Morgunblaðið - 08.01.2000, Síða 3
2 B LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 B 3
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
ÍÞRÓTTIR
Frakkland - ísland 24:20
Bordeaux í Frakklandi, æfmgalandsleikur í
handknattleik karla, föstud. 7. janúar 2000.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:2, 7:2, 8:3, 8:6,
10:7, 12:7, 13:9, 14:10, 16:10, 17:11, 18:13,
20:14, 23:16, 24:18, 24:20.
Mörk Frakka: Cédric Burdet 5, Bertrant
Gille 3, Andrej Golic 3, Patric Cazal 3,
Jackson Richardson 2, Stefhane Joulin 2,
Laurent Puigsegur 2, Gregory Anquetil 2,
Olivier Girauld 1, Jerome Fernandez 1.
Varin skot: Christian Gaudin 8 (þar af 3 til
mótherja), Bruno Martini 6.
Utan vallar: 6 mín.
Mörk fslands: Ólafur Stefánsson 4, Njörður
Árnason 3, Ragnar Óskarsson 3/1, Patrekur
Jóhannesson 3/1, Gústaf Bjarnason 2,
Róbert Sighvatsson 2, Dagur Sigurðsson 1,
Magnús Sigurðsson 1, Guðjón Valur Sig-
urðsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 15
(þar af 5 til mótherja). Sebastian Alexand-
ersson kom einu sinni inn á til að verja víti,
en tókst ekki.
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Bredo og Huelin frá Spáni. Þeir
stóðu sig ágætlega.
Áhorfendur: 2.500 - uppselt.
Kanarímót
Landslið Þýskalands í handknattleik lagði
Portúgal að velli á móti á Kanarí í gær-
kvöldi, 28:25 (15:11). Portúgal leikur í riðli
með íslandi á EM í Króatíu. Slóvenar, sem
leika einnig með íslandi í riðli á EM, máttu
þola tap fyrir Spánverjum á mótinu, 28:22
(14:9).
1. deild kvenna:
FH - KA.........................32:17
2. deild karla:
Selfoss - Fram b ...............26:24
Æfingamót HSÍ:
FH-IR ..........................28:26
Stjarnan - U21 landslið.........26:25
Valur-Haukar ...................20:24
Njarðvík - Þór 104:91
íþróttahúsið í Njarðvík, íslandsmótið í
körfuknattleik, efsta deild karla (Epson-
deildin), 12. umferð, föstud. 7. janúar 2000.
Gangur leiksins: 0:6,1:6, 15:15, 26:17, 39:29,
48:36, 63:55, 63:62, 71:62, 86:71, 88:82,
101:89,104:91.
Stig Njarðvíkur: Örlygur Sturluson 26, Páll
Kristinsson 18, Friðrik Stefánsson 17, Frið-
rik Ragnarsson 16, Keith Veney 12, Teitur
Örlygsson 9, Hermann Hauksson 4, Ásgeir
Guðbjartsson 2.
Fráköst: 24 í vörn - 8 í sókn.
Stig Þórs: Maurice Spillers 34, Óðinn Ás-
geirsson 14, Hafsteinn Lúðvíksson 12, Sig-
urður Sigurðsson 12, Hermann Hermanns-
son 8, Einar Aðalsteinsson 7, Einar Davíðs-
son 2, Konráð Óskarsson 2.
Fráköst: 30 í vörn - 15 í sókn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Rúnar
Gíslason, sem dæmdu vel.
Villur: Njarðvík 20 - Þór 21.
Áhorfendur: Um 200.
NÐA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Toronto - Sacramento .......101: 89
Cleveland - Golden State .....90: 75
Detroit - Milwaukee ........101: 95
Miami - Houston..............111: 99
Minnesota - Portland .........98: 96
Dallas - Utah.................92:105
Denver - Indiana .............87:102
Knattspyma
Heimsmeistaramót félagsliða
B-KIÐILL:
Vasco da Gama - S-Melbourne......2:0
Felipe 53., Edmundo 82.
A-RIÐILL:
Real Madrid - Corinthians ......2:2
Nicolas Anelka 19., 72. - Edilson 28., 64.
