Morgunblaðið - 25.11.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.1999, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1999 ÚRSLIT MORGUNBLAÐIÐ 4- MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1999 C 3,, ÍÞRÓTTIR HANDKNATTLEIKUR Örendi þraut í Kænugarði FRIÐRIK Ingi Rúnarsson mátti þola tap í frumraun sinni sem þjálfari islenska landsliðsins í körfuknattleik, en það beið lægri hlut fyrir Úkraínu, 66:44, í gærkvöldi. Eftir að hafa minnkað muninn í sex stig með góðum leik féll íslenska liðinu allur ketill í eld og gerði aðeins tvö stig áður en yfir lauk á meðan Úkraínu- menn gerðu átján stig og innsigluðu sigur sinn. Þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins í undankeppni Evrópumóts landsliða, en það tekur á móti liði Belgíu, þriðja liðinu í riðlinum, í Laugardals- höll á laugardag. Handknattleikur Haukar - Valur 30:26 íþróttahúsið í Strandgðtu, íslandsmótið í handknattleik, 1. deild karla, (Nissan-deild- in), 10. umferð, miðvikud. 24. nóv. 1999. Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:2, 5:5, 8:8, 10:8, 11:11, 15:12,17:13, 20:17, 22:18, 23:19,25:19, 26:21, 27:23, 28:24, 30:26. Mörk Hauka: Jón Karl Bjömsson 8/3, Sig- urður Þórðarson 5, Halldór Ingólfsson 4, Aliaksandr Shamkuts 4, Óskar Ármannsson 3, Kjetil Ellertsen 2, Petr Baumruk 1, Sig- urjón Sigurðsson 1, Einar Gunnarsson 1, Gylfí Gylfason 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 18/1, þar af 9 aftur til mótherja. Jónas Stefánsson 1/1. Utan vallar: 10 mínútur. Rautt spjald: Sigurjón Sigurðsson er um mínúta var eftir af leiknum. Mörk Vals: Júlíus Jónasson 6/1, Freyr Brynjarsson 5, Sigfús Sigurðsson 4, Markús Michaelsson 4/2, Snorri Guðjónsson 3, Davíð Ólafsson 1, Daníel Ragnarsson 1, Geir Sveinsson 1, Bjarki Sigurðsson 1. Varin skot: Axel Stefánsson 3, þar af eitt til mótherja. Stefán Hannesson 4. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Hlynur Leifsson og Anton Páls- son, voru mistækir. Áhorfendur: 350. Haukar - Víkingur 18:18 íþróttahúsið við Strandgötu, íslandsmótið í handknattleik - 1. deild kvenna, 9. umferð, miðvikudaginn 24. nóvember 1999. Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 3:3, 6:3, 9:6, 9:8, 11:8, 12:9, 12:11, 12:12, 13:12, 13:15, 14:15, 14:17,16:17,16:18, 18:18. Mörk Hauka: Hanna G. Stefánsdóttir 7/3, Harpa Melsteð 3, Tinna Halldórsdóttir 2, Auður Hermannsdóttir 2, Inga Fríða Tryggvadóttir 2, Thelma Björk Árnadóttir 1, Sandra Anulyte 1. Varin skot: Hjördís Guðmundsdóttir 9 (þar af fóru tvö aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Víkinga: Guðmunda Kristjánsdóttir 6, Kristín Guðmundsdóttir 4/2, Heiðrún Guð- mundsdóttir 3, Eva Halldórsdóttir 3, Helga Bima Brynjólfsdóttir 2. Varin skot: Helga Torfadóttir 31/2 (þar af fóru 15 aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Ólafur Haraldsson og Guðjón L. Sigurðsson, nokkuð vantaði á samræmi í dómum þeirra. Áhorfendur: Um 120. Grótta/KR - Stjarnan 20:14 Iþróttahúsið Seltjarnarnesi: Mörk Gróttu/KR: Alla Gorkorian 6, Ágústa Edda Bjömsdóttir 6, Ólöf Indriðadóttir 2, Eva Þórðardóttir 1, Edda Hrönn Kristins- dóttir 1, Kristín Þórðardóttir 1, Ragna K. Sigurðardóttir 1, Sæunn Stefánsdóttir 1, Valdís Fjölnisdóttir 1. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Stjörnunnar: Nína K. Björnsdóttir 7, Margrét Vilhjálmsdóttir 2, Ragnheiður Stephensen 2, Þóra B. Helgadóttir 2, Anna B. Blöndal 1. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Guðmundur Erlendsson og Tómas Sigurdórsson. UMFA-ÍR 14:28 Iþróttahúsið að Varmá: Mörk UMFA: Jolanta Limbaite 6, Inga Mar- ía Ottósdóttir 4, Edda Eggertsdóttir 2, Ingi- björg Magnúsdóttir 1, Sigurbjörg Kristjáns- dóttir 1. Utan vallar: 2 mínútur. Mörk ÍR: Katrín Guðmundsdóttir 10, Inga Jóna Ingimundardóttir 5, Anna M. Sigurð- ardóttir 4, Hrund Scheving Sigurðardóttir 4, Ingibjörg Jóhannsdóttir 3, Heiða Guð- mundsdóttir 2. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Guðmundur Stefánsson og Árni Sverrisson. FH - Fram 31:23 Kaplakriki: Mörk FH: Dagný Skúladóttir 11, Drífa Skúladóttir 6, Björk Ægisdóttir 6, Þórdís Brynjólfsdóttir 3, Guðrún Hólmgeirsdóttir 3, Gunnur Sveinsdóttir 1, Harpa Vífílsdóttir 1. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Fram: Marina Zoveva 7, Katrín Tóm- asdóttir 4, Björk Tómasdóttir 4, Hafdís Guðjónsdóttir 4, Díana Guðjónsdóttir 2, Svanhildur Þengilsdóttir 1, Ásta Malmquist 1. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og Gísli Jóhannsson. Knattspyma Meistaradeild Evrópu C-riðilI: Rosenborg - Bayern MUnchen .........1:1 Bent Skammelsrud 47. - Carsten Jancker 10.15.000. Dynamo Kiev - Iteal Madrid..........1:2 Serhiy Rebrov 85., vítaspyrna - Femando Morientes 17., Raul Gonzalez 48.15.000. D-riðiII: MarseiIIe - Lazio ..................0:2 - Dejan Stankovic 64., Sergio Conceicao 78. 55.000. Chelsea Feyenoord ..................3:1 Celestine Babayaro 45., Tore Andre Flo 67., 86. - Julio Cruz 90. 29.7Ó4. England 1. deild: Ipswich - Wolverhampton .........1:0 Manchester City - Barnsley.......3:1 Nottingham Forest - Portsmouth....2:0 2. deild: Reading - Burnley.................0:0 Skotland Hibemian - St Johnstone .........0:1 - Graeme Jones 17. 9.434. ■ Ólafur Gottskálksson lék ekki í marki Hi- bernian í leiknum. Fáir bjuggust við sigri íslenska liðsins fyrir viðureignina. Landslið Ukraínu er mikils metið og þjálfarar þess hafa úr miklu úr- vali góðra leikmanna að velja. Peir fengu óskabyrjun gegn íslending- um og höfðu náð tíu stiga forskoti, 11:1, er rúmar þrjár mínútur voru liðnar af leiknum. Smám saman náðu Islendingar tökum á sóknar- leiknum og minnkuðu muninn fljót- lega í fjögur stig. Eftir það var jafn- ræði með liðunum, en heimamenn juku forskot sitt jafnt og þétt. Mun- urinn var orðinn sautján stig ENSKA liðið Chelsea, Lazio frá Rómaborg og spænska liðið Real Madrid unnu öll sannfær- andi sigra í upphafi annars áfanga riðlakeppni meistara- deildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. í fjórða leik kvölds- ins sýndi norska liðið Rosen- borg enn klærnar er það jafn- aði metin eftir að hafa lent undir á heimavelli gegn þýska liðinu Bayern Múnchen, sem lék til úrslita í keppninni við Manchester United sl. vor. ehelsea er enn ósigrað á heima- velli í Evrópukeppni, tók fyrst þátt árið 1958. Þessi sigurganga virtist ekki í hættu af gangi mála að dæma í leik liðsins við Feyenoord, hollenskan keppinaut sinn í D-riðli, á Stamford Bridge í gærkvöldi. Chelsea sigraði örugglega, 3:1, en gerði sig líklegt til að gera enn fleiri mörk. Leikmenn Chelsea áttu rúmlega þrjátíu skot að marki hollenska liðs- ins. Alger einstefna ríkti í fyiTÍ hálf- leik, en heimamönnum tókst ekki skora fyrr rétt áður dómarinn blés til leikhlés. Það var Nígeríumaður- inn Celestine Babayaro sem braut ísinn. Þrátt fyrir að hafa lent undir héldu leikmenn Feyenoord sig aft- arlega á