Morgunblaðið - 11.01.2000, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000 39
IRtaigisfsM&frÍfr
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
HÉRAÐSDÓMI
ÁFRÝJAÐ
Ríkissaksóknari hefur nú áfrýjað dómi Héraðsdóms Vest-
fjarða til Hæstaréttar. Það var rétt ákvörðun að draga
þessa áfrýjun ekki. Ovissan, sem dómur Héraðsdóms Vest-
fjarða hefur skapað, er svo mikil, að það skipti máli að
ákvörðun um áfrýjun yrði tekin strax. Það hefur nú verið
gert og þar með er Vatneyrarmálið komið til Hæstaréttar.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem fram komu í Morgun-
blaðinu í gær má búast við að þrír til fjórir mánuðir líði þar
til niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir. Það má því búast við
dómi Hæstaréttar jafnvel fyrir maílok, ef mál þetta fær
svipaða meðferð og önnur opinber mál. Þar með er tening-
unum kastað og drög hafa verið lögð að því að Hæstiréttur
taki afstöðu til 7. gr. laganna um stjórn fiskveiða frá 1990.
Fyrirfram er ekki hægt að gera ráð fyrir einu eða neinu í
sambandi við dóm Hæstaréttar, þótt fínna megi vísbending-
ar í dómi réttarins frá því í desember 1998 um afstöðu hans
til 7. greinarinnar.
I ljósi þess að búast má við niðurstöðu frá Hæstarétti í vor
væri mikið óráð af einstaka útgerðarmönnum að hefja veið-
ar án aflaheimilda. Þeir sem trúa á það, að Hæstiréttur kom-
ist að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Vestfjarða, hljóta
að geta sýnt biðlund fram á vorið. Þar að auki eiga þeir hinir
sömu yfir höfði sér dóma ef svo færi að Hæstiréttur kæmist
að allt annarri niðurstöðu en Héraðsdómur Vestfjarða.
Það er til marks um þá nýju stöðu, sem dómsvaldið í land-
inu er komið í, að stór hópur fólks bíður nú í eftirvæntingu
eftir niðurstöðu Hæstaréttar í máli, sem valdið hefur mikl-
um deilum í þjóðfélaginu á annan áratug. Það er algengt í
öðrum löndum og þá ekki sízt í Bandaríkjunum að dómstólar
og þá sérstaklega Hæstiréttur taki ákvarðanir í einstökum
málum, sem geta haft gífurlega pólitíska þýðingu og djúp-
stæð þjóðfélagsleg áhrif. Þannig hafði Hæstiréttur Banda-
ríkjanna grundvallaráhrif á þróun mannréttindabaráttu
blökkumanna þar í landi.
Hæstiréttur Islands hefur nú þegar haft mikil áhrif á um-
ræður um kvótakerfið og hugsanlegar breytingar á því.
Dómur Hæstaréttar í máli Valdimars Jóhannessonar leiddi
til víðtækra umræðna og sýndist sitt hverjum. Við því er
ekkert að segja og Garðar Gíslason, forseti Hæstaréttar,
lýsti því í viðtali við Morgunblaðið fyrir nokkrum dögum, að
Hæstiréttur hefði ekkert við það að athuga að dómsniðurs-
töður hans væru gagnrýndar. Hins vegar benti hann á, að
dómarar í Hæstarétti gætu eðli málsins samkvæmt ekki
tekið þátt í slíkum umræðum. Með dómsorði sínu og rök-
stuðningi fyrir því hefðu þeir lýst afstöðu sinni.
Harkaleg viðbrögð almennings í kjölfar dómsins í Vatn-
eyrarmálinu sýna, að reiði fólks vegna þess hvernig kvóta-
kerfíð hefur þróazt og til hvers það hefur leitt er jafn mikil,
ef ekki meiri en áður. Þessi reiði er skiljanleg. í skjóli kvóta-
kerfisins hafa tugir milljarða verið færðir frá þjóðinni til til-
tölulega fámenns hóps einstaklinga. Hinn almenni borgari
er ekki á móti kvótakerfínu sem slíku en hann er andvígur
gjafakvótakerfinu í grundvallaratriðum.
Því má hins vegar ekki gleyma, að jafnvel þótt Hæstirétt-
ur staðfesti dóm Héraðsdóms Vestfjarða er málið ekki leyst.
