Morgunblaðið - 11.01.2000, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000 47j
+ Laufey Sigur-
sveinsdóttir var
fædd í Vík í Lóni 24.
október 1905. Hún
andaðist á Höfti 2.
janúar siðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru. Sigursveinn
Sigurðsson, f. á
Reyðará í Lóni 26.
okt. 1877, d. í Vík 24.
maí 1938, og Jónína
Sigríður Jónsdóttir,
f. á Setbergi í Nesj-
um 16. okt. 1873, d. í
Vík 18. okt.1971, og
bjuggu þau í Vík frá
1901-1938.
Foreldrar Sigursveins í Vík
voru Sigurður Sigurðsson, f. í Bæ í
Lóni 27. júlí 1846, d. í Vík 8. jan.
1929, og Sigríður Jónsdóttir, f. á
Reyðará 20. jan. 1835, d. í Vík 25.
okt. 1917, og bjuggu þau á Reyð-
ará 1863-1893. Foreldrar Sigurðar
Sigurðssonar voru Sigurður
Magnússon, f. á
Rauðabergi í Fljóts-
hverfi 9. mars 1806, d.
25. okt. 1858, og Guð-
rún Ásmundsdóttir, f.
í Vík 1818, d. 30. júm'
1910, og bjuggu þau
lengst í Karlsfelli í
Lóni. Foreldrar Sig-
ríðar Jónsdóttur, f.
1835, voru Jón Hall-
dórsson, f. í Þórisdal í
Lóni 1796, d. 4. sept.
1843, og Guðný Þor-
steinsdóttir, f. 1798, d.
3. júlí 1883, og bjuggu
þau á Reyðará í Lóni.
Foreldrar Jónínu Sigríðar Jóns-
dóttur ( móður Laufeyjar) voru
Jón Jónsson söðlasmiður á Set-
bergi í Nesjum, f. í Krossalandi í
Lóni 13. maí 1827, og kona hans,
Sesselja Sigurðardóttir, f. í Byggð-
arholti í Lóni 18. sept. 1837, d. í
Vik 5. okt. 1925, systir Sigurðar
Sigurðssonar bónda á Reyðará.
Jón söðlasmiður var sonur Jóns
Eyjólfssonar, f. 1792, d. 29. okt.
1844, og Kristínar Jónsdóttur, f.
1802, d. 7. maí 1860. Jón Eyjólfs-
son, og Kristín Jónsdóttir bjuggu
lengst í Krossalandi og Vík í Lóni.
Bróðir Laufeyjar var Gunnar Sig-
ursveinsson, f. 25. júlí 1904, d. 5.
júní 1963, kona hans er Inga Þor-
leifsdóttir, f. 31. des. 1908. Böm
þeirra em Sveinn Þór, f. 2. des.
1935, og Ragna Sigríður, f. 9. jan.
1931. Fósturbróðir Ólafur Gunn-
arsson sálfræðingur, f. 30. ágúst
1917, d. 25. des. 1988.
Laufey giftist Jóni Guðmunds-
syni, f. að Heinabergi á Mýrum 19.
febr. 1892, d. 5. júní 1982, dóttir
þeirra var Unnur, f. 11. maí 1928,
d. 1. aprfl 1989, hún var ógift og
barnlaus. Fóstursonur þeirra er
Arnar Haukur Bjarnason, f. 3. júlí
1942, ókvæntur og baralaus, býr á
Höfn.
Laufey og Jón bjuggu í Vík í
Lóni til ársins 1955, en fluttu þá á
Höfn, þar sem þau bjuggu síðan.
Aldur og áföll bar hún fádæma vel
og var andlega hress alla tíð.
Útför Laufeyjar fer fram frá
Hafnarkirkju f dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
LAUFEY
SIG URS VEINSDÓTTIR
Með Laufeyju Sigursveinsdóttur
er genginn einn eftirminnilegasti
fulltrúi þeirrar kynslóðar sem settu
svip sinn á mannlíf í Austur-Skafta-
fellssýslu á þeirri öld sem nú er að
kveðja, því segja má að lífshlaup
Laufeyjar spanni nær alla sl. öld,
hún var fædd 24. október 1905 og
var því rúmlega 94 ára gömul er hún
lést.
