Morgunblaðið - 11.01.2000, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Time Warner og AOL sameinast í stærsta fyrirtækjasamruna sögunnar að markaðsvirði
Sameinað fyrirtæki
metið á um 25.300
milljarða króna
REUTERS
Steve Case, stjórnarformaður America Online, og Gerald Levin, stjórnar-
formaður Time Warner kynna á blaðamannafundi samruna AOL og Time
Warner, þar sem AOL kaupir hið síðarnefnda fyrir jafnvirði um 11.900
milljarða króna í hlutabréfum hins sameinaða fyrirtækis auk yfirtöku
skulda Timr Warner upp á um 1.240 milljarða króna.
AMERICA Online Netþjónustufyr-
irtækið (AOL) og Time Warner fjöl-
miðla- og útgáfufyrirtækið til-
kynntu í gær samkomulag um
samruna fyrirtækjanna, sem met-
inn er á um 13.160 milljarða ís-
lenskra króna í hlutabréfaskiptum
og skuldayfirtöku. Samruninn verð-
ur stærsti samruni sögunnar hvað
markaðsvirði áhrærir. Markaðs-
virði hins sameinaða fyrirtækis,
sem bera mun nafnið AOL Time
Warner, verður nálægt 350 millj-
örðum Bandaríkjadala eða rúma
25.300 milljarðar króna.
Samanlagðar rekstrartekjur fyr-
irtækjanna tveggja námu um 1.400
milljörðum króna á síðastliðnu
rekstrarári og samanlagður hagn-
aður þeirra var rúmir 67 milljarðar
króna.
Sameining langstærsta
fjölmiðla- og netfyrirtækisins
„Ég er nú svefnlítill en við klár-
uðum þetta klukkan fjögur í morg-
un, og tilkynntum það klukkan sjö
[um hádegisbil að íslenskum tíma í
gær]. Þetta kallaði á vökunætur yfir
helgina að ljúka þessu verki,“ segir
Ólafur Jóhann Ólafsson, varastjórn-
arformaður Time Warner Digital
Media, í samtali við Morgunblaðið.
Time Warner Digital Media sér um
þá þætti sem lúta að stafrænni
tækni og Netinu hjá Time Warner
og tók Ölafur þátt í samningavið-
ræðum vegna samrunans.
„Þetta er sögulegur samruni
tveggja fyrirtækja. Ekki aðeins
vegna þess að þetta er stærsti sam-
runi fyrirtækja í sögunni, heldur
vegna þess einnig að þarna samein-
ast langstærsta netþjónustufyrir-
tækið og einnig langstærsta fjöl-
miðlunarfyrirtækið. Nú erum við
búnir að búa til í raun nýja tegund
af fyrirtæki, sem er fjölmiðlunar-
fyrirtæki á netöld. Það er ágætt að
byrja nýtt árþúsund á því,“ segir
Ólafur Jóhann.
Búast við tvöföldun heildarveltu
Stai'fsmenn hins sameinaða fyrir-
tækis verða tæplega 80.000 talsins,
en hjá AOL vinna nú 12.100 manns
og hjá Time Warner starfa 67.500
manns. Hvað veltu og hagnað fyrir-
tækjanna tveggja varðar var velta
AOL um 347,2 milljarðar króna á
seinasta rekstrarári, en hagnaður
þess nam um 55,1 milljarði króna.
Velta Time Warner nam um 1.056
milljörðum króna og hagnaður var
um 12,2 milljarðar. Hluthafar AOL
munu eiga 55% í hinu sameinaða
fyrirtæki en hluthafar Time Warn-
er 45%. Fyrirtækið verður táknað
með stöfunum AOL á bandarískum
hlutabréfamarkaði.
Á fréttavef CNNfn í gær kom
fram að AOL fái við samrunann að-
gang að 13 milljónum áskrifenda
kapalkerfa Time Warner og jafn-
framt aðgang að ýmsu efni og titl-
um í eigu Time Warner, en þar á
meðal eru Warner Bros.-kvik-
myndaverið, Home Box Office-
kapalstöðin, CNN-fréttastöðin,
Warner Music-tónlistarútgáfufyrir-
tækið, Time-tímaritið og viðskipta-
fréttavefurinn CNNfn.com.
Á móti fær Time Warner-fyrir-
tækið aðgang að öflugri dreifileið
fyrir efni í eigu fyrirtækisins, en
ÁOL hefur nú um 20 milljónir
áskrifenda að netþjónustu sinni.
J. Michael Kelly, fjármálastjóri
AOL, sagði einnig á fréttavefnum
að forráðamenn fyrirtækjanna
gerðu ráð fyrir því að rekstrartekj-
ur hins sameinaða fyrirtækis yrðu
tæpir 2.900 milljarðar króna fyrsta
heila rekstrarár þess og að ávinn-
ingur í formi hagnaðar af rekstri
fyrir skatta og fjármagnsgjöld
myndi nema um 70 milljörðum
króna.
