bikarmót-
um. Stuðningsmenn félaganna fjöl-
menntu á laugarbakkann, hvöttu
fulltrúa sína til dáða og hávaðinn
var á köflum ærandi.
Aðstaðan í Sundhöllinni er hins
vegar ekki upp á marga fiska, h'tið
pláss fyrir áhorfendur og eins vant-
aði tímatöflu svo auðveldara væri að
fylgjast með tímum keppenda. En
þess verður vart langt að bíða að úr
rætist því ný 50 metra innilaug f
Laugardalnum er komin á teikni-
borðið hjá Reylqavíkurborg.
■ Úrslit /C10
■ Staðan / C10
Sjö fara á
EM í Portúgal
SJÖ Islendingar verða á
meðal keppenda á Evrópu-
meistaramótinu f sundi (25
metra laug) sem fram fer í
Lissabon í Portúgal 9.-12.
desember. Þetta eru: Örn
Arnarson, Elín Sigurðardótt-
ir, Lára Hrund Bjargardóttir
og Ómar Snævar Friðriks-
son, öll úr SH, Kolbrún Ýr
Krisljánsdóttir, IA, Jakob Jó-
hann Sveinsson, Ægi, og
Friðfínnur Kristinsson, Sel-
fossi.
Norðurlandamót unglinga
fer fram sömu helgi í Sví-
þjóð. Þau sem keppa þar eru:
Iris Edda Heimisdóttir, Sæv-
ar Örn Sigurjónsson og Hall-
dór Karl Halldórsson, Kefla-
vík, Þuríður Eiríksdóttir og
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Breiðabliki, og Hjörtur Már
Reynisson, Ægi.