Sá er þetta ritar minnist Laufeyj-
ar frænku, eins og hún var jafnan
nefnd, með þökkum, hlýhug og virð-
ingu. Þökkum fyrir það uppeldi og
atlæti, sem hún veitti mér, er ég
dvaldi fjölmörg sumur hjá henni og
fjölskyldu í Vík í Lóni, hlýhug fyrir
ævarandi vináttu og virðingu fyrir
þeim mannkostum og kærleika sem
hún bjó yfir.
I þann tíma er ég kom fyrst að Vík
í Lóni vom nær allar ár í Austur-
Skaftafellssýslu óbrúaðar og þar
með nær allar ár í Lóni og sýslan öll
miklu einangraðri frá öðrum lands-
hlutum en nú er. Slíkir vegartálmar
hafa vafalaust aukið á einsemd og
einangrun fólksins, en um leið leitt
af sér samkennd og hjálpsemi við
nágranna og samferðamenn. Þyrfti
að byggja hús, bátkænu eða aðstoða
við gegningar eða fylgd á hestum yf-
ir ár og vötn var það alltaf sjálfsagt
og eðlilegt, endurgjald fyrir slíkt
þekktist ekki.
Þetta var fyrir tíma gististaða og
því var gisting veitt og matur fram
borin og ekki til þess ætlast að fyrir
yrði greitt. Þetta var fyrir tíma
byggingameistara og stéttafélaga,
en á tímum þjóðhaga, völunda og
sjálfmenntaðra einstaklinga.
Ég hef ekki í annan tíma kynnst
betur gerðu fólki né hæfari einstak-
lingum og þannig var með frænku
mína frá Vík, hún er mér einstaklega
eftirminnileg, góðum gáfum gædd,
skemmtileg, víðlesin og hagmælt.
Þegar ég kom að Vík í byrjun
sumars 1950 tæplega 5 ára gamall
ásamt Guðmundi bróður mínum,
sem var árinu eldri, var tvíbýli í Vík.
Laufey og Jón Guðmundsson bjuggu
í vestur bænum ásamt dóttur sinni
Unni og fóstursyni Arnari, en Inga
Þorleifsdóttir og Gunnar Sigur-
sveinsson, bróðir Laufeyjar, í aust-
urbænum ásamt fjölskyldu sinni.
Þar bjó einnig móðir Laufeyjar og
Gunnars, Sigríður Jónsdóttir.
Mér er þetta fyrsta ferðalag mitt
eftirminnilegt fyrir margar sakir,
ferðin frá Höfn tók nær allan daginn,
fyrst um einstigi Almannaskarðs og
síðan um Suður-, Mið- og Austur-
Lón. Frðin var farin í fylgd Eiríks
Guðmundssonar frá Þorgeirsstöðum
sem þekkti manna best öll vatnsföll í
Lóni. Mér telst svo til að við höfum
þurft að fara yfir 7 vatnsföll, sem öll
voru óbrúuð, sum smá en önnur stór,
en mesta og hættulegasta vatnsfallið
var Jökulsá í Lóni. Ljóst má vera að
lítill snáði var orðinn þreyttur þegar
komið var á leiðarenda, en þá mættu
mér frænka mín og Unnur dóttir
hennar, sem segja má að hafi fóstrað
mig í 5 sumur samfleytt. Hér skal
Unni þakkað, en hún lést árið 1989
og varð öllum sem til hennar þekktu
mikill harmdauði. Bær þeirra Lauf-
eyjar og Jóns var hlýlegt steinhús,
rafvætt með vindrellu og í alla staði
hið vistlegasta. Jón bóndi hafði á
yngri árum siglt til Danmerkur og
numið þar bústörf. Bú þeirra bar
yitni um myndarskap og menningu.
Ég hef oft á seinni árum leitt að því
hugan, hvemig fólk sem bjó svo af-
skekkt varð svo vel að sér um alla
hluti.
