Morgunblaðið - 11.01.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000 55
óvissa ríki um nákvæmt magn (ex-
act magnitude) þeirra. Þeir telja að
þetta valdi álagi (increased stress) á
vistkerfið og að hreinsun frárennsl-
is eigi að vera forsenda frekari
reksturs. Þeir telja vafalaust að
gröfturinn í Ytriflóa hafi haft áhrif
á lífríkið þar þótt rannsóknir hafi
ekki greint allar þær breytingar
vegna þess að upphaflegt ástand
var ekki kannað áður en gröftur
hófst. Þeir benda sérstaklega á
neikvæð áhrif dælingar á botngróð-
ur sem séu óumdeilanleg (indis-
putable).
Þeim virðist kísilgúrnámið hafa
breytt búsvæðum álftar og rauð-
höfða á Ytriflóa til hins verra (cau-
sed unfavourable conditions; ... far
from optimal).
Þeii’ sjá ekki örugg merki þess að
kísilgúrgröftur hafi enn valdið um-
talsverðum (significant) skaða (m.a.
á fuglasamfélagið, en slá þó varn-
agla við þein-i fullyrðingu), en telja
meiri áhættu fólgna í áframhaldandi
dælingu úr Ytriflóa en dælingu af
mjög takmörkuðu svæði (very
restricted area) í Syðrifióa.
Þeir telja að hætta beri dælingu í
Ytriflóa vegna þess að dælingin
gæti hæglega verið komin á hættu-
legt stig (critical level) (further
dredging in Ytriflói is not recom-
mended). Þeir telja að í Syðriflóa
séu breytingar á setflutningum
megin áhyggjuefni (of major
concern), niðurstaða sem sérfræð-
inganefndin hafði þegar komist að
árið 1991, en breytingar á flæði
(fluxes) í kjölfar dælingar gæti
einnig haft áhrif á lykiltegundir
þörunga á borð við kúluskít (Cla-
dophora).
Þeir margítreka að dæling af
svæðum vestan eyjanna í Syðriflóa
ætti ekki að koma til greina vegna
aukinnar hættu á skaða vegna
breyttra setflutninga og vegna ná-
lægðar við Ytriflóa (we strongly ad-
vice against dredging in areas 3 and
4. [ We] strongly dissuade firom this
altemative. Areas 3 and 4 should
not be further considered).
Þeh’ telja að setflutningar inn á
svæði 1 yrðu tiltölulega litlir (relati-
vely minor) og ættu ekki að hafa í
för með sér umtalsverð (significant)
áhrif á heildarlífi’íki vistkerfisins
alls (biota of the ecosystem in total),
jafnvel þótt dýpkað yrði um 3,2
metra.
Þeir telja að áhrif breyttra set-
flutninga á svæði 2 á heildarlífríki
vistkerfisins alls (biota of the ecos-
ystem in total) gætu orðið áberandi
sum ár (pronounced during certain
years), einkum ef dælt væri niður í
fulla dýpt. Þeir telja að ef leyft
verður að dæla úr Syðriflóa (if
dredging is allowed) mætti helst
mæla með svæði 1 (dýpkun um allt
að 3,2 m) en þeir væru síður sáttir
við (we feel less comfortable with)
dælingu af svæði 2 sem hefði meiri
áhrif á setflutning í vatninu. Alls
ekki ætti að dýpka meira (maxim-
um) en um 2 m þar.
Þeir telja að rök sem fram hafa
komið um að dælingin forði því að
stórir hlutar vatnsins fyllist upp og
verði að mýrlendi geti átt við um
grunninn í Ytriflóa (the shallow ar-
eas of Ytriflói), en dýpkun flóans
hafi um leið gert vatnið lakara fyrir
fugla. Þeir telja að Syðriflói geti
verið mikilvægur stuðpúði (buffer)
fyrir vistkerfi Mývatns, einkum
hvað varðar fuglalíf, og þurfi að
taka tillit tii þess þegar áhrif
vinnslu í Syðriflóa eru metin.
Um rannsóknir og-
framhald þeirra
Þeir segja mjög mikinn fjölda
(vast number) vísindaritgerða um
Mývatn og Laxá hafi verið lagðan
fyrir hópinn, einnig hafði hann að-
gang að óbirtum gögnum.
Þeir telja að þær rannsóknir sem
fyrir liggja myndi góðan grunn og
gagnrýna þær ekki. Þar á meðal
eru rannsóknir á setflutningunum.
Þeir benda á að margar rannsókn-
anna hafi ekki það markmið að
kanna áhrif Kísiliðjunnar sérstak-
lega. Þeir koma með ábendingar um
þekkingareyður sem torvelda grein-
ingu á orsökum sveiflna í lífríkinu
og leggja fram tillögur um framhald
rannsókna og vöktunar. Þeir árétta
að ábendingar um skort á gögnum á
vissum sviðum skuli ekki að teknar
sem gagnrýni á rannsóknirnar því
að fjárveitingar til þeirra hafi verið
af skornum skammti. Þeir segjast
jafnframt vita af nýhöfnum rann-
sóknaverkefnum sem tengjast þess-
um atriðum.
