Morgunblaðið - 10.12.1999, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
IBiorötmMaðÍð
B
1999
FOSTUDAGUR10. DESEMBER
BLAÐ
Þorbjöm Atli til
liðs við Fram
ÞORBJÖRN Atli Sveinsson skrifaði í gær undir
þriggja ára samning við Fram, en hann er hefur
verið hjá Bröndby í Danmörku siðasta hálft ann-
að árið. „Þorbjöm er alinn upp hjá félaginu og
við emm ánægðir með að hafa komist að sam-
komulagi við hann,“ sagði Erlendur Magnússon,
formaður leikmannanefndar Fram. „Þorbjöm
kemur frá Danmörku reynslunni ríkari og veit
hvað þarf til þess að vera í fremstu röð,“ sagði
Erlendur ennfremur. Þorbjörn er fjórði leik-
maðurinn sem gengur til liðs við Fram frá því að
leiktíðinni lauk í haust, hinir era Valur Fannar
Gíslason, Kristófer Sigurgeirsson og Fjalar Þor-
geirsson.
„Ég reikna ekki með því að við bætum við
okkur fleiri leikmönnum, nú er komin nokkuð
skýr mynd á þann hóp sem við ætlum að tefla
fram á næstu leiktíð,“ sagði Erlendur.
Eiríkur með
KNATTSPYRNA
stóríeik
EIRÍKUR Önundarson,
fyrram leikmaður ÍR og KR,
átti mjög góðan leik með lið-
inu Holbæk sem vann Sisu
77:64 í dönsku úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í fyrra-
kvöld. Hann var stigahæst-
ur í Iiðinu, gerði 25 stig og
tók sjö fráköst.
Sisu er talið eitt af þrem-
ur sterkustu liðum deildar-
innar. Leikur liðanna var
jafn Iengst af en Holbæk
hafði þó oftast með yfir-
höndina.
þegar hann
heyrði nafn
Islands
KONISHOKI, einn fræg-
asti kúmóglímumaður
Japans, sýndi skemmti-
legt látbragð þegar nafn
Islands kom upp úr liatt-
inum þegar dregið var í
riðla i undankeppni
heimsmeistarakeppninn-
ar í knattspymu í Tókýó á
þriðjudaginn. Hann
þurrkaði svita á enni sínu
í hitasvækjunni sem var í
höliinni sem drátturinn
fór fram. Michel Zen-
Ruffinen, framkvæmda-
stjóri alþjóða knatt-
spyrausambandsins,
FIFA, heldur á borða með
nafni íslands á. Vonandi
er þetta látbragð það sem
koma skal í HM, að mót-
heijar Islendinga svitni er
þeir heyra íslands getið.
Leikiðfyrst
gegn Ítalíu
ÍSLENSKA landsliðið í
handknattleik, sem er ein-
göngu skipað leikmönnum
sem leika með liðum á Is-
landi, tekur þátt í sex þjóða
móti í Hollandi 15. til 19.
desember. Fjrst verður
leikið gegn Italíu miðviku-
daginn 15. desember, síðan
gegn Sádi-Arabíu, Póllandi,
HoIIandi og síðast gegn
Egyptalandi. Allir Ieikirnir
fara fram í Haarlem - fimm
leikir á fimm dögum. ísland
hefur einu sinni áður tekið
þátt í þessu móti og fagnaði
þá sigri.
SUND / EVROPUMOTIÐ
Fimm met í Lissabon
Om Amarson, sundkappi úr
SH, náði bestum árangri ís-
lensku keppendanna á fyrsta degi
Evrópumótsins í 25 metra laug sem
hófst í Lissabon í Portgúal í gær.
Hann setti íslandsmet í undanrás-
unum í 200 metra skriðsundi og
komst í A-úrslit og hafnaði þar í 7.
sæti. Fimm íslandsmet féllu á mót-
inu í gær.
Örn synti 200 metrana í undan-
rásunum á 1.47,17 mínútum og
bætti eigið íslandsmet frá í nóvem-
ber í fyrra um hálfa aðra sekúndu,
en metið var 1.48,65 mín. Hann var
með fimmta besta tímann í undan-
rásunum og keppti því í 8-manna
úrslitum sídegis í gær. Þar náði
hann ekki að bæta tímann, synti á
1.47,89 mín. og hafnaði í sjöunda
sæti. Sigurvegarinn synti á 1.44,34
mín. Hann setti síðan met í 50
metra skriðsundi er hann synti
fyrsta sprett í 4x50 metra skriðs-
undi en sveitin setti met og sló elsta
íslandsmetið í karlaflokki. Synti
Örn sinn sprett á 22,96 sekúndum
og bætti eigið Islandsmet um 0,33
sekúndur en það var frá í desember
ífyrra.
Sveitin synti á 1:35,69 mínútum
en eldra metið var 1:36,50 mínútur,
sett í Aberdeen í Skotlandi árið
1987 af EcSvarð Þór Eðvarðssyni,
Magnúsi Ólafssyni, Ingólfi Arnar;
syni og Birgi Erni Birgissyni. I
sveitinni nú voru auk Arnar þeir
Ómar Snævar Friðriksson, SH,
Friðfinnur Kristinsson, Selfossi, og
Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi.
Friðfinnur keppti í 100 metra
flugsundi og bætti Islandsmetið
bæði í undanrásum og B-úrslitum.
Fyrst synti hann á 55,29 sek. og
bætti met Ríkarðs Ríkarðssonar úr
Ægi frá í mars en það var 55,63 sek.
í úrslitasundinu gerði hann enn
betur og synti á 55,08 sek.og hafn-
aði í 16. sæti.
Lára Hrund Bjargardóttir
keppti í 100 metra skriðsundi og
synti á 57,61 sek. og setti persónu-
legt met. Hún hafnaði í 23. sæti af
24 keppendum og komst ekki í úr-
slit.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir varð
í 20. og síðasta sæti í 100 metra
baksundi, synti á 1.05,76 mín., sem
er tæpum tveimur sekúndum frá
besta tíma hennar.
Ómar Snævar Friðriksson
keppti í 200 metra skriðsundi eins
og Örn og varð í 26. og síðasta sæti
á 1.55,71 mín.
Þá varð Jakob Jóhann Sveinsson
í 23. sæti af 24 í 50 metra bringus-
undi á 30,14 sek., sem er besti tími
hans í greininni.
Magnús Tryggvason, formaður
landsliðsnefndar SSÍ, sagðist
ánægður með árangurinn. „Það
væri hroki að segja annað eftir að
fimm íslandsmet féllu. En það er
greinilegt að sundfólkið er í góðri
æfingu. Það kom reyndar á óvart
að Örn skyldi bæta sig svona mikið
í 200 metra skriðsundinu. Hann
ætti því að vera til alls líklegur í
baksundinu,“ sagði Magnús í gær-
kvöldi.