A stéttinni framan við bæinn var
okkur bömunum kennt að þekkja
helstu stjömumerki himintungla,
þegar myrkra tók á síðsumarskvöld-
um.
Við vorum leidd um fjöll og engi
þar sem okkur var kennt að þekkja
grös og blóm. Við fengum amboð,
hrífu, orf og Ijá, sniðin að okkar þörf-
um, til þess að kenna okkur dagleg
störf. Við vorum sjálfskipuð í skips-
rúm til þess að vitja um silunganetin,
kúasmalar og fjósamenn, allt þetta
og margt fleira var okkur kennt og
alltaf voru svör við öllum okkar
spurningum á reiðum höndum.
Svona liðu sumrin hvert af öðru og
alltaf var sama tilhlökkunin að koma
að Vík, þegar Víkurbæirnir birtust
framundan af beygunni við Skiphóla
fannst mér ég vera komin heim.
Bókasafn heimilisins einkenndist
mest af bókaflokki sem hét Lönd og
lýðir, sem var nokkurs konar alfræði
orðabók þess tíma, ævisögum og
kvæðabókum þeirra Einars Ben,
Davíðs, Matthíasar og Stefáns G.
bændablaðinu Frey og sunnudags-
blaði Tímans.
í þessar bókmenntir sótti fólkið
þekkingu sína, svo og til gesta og
gangandi. Nokkur sumur dvöldu
jarðfræðingar í Vík ogvoru að ganga
og kortleggja steina og bergmynd-
anir í Austur-Lóni, og þá nýtti Lauf-
ey það tækifæri til að fræðast. Hún
var mikil áhugamanneskja um
steinasöfnun og þekkti flestar
steintegundir með nöfnum.
Allt lék í höndum hennar. Nú á
undanförnum ámm fengum við fjöl-
skyldan ávallt jólakort sem hún
hannaði sjálf með málverki og litum,
skreytt með hennar forkunnar fögru
rithönd. Ekki get ég lokið við grein-
arkorn þetta án þess að gera örlítið
grein fyrir skáldkonunni Laufeyju
frá Vík í Lóni, en hagmælt var hún
vel og átti einstaklega gott með að
meitla hið kjarnyrta mál sitt í Ijóð
sín. Út hafa komið nokkur ljóð henn-
ar á prenti í héraðsblöðum og tíma-
ritum, en það var ekki hennar stíll að
halda þessum hæfileika sínum að
neinum frekar en öðm sem hún vel
gerði.
Það fer vel á því við leiðarlok að
rifja upp eitt af kvæðum Layfeyjar
frá Vík í Lóni, þar sem hún lítur yfir
farin veg á tímamótum í lífi sínu á
þann hátt sem henni einni var lagið:
Gekk ég einn morgun um götu heima
ranns
er gekk ég fyrrum bemsku og þroska árin.
Þá leit ég í brekkunni bjartan geisla dans,
blessuð sólin gyliti daggartárin.
Ævin mín líður, ekkert stundar hik
elfa tímans streymir fram með árin.
Eg geymi i muna það guðdóms augnablik,
er geislar sólar brutu daggartárin
Þessi hugljúfu orð segja allt sem
segja þarf um þrána til heimahaga,
þar sem rætur okkar liggja, þar sem
við vomm alin, og þar sem Laufey
fóstra mín kenndi mér að hlusta á
landið. Við Guðrún kona mín vottum
Arnari og ættingjum okkar dýpstu
samúð, megi minningin um mikil-
hæfa konu lifa. Að lokum vil ég vitna
til orða Þorsteins Valdimarssonar
skálds og gera þau orð að mínum, en
hann komst svo að orði einhverju
sinni:
Sumirkveðja
og síðan ekki
söguna mek.
-Aðrirmeðsöng
sem aldrei deyr.
Hilmar Sigurðsson.
Fýrir handan hafið strönd
heldégmunifinna,
þar bíða ónumd óskalönd
unaðsdraumaminna.
