Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 2

Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 2
2 B FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Fjárfestingar lífeyrissjóða fyrstu 10 mánuði ársins 81% aukning í erlendum bréfum FJARFESTINGAR lífeyrissjóða í erlendum hlutabréfum hafa aukist um 81% fyrstu tíu mánuði ársins mið- að við sama tímabil í fyrra. Fjárfest- ingar í innlendum hlutabréfiim um 35% og fjárfestingar í markað- sskuldabréfum og hlutdeildarskír- teinum. Frumvarp fjármálaráðherra, Geirs H. Haarde, um rýmkaðar heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis sem og rýmkaðar heimildir þeirra til fjárfestingar í verðbréfum útgefnum af öðrum en ríkinu, var lagt fram fyr- ir jól en verður afgreitt þegar Alþingi kemur saman að nýju eftir áramót. í frumvarpinu er kveðið á um að lífeyr- issjóðum verði heimilt að ráðstafa allt að 50% af hreinni eign sjóðanna er- lendis en þetta hlutfall er í dag 40%. Þá er gert ráð fyrir að fjárfestingar í hlutabréfum og öðrum verðbréfum en ríkisverðbréfum megi nema 50% af heildareignum sjóðanna í stað 35% í dag. í mánaðarriti Kaupþings, „Þró- un og horfur“, er fjallað um hvaða áhrif þessar rýmkuðu heimildir hafa á verðbréfamarkað. „Rólegt hefur verið yfir skuldabréfamarkaði síð- ustu mánuði sem rekja má til lítils áhuga endurkaupenda, eins og lífeyr- issjóða á ríkisskuldabréfum. Hækk- anir á hlutabréfaverði hér heima sem og erlendis, háir peningamarkað- svextir, auk sölu á hlut ríkisins í FBA, hefur allt áhrif. Til þessa hafa innlend ríkisskuldabréf verið uppistaðan í eignasafni lífeyrissjóða. Rýmkaðar heimildir til hlutabréfakaupa kunna að draga það á langinn að ávöxtunar- krafa innlendra skuldabréfa lækki að nýju. Hitt er annað mál að telja verð- ur að frjálsari heimildir sjóðanna til fjárfestinga ættu að stuðla að heil- brigðari verðmyndun á markaði til lengri tíma litið,“ að því er fram kem- ur í mánaðarriti Kaupþings. Ólíklegt að lífeyrissjóðir verði áberandi á skuldabréfamarkaðí Þar kemur fram að flestir lífeyris- sjóðir hafi nokkuð svigrúm til að bæta við sig í erlendum verðbréfum á þessu ári. „Almennt hafa lífeyrissjóð- ir verið að auka töluvert við erlendar fjárfestingar á síðustu mánuðum, einkum í hlutabréfum. Staða þeirra í árslok verður væntanlega með nokk- uð öðrum hætti (en um síðustu ára- mót, innsk. blm.). Það verður þó að teljast ólíklegt að lífeyrissjóðir eigi eftir að gjörbreyta fjárfestingar- stefnu sinni á skömmum tíma þótt heimildir til kaupa í erlendum bréfum verði hækkaðar upp í 50%. Telja verður líklegt að það muni breytast á lengri tíma og að þeir muni hægt og sígandi flytja sig úr innlendum fjár- festingum yfir í erlendar. Sökum þessa svigrúms sem þeir hafa nú þeg- ar, svo ekki sé talað um ef það yrði aukið enn frekar með rýmkuðum heimildum, verður að teljast líklegt að lífeyrissjóðir sem endurkaupend- ur, verði ekki áberandi í viðskiptum á skuldabréfamarkaði á næsta ári frek- ar en á þessu sem senn er á enda,“ segir í mánaðarriti Kaupþings. Páll Sigurjónsson er Maður ársins 1999 í íslensku atvinnulífi: Morgunblaðið/Jim Smart Geir H. Haarde Qármálaráðherra afhendir Páli Sigurjónssyni viðurkenn- inguna „Maður ársins 1999 í íslensku atvinnulífi." Stjórnvöld efli samkeppnishæfi íslensks atvinnulífs GEIR H. Haarde, fjármálaráð- herra, afhenti Páli Sigurjónssyni, forstjóra ístaks, viðurkenningu í ✓ Ahrif árþúsundaskiptanna Hagnaðaráætlanir flug- félaga lækkaðar GREININGARAÐILAR á fjármála- mörkuðum í Bandaríkjunum eru að draga úr áætlunum sínum um hagnað flugfélaga á seinasta árs- fjórðungi sem og fyrir árið allt, vegna hækkaðs eldsneytisverðs og minni nýtingar flugsæta í desember en ráð var fyrir gert, að því er kem- ur fram á fréttavef Wnll Street