England
2. deild:
Wigan - Oldham .................0:1
Frakkland
Auxerre - Mónakó.................0:0
UM HELGINA
Handknattleikur
Laugardagur:
Afmælisleikur Alla Hilmarssonar:
KA-hús: KA - Úrvalslið Atla..........17
1. dcild kvenna:
Ásgarður: Stjarnan - Víkingur.....16.16
Kaplakriki: FH - KA.....,..........16.30
Seltjarnarnes: Grótta/KR - ÍR .......14
Varmá: Aftureiding- ÍBV...........16.30
2. dcild karla:
Smárinn: Breiðablik - Fjölnir........14
Sunnudagur:
1. deild kvenna:
Strandgata: Haukar - Valur ..........20
2. deild karla:
Seltjarnarnes: Grótta - Pór..........20
Körfuknattleikur
Laugardagur:
Bikarkeppni karla, 8-Iiða úrslit:
Strandgata: Haukar - Selfoss.........16
Bikarkeppni kvenna:
Grindavík: Grindavík - ÍS ...........16
1. deild karla:
Þórlákshöfn: Þór - Höttur............16
Smárinn: Breiðablik - Skafholtstungur . .16
Sunnudagur:
Bikarkeppni karla:
Hveragerði: Hamar - KR ..............20
ísafjörður: KFÍ - Njrðvík............20
Sauðárkrókur: Tindastóll - Grindavík... .20
Bikarkeppni kvcnna:
Sauðárkrókur: Tindastóll - KR........18
1. dcild karla:
Ásgarður: Stjarnan - ÍV .............15
Selfoss: Selfoss - Höttur ...........14
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu innnhúss
fer fram í Laugardalshöllinni um helgina.
Cedric Burdet,
leikmaður Frakka:
Slakur leikur
beggja liða
„Leikurinn var erfíðari en tölurnar
gefa til kynna. Við höfum lítið æft
að undanförnu og vorum tíma að
koma okkur í gang. Bæði lið voru
greinifega þreytt og gátu ekki sýnt
það besta sem í þeim býr. Þetta var
því slakur leikur af beggja hálfu,“
sagði Cedric Burdet, sem skoraði
fimm mörk og var markahæstur
Frakka gegn Islendingum í gær-
kvöld.
Burdet sagði að Olafur Stefáns-
son hefði staðið sig best í íslenska
liðinu og benti jafnfram á Guðmund
Hafnkelsson, sem varði 15 skot.
Aðspurður um möguleika íslenska
liðsins í Króatíu sagðist hann ekki
geta sagt til um hvemig því kæmi
til með að reiða af - hvað þá sínu
eigin liði.
„Við vitum eiginlega ekki hvar
við stöndum miðað við önnur lið en
góður undirbúningur liðsins mun
sennilega gera^ gæfumuninn fyrir
okkur sem og Islendinga. Þá ættu
bæði lið að ná árangri í Króatíu,"
sagði leikmaðurinn.
Uppselt í
Bordeaux
MARGMENNI var í Salle Jean
Dauguet-íþróttahúsinu í Bordeaux
en uppselt var sólarhring áður en
leikurinn fór fram. 2.500 áhorfend-
ur létu kröftuglega í sér heyra og
stuðningurinn gaf franska liðinu
byr í seglin í upphafi leiks. Búist
var við nokkur þúsund áhorfendum
á leik liðanna í Pau á morgun.
Islenska liðið sat ekki auðum
höndum eftir leik sinn gegn Frökk-
um í Bordeaux í gærkvöld. Hópur-
inn hélt af stað til Pau, sem er í 230
km akstursleið frá Bordeaux, í
morgun, en þar mætast íslending-
ar og Frakkar öðra sinni á morgun.
íslenska liðið hefur þurft að
leggja á sig langt og strangt ferða-
lag til þess að leika tvo leiki gegn
franska landsliðinu. Á fimmtudag
þurfti liðið að ferðast í 15 klukku-
stundir til þess að komast á leiðar-
enda. Þá tók við þriggja tíma akst-
ur frá Bordeaux til Pau í dag.
Ólafur Stefánsson var markahæstur íslendinga gegn Frökkum í Bordeaux í gærkvöldi, skoraði fjögur mörk. íslendingar og Frakkar mætast öðru sinni í Pau á morgun.
Islendingar eru enn í
heljargreipum Frakka
íslenska liðið í handknattleik hefur ekki riðið feitum hesti frá við-
ureignum sínum gegn Frökkum siðastliðin átta ár. Engin breyting
varð þar á er liðin áttust við í Bordeaux i Frakklandi í gærkvöld.