Það sem þá mundi gerast ef ekkert annað kæmi til væri það
að sóknarkerfi tæki við af kvótakerfi. Þótt Hæstiréttur felli
dóma í ágreiningsmálum, sem geta haft grundvallarþýðingu
er það löggjafarvaldið, sem setur lögin í landinu. Þess vegna
er mikilvægt að löggjafarvaldið taki nú af skarið og geri þær
breytingar á kvótakerfinu, sem duga til þess að skapa það
jafnræði, sem dómur Hæstaréttar fyrir rúmu ári benti til að
rétturinn krefðist. Lykilatriði í slíkri lagabreytingu er að út-
gerðarmenn borgi fyrir réttinn til þess að nýta auðlindina og
að þeir borgi til almennings í stað þess að borga í vasa hver
annars eins og nú.
Það er allra hagur að þetta deilumál verði leyst. Hags-
munir útgerðarfyrirtækjanna kalla á slíka lausn. Það er
auðvitað óþolandi fyrir stjórnendur þeirra að eiga yfír höfði
sér stöðuga óvissu um það við hvaða aðstæður þeir starfa.
Það er hagsmunamál fyrir stjórnmálamennina að þetta mál
verði leyst. Djúpstæðar deilur af þessu tagi, sem standa í
meira en áratug, taka sinn toll eins og reynslan hefur sýnt.
En fyrst og fremst er það krafa þjóðarinnar um réttlæti,
sem kallar á lausn. Alþingi hlýtur að hlýða því kalli.
Því er stundum haldið fram, að erfítt sé að finna lausn,
sem víðtæk samstaða geti tekizt um. Það er rangt. Það er
hægt að ná samkomulagi um fyrirkomulag í fiskveiðistjórn-
un, sem tryggir kosti kvótakerfisins fyrir sjávarútveginn og
einstök fyrirtæki en sem jafnframt fullnægir kröfum al-
mennings um að þjóðin fái í sinn hlut eðlilegan afrakstur af
þeirri auðlind, sem er í hennar eigu.
Tjón á varnargörðum og hafnarmannvirkjum í aftakaveðri á háflóði við suðurströndina í gærmorgun
Mikill sjógangur var á háflæði við Stokkseyri í gærmorgun, en öflugir varnargarðar vörðu bæinn vel fyrir ágangi sjávar. Myndin er tekin um klukkan ellefu í gærmorgun og sýnir vel volduga
sjóvamargarðana framan við bæinn.
Morgunblaðið/Rax
Vamargarður rétt vestan við Stokkseyri fór í sundur á nokkrum stöðum á um 100 metra
kafla. Sjógangurinn skolaði gijóti og torfi yfir á veginn og lokaðist hann um tima.
Sjór fiæddi yfir veginn austan við Stokkseyri og bar brimið með sér gijót og klaka upp á veg-
inn. Á myndinni sést lögregluþjónn ýta stómm rekadrumbi af veginum, en rétt austan við
þennan stað flæddi sjór yfir veginn og rauf hann á einum stað.
Varnar-
garðar stóð-
ust ágang
sjávar
VARNARGARÐAR rofnuðu og vegurinn
austan Stokkseyrar fór í sundur í miklu sjó-
veðri sem gekk yfir Eyrarbakka og Stokks-
eyri á háflóði á áttunda tímanum í gærmorg-
un. Ekkert tjón varð þó af völdum
veðurhamsins í bæjunum sjálfum, enda stóð-
ust aðalvarnargarðarnir framan við þá
áganginn vel. Grjóthnullungar og jarðvegur
skoluðust upp á veginn á milli Stokkseyrar og
Eyrarbakka og varð af þeim sökum ófært á
milli staðanna um tíma.
Sjór flæddi yfír veginn austan við Stokks-
eyri og þegar birti kom í ljós að vegurinn var
rofinn á einum stað. Þar er enginn sjóvarnar-
garður og sást þar vel, hvernig grjót, jarð-
vegur og klakastykki höfðu borist upp fjör-
una á veginn undan sjóganginum.
Vestan Stokkscyrar var hlaðinn varnar-
garður farinn í sundur á þremur stöðum á um
100 metra kafla. Þar lokaðist vegurinn eftir
að flætt hafði yfir hann og brimið skolað upp
gijóti og jarðvegi úr varnargarðinum. Af
þeim sökum var ákvcðið að hætta við skóla-
hald í barnaskólunum um morguninn, þar
sem ófært varð á milli Stokkseyrar og Eyrar-
bakka. Grunnskólahaldi hagar þannig til á
þessum stöðum að eldri grunnskólabörn eru
öll í skólanum á Eyrarbakka en þau yngri eru
öll á Stokkseyri og er þeim ekið á milli stað-
anna.