Journal. Starfsmaður greiningardeildar Merryll Lynch-verðbréfafyrirtæk- isins í New York sagði að hjá fyrir- tækinu væri nú búist við að hagnað- ur AMR, rekstraraðila American Airlines sem er næststærsta flugfé- lag heims, yrði 60 sent á hlutabréf á fjórða ársfjórðungi, í stað 85 senta. Spáin fyrir AMR er reyndar undir áhrifum þess að AMR fær nú ekki greitt fyrir þjónustu sem það veitir Canadian Airlines, sem þessa dag- ana stendur í samrunaferli við Air Canada. Merrill Lynch spáir því að Air Al- aska muni hagnast um 4,92 dollara á hvert hlutabréf í stað fyrri áætl- ana um 5,12 dollara, en félagið hef- ur fellt niður um 18% flugferða sem áætlaðar voru kringum áramótin. Merryll Lynch býst við að hagn- aður Continental verði 40 sent á hvert bréf í stað 45 senta, og að hagnaður Delta-flugfélagsins verði 95 sent í stað eins dollars hagnaðar á bréf, á seinasta ársfjórðungi. Starfsmaður Merrill Lynch segir að þessir erfiðleikar séu til skamms tíma. „Ég geri ráð fyrir að flest flugfélögin myndu kjósa að sleppa öllu flugi yfir áramótin, en fmynd- aðu þér vandann við að leggja 500 flugvélum í stæði á jörðu niðri í einn dag!“ Eimskip stofnar hlutafélag um rekstur í Kanada Opna skrifstofu Nova Scotia í EIMSKIP stofnar hinn 1. janúar nýtt hlutafélag um rekstur sinn í Kanada, Eimskip Canada Inc. Félagið tekur við allri þjónustu og rekstri skrifstofu Eimskips í St. John’s á Nýfundna- landi auk þess sem opnuð verður skrifstofa í Shelbume á suðurhluta NovaScotia. Erlendur Hjaltason, framkvæmda- stjóri utanlandssviðs Eimskips, segir að helsta breytingin sem verði með hinu nýja félagi felist í opnun skrif- stofunnar í Nova Scotia. „Stór hluti fiskiðnaðar er þarna á suðurhluta Nova Scotia og við höfum lagt áherslu á að koma okkur íyrir og byggja okk- ur upp þar um slóðir. Enda er þetta hluti af stefnu Eimskips að þjónusta fiskveiðar og vinnslu sem víðast við Norður-Atlantshafið. Því höfum við fjölgað viðkomum í Shelbume, kom- um nú bæði við á leiðinni frá Islandi og til íslands og eram því með við- komu tvisvar í hverri ferð, en siglt er á hálfsmánaðarfresti frá Reykjavík vestur um haf,“ segir Erlendur. Hann bætir við að opnun skrifstof- unnar í Shelburne geri Eimskip kleift að íylgja þessu eftir með því að vinna sjálft að markaðsmálum á þessum markaði auk þess sem öll samskipti við viðskiptavini era gerð auðveldari en ef um umboðsmannafyrirkomulag væri að ræða. A næsta ári era 10 ár síðan Eimskip setti á fót skrifstofu á Nýfundnalandi, en félagið hóf reglu- legar siglingar til Argentia á Nýfun- dnalandi 1989 og til Shelburne á Nova Scotia árið 1996. Nú era auk þess um- boðsmenn Eimskipa á þremur stöð- um í Kanada. Ólafur Orn Ólafsson mun veita starfseminni í Kanada for- stöðu og verður hann með aðsetur í St. John’s á Nýfundnalandi. Alls era 12 manns sem starfa á vegum Eimsk- ips í Kanada. gær, en Páll var útnefndur Maður ársins 1999 í íslensku atvinnulífi af Frjálsri verslun. I ávarpi sínu við þetta tækifæri sagði Páll miklu skipta „að stjórn- völd hafi stöðugt augun á því að efla samkeppnishæfni íslensks at- vinnulífs, haldi áfram að bæta starfsumhverfi fyrirtækjanna og leyfi þeim þar með að þróast og dafna.“ Að mati Páls er markað- ssvæði íslenskra fyrirtækja og stór- huga einstaklinga ekki lengur ís- land, heldur allur heimurinn. Páll gerði að umtalsefni þær breytingar sem orðið hafa á styrk og starfsumhverfi fslenskra fýrir- tækja á starfsævi hans. „Ég vil minna á hversu skammt er sfðan ís- lensk fyrirtæki fóru að búa við það sem maður getur kallað eðlilegt starfsumhverfi. Miklar breytingar urðu á högum innflutningsverslun- ar og gengisskráningu í byrjun sjöunda áratugarins, en það er ekki fyrr en á miðjum sfðasta áratug að grunnur er lagður að skilvirkum fjármagnsmarkaði