Frumkvæði var af beggja hálfu
Ólafur Jóhann segir að frum-
kvæði að þessum samruna hafi ver-
ið af beggja hálfu. Gerald Levin,
stjórnarformaður Time Warner,
mun verða forstjóri hins nýja fyrir-
tækis AOL Time Warner, og Steve
Case, forstjóri AOL, mun verða
stjórnarformaður þess.
„Það hefur verið starf okkar
Richards Bressler, stjórnarfor-
manns Time Warner Digital Media,
að endurskipuleggja Time Warner
og koma fyrirtækinu á réttan stað í
heimi Netsins.
Þetta má gera á ýmsan hátt. Það
má fjárfesta innanhúss sem við höf-
um gert nokkuð af. Einnig er hægt
að fjárfesta í fyrirtækjum, eða
renna saman við stærstu fyrirtækin
í hverjum geira og við ákváðum að
það væri besta leiðin.
Gerald Levin og Steve Case hafa
þekkst lengi. Þeir sátu t.d. saman í
stjórn kauphallarinnar í New York,
og byrjuðu að tala um þetta þá. En
það var ekki fyrr en nýlega sem
þetta endanlega skref var stigið,"
segir Ólafur Jóhann.
Árið fer í undirbúning formlegrar
sameiningar
Ólafur segir að árið sem nú er
nýbyrjað muni fara í að undirbúa
samruna fyrirtækjanna. „Það þarf
allra handa uppáskriftir til að svona
samrunar gangi í gegn, til dæmis
frá stjórnvöldum í Washington. Það
mun taka árið, þannig að ég býst
ekki við að hinn formlegi samruni
muni ganga í gegn fyrr og við förum
að starfa sem eitt fyrirtæki fyrr en í
lok ársins. Þetta mun því hafa mikil
áhrif á starfsemi Time Warner Dig-
ital Media og ég mun eyða árinu í að
vinna að þessum samruna og búa
okkur undir hann. Svo sjáum við
hvað maður gerir þar á eftir,“ segir
Ólafur.
Aðspurður hvort ekki verði flókið
verk að samhæfa starfsfólk þessara
tveggja fyrirtækja undir einni
stefnu segir Ólafur Jóhann að svo
muni vissulega verða.
„Öll svona fyrirtæki grundvallast
að sjálfsögðu algerlega á starfsfólk-
inu. Það má segja að eignir beggja
fyrirtækjanna fari heim að sofa á
kvöldin og komi til vinnu á morgn-
ana. Þetta er auður þessara fyrir-
tækja, ásamt viðskiptunum við
neytandann.
Það sem við þurfum að gera er að
búa til fyrirtækjamenningu fyrir
þetta nýja fyrirtæki sem er starfs-
fólki okkar samboðin, og færa neyt-
endum þann varning sem hentar,"
segir Ólafur.
Hækkanir annarra fyrirtækja
vegna væntinga um frekari sam-
runa
I samrunanum eru hlutabréf
Time Warner metin í sameining-
unni á yfir 10.800 milljarða króna,
sem er nánast helmingi meira en
um 6.000 milljarða króna markaðs-
virði Time Warner fyrir tilkynningu
sameiningarinnar. „Hluthafar Time
Warner koma geysilega vel út úr
þessu. Hlutur í Time Warner var á
64 dollara á föstudag en er á 94 doll-
ara núna í morgun," segir Ólafur
Jóhann að lokum.
Hlutabréf nokkurra annarra net-
fyrirtækja og fjölmiðlunarfyrir-
tækja hækkuðu einnig í verði í gær
vegna væntinga markaðsaðila um
hvar næsti stórsamruni mundi eiga
sér stað á þessu sviði.
Sænska stjórnin stefnir á einkavæðinffli Telia
Telenor verður
einkavætt á árinu
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
SÆNSKA stjómin hefur nú ákveðið gefið til
kynna að stefnt sé á einkavæðingu sænska ríkis-
símafyrirtæksins Telia í náinni framtíð, án þess
þó að segja það fullum fetum eða koma með nein
tímamörk. Norska stjómin hefur hins vegar þeg-
ar gert ráðstafanir tU einkavæðingar Telenor og
norska þingið hefur þegar samþykkt að Telenor
fari á hlutafjármarkað síðar á árinu.
Með því að tilnefna Lars-Eric Petersson, fram-
kvæmdastjóra tryggingafélagsins Skandia, sem
nýjan framkvæmdastjóra Telia og skipa nýja
stjórn Telia án embættis- eða stjórnmálamanna
er stigið afgerandi skref í þessa átt. Þegar sam-
runi Telia og Telenor rann út í sandinn í desem-
ber var því helst kennt um að stjórnmálamennirn-
ir hefðu haft finguma um of í spilinu.
Bæði Telia og Telenor halda fyrra striki um að
auka umsvif erlendis. Telenor tekst þessa dagana
á við British Telecommunications, BT, um kaup á
Esat, írsku símafyrirtæki.