Björgunarsveitarmenn frá SVFI voru á
vakt á Stokkseyri frá því snemma um morg-
uninn, en að þeirra sögn kom ekkert upp á,
þannig að vandræði eða tjón hlytist af. Einn
björgunarsveitarmannanna býr rétt innan við
sjóvarnargarðinn og sagði hann, að mikið
hefði gengið á fyrir utan hann, en ekkert hafi
skilað sér yfír garðinn, nema sjór sem fauk í
þéttum úða yfir húsin.
Að sögn björgunarsveitarmanna hélt varn-
argarðurinn mjög vel og var mál manna að
greinilegt væri að vel hefði tekist til með end-
urbyggingu hans eftir að stormflóð gekk þar
yfir í janúar 1990. Þá voru lagðir 1.400 metr-
ar af görðum (47.300 rúmmetrar), eldra gijóti
endurraðað og mold lögð yfir toppinn og sáð
í.
Á Eyrarbakka, þar sem einnig er öflugur
varnargarður framan við bæinn, voru lítil
ummerki um sjóganginn sjáanleg þegar birti
af degi.
Umtalsvert
tjón varð í
Grindavík-
urhöfn
TALSVERT tjón varð á hafnarmannvirkjum í
Grindavík í gær þegar sjór gekk á land á há-
flóði. Mest er tjónið á löndunarbryggju sem
losnaði í ölduganginum. Nýlega var lokið end-
urbótum á bryggjunni fyrir 16 milijónir króna.
Einnig skemmdist sjóvarnagarðurinn við
Hópnes.
„Skemmdir á löndunarbryggjunni fyrir
smábáta koma sér illa. Við vorum að Ijúka við
að endurnýja og endurbyggja hana nú í haust
og kostaði það okkur 16 milljónir króna. Ég
trúi því ekki að hún sé alveg farin ( súginn,
býst við að sjálft bryggjudekkið og bitar undir
því sé nýtanlegt en viðgerð gæti engu að síður
kostað milljónir. Ég á von á þvf að við-
lagatrygging bæti tjónið því það er af völdum
náttúruhamfara," sagði Einar Njálsson, bæj-
arsljóri íGrindavfk.
Verulegt eignaljón varð við höfnina því þar
stóðu meðal annars tugir einkabfla sjómanna
sem eru í róðri. Margir þeirra flutu um
bryggjur og bakka er sjófyllurnar gengu á
land en þær æddu flestar upp fyrir Seljabót,
götuna sem liggur meðfram höfninni.
Einnig flutu gámar um hafnarsvæðið og
brimið hefur borið þara og stærðar grjót um
allt hafnarsvæðið og upp fyrir Seljabót. Eitt-
hvað var um að landfestar báta slitnuðu en
eigcndur þeirra voru til taks og festu þær jafn-
óðum. Þá gekk sjór inn f gamla slysavarnarfé-
Það var erfitt að sjá að skipin lægju við bryggju í Grindavfk vegna þess að sjór flæddi yfir
hana. Landfestar nokkurra báta slitnuðu f atganginum.
Löndunarbryggja í Grindavík skemmdist talsvert mikið í flóðinu. Nýlega var umtalsverð-
um fjármunum varið til endurbóta á henni.
Morgunblaðið/Júlíus
Talsvert tjón varð á bflum sem stóðu á bryggjunni, en eins og sjá má voru þeir umflotnir sjó f
gærmorgun. Bflarnir eru f eigu sjómanna sem voru á sjó þegar briinið skall á.
lagshúsið, Oddsbúðina, sem stendur við við-
lagasjóðsbryggjurnar svo að þar var allt á <já
og tundri er að var komið í gærmorgun en þar
hefur verktakafyrirtækið Jón og Margeir að-
stöðu.
Sjómenn við höfnina segja að meiri sog-
kraftur virðist vera f höfninni eftir að sigling-
arennan var dýpkuð sfðastliðið sumar.
Ennfremur flæddi inn í hús Fiskmarkaðs
Suðurncsja og viktir og annar tækjabúnaður
skemmdist. Þá flæddi inn í kjallara að minnsta
kosti eins húss f bænum. Sjór gekk á land þar
sem golfvöllur Grindvfkinga er og er óttast að
völlurinn hafi skemmst.
100 metra skarð í sjóvarnargarðinn
„Við skoðuðum garðinn fyrir hádegið og
vorum að skjóta á að það hafi skolast úr hon-
um um 100 metrar austur í hvilftinni við
Hópsnesið. Brimið hefur borið gijótið upp f
nesið, þar liggur það um allt eins og hrá-
viði og tjamir, svonefnd síki, em allar full-
ar af sjó. Vegurinn kringum nesið er ófær
meðal annars af þessum völdum,“ sagði
Agnar Agnarsson, aðgerðastjóri lyá björg-
unarsveitinni Þorbimi í samtali við Morg-
unblaðið.