íslenska liðið átti á brattann að sækja allan leikinn og slæmur
leikkafli í fyrri hálfleik varð þess valdandi að Frakkar náðu ör-
uggu forskoti sem þeir létu aldrei af hendi. Frakkar voru oftast
feti framar, nýttu hraðaupphlaup sin vel og unnu sanngjarnan
sigur 24:20.
MT
Islendingar léku 3-2-1 í vörn og
freistuðu þess að loka á skot
frönsku leikmannanna. Sú aðferð
gaf ágæta raun með
Rúnar Sigtryggs-
son á línu og Rób-
ert Sighvatsson
fremstan en mistök
íslenska liðsins í
sókn færðu Frökkum vænlega for-
ystu, sem þeir létu aldrei af hendi.
Frakkar, sem léku með einn mann
fremstan í vörn, hirtu ófáa bolta og
nýttu færin af kostgæfni og héldu
íslendingum við efnið allt frá
fyrstu mínútu. Þá tók Ólafur Stef-
ánsson af skarið, átti nokkrar eitr-
aðar sendingar á línu eða skoraði
mörk með uppstökki eða gegnum-
broti. íslenska liðið, sem var komið
7:2 undir gegn Frökkum eftir 12
mínútur, náði að rétta hlut sinn og
á sex mínútna kafla minnkaði það
forystu heimamanna í tvö mörk,
8:6. En gleðin varð skammvinn og
Frakkar settu í annan gír og skor-
uðu tvö mörk og náðu á ný öruggu
forskoti.
íslendingum gafst færi á að
minnka muninn nokkrum sinnum
en Christian Gaudin, markvörður,
sá við þeim og varði átta skot í
þeim fyrri. Guðmundur Hrafnkels-
son var einnig í sviðsljósinu í ís-
lenska markinu og varði ein tíu
skot í fyrri hálfleik og hélt lífi í ís-
lenska liðinu, ekki síst er hann
varði hraðaupphlaup í tvígang frá
Frökkum.
Þorbjörn Jensson, þjálfari ís-
lenska liðsins, var ófeiminn að
gera breytingar á íslenska liðinu í
leiknum enda var leikurinn notað-
ur til þess að sneiða af þá vankanta
sem voru í leik liðsins. Hann
hleypti meðal annars Ragnari Ósk-
arssyni inn þegar 11 mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik. Ragnar,
sem leysti Dag Sigurðsson af í
sókn um tíma, brást ekki kalli
þjálfarans og skoraði úr sinni
fyrstu tilraun. Leikmaðurinn, sem
lét ekki reynsluleysi í landsleikjum
há sér, bætti við tveimur mörkum
til viðbótar og dró vagninn í sókn
þegar illa gekk í síðari hálfleik.
Þegar 10 mínútur voru eftir að
leiknum fór Frökkum að leiðast
þófið og þeir kafsigldu íslenska lið-
ið með góðri markvörslu Bruno
Martin og hraðaupphlaupum. Á
þessum leikkafla brugðu Frakkar
á leik og sáu um að skemmta
áhorfendum með laglegu spili úr
hornum og af línu. Daniel Const-
antini, þjálfari, dró hvern leik-
manninn af öðrum fram í dagsljós-
ið og þeir léku listir sínar og juku
forskot sitt í sex mörk, 24:18. Á
sama tíma var leikur íslenska liðs-
ins mun þunglamalegri. íslending-
um tókst að rétta hlut sinn lítillega
undir lokin en það dugði skammt
því Frakkar gátu leyft sér að slaka
á og voru glaðbeittir í leikslok. Það
sem gerði gæfumuninn í leik
þeirra voru árangursrík hraðaupp-
hlaup sem færðu þeim þá forystu í
upphafi sem þeir létu aldrei af
hendi.
Islenska liðið var yfirleitt skrefi
á eftir, gerði fleiri mistök og slæm-
ir leikkaflar í upphafi leiks og í
byrjun síðari hálfleiks urðu þess
valdandi að leikurinn varð aldrei
spennandi. íslendingar mæta
tveimur liðum á Evrópumótinu í
Króatíu, Rússum og Svíum, sem
eru þekkt fyrir að beita árangurs-
ríkum hraðaupphlaupum. fslend-
ingar verða því að nýta tímann vel
fram að keppni til þess að lagfæra
leik sinn. Tækifæri til þess eru af
skornum skammti, einn leikur sem
fer fram gegn Frökkum á morgun,
sunnudag. Islenska liðið verður því
að nýta leikinn af mikill kostgæfni,
því fleiri leikir eru ekki í boði.