(L.S.)
„Þú færð ekkert jólakort frá mér um
þessi jól!“ Það var glettnisblik í
brúnu augunum hennar Laufeyjar
frænku minnar er hún mælti þetta.
Ég sat hjá henni seint á jólafóstu í
hlýrri og vistlegri stofunni á hjúkr-
unarheimilinu þar sem henni hafði
þá fyrir stuttu verið búinn staður.
Það lágu jólakort á borðinu, kort
sem hún hafði teiknað á og skrifað
jólakveðjur með þessari óviðjafnan-
legu rithönd, sem virtist hafa gleymt
að eldast. „Þetta er ómögulegt hjá
mér, ég er hætt þessu,“ bætti hún
við. Við komum okkur saman um að
hafa ekki áhyggjur af jólakortum.
Ég hafði orð á því að hér færi vel um
hana. Hún samsinnti því en svo leið
aftur glettnisbros yfir andlitið. „Ég
er hér í biðsal dauðans," sagði hún.
Við urðum sammála um að það vær-
um við raunar öll, hvar svo sem við
dveldum. Þegar við kvöddumst hafði
ég óljóst hugboð um að það yrði í síð-
asta sinn. Sú varð og raunin.
Laufey Sigursveinsdóttir fæddist
í Vík í Lóni 24. október 1905, dóttir
hjónanna Sigríðar Jónsdóttur og
Sigursveins Sigurðssonar er þar
bjuggu. Hún erfði suðrænt útlit for-
mæðra sinna, biún augu, dökkt hár
og hörund og varð ein í hópi fríðra
meyja í Lóni á þeirri tíð. Tvíbýli var í
Vík á bernskuárum Laufeyjar því
þar bjó einnig föðurbróðir hennar
Sigurjón Sigurðsson ásamt konu
sinni Guðrúnu Gísladóttur og dætr-
um þeirra tveim, Svövu og Ástu.
Bróðir Laufeyja, Gunnar, var árinu
eldri. Frændsystkinin fjögur vom
vel gefin, söngelsk, glaðsinna og
skemmtileg og með þeim var mikið
ástríki. Laufey átti minningar um
bjarta bernskudaga við leik og störf
heima í Vík. Sorgin knúði dyra á
heimilinu er Sigurjón lést á besta
aldri árið 1917. Á þeim árum var
lungnabólgan vágestur sem lagði
marga að velli í blóma lífsins. Tveim
árum síðar voru Guðrún og dæturn-
ar fluttar burt, þó ekki lengra en að
Volaseli í sömu sveit og var samband
þessa frændfólks traust meðan ævin
entist.
18 ára gömul fór Laufey að heim-
an og dvaldist á Stöðvarfirði vetrar-
langt við nám og störf hjá frænku
sinni Nönnu Guðmundsdóttur og
síðar vann hún þar á símstöðinni um
tíma. Á Djúpavogi var hún hluta úr
vetri og lærði m.a. að sauma karl-
mannaföt, en það var kunnátta sem
oft kom sér vel á þeim tíma.
17. maí 1927 giftist Laufey Jóni
Guðmundssyni frá Heinabergi á
Mýmm og hófu þau búskap í Vík í
tvíbýli á móti foreldrum hennar,
Gunnari bróður hennar og konu
hans, Ingu Þorleifsdóttur frá Svín-
hólum. Allt þetta fólk átti farsæla
samleið. Laufey og Jón eignuðust
eina dóttur, Unni, og tóku síðar til
fósturs systurson Jóns, Arnar
Bjamason. Þau bjuggu farsælu búi í
Vík uns þau fluttu til Hafnar í
Hornafirði árið 1955, en heilsa Jóns
var þá tekin að bila. Hann andaðist
árið 1982 en Laufey hélt áfram
heimili með dóttur sinni og fóstur-
syni.
Laufey var félagslynd, fjölhæf og
gáfuð kona. Hún tók virkan þátt í fé-
lagsstarfi í Lóni á meðan hún átti
þar heima, bæði með kvenfélaginu
Grein og ungmennafélaginu Hvöt.