Agnar sagði að engin hætta ætti að vera
Á ferðum innan hafnar þótt skarð hefði
rofnað í sjóvarnargarðinn. Sjórinn myndi
einungis ganga upp f Ilópsnesið og flæða
þar út um allt.
Síðdegis var byrjað að nota vinnuvélar
við að lagfæra skemmdirnar á sjóvarna-
garðinum við Hópsnesið, en talin er hætta
á frekari skemmdum á garðinum.
Vatn lak ofan á siglingahermi í
Stýrimannaskólanum
Morgunblaðið/Júlíus Sigurjðnsson
Víðir Sigurðsson kennari stendur við siglingaherminn sem varð
fyrir lekanum.
Hugsanlegt tjón
gæti numið milljónum
króna
„VIÐ höfum ekki þorað að kveikja
á samlíkinum; erum að reyna að
þurrka hann. Hann hefur sloppið
tvisvar áður en nú lak vatn á hann
í þriðja sinn og hafi hann skemmst
gæti tjónið numið einhverjum
milljónum króna,“ sagði Víðir Sig-
urðsson, kennari og umsjónar-
maður siglingaherma Stýri-
mannaskólans, en vatn lak niður á
einn þriggja herma skólans í fyrr-
inótt.
Vatn lak inn á falskt loft ofan
við herminn. Um það mikið vatn
var að ræða að ein loftplata gaf sig
undan vatnsþunganum.
„Okkur hafði verið sagt að búið
væri að gera við þakið eftir fyrri
lekana tvo og að við þyrftum ekki
að hafa frekari áhyggjur af því.
Hefði næturvörðurinn ekki litið
hérna inn hefði getað farið miklu
verr,“ bætir Víðir við.
I kennsluhúsinu eru þrír sigl-
ingahermar og lak vatn niður á
stjórnborð eins þeirra en inni í því
er tölvubúnaður hermisins. Hinir
hermarnir sluppu en samtals
kosta þeir tugir milljóna króna, að
sögn Víðis.
Hann sagði að fulltrúi norsks
framleiðanda hermanna kæmi til
landsins í næstu viku til að yfir-
fara þá og kæmi þá hugsanlegt
tjón endanlega í ljós.
Hús Stýrimannaskólans þarfn-
ast mikilla endurbóta við, en í
vatnsveðrum hefur vatn lekið inn í
skólann í mörg ár. Áætlun um
endurbætur á skólanum sem gerð
var árið 1997 gerði ráð fyrir að
viðgerð kostaði um 300 milljónir.
Fyllan greip
bíiinn og færði
hann upp á land
„ÉG VAR að aka eftir götunni við
Kvíabryggjuna er ein fyllan ruddist
skyndilega á land og það skipti eng-
um togum að bíllinn flaut upp og hún
bar hann upp á land og á ljósastaur
fyrir ofan Seljabót,“ sagði Halldór
Ingvarsson í Grindavík, en hann
varð fyrir óskemmtilegri reynslu við
Grindavíkurhöfn í gærmorgun.
„Ég held að bíllinn sé ekkert
skemmdur. Hann er það þéttur að
það komst enginn sjór inn í hann og
hann hélst í gangi. Það var dálítið
sérkennilegt að lenda í þessu en ég
var aldrei í hættu, held ég. En auð-
vitað hefði ég ekki átt að vera að álp-
ast þarna út að,“ sagði Halldór.
Hann kvaðst hafa brugðist skjótt
við er flóðið greip bílinn og skrúfað
niður gluggann. Er hann stöðvaðist
við staurinn greip hann fastataki ut-
an um hann. „Ætli mér hefði nokkuð
tekist að halda mér og bílnum föst-
um þar ef fyllan hefði viljað gera eitt-
hvað meira,“ bætti Halldór við.
Flóð vi’ð Vík í
Mýrdal
SJÓR gekk á land austan við Vík f
Mýrdal í gærmorgun. Hesthús rétt
austan við bæinn voru um tíma um-
flotin vatni. Varnargarðar voru fyrir
nokkrum úrum byggðir við Vík og
því var aldrei hætta á að sjór næði
niður að þorpinu. Þegar kom fram
undir hádegi var sjór að mestu geng-
inn til baka. íbúar í Vík hafa hins
vegar vissar áhyggjur af því að sand-
ur, sem barst með flóðinu, blási yfir
þorpið þegar þornar.