Glsli
Þorsteinsson
skrifarfrá
Bordeaux
Vorum svifa-
seinir í sókn
r
g er vonsvikinn að hafa tapað þess-
um leik. Við vorum einfaldlega
slappir en vonandi tekst okkur að gera
betur gegn þeim á sunnudag. Við erum
að koma úr ólíkum áttum og það tekur
tírna að fínstilla leik liðsins," sagði Ólaf-
ur Stefánsson leikmaður íslenska liðsins.
- Hafið þið þann tíma sem þarf nú
þegar rétt um hálfur mánuður er þar til
EM í Króatíu hefst og einn leikur sem
liðiðgetur leikið fram aðþeim tíma?
„Já, ég hef trú að það sé hægt. Við
verðum saman á hverjum degi og ég tel
að við getum leiðrétt það sem aflaga fór
er við leikum á sunnudag.“
- Ferðalagið til Bordeaux í gær var
tímafrekt. Hefur þú trú á að einhver
ferðaþreyta hafí setið í liðinu í þessum
leik?
„Nei, það er ólíklegt. Það er engin af-
sökun. Við verðum bara að leika betur á
sunnudag. Að vísu lékum við ágætlega í
vörn en vorum svifaseinni í sókn og þeir
náðu mörgum hraðaupphlaupum. Það er
skammur tími til stefnu en við ætlum að
nýta þennan tíma vel,“ sagði Ólafur.
Afsakanir ekki til neins
„Ég er sannfærður um að við getum
spilað betur en þetta,“ sagði Dagur Sig-
urðsson, fyrirliði liðsins. „Mér fannst
leikur liðsins voðalega stirður, sérstak-
lega í sókn. Boltinn gekk illa á millii
manna, einkum í upphafi. Þá gerðum við
nokkuð af klaufamistökum en í þeim
seinni gerðum við okkur seka um að mis-
nota góð sóknarfæri. Við misstum af
þremur færum í hornum og tveimur
vítaköstum. Það væri svo sem hægt að
afsaka leik liðsins á einhvern hátt en það
er ekki til neins.,“ sagði hann.
Dagur sagði að franska liðið hefði lok-
að fyrir spil í hornin og að boltinn hefði
af þeim sökum gengið mikið á mill
þriggja manna fyrir utan. „Við misstum
boltann og þeir skoruðu því mikið á okk-
ur úr hraðaupphlaupum. Okkur gekk
skárr í vörn. Ánnars var litið jákvætt í
leik liðsins og við þurfum að sníða van-
kanta af leik þess. Einkum þurfum við
að koma í veg fyrir hraðaupphlaupin
þeirra í næsta leik,“ sagði fyririiðinn.
Leif Mikkelsen velur 16-manna
landsliðhóp Danafyrir EM í Króatíu
Danir mæta
íslendingum
íZagreb
LEIF Mikkelsen, landsliðsþjálfari Dana í handknattleik hefur val-
ið þá sextán leikmenn sem leika fyrir hönd Dana á Evrópumeist-
aramótinu í Króatíu 21 .-30. janúar. Danir eru með íslendingum í
B-riðli og mætast þjóðirnar í Zagreb 25. janúar, en fyrsti leikur
Dana í keppninni er gegn Rússum hinn 21.
Níu leikmenn 16-manna hópi
Mikkelsens leika með liðum
utan Danmerkur - sjö í Þýskalandi
en einn í Frakkland og einn á
Spáni. Annars er landsliðið skipað
eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir: Kasper Hvitd,
Ademar Leon, Sören Haagen
Andreasen, Flensburg-Handewitt,
Sune Agerschou, GOG.
Aðrir leikmenn: Morten Bjerre,
Flensburg-Handewitt, Lars Krog
Jeppesen, Team Helsinge, Ian
Marko Fog, Gummesbach, Lars
Jörgensen, HK Roar, Nikolaj
Jacobsen, THW Kiel, Keld Vfi-
helmsen, GOG, Lars Christiansen,
Flensburg-Handewitt, Joachim
Boldsen, Grosswallstadt, Claus
Flensborg, Kolding IF, Michael V.
Knudsen, Viborg, Jan Paulsen,
Ivry, Sören Stryger, GOG, Christi-
an Hjermind, Flensburg-Hand-
ewitt.
