Morgunblaðið - 11.01.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000 29
ERLENT
Friðarviðræðum fsraela og Sýrlendinga lauk 1 gær
Vilja útkljá
ágreiningsmálin á
tveimur mánuðum
Reuters
Leiðtogarnir snæddu kvöldverð í boði Bandaríkjaforseta (fyrir miðju)
við lok viðræðnanna á sunnudagskvöld. Litið er á það sem „diplómatísk-
an“ sigur fyrir Clinton að hafa tekist að fá Barak, forsætisráðherra
fsraels, og Shara, utanríkisráðherra Sýrlands, að fallast á sameiginlegt
borðhald.
Sheperdstown, Vestur-Virginíu. AP, AFP,
Reuters, The Washington Post.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að Sýrlendingar og Isra-
elar hefðu gert með sér samkomulag
um að stefna að því að eyða ágrein-
ingsefnum sínum í samningaviðræð-
um á næstu tveimur mánuðum. For-
setinn lét svo ummælt við lok fyrstu
lotu friðarviðræðna ísraela og Sýr-
lendinga sem hafa staðið yfir í
Bandaríkjunum undanfarna viku.
Viðræðurnar hafa átt sér stað ná-
lægt bænum Sheperdstown í Vest-
ur-Virginíufylki þar sem sendi-
nefndir undir stjórn Ehuds Baraks,
forsætisráðherra Israels, og Faruqs
al-Shara, utanríkisráðherra Sýr-
lands, hafa ræðst við undir ströngu
eftirliti lífvarða og öryggissveita.
Lítill áþreifanlegur árangur er
sagður hafa náðst í viðræðunum en
þó liggur fyrir skjal þar sem sjónar-
mið aðila eru útlistuð og gera sumir
sér vonir um að það geti orðið vísir
að friðarsamkomulagi. Skjalið var
unnið af Bandaríkjamönnum sem
hafa annast milligöngu í viðræðun-
um og frá upphafí fylgst grannt með
gangi þeirra.
ítrekað hefur verið varað við of
mikilli bjartsýni á útkomu viðræðn-
anna í þessari lotu en árangurinn er
þó meðal annars sagður birtast í því
að þegar þeir Barak og Shara halda
á brott frá Bandaríkjunum verða
eftir sérfræðingar sem munu halda
áíram vinnu við útfærslu mögulegra
lausna á deiluefnum þjóðanna. Búist
er við því að sérfræðingarnir muni
sitja að störfum í nokkra daga og
hafa getur verið að því leiddar að
þeim sé ætlað að semja nokkurs
konar drög að friðarsamkomulagi
sem hægt verði að grípa til ef í ljós
kemur að stuðningur reynist fyrir
hendi í löndunum tveimur.
Ekki er vitað hvenær framhald
verður á viðræðum æðstu ráða-
manna en ýmsir hafa látið að því
liggja að það geti orðið snemma í
næsta mánuði.
Hlutur
Clintons stór
Fundir nefndanna hófust á þriðju-
degi fyrir viku og tókst snemma
samkomulag um að skipa vinnuhópa,
til að ræða fjögur aðgreind málefni:
öryggis- og varnarmál, leiðir til að
koma á vinsamlegum samskiptum
landanna, vatnsréttindi og ný landa-
mæri ríkjanna. Fljótlega hljóp þó
snurða á þráðinn í viðræðunum þeg-
ar í ljós kom að Sýrlendingar kröfð-
ust þess að framtíðarskipan land-
mæra ríkjanna yrði rædd á undan
öðrum málum. ísraelar voru andvíg-
ir því og vildu byrja á að ræða ör-
yggismál og leiðir til að koma sam-
skiptum landanna í eðlilegt horf.
Osamkomulagið um tilhögun við-
ræðnanna endurspeglar hversu við-
kvæm deiluefnin eru. Helsta þrætu-
epli ríkjanna, sem hafa opinberlega
verið í stríði frá árinu 1948, er fram-
tíð Gólanhæða, sem Sýrlendingar
hafa krafist að fá afhentar. ísraelar
unnu þær af Sýrlendingum í sex
daga stríðinu árið 1967.
Vitað var áður en viðræðumar
hófust að ekki yrði vandalaust fyrir
fulltrúa þjóðanna að ná samkomu-
lagi um Gólanhæðir en ein forsenda
þess að viðræður gátu farið fram var
þó vilji ísraela til að láta hæðirnar af
hendi gegn því að samningar næðust
um öryggismál. Segja má, að við-
ræðurnar hafí lamast vegna ágrein-
ingsins og það var ekki fyrr en á
sunnudag, sem tókst að leysa hann,
fyrir tilverknað Clintons Banda-
ríkjaforseta.
