Morgunblaðið - 11.01.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
8. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR11. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tsjetsjneskir uppreisnarmenn sýna Rússum hvers þeir eru megnugir
Mikið mannfall í
hörðum bardögum
Moskvu. Reuters, AFP.
Reuters
Hermenn úr sveitum rússneska innanríkisráðuneytisins sitja á bryn-
dreka á leið sinni á bardagasvæðið í Tsjetsjníu frá grannhéraðinu Ing-
úshetíu í gær. Jólahátfð rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar er nýlokið.
Iranskur ráðherra
í Lundúnum
Vonir um
bætt sam-
skipti
Lundúnum. Reuters.
KAMAL Kharrazi, utanríkisráð-
herra Irans, hitti Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, í Lund-
únum í gær-
kvöldi. Er þetta
fyrsta heimsókn
íransks ráðherra
frá því fyrir
klerkabyltinguna
í íran árið 1979,
en með henni
eru stjórnvöld í
Iran að stíga eitt
skrefið til við-
bötar í þá átt að
laga samskiptin
í samræmi við
varkára frjálsræðisstefnu Mo-
hammads Khatamis Iransforseta.
Áttu þeir Kharrazi og Blair um
hálftíma langan fund í Downings-
træti 10. „Forsætisráðherranum
þótti fundurinn uppörvandi,“ sagði
talsmaður Blairs. „Hann telur að
heimsókn Kharrazis sé tímamóta-
áfangi í því að koma íran í tengsl
við alþjóðasamfélagið á ný.“
Sagði hann ráðherrana ennfrem-
ur hafa rætt mikilvægi þess að
„eyða misskilningi og breiða yfir
liðin gagnkvæm gremjuefni", þar á
meðal áskorun Ajatollahs Khom-
einis, leiðtoga írönsku klerka-
stjórnarinnar, frá árinu 1989 til
múslíma heimsins að drepa bæri
brezka rithöfundinn Salman Rush-
die.
UPPREISNARMENN múslíma í
Tsjetsjníu gerðu í gær nokkrar
fífldjarfar árásir á hersveitir
Rússa í borgum og bæjum í hérað-
inu sem Rússar höfðu á valdi sínu.
Á sunnudag hafði skæruliðum tek-
izt að valda töluverðu mannfalli í
herliði Rússa, því mesta sem það
hefur orðið fyrir á einum degi, svo
vitað sé, frá því innrásin í Tsjet-
sjníu hófst fyrir hartnær fjórum
mánuðum.
Rússneskir hershöfðingjar
greindu frá því í gær að rússneska
herliðið hefði hrundið öllum til-
raunum skæruliða til að ná aftur
hernaðarlega mikilvægum stöðum
eins og bæjunum Argun og Shali,
austur af héraðshöfuðborginni
Grosní. En hver væri með yfír-
höndina þessa stundina í bæjunum
var ekki ljóst af orðum hershöfð-
ingjanna.
Viðurkenna að 26 hafi
fallið á einum degi
Vladimír Pútín, settur forseti
Rússlands, sagði árásirnar
tilgangslausar. Herforingjar hans
hétu því að halda sókninni áfram
af fullri hörku um leið og sú lægð í
aðgerðaskipulagi Kremlstjórnar-
innar sem fylgdi helgidagahaldi
rétttrúnaðarkirkjunnar og síðustu
dögum íslamska föstumánaðarins
ramadan væri liðin hjá.
Itar-Tass-fréttastofan skýrði frá
því, með tilvísun í yfirlýsingu frá
hernum, að tsjetsjneskir skærulið-
ar hefðu eftir að myrkur skall á í
gærkvöld hafíð nýja tilraun til að
taka lestarstöðina í Argun, 15 km
austur af Grosní. Hersveit innan-
ríkisráðuneytisins sem væri þar til
varnar hefði farið fram á stuðning
frá stórskotaliði hersins.
Áður hafði Itar-Tass greint frá
því, með tilvísun í eystra herfylki
rússneska hersins í Tsjetsjníu,
sem hefur aðalbækistöðvar í Dag-
estan austan við Tsjetsjníu, að
Rússar hefðu misst 26 menn í bar-
dögum á síðasta sólarhring. Hefðu
öryggissveitir innanríkisráðuneyt-
isins orðið fyrir mestum skakka-
föllum. Opinberir talsmenn gáfu
síðar upp misvísandi tölur. Þetta
er langmesta mannfallið sem
Rússar hafa viðurkennt að hafa
orðið fyrir á einum degi fram að
þessu.
Segja skipulagðan
skæruhernað framundan
Movladi Udugov, talsmaður upp-
reisnarmanna, sagði í símasamtali
frá ókunnum stað að árásir helgar-
innar væru aðeins upphafið að
nýrri hernaðaráætlun Tsjetsjena;
héðan í frá myndu þeir forðast
beina vígvallarbardaga við Rússa
en beita þess í stað hnitmiðuðum
skæruhernaði. Sagði hann upp-
reisnarmenn hafa þá staði sem
þeir náðu af Rússum um helgina
örugglega í sínum höndum.
Kamal
Kharrazi
við Vesturlönd,
Grelðslur vopnasalans Schreibers til CDU
Scháuble tók við
100.000 mörkum
Berlín, Norderstedt. AFP, Reuters.
AP
Svissneskur slökkviliðsmaður gengur Iijá rjúkandi leifum flaksins af lítilli
farþegaflugvél, sem hrapaði eftir flugtak frá Zurich-flugvelli í gærkvöldi.