vellinum. Norðmaðurinn Tore Andre Flo skoraði tvívegis, fyrst á 67. mínútu og aftur fjórum mínútum fyrir leikslok. Hollenska liðið klóraði lítið eitt í bakkann á lokasekúndum leiksins með marki Julio Cruz. Lazio hlaut uppreisn æru Rómarliðið Lazio sneri blaðinu við að hafa fengið skell gegn ná- grönnum sínum og erkifjendum í ítölsku deildarkeppninni, AS Roma, og bar sigurorð af Marseille í Frakklandi, 2:0. Líkt og Chelsea gerði ítalska liðið sig líklegt til að skora snemma leiks, þótt það hafi ekki tekist fyrr en eftir 63 mínútur. Þar var Dejan Stankovic að verki. Sergio Conceicao bætti síðara markinu við fjórtán mínútum síðar. Real Madrid hafði öllu snarari handtök í nístingskulda í Kænu- snemma í síðari hálíleik, en þá tók íslenska liðið sig til og skoraði ellefu stig í röð - minnkaði muninn í sex stig, 48:42. Nær komst það ekki. Liðið þraut örendi og gaf eftir í sóknarleiknum, sem hafði gengið svo vel skömmu áður, og tapaði boltanum oft á lokakaflanum. Heimamenn gengu á lagið og náðu mörgum hraðaupp- hlaupum, sem þeim varð ekki skota- skuld úr að nýta og gulltryggja þannig sigur sinn. Athygli vekur að íslenska liðið fór halloka bæði í upphafi leiksins og á garði, þar sem liðið lagði úkraínska liðið Dynamo Kiev, 2:1. Femando Morientes skoraði eftir sautján mín- útna leik, sem hófst eftir að um eitt þúsund hermenn höfðu unnið daglangt við að moka snjó af velli Olympíuleikvangsins, en þá var um ellefu gráða frost á svæðinu. Raul Gonzalez bætti öðru marki við í upp- hafi síðari hálfleiks. Heimamenn virtust ekki líklegir til afreka, þótt þeir hefðu eflaust leikið oftar í við- líka kulda, en Seghiy Rebrov minnk- aði þó muninn í eitt spark úr víta- spymu fimm mínútum fyrii' leikslok. Þetta var annar sigur Real Ma- drid-liðsins undir stjórn Vicentes del Bosques eftir að félagið leysti John Toshack frá störfum. Del Bosque fór fögrum orðum um frammistöðu liðs síns og sagði hana hetjulega. lokasprettmum. Eins og áður segir var staðan 11:1 snemma leiks, en jafnframt gerðu gestimir frá Is- landi aðeins tvö stig gegn átjón stig- um Ukraínu undir lokin. Þess á milli gerðu Islendingar tveimur fleiri stig en gestgjafar þeirra. Friðrik Ingi Rúnarsson stjórnaði íslenska landsliðinu í fyrsta sinn í gær. Hann sagði lið Úkraínu hafa komið sér á óvart. „Þetta lið virkaði miklu frískara en ég átti von á. Eg átti einhvem veginn von á einhverj- um stóram og klunnalegum leik- mönnum, sem hafa leikið fyrir Úkraínu í gegnum árin. Þeir vora stórir margir hverjir, en gátu hreyft sig vel og voru að sumu leyti frísk- ari eða ferskari en ég átti von á,“ sagði Friðrik Ingi. Stig íslands: Fannar Ólafsson 13, Herbert Amarson 12, Guðmundur Bragason 9, Jónatan Bow 5, Friðrik Stefánsson 2, Falur Harðarson 2. Fyrir þremur áram sagði þýski „keisarinn" Franz Beckenbauer að Rosenborg ætti ekki heima í úrvals- hópi evrópskra félagsliða. Á þriðju- dag baðst hann afsökunar og sagði lið sitt, Bayern Munchen, sem hann kvað raunar vængstýft vegna meiðsla, vel geta sætt sig við jafn- teíli á heimavelli norska liðsins. Orð hans áttu vel við, því niðurstaðan varð einmitt jafntefli. Carsten Jancker kom Þjóðverjunum yfir eft- ir aðeins tíu mínútna leik, en Bent Skammelsrad jafnaði er tvær mín- útur vora liðnar af síðari hálfleik. Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, sagðist hafa orðið fyrir vonbrigðum. „Við verðskulduðum að ná forystunni, en gleymdum síð- an að innsigla sigurinn. Við réðum gangi mála en köstuðum tveimur stigum á glæ,“ sagði hann. Chelsea bar ægis- hjálm yfir Feyenoord Reuters Tore Andre Flo gerði tvö mörk fyrir Chelsea, sem bar sigurorð af Feyenoord, 3:1, á Stamford Bridge f Lundúnum í gær. Leik- menn Chelsea áttu meira en þrjátíu markskot og hefðu getað gert mun fleiri mörk. Morgunblaðið/Arni Sæberg Valsmenn áttu í erfiðleikum með að hemja Sigurð Þórðarson sem gerði fimm mörk í gærkvöld. Hér hafa Júlíus Jónasson, Geir Sveinsson og Freyr Brynjarsson slegið skjaldborg um Sigurð í von um að stöðva hann. Valur gaf frá taumhaldið Þjóðverjar af- þökkuðu boð Englendinga ÞJÓÐVERJAR eru ekki tilbúnir að leika vináttulandsleik í knattspyrnu við Englendinga á Wembley í maí eða júní. Þeir segja að of stutt sé þá í Evr- ópukeppni landsliða í Belgíu og Hollandi. Englendingar telja að ástæðumar séu aðrar fyrir höfnun Þjóðveija en EM - þeir telja að ástæðan sé sú að Englendingar og Þjóðverjar séu að beijast um að fá HM 2006 og þar af leiðandi vilja Þjóð- veijar ekki leika á Wembley. England leikur vináttulandsleik við Argentínu á Wembley 23. febrúar og þá er ljóst að Englendingar leiki við Hollendinga á mars eða aprfl. Fyrir utan þessa tvo leiki ætla Englending- ar að fá tvo aðra æfingaleiki fyrir EM. Leifur dæmir hjá Fali og félögum LEIFUR Garðarsson, körfuknattleiks- dómari, hefur verið tilnefndur af Al- þjóða körfuknattleikssambandinu (FIBA) til þess að dæma tvo leiki fínnskra Iiða í Evrópukeppni. Um er að ræða leiki Honka og Avtodor frá Rússlandi og ToPo, sem Falur Harð- arson leikur með, og Radnicki Ju- gopetrol frá Júgóslavíu. Báðir leikirn- ir sem Leifur dæmir fara fram í Finn- landi. Leifur verður annar íslenskur dóm- ari til þess að dæma leik hjá Fali og félögum í ToPo en Kristinn Óskars- son dæmdi hjá liðinu í haust. Þá dæmdi Leifur ly'á Helga Jónasi Guð- fínnssyni og félögum í Antwerpen fyrir skömmu. HAUKAR unnu sannfærandi sigur á Valsmönnum er liðin áttust við í Strandgötu í Hafnarfirði í gærkvöld. Mest munaði þar um að sóknarleikur liðsins gekk vel fyrir sig og að Magnús Sigmunds- son, markvörður liðsins, hrökk í gang og varði vel í síðari hálf- leik. Valsmenn, sem höfðu unnið Hauka í bikarkeppni fyrir tæpri viku með góðum varnarleik, áttu nú undir högg að sækja mestan hluta leiksins og slakur varnarleikur og markvarsla liðsins varð Hlíðarendaliðinu að falli. Haukar voru sérlega grimmir í vörn í upphafi leiks, svo mikill var ákafi þeirra að Kjetil Ellertsen fékk tveggja min- Qisii útna brottvísun í Þorsteinsson fyi'stu sókn leiksins skrifar og ans feng-u Hauk- ar brottvísun í þrí- gang til viðbótar í fyrri hálfleik. Valsmönnum, sem höfðu unnið Hauka í bikarkeppni 21:20 fyrii' rúmri viku á sama stað, tókst að leysa sóknarleik sinn ágætlega af hendi framan af leik og héldu í Hauka allt þar til undir lokin er síð- ustu fjórar sóknir liðsins fóra for- görðum. Haukar náðu þriggja marka forskoti og héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik enda fyrir- staða Valsmanna í vörn lítil og Hafnfirðingar fengu næði til þess að athafna sig í skotum. Eftir jafnan fyrri hálfleik fór Magnús markvörð- ur Hauka í gang og er um 10 mínút- ur lifðu af síðari hálfleik voru heimamenn í raun búnir að gera út um leikinn, en þá var staðan 25:19. Síðustu mínúturnai' riðlaðist leikur beggja liða og óðagot í sókn var áberandi en sigur heimamanna var aldrei í hættu. „Við vorum staðráðnir í að láta Valsmenn ekki fara aftur með sigur af hólmi í annað sinn á skömmum tíma,“ sagði Oskar Armannsson, leikmaður Hauka „Eg tel að við höf- um leikið vel í þetta sinn og það má sérstaklega geta frammistöðu Sig- urðar Þórðarsonar, sem hrökk í gang og gerði Valsmönnum erfitt fyrir.