Morgunblaðið - 26.11.1999, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 B Q
ORGARA
MEÐ teppin úr Jónsbók upp á
vegg í handavinnustofunni á
Sléttuveginum leið ekki á löngu
þar til konurnar fóru að ræða um
það sín á milli að gaman væri að
takast aftur á við áþekkt verkefni.
Þær áttu smáræði afgangs til að
fjármagna efniskaup og réðu nú
ráðum sínum, enda fannst þeim
tilgangslaust að geyma peningana
á sparisjóðsbók.
Hulda Kristjánsdóttir viðraði þá
hugmynd að fá æskuvinkonu sína,
Evu Ríignarsdóttur, til skrafs og
ráðagerða um næsta viðfangsefni.
„Þótt Eva byggi ekki hér í húsinu
var hún flestum okkar að góðu
kunn enda mjög listræn og flink í
höndunum," segir Hulda.
Sem má til sanns vegar færa því
Eva starfaði Iengi sem sjálfboða-
liði við að leiðbeina öldruðum við
handavinnu í Norðurbrún. Hún
tók strax vel í málaleitan vinkonu
sinnar, kveðst hafa hlakkað til
samvinnunnar og þegar liafist
handa við að hanna veggteppi,
sem þær gætu saumað í samein-
ingu. Peningamir sem þær áttu í
handraðanum dugðu fyrir
strammanum. Meira þurftu þær
ekki því gamið, sem þær notuðu
voru „.. ýmsir afgangar að heim-
an,“_ eins og þær segja.
„í byijun var ekkert ákveðið
fyrirfram nema viðfangsefnið;
húsin í borginni, raunvemleg og
ímynduð. Eg byrjaði að sauma út-
línurnar í strammann án þess að
hafa fastmótaðar hugmyndir um
heildarmyndina í kollinum," segir
Eva „spilaði þetta eiginlega af
fingrum fram,“ bætir hún við og
viðurkennir að liafa stundum far-
ið í bíltúr gagngert til að skoða
kirkjur og önnur fögur hús borg-
arinnar.
Þótt þekkt hús, kirkjur og
kennileiti prýði veggteppið „Borg
und bláum himni“ er allt staðsett
að hætti Evu og kvennanna á
Sléttuveginum en ekki að hætti
raunverulegs borgarskipulags.
Svo dæmi sé tekið em háhýsi í
Þingholtunum höfð skáhallt til
hægri á bak við Fríkirkjuna og
einhvers staðar þar mitt á milli
fyrir framan er Næpan. „Síðan
bættust við jólatré hér og þar,
börn að Ieik og sitthvað smálegt
til að lífga upp á,“ segja þær.
„Enda er borgin alltaf að breyt-
ast,“ bætir Eva við, „ný hverfi
rísa, gömul hús era rifin og ný
koma í staðinn.“
Lóa stakk upp á að nefna vegg-
teppið Húsin í bænum eftir Ijóði
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hönnuðurinn Eva Ragnarsdóttir t.h. og Lóa Þorkelsdóttir, sem orti
ljóðið, hjá veggteppinu „Borg und bláum himni".
Tómasar Guðmundssonar og
sauma jafnframt ljóðið inn á milli
húsanna á teppinu. Hins vegar
þótti Evu ein Ijóðlínan, þar sem
segir að menn deyi frá hálfbyggð-
um húsum, helst til sorgleg. „Lóa
er skáldið í hópnum og því sagði
ég að hún yrði bara sjálf að yrkja
við myndina," segir Eva hlæjandi.
Lóa lét tilleiðast vegna áskorana
allra kvennanna og orti eftir-
farandi ljóð sem þær saumuðu síð-
an í teppið:
Borg und bláum himni
Svona er borgin bjarta
viðbláanvogogsund,
í hlýjum faðmi fjalla
svo fersk á morgunstund.
Hér ylja orkulindir,
hér anga blómatorg
því lífsins eldar loga
í landsins höfuðborg.
Hér dafnar andans orka,
viðeigum skólaogvöll.
Og borgarbömin reisa
ábjargitónahöll.
Og listasöfnin laða,
þaulýsaandanstorg,
en kirkjur okkar kalla
til kristni í gleði og sorg.
Þótt ekki eigi öll húsin sér fyrir-
myndir í raunvemleikanum vekur
athygli að eitt húsið á teppinu er
kyrfilega merkt tónlistarhús.
„Vinsamleg ábending til yfírvalda
um nauðsyn slíkrar byggingar,"
upplýsir Eva og segir jafnframt
að húsateppiðsé saumað í tilefni
ársins 2000. Enda er Reykjavík
árið 2000 og borgarmerkið saum-
að neðst í hægra hornið.
Öðruvísi
að ventukr ans ar
Full buð af gjafavörum
Símmúla 28 * 108 Reykjavik - Sími 568 0606
blómaverkstæði
INNA^
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Borgin bjarta við
bláan vog og sund
Hvíldarstóll úr leðri
kr. 65.900,-
I. HLBOB
A Husgogn
ir
Hvíldarstdll
úrtaui
kr. 39.900,-