Eina sem virtist koma á óvart í
vali Mikkelsen, skv. dönskum
fjölmiðlum, var að Peter Nörklit,
einn reyndasti markvörður Dana
skyldi ekki hljóta náð fyrir augum
þjálfarans. Mikkelsen segir Nörklit
Njarðvíkingar halda enn efsta
sætinu í úrvalsdeild eftir á-
gætan sigur á Akureyrarliði Þórs í
Ljónagryfjunni í
Njarðvík í gærkvöld
Btöndal 104:91. Njarðvík-
skrifar ingar sýndu góðan
leik á köflum en
þess á milli voru þeir hálf væru-
kærir og það nýttu norðanmenn
sér og náðu að hanga í heimamönn-
um allan leikinn. I leikhléi var
staðan 48:36.
Akureyiingar byrjuðu betur, en
um miðjan fyrri hálfleik kom góður
leikkafli hjá Njarðvíkingum, sem
þar með náðu 10 stiga forskoti. Sá
munur hélst fram í síðari hálfleik
þar til að Þórsarar nýttu sér slak-
an leikkafla Njarðvíkinga og náðu
einfaldlega ekki vera nógu góðan,
Hvidt og Andreasen standi honum
framar og þá hafi hann kosið að
velja Agerschou, sem þriðja kost
því þar sé á ferð efnilegur mark-
vörður.
Vonbrigði Dana voru mikil með
árangurinn á HM í Egyptalandi
þar sem þeir féllu úr keppni í 16-
liða úrslitum með tapi fyrir Kúbu.
Nú segir Mikkelsen markmiðið
vera að hafna í einum af átta efstu
sætunum, en það kosti blóð, svita
og tár. Leikmenn verði að vera til-
búnir að leggja það á sig sem til
þurfi.
Mikkelsen segist einn óttast að
leikmenn sínir séu ekki nógu líkam-
lega sterkir, en við því verði ekki
gert á þeim stutta tíma sem hann
hafi til þess að búa liðið undir
keppnina. Kostir þess eru hins veg-
ar að innan þess eru sterkir mark-
verður fljótir leikmenn því verði rík
áhersla lögð á að vinna knöttinn í
vörn og fá hraðaupphlaup. Þá bindi
hann vonir við að sóknarieikurinn
geti orðið léttleikandi undir stjórn
Jan Paulsen, leikmanns Ivry í
Frakklandi.
að minnka muninn í eitt stig, 63:62.
Þetta varð til að vekja heimamenn
aftur til lífsins og 12 stig gegn
tveimur stigum gestanna breyttu
gangi leiksins að nýju og innsiglaði
nánast sigur Njarðvíkinga. Akur-
cyringum tókst ekki að ógna
heimamönnum á síðustu mínútun-
um og var sigur Njarðvíkinga
verðskuldaður.
Bestu menn hjá Njarðvíkingum
voru þeir Örlygur Sturluson, Páll
Kristinsson og Friðrik Stefánsson
en hjá Þór þeir Maurice Spillers og
Óðinn Ásgeirsson sem er stórefni-
legur leikmaður. Akureyringar eru
með efnilegt lið. Þeir eru vaxandi í
leik sínum og með sama áfram-
haldi eiga þeir eflaust eftir að
skipa sér á bekk með toppliðunum.
■ MOUSTAPHA Hadji og Youssef
Chippo hafa fengið leyfi hjá knatt-
spyrnusambandi Marokkó til þess
að yfirgefa landslið sitt um helgina
og leika með Coventry gegn Her-
manni Hreiðarssyni og félögum í
Wimbledon í úrvalsdeildinni um
næstu helgi.
■ ARSENAL hefur krækt í Stephen
Bradley, 15 ára dreng frá Tallaght á
írlandi. Bradley þykir feikilegt efni
og voru fleiri félög á höttunum efth-
honum, s.s. Manchester United, Liv-
erpool, West Ham og Celtic.
■ MARKUS Babbel hefur ítrekað
áhuga sinn á að ganga til liðs við Liv-
erpool þegar samningur hans við
Bayern Munchen rennur út í vor.
Babbel segir Bayern hafa boðið sér
hagstæðan samning en hann langi til
þess að breyta til og Liverpool sé
einmitt rétta félagið fyrir sig.
■ GEORGE Weah gæti verið á leið
til Leeds á lánssamningi út leiktíð-
ina. Weah hefur ekki unnið sér fast
sæti í liði AC Milan á leiktíðinni og
hefur fengið leyfi til þess að leita á
önnur mið frá forráðamönnum ít--c.
alska félagsins.