Tíu farast í Sviss
Ztirich. AFP.
WOLFGANG Scháuble, formaður
Kristilegra demókrata í Þýzkalandi
(CDU), viðurkenndi í gær að hafa ár-
ið 1994 tekið við 100.000 mörkum,
andvirði 3,8 mO-
ljóna króna, úr
hendi Karlheinz
Schreibers,
vopnasala sem er í
haldi í Kanada og
bíður úrskurðar
um framsal til
Þýzkalands.
Þetta er íyrsta
opinbera vísbend-
ingin um að
Scháuble, arftaki
Helmuts Kohls í formannsstóli CDU,
sé hugsanlega einnig flæktur í vafa-
söm mál varðandi fjármögnun
flokksstarfsins, þótt hann hafi sagt að
hann hafi ekkert rangt gert af sér og
hafi látið féð beint í hendur fjárhirðis
flokksins.
í viðtali á ARD-sjónvarpsstöðinni
sagðist Scháuble hafa tekið við
nefndri upphæð úr hendi Schreibers,
sem er lykilmaður í saka- og þing-
rannsókn á nafnlausum fjárframlög-
um sem Kohl tók við í leynilega sjóði
flokksins á tímabilinu 1993-1998.
Schauble sagði að endurskoðun
sem í gangi væri á bókhaldi flokksins
í því skyni að eyða grunsemdum um
að þar sé pottur brotinn, hefði leitt í
ljós að þessi 100.000 marka greiðsla
frá Schreiber hefði ekki verið skráð
sem gjöf heldur sem „ýmsar tekjur".
Hinar umdeúdu greiðslur sem Kohl
tók við og lagði inn á leynilega reikn-
inga voru einnig skráðar undir þess-
ari yfírskrift. Nafnlaus framlög til
stjómmálaflokka sem fara yfir 20.000
mörk eru ólögleg í Þýzkalandi.
Kohl hafnar frétt um undir-
búning „hallarbyltingar"
Kohl vísaði á sunnudag á bug
fregnum þess efnis, að hann væri að
róa að því að „sínir menn“ gerðu hall-
ai'byltingu í flokknum vegna þess að
hann væri mjög ósáttur við hvemig
núverandi flokksforysta beitti sig
þrýstingi vegna fjármálahneykslisins
sem hann er flæktur í.
Kohl lýsti yfír skilyrðislausum
stuðningi við núverandi forystu. Með
þessu var Kohl að bregðast við frétt
dagblaðsins Suddeutsche Zeitung um
að hann væri bak við tjöldin að hvetja
frammámenn i CDU, sem sér væm
hollir, til að steypa arftaka sínum,
Scháuble, úr formannssætinu. Oll
flokksforystan, sem var saman komin
á stefnumótunarfundi um helgina,
vísaði fréttinni einróma á bug.
LÍTIL farþegaflugvél með tíu
manns innanborðs hrapaði skömmu
eftir flugtak frá flugvellinum í Zur-
ich í Sviss í gærkvöldi. Allir fórast,
að því er yfirmaður fyrirtækisins
sem átti flugvélina, SAirGroup,
greindi frá.
Sjö farþegar og þriggja manna
áhöfn voru um borð í flugvélinni,
sem var tveggja hreyfla, af gerðinni
Saab 340 Cityliner, smíðuð árið
1991 og í rekstri á vegum sviss-
neska Crossair-flugfélagsins.
Sagði forstjóri SAirGroup, Phil-
ippe Bruggiser, að orsakir slyssins
væru enn ókunnar. Hún hrapaði
nokkrum mínútum eftir flugtak frá
Zurich á akur nærri þorpinu
Niederhaschi. Áætlaður áfanga-
staður var Dresden í Þýzkalandi.
ATS-fréttastofan hefur eftir vitni á
staðnum að „risastór eldhnöttur"
hafi allt í einu umleikið flugvélina
eftir að hún var komin á loft. Hún
kom alelda til jarðar og sundraðist
þar.
Ztirich-flugvelli var lokað tíma-
bundið eftir slysið, en ágætt flug-
veður var og allt hafði virzt eðlilegt
er vélin tók á loft.
AOL kaup-
ir Time
Warner
New York. AP.
SAMIÐ hefur verið um sam-
runa Time Warner, stærsta
fjölmiðlunar- og afþreyingar-
framleiðslufyrirtækis heims,
og netþjónustufyrirtækisins
American Online (AOL), sem
einnig er stærst á sínu sviði í
heiminum. Fer samruninn
fram með því óvænta móti, að
AOL kaupir Time Warner fyr-
ir um það bil 160 milljarða
Bandaríkjadala, andvirði um
11.500 milljarða króna, og
greiðist andvirðið í hlutabréf-
um. Þetta er í fjárhæðum talið
stærsti fyrirtækjasamruni
sögunnar, ef hann gengur eft-
ir. Samkomulagið, sem kynnt
var í New York í gær, breytir
landslagi fjölmiðlaiðnaðarins
vestanhafs til muna, og kemur
fram aðeins fjóram mánuðum
eftir annan stóran samruna í
geiranum, hin áformuðu tengsl
CBS Corp. og Viacom Inc.
■ Sameinað fyrirtæki/20
MORGUNBLAÐK) 11. JANÚAR 2000
Wolfgang
Schauble