Einkavæðing enn pólitiskt hitamál
í Svíþjóð
Hvorki Bjöm Rosengren atvinnuráðherra, sem
fer með málefni Telia, né Göran Persson forsætis-
ráðherra hafa fengist til að segja fullum fetum
hvert stefnt sé með Telia nú. Petersson hefur
þegar rætt þetta skref ítarlega við Rosengren og
segist sannfærður um að ráðherrann telji einka-
væðingu „rétta þróun fyrir Telia“. Talið er víst að
Petersson hefði ekki tekið forstjórastarfið að sér
ef hann hefði ekki talið góðar horfur á einkavæð-
ingu.
Varfærni sænsku stjómarinnar verður að
skoða í ljósi þess að einkavæðing Telia er við-
kvæmt pólitískt mál í Jafnaðarflokknum. Vinstri-
flokkurinn, sem styður minnihlutastjóm jafnað-
armanna er mótfallinn einkavæðingu, en hinn
stuðningsflokkurinn, Umhverfisflokkm-inn, hefur
tjáð sig hlynntan henni eftir að samruni TeKa og
Telenor datt upp fyrir. Á endanum þarf samþykki
þingsins fyrir einkavæðingu.
A blaðamannafundi í Stokkhólmi fyiir helgi
vom nýju mannabreytingarnar kynntar af Jan-
Áke Kark, sem nú sem fyrr er stjómarformaður
Telia, eftir að hafa verið umdeildur stjómarfor-
maður Telia Telenor frá því í haust. Á fundinum
sagði Petersson að hann áliti það eðlilegt við-
fangsefni nýrrar stjómar fyrirtækisins að undir-
búa einkavæðingu Telia með því að fyrirtækið
færi á markað.
Telenor í írsku stappi
Norska stjómin hefur gengið ákveðnar til
verks um einkavæðingaráform en sú sænska,
enda undir forystu Kjell Magne Bondevik úr
Kristilega þjóðarflokknum, sem ekki er bundinn
hugmyndafræðilegri hræðslu við einkavæðingu.
Telenor gerði í síðustu viku tilboð í kaup meiri-
hluta í írska símafyrirtækinu Esat, en mætir þar
fyrirstöðu. Hingað til hefur Telenor látið sér
nægja minnihlutakaup erlendis, en stefnir nú á
ráðandi hlut til að sýna frekar getu sína sem afl á
alþjóðlegum markaði. Esat hefm- 42% markaðs-
hlutdeild á írska farsímamarkaðnum.
Samkvæmt fréttum Financial Times í gær
hafði Esat samband við BT og nokkur önnur fyr-
irtæki um að þau kæmu inn sem hvítur riddari og
írelsuðu Esat frá kaupum Telenor á Esat. BT hef-
ur ekki staðfest fréttina, en almennt er trúað að
fréttir um þetta séu réttar. Og líkt og í Telia Tele-
nor blandast inn aðrar tilfinningar en viðskipta-
sjónarmið.
Denis O’Brien, stofnandi og stjómarformaður
Esat, á 13 prósent í fyrirtækinu og ásamt öðrum
yfirmönnum ræður hann yfu- 16 prósentum.
O’Brien er alfarið á móti því að selja ævistarfið til
Norðmanna, þó Telenor sé þegar tengt Esat með
því að eiga 49,5 prósent í Digifone, dótturfyrir-
tæki Esat. Telenor-menn hafa þegar unnið drjúgt
starf í uppbyggingu Digifone.
Vandi BT er að fyrirtækið hefur verið í marg-
víslegu samstarfi við Telenor og er því vísast ófúst
að styggja Telenor, þó enginn sé annars bróðir í
leik. Kauptilboð Telenor á Esat stendur fram á
fóstudag, en fáist ekki jáyrði mun Telenor hugs-
anlega koma með nýtt tilboð og lengdan frest.
Verkfræði-
húsið og
Hugsandi
menn sam-
einast
GENGIÐ hefur verið frá samning-
um vegna sameiningar fyrirtækj-
anna Hugsandi manna ehf. og
Verkfræðihússins hf.
Með sameiningunni á að mynda
öflugt hugbúnaðarhús með aðal-
áherslu á lausnir fyrir fjármála-
markað en fyrir skömmu samein-
uðust Verkfræðihúsið hf. og
Fjármálaheimar hf., að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Bæði félögin hófu starfsemi á
nýliðnu ári. Hugsandi menn ehf.
var stofnað síðastliðið vor af
nokkrum útskriftarnemendum í
kerfisfræði við Viðskiptaháskólann
í Reykjavík. Fyrirtækið hefur
sinnt ýmiss konar verkefnum í
hugbúnaðargerð og ráðgjöf.
Áhersla hefur verið lögð á nýsmíði
sérhæfðra kerfa fyrir fyrirtæki og
stofnanir.
Verkfræðihúsið ehf. var stofnað
í febrúar 1999 af aðilum með
reynslu og þekkingu úr hugbúnað-
ar- og fjármálageiranum. Hluthaf-
ar í nýju félagi eru, auk starfs-
manna og stofnenda, Skýrr hf. og
Teymi hf. Fyrirtækin munu starfa
undir merkjum Verkfræðihússins
og framkvæmdastjóri sameinaðs
félags er Jón Helgi Egilsson.