■ DAVID O’Leary, knattspyrnu-
stjóri Leeds, hefur verið að leita að
reyndum manni í framlínuna í stað
Jimmy Floyd Hasselbaink sem seld-
ur var síðsumars. Weah gæti verið
rétti maðurinn, a.m.k. að sinni en
hann er 34 ára. Vitað er að umboðs-
maður Weah hefur haft sambands
við Leeds en einnig Arsenal og
Mónakó, þar sem Weah var áður en
hann gekk AC Milan á hönd.
■ DAVID Batty, miðvallarleikmaður
Leeds, er farinn til meðferðar hjá
læknum í S-Frakklandi. Batty hefur
lítið leikið síðan hann meiddist á
kálfa í lok nóvember gegn South-
ampton.
■ STEFFEN Iversen, markahæsti
leikmaður Tottenham á leiktíðinni,
rill fá hressilega kauphækkun ef
hann endurnýjar samning rið sinn
rið félagið, en hann rennur út eftir 18
mánuði. Iversen er sagði rilja
sexfalda rikulaun sín og fá álíka laun
og Darren Anderton og Sol Camp-
bell. Iverson fær nú rúmlega 450.000
í laun á riku sem ku vera meðal þess
lægsta sem N-Lundúnaliðið greiðir.
■ TOTTENHAM segir kröfur Iver-
sens vera hlægilegar, en Norðmað-
urinn situr fast rið sinn keip og ritað
er að þýska félagið Kaiserslautern
hefur rennt hýru auga til hans.
■ PETER Davenport hefur verið
ráðinn til Macclesfield í stað Sammy
Mcliroy sem nú er orðinn landsliðs-
þjálfari N-fra. Davenport lék á sín-
um tíma í fremstu víglínu hjá Man-
chester United, Nottingham Forest
og Sunderland.
■ MASSIMO Taibi, varamarkvörður
Manchester United leikur að öllum
líkindum með ítalska liðinu Reggina
það sem eftir lifir leiktíðar á láns-
samningi. Þetta er þó líklega aðeins
fyrsta skref Manchester-liðsins til
þess að losa sig við Taibi, en freistar
þess að hækka verðið á honum með
þri að láta hann spila á Ítalíu.
■ TAIBI er metinn á um 120 milljón-
ir króna í dag en Manchester United
keypti hann fyrir fjórfalt hærri upp-
hæð í byrjun hausts.
■ NÚ bendir flest til þess að Dion
Dublin lefid ekki meira með Aston
Villa á leiktíðinni vegna meiðsla á
hálsi sem hann varð fyrir í kappleik á
dögunum.
■ ASTON Villa hefur í hyggju að
fjölga sætum á leikvelli sínum, Villa
Park. Eftir breytingarnar á völlur-
inn að taka 51.000 áhorfendur í sæti í
stað 39.000 nú. Framkævmdir hefj-
ast í sumar og rið upphaf leiktíðar-;
næsta sumar á völlurinn að taka
43.000 í sæti. Breytingarnar kosta
um 2,4 milljarða króna og á að vera
lokið eftir hálft þriðja ár.
■ GERARD Houllicr, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, var valinn knatt-
spyrnustjóri mánaðarins í ensku úr-
valsdeildinni fyrir nýliðinn mánuð.
Atli mætir læri-
sveinunum
ATLI Hilmarsson, þjálfari KA og fyrrverandi landsliðsmaður
í handknattleik, heldur upp á fertugs afmæli sitt í dag. Einn
liður í afmælishátíðinni er leikur í KA-húsinu kl. 17. Atli hefur
kallað á gamla samherja tii að aðstoða hann við að „lemja“ á
lærisveinum sínum hjá KA. Meðal fyrrverandi leikmanna sem
eru í afmælisliði Atla eru Sigurður Valur Sveinsson, Sigurður
Gunnarsson, Páll Ólafsson, Kristján Arason, Þorgils Óttar
Mathiesen, Gunnar Beinteinsson, Einar Þorvarðarson og Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, sem léku með Atla í landsliðinu og
Hermann Björnsson, Egill Jóhannesson og Jón Árni Rúnars-
son, sem léku með honum hjá Fram. Þá hefur Atli fengið liðs-
styrk frá KA - Erling Kristjánsson.
KORFUKNATTLEIKUR
Njardvíkingar
halda velli