“ Oskar sagði að Haukar hefðu leikið 3:3-vörn til þess að hleypa baráttu í leik liðsins og kvaðst ekki frá því að varnarleikur liðsins hefði komið Valsmönnum í opna skjöldu. „Það var mikilvægt að vinna örugg- an sigur eftir að hafa tapað leik,jum naumlega að undanförnu. Þessi keppni er sérlega jöfn og því er hvert stig mikilvægt þegar upp er staðið.“ Júlíus Jónasson, fyrii'liði Vals, sagði alltaf dapurt að tapa og slæmt að fá á sig 30 mörk í einum leik. Hann taldi að margt þyrfti að laga í leik liðsins. „Við lékum ekki sem liðsheild enda uppskáram við eftir því. Fyrir viku lékum við góðan varnarleik og markvarslan var þá að sama skapi góð en þessir þættir voru ekki til staðar í dag. Ef við leikum ekki góðan varnarleik komust við ekki langt. Það er ljóst að margt þarf að laga í leik Vals og við verðum að hafa hraðar hendur því tíminn vinnur ekki með okkur. Við verðum einfaldlega að berja okkur saman og koma vel undirbún- ir í næsta leik.“ Svíar undirbúa sig fyrir EM SVIAR, sem hafa titil að verja á Evrópumeistaramótinu í hand- knattleik í Króatíu 21.-30. janúar, taka þátt í fjögurra landa inóti 14.-16. janúar. I mótinu taka einnig þátt Danir, Frakkar og Egyptar. Leikirnir fara fram á Skáni og Sjálandi og verður leikið í Helsingborg, Krisianst ad og Malmö. Svíar eru í sama riðli og Islendingar á EM ásamt Rússum, Dönum, Portúgölum og Slóvenum. Fyrsti leikur Islendinga í Evrópukeppninni verður gegn Svíum 21. janúar í bænum Ryeka. Magdeburg í 3. sæti ÞYSKA handknattleiksliðið, Magdeburg, undir sljórn Alfreðs Gíslasonar, komst íþriðja sæti þýsku 1. deildarinnar í hand- knattleik með 21:20 sigri á Bad Schwartau á útivelli. Ólafur Stefánsson var óveiyu rólegur í leiknum - skoraði aðeins tvö mörk fyrir Magdeburg. Liðið hefur nú 18 stig að loknum 12 leikjum. Dagur Sigurðsson skoraði 5 mörk, þar af 1 út vítakasti, er Wuppertal tapaði heima fyrir efsta liði deildarinnar, Flens- burg-Handewitt, 29:22. Valdimar Grímsson og Heiðmar Felix- son voru ekki á meðal markaskorara Wuppertal að þessu sinni. Nordhorn, með Guðmund Hrafnkelsson innanborðs tap- aði 26:22 fyrir Lemgo á útivelli og hefur Nordhorn heldur misst flugið upp á síðkastið eftir góða byrjun á leiktiðinni. Er liðið nú í 7. sæti með 16 stig eftir 13 leiki. Onnur úrslit í þýska handknattleiknum í gær voru að Kiel burstaði Gummersbach á heimavelli, 27:14, og Grosswallstadt fór létt í gegnum leik sinn við Nettelstedt, lokatölur 27:15, en leikið var á heimavelli Nettelstedt. Helga varði 31 skot HELGA Torfadóttir fór á kostum í marki Víkinga, sem sóttu Hauka heim i Hafnarfjörðinn í gærkvöldi, og varði 31 skot en það dugði ekki til því Haukastúlkur náðu að vinna upp tveggja marka forskot gestanna sem reyndu að halda fengnum hlut síðustu 6 mínútur leiksins. Eftir stendur að Víkingur er enn eina ósigraða lið deildarinnar en Grótta/KR skaust á toppinn með 20:14 sigri á Stjörnunni. Víkingsstúlkum voru mislagðar hendur í byrjun og misstu bolt- ann ítrekað í hendur Hauka sem náðu fljótlega Stefán þriggja marka for- Stefánsson ystu, 6:3. En uppgjöf skrifar var a dagskrá og gestunum tókst hægt og bítandi að komast inn í leikinn