með frjálsum vöxtum," sagði Páll í ávarpi sínu. „Þau tækifæri sem fslenskt at- vinnulíf hefur til árangurs, hvort sem litið er til fjármagns og starfs- umhverfis eða hæfni og sjálfs- trausts þjóðarinnar, hafa aldrei verið betri en einmitt nú. Ef okkur tekst að halda vel á spilunum mun- um við því öll eiga bjarta framtíð fyrir okkur á komandi öld,“ sagði Páll að lokum. Samruni SÍF hf. og ÍS samþykktur í gær Stærsta fyrirtæki landsins verður til ^UPPgQNIÐUR^ HLUTABRÉFAVIÐSKIPTI/SÍÐASTA VIKA • Viðskipti á VÞÍ námu 1.702,4 milljónum króna í seinustu víku. Viðskipti voru með hlutabréf í 55 félögum og hækkuöu 39 félög í verði en 11 lækkuðu. SAMRUNI Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda hf., SÍF, og íslenskra sjávarafurða hf., ÍS, var samþykktur á hluthafafundum beggja félaganna í gær. Hið nýja félag heitir SÍF hf. og verður það stærsta fyrirtæki landsins, en samkvæmt rekstraráætlun er gert ráð fyrir að velta komandi árs verði um 50 milljarðar króna, og verður það með starfsemi í 15 löndum. Samruninn gildir frá 1. júlí síðastliðnum. Gunnar Öm Kristjánsson, for- stjóri SIF, verður forstjóri hins sameinaða félags, en Finnbogi Jónsson, forstjóri ÍS, verður að- stoðarforstjóri. Á hluthafafundi í SÍF vora mættir fulltrúar fyrir 78,7% hluta- fjár, og var samraninn samþykkt- ur með öllum greiddum atkvæðum og enginn sat hjá. Fulltrúar fyrir 77,17% hlutafjár í ÍS mættu á hluthafafund IS og var samraninn sömuleiðis samþykktur mót- atkvæðalaust, og sat enginn hjá. Við sameininguna eykst eigið fé SÍF hf. úr 1.050 milljónum króna í 1.478,87 milljónir, og verður niður- stöðutala efnahagsreiknings þess um 21,8 milljarðar króna. Friðrik Pálsson, stjórnarfor- maður SÍF, sagði á hluthafafundi SÍF að samruninn væri stórt skref fram á við í atvinnusögu Islands. Eftir samrunann verði félagið með mjög breiðan viðskiptamannahóp, bæði birgja og kaupenda. Styrkur stærðarinnar væri geysilega mik- ilvægur, ekki síst þegar komi að vöraþróun og markaðsstarfi. Ólafur Ólafsson, stjómarfor- maður IS, sagði á seinasta hlut- hafafundi ÍS að hann teldi að sam- einuð muni SÍF og ÍS hafa mun meira fjárhagslegt bolmagn til að takast á við tækifæri sem bjóðist í vinnslu og sölu sjávarafurða á komandi áram. Hann sagði einnig að meirihluti starfsemi félaganna ætti sér stað erlendis. Ólafur sagði einnig að starfs- fólki IS hefði mörgu hverju staðið til boða störf annars staðar, en það hefði ákveðið að standa með félag- inu og takast ótrautt á við ný og spennandi viðfangsefni innan SIF hf., og vildi hann þakka því fyrir það. Á hluthafafundi ÍS fór Finnbogi Jónsson, forstjóri IS, í gegnum samranaáætlunina. Hann sagði að skiptihlutföll hafi verið ákveðin þannig að hluthafar SIF fá í hend- urnar 71% hins nýja félags og hluthafar ÍS 29%. Þetta eru lítil- lega önnur hlutföll en áður hafði verið stefnt að, eða 70% og 30%. Jafnframt kom fram að stjórnar- mönnum í SÍF hf. verði fjölgað úr 7 í 9, og mun stjóm IS tilnefna tvo menn í stjórnina. Þeir verða Ólaf- ur Ólafsson og Magnús Gauti Gautason forstjóri Snæfells. FyrtrtMkl Pharmaco hf. Össur hf. Samvinnusj. ísl. Hœsla/leg&ta voró VkHk. < (þús. kr.) 19,00/13,70 56.413 36,70/30,80 74.714 2,85/2,55 13.770 irnóMI Breyting vtoak. 34 38,7% 93 19,2% 13 11,8% NIÐUR^ Fyrlrtatki verð VMik. vlkunnar FJöHM Breyting (þús. kr.) Kaupfélag Eyfirðinga 2,25/1,90 190 1 -15,6% Sláturfélag Suðurl. 1,80/1,60 3.416 9-11,1% Fiskiöjus. Húsav. 1,50/1,40 2.139 3 -6,7% ^UPP NIÐUR^ GENGI GJALDMIÐLA 22.12.99 29.12.99 +/-% Kanadískur dollar 48,95 49,65 1,43 Sterlingspund 116,34 116,65 0,27 Sænsk króna 8,475 8,488 0,15 EC 2E Japanskt jen 0,7099 0,7047 -0,73 Svissneskur franki 45,47 45,24 -0,51 Norsk króna 9,032 8,996 -0,4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.