Dagblöð í Sýrlandi hafa hrósað
Bandaríkjunum sérstaklega fyrir
framgöngu þeirra í viðræðunum.
Clinton forseti hafði fimm sinnum
afskipti af gangi viðræðnanna og eru
skýrendur sammála um að íhlutun
hans hafi skipt sköpum um að þær
sigldu ekki í strand. Afskipti Clint-
ons á sunnudag, á næst-síðasta degi
viðræðnanna, urðu til þess, að samn-
ingamenn ríkjanna ræddu í fyrsta
skipti Gólanhæðir og ný landamæri
ríkjanna. Um kvöldið snæddu leið-
togarnir þrír kvöldverð í boði for-
setans.
Svenska Dagbladet
Nýir ritstjórar
STJÓRN sænska stórblaðsins
Svenska Dagbladet ákvað á fundi
sínum í gær að ráða tvo nýja að-
alritstjóra að blaðinu í staðinn
fyrir Mats Svegfors, sem til-
kynnti í ágúst síðastliðnum að
hann hygðist láta af starfi rit-
stjóra. Finninn Hannu Olkinora,
sem verið hefur ritstjóri næst-
stærsta dagblaðs Finnlands,
Aamulehti, mun verða ritstjóri
almenns efnis og fréttaefnis.
Mats Johansson, sem var leiðara-
höfundur á blaðinu árin 1980-83,
mun verða pólitískur ritstjóri,
hafa umsjón með leiðarasíðu
blaðsins og móta pólitíska stefnu
þess.
Ákvörðun stjórnarinnar hefur
vakið mikla athygli, einkum í
Finnlandi, og þykir benda til þess
að blaðið muni framvegis leggja
aukna áherslu á að fjalla um
„norræn“ málefni. Aðaleigandi
blaðsins er norska fjölmiðlafyrir-
tækið Schibsted og stjórnarfor-
maður blaðsins er Norðmaðurinn
Birger Magnus.
A fundi stjórnarinnar var einn-
ig ákveðið að auka hlutafé fyrir-
tækisins um 75 milljónir sænskra
króna, jafnvirði rúmlega 6,3
milljarða íslenskra króna, og mun
fénu verða varið til að greiða upp
hallarekstur undanfarinna ára.
Jafnframt hefur verið tilkynnt að
stefnt sé að því að rétta af rekst-
ur blaðsins fyrir árslok 2002.
Á fréttamannafundi í gær gaf
Mats Johansson, verðandi póli-
tískur ritstjóri, í skyn að þess
mætti vænta að blaðið yrði
hlynntara aðild Svía að Efna-
hags- og myntbandalagi Evrópu
(EMU) eftir að hann tæki við.
Æ
Sjúkravörur ehf.
Verslunin Remedía
Ný sending af
SOFT SPOTS SKÓM,
mokkasíur og reimaðir
Einnig í extra breidd.
Vinsamlega vitjið pantana
ATH.
í bláu húsunum
við Fákafen,
sími 553 6511
Útsala-
ntiklB verdlækkun
JOHA
ST0MMER
SlMI 553 3366
G L Æ S I B Æ
Útsalan er hafin
Allt að 70% afsláttur
B OUTIQUE
lANTIQUE;
Laugavegí 20b
Laugavegi 20b, sími 552 2515 Laugavegi 20b, sími 551 9130.
Þunglyndi, ,
** # er alvarlegur
og algengur sjúkdómur.
Þunglyndi fer ekki í manngreinarálit.
Sjúkdómurinn leggst jafnt á unga sem aldna.
Helstu einkenni hans eru:
Hryggð, vonleysi, sektarkennd
Almennt áhugaleysi
Svefntruflanir
Þreyta og orkuleysi
Einbeitingarleysi
Tíð grátköst
Breytingar á matarlyst og þyngd
Hugsanir um sjálfsvíg
Leitaðu læknis eða á heilsugæslustöð sem fyrst, ef þú hefur haft
fjögur eða fleiri þessara einkenna í tvær til fjórar vikur.
Ef einhver þér nákominn hefur þessi einkenni, gríptu þá í taumana.
Möguleikar á bót eru mjög miklir.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
FræSsluauglýsing frá Landlæknisembættinu
www.landlaeknir.is