og einu marki munaði í hálf- leik, 12:11. Víkingar voru komnir á bragðið og með enn meiri baráttu eftir hlé náðu þeir forystu á meðan hvorki gekk né rak hjá Haukum, vömin stóð að vísu fyrir sínu en eftir 15 sóknir höfðu þeir aðeins skorað tvö mörk. Þá tóku þjálfarar Hauka leik- hlé og það virtist hafa góð áhrif því liðið minnkaði muninn úr 14:17 í eitt mai'k, 16:17, á nokkrum mínútum og heldur færðist líf í tuskumar. Víkingsstúlkur ná tveggja marka forystu, 16:18, þegar um 5 mínútur vora til leiksloka og virtust ætla sér að halda fengnum hlut. Það þökk- uðu Haukastúlkur kærlega fyrir og jöfnuðu þegar 40 sekúndur vora til leiksloka en á meðan klúðruðu Vík- ingar sjö sóknum. Reyndar munaði minnstu að enn verr færi fyrir gest- unum þegar þeir misstu boltann í sókn þegar tíu sekúndur vora til leiksloka en Haukastúlkum tókst ekki að notfæra sér það. „Eg er mjög svekkt yfir þessum úrslitum,“ sagði Helga markvörður eftir leikinn en aðeins lyftist á henni brúnin þegar hún fékk að vita hvað mörk skot hefðu strandað á henni. „Við náðum að vinna upp forskot þeirra með gífurlegri baráttu en svo brugðust dauðafærin hjá okkur í lokin, verið getur að það hafi ruglað leik okkar þegar tvær vora teknar úr umferð,“ bætti Helga við en ásamt henni áttu Heiðrún Guð- mundsdóttir og Guðmunda Krist- jánsdóttii' góðan leik. Liðið allt fær prik fyrir góða baráttu en nokkur eru dregin af fyi-ir að tapa áttum á spennuþrangnum lokamínútum þegar sigur var innan seilingar. Haukastúlkur þurfa að taka á sig rögg ef þær ætla að fikra sig upp úr miðri deild. Verið getur að hér sé verið að gera kröfur en reynslu- miklir leikmenn liðsins eiga að geta betur. Vömin stendur að vísu fyrir sínu og varði ófá skot gestanna en " sóknarleikurinn var staður. „Eg er afar ósátt við leikinn því hann vai' eins og venjulega alltof sveiflu- kenndur hjá okkur,“ sagði Auður Hermannsdóttir eftir leikinn en hún, Hanna G. Stefánsdóttir og Harpa Melsteð vora bestar í annars jöfnu liði. Grótta/KR á toppnum Spútniklið 1. deildar kvenna, Grótta/KR, spáði Stjömuhrapi í auglýsingunum, sem liðið dreifði fyrir leikinn við Stjömuna í gær- kvöldi. Lengi vel leit ekki út fyrir að svo yrði og Garðbæingar höfðu 13:14 forystu í leikhlé en þá kom stjörnuhrapið, þegai' Stjarnan skor- . aði aðeins þrjú mörk eftir hlé á meðan Grótta/KR skoraði 7 og vann 20:14. FH-stúlkur era að rétta úr kútn- um og sigraðu Fram, 31:23, í Kaplakrika. Jolanta Slapikiene gaf tóninn þegar hún átti margar send- ingar þvert yfir völlinn enda fór svo að Hafnfirðingarnir skoraðu mest- an hluta marka sinna fyrir hlé úr hraðaupphlaupum. Þriðji sigur ÍR „Við áttum von á þeim brjáluðum eftir að hafa náð jafntefli við KA en sú varð ekki reyndin,“ sagði Inga Jóna Ingimundardóttir, sem skor- aði 5 mörk fyrir ÍR í 28:14 sigri á . UMFA í Mosfellsbænum í gær- kvöldi. Breiðhyltingar náðu strax góðri forystu og héldu henni út leikinn enda var sóknarleikinn tek- inn tökum. „Við erum fyrst og fremst varnarlið en það er oft svo að sóknarleikurinn verður betri í kjölfarið.“ Þróttarar Nú líöur að útkomu 50 ára afmælisbókarinnar. Enn er hægt að kom- ast á árnaðaróskalistann (Tabula Gratulatoria) og um leið tryggja sér fyrstu útgáfu bókarinnar. Pantanasímar er 580 5900 Gunnar Jón og 898 3921 Helgi. Þróttar, munið stólauppboðið á laugardagskvöld kl. 20 í nýja, félagshúsinu. Eflum samstöðuna og mætum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.