Sú er þetta ritar minnist þess er
áhugafólk í ungmennafélaginu setti
upp leikritið Maður og kona, samið
upp úr samnefndri skáldsögu Jóns
Thoroddsen. Þá taldi Laufey ekki
eftir sér að ganga 12-13 km leið á
æfingar og heim aftur að þeim lokn-
um og Guðrúnu ráðskonu túlkaði
hún með ágætum á sviðinu. Á Höfn
gekk hún fljótlega til liðs við Kvenfé-
lagið Tíbrá, var lengi ritari í stjórn
þess og síðar heiðursfélagi. Laufey
hafði yndi af söng og ágæta söng-
rödd, þessnaut kirkjukórinn í Lóni
og síðar Gleðigjafar, kór aldraðra á
Höfn. Hún var ættfróð og frænd-
rækin, vinmörg og vinföst, minnið
var með afbrigðum gott og ógrynni
af ljóðum og lausavísum átti hún
geymt í hugarfylgsnum og miðlaði af
ef eftir var leitað. Sjálf átti hún ákaf-
lega létt með að færa hugsanir sínar
í bundið mál en flíkaði því lítt. Átti þó
á hörpu sinni marga strengi.
Laufey var náttúrubarn að eðlis-
Gróörarstöðin B
mtcm ♦
Hús blómanna
Blómaskreytingar
við öll tækifæri.
Dalveg 32 KópUvogi sími: 364 24S0
Fa"e-^rð Sér
úauelsaíerð
•nerktar
BÆKUR
ajgreiðsla
■póstlistinn
1960
ostlistinn.is
Erfisdrylckjur
GAPI-lflfl
Dalshraun 13
S. 555 4477 ♦ 555 4424
Blóttush^in
öaroskom
v/ Possvogskirkjugarð
Sími. 554 0500
fari. Að rækta og hlúa að blómum
sínum úti sem inni var hennar líf og
yndi og fegurðar íslenskrar náttúru,
eins og hún birtist á hverri árstíðr;
naut hún í ríkum mææli. Æsku-
stöðvarnar í Lóni áttu hug hennar og
hjarta og heimsóknir þangað veittu
henni kyrrláta hamingju. A síðari ár-
um voru það ferðirnar með Arnari í
sumarbústaðinn þeirra í Stafafells-
fjöllum sem voru henni uppspretta
yndis og ánægju.
Bækur vom fylginautar Laufeyj-
ar allt frá bernsku til hins síðasta,
vinir sem hún leitaði til og styttu
henni marga stund þegar þrekið tók
að dvína. Það var dýrmæt gjöf að fá
að halda andlegu atgervi svo til
óskertu til loka langrar ævi, þá gjöfc
kunni Laufey að meta og þakka.
Fáir ganga lífsgötuna án áfalla og
mótlætis og Laufey var þar engin
undantekning. Þyngst var höggið er
einkadóttirin Unnur lést íyrir aldur
fram 1989. En það er alltaf ljós í
myrkrinu og ljósið hennar Laufeyjar
var fóstursonurinn, hann Arnar. Af
dæmafárri umhyggju hefur hann
annast og stutt fósturmóður sína og
gert henni kleift það sem hún þráði
mest, að fá að vera heima á Smára-
braut svo lengi sem þess var kostur.
Kæra frænka. Ég vona að þú hafir
nú þegar fundið þín óskalönd, en mig
langar að kveðja þig með broti úr
ljóði Matthíasar Johannessen, Ástin
er rík:
™—
í hlýjum blænum verður þú á þínum
þar tíl gerða stað í huga mínum
sem íslenzkt vor með ilm í fylgd með sér
og þar er aldrei önnur sól við glugga
en ást sem grær úr þínum milda skugga
og vitjar þess sem vex að hjarta þér.
Aðalheiður Geirsdóttir.
JIIIIlIXlllIlIIXU
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erlklrykkjur
*-
H
*
P E R L A N
Sími 562 0200
Blómastofa
Irldjtnns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/