Þeir vitna í ráðgjafa sinn um set-
flutninga, dr. Leo van Rijn, sem tel-
ur skýrslu um setflutninga greinar-
góða og nálgunina skynsamlega.
Hann gerði nokkrar athugasemdir
við skýrsluna en þær breyta ekki
heildarniðurstöðum hennar.
Þeir telja að vistkerfi Mývatns sé
á ýmsan hátt einstakt í sinni röð:
Tegundafæð fiska og hve eiginleik-
ar botngróðurs eru sérstakir eru
lykileinkenni (key properties) og
gera Mývatn einstakt (unique) í
samanburði við önnur vel rannsök-
uð grunn vötn.
Rannsóknirnar hafa leitt í ljós
hverjir leika aðalhlutverk í vistkerf-
inu og hvernig vægi þeirra breytist
með tímanum (á ýmsum tímasköl-
um).
Þeir telja rannsóknirnai’ hafa
ieitt í ljós að sterk tengsl séu milli
lífríkis Laxár (sem rennur úr Mý-
vatni) og ástands lífrikisins í Mý-
vatni. Þeh- segja rannsóknirnar
(sem þeir lýsa m.a. sem „unique
series of long term data sets“ og
„impressive data sets“) hafa leitt í
ljós mjög áhugaverðar sveiflur, sem
taka til allra helstu þátta fæðukeðj-
unnar.
Rannsóknirnar nú hafa ekki leitt
til endanlegrar niðurstöðu um or-
sakasamhengi vistkerfisbreytinga í
Mývatni en gera kleift að setja fram
prófanlegar tilgátur um það. Þessar
tilgátur eru ræddar ítarlega í
skýrslunni.
Gögn um bleikju hafa að þeirra
mati enn ekki leitt í ljós marktækan
mun milli flóanna eða yfir tíma sem
tengja megi dælingunni í Ytriflóa.
Þá minnkun sem varð á veiði frá og
með 1969 megi jafnt skýra með
breytingum á veiðiaðferðum og
sókn eins og minnkandi stofnstærð.
Þeir telja það meiri háttar hindrun
(major drawback) í að meta áhrif
kísilgúrnámsins að vöktun lífríkis-
ins skyldi ekki hefjast um leið og
vinnslan.
Þeir segja sveiflur þekkjast í líf-
ríki fjölda annarra vatna. Þótt or-
sakir þem-a í Mývatni séu ekki
þekktar álykta þeir að sveiflurnar
standi ekki í auðsýnilegu sambandi
við námugi’öftinn en stafi frekar af
innbyrðis samspili í fæðukeðjum
vatnsins.
Þeir telja að til að öðlast dýpri
skilning á vistkerfinu þurfi sam-
bland af aukinni gagnasöfnun, til-
raunum og þróun stærðfræðilíkana.
Þeir telja mikilvægt að ef dæling
heldur áfram (any further dredging
activities) verði henni fylgt eftir af
samfelldum vöktunarrannsóknum,
en hafa beri í huga að þótt engin
áhrif sæjust fyrstu árin segði það
lítið um lokaáhrifin þegar dælingar-
svæðið er orðið stærra og dýpra.
í ljósi þess hve Mývatn er ein-
stakt mæla þeir eindregið með
(strongly recommend) að yfirvöld
auki fjái-veitingar til núverandi
rannsóknastarfa við Mývatn (to
complement the ongoing research
activities) og benda jafnframt á
verkefni sem nauðsynlegt er að
þeirra dómi að leyst verði af hendi.
Niðurlag
Vatnalíffræðingarnir norrænu
hafa fengið all góða yfirsýn yfir
vistkerfi Mývatns þrátt fyrir
skamman undh’búningstíma og án
þess að komast til að skoða vatnið í
návígi (vegna veðurs).
Meðal atriða sem þeir hafa
greinilega ekki náð að fá nægilega
vitneskju um eru: (1) Yfirstandandi
rannsóknaverkefni um afkomu
mýflugulirfa og; (2) vöktun svifþör-
unga í útfalli vatnsins; (3) mat á
verndargildi hugsanlegra dælingar-
svæða; (4) nýjar rannsóknaniður-
stöður um lífríkisbreytingu sem
varð í Mývatni í kringum 1970 og
(5) ískyggilega fækkun húsandar á
Mývatni.
Atriði sem talin hafa verið mikil-
væg, en sérfræðingamii- taka lítið
sem ekkert á eru m.a. (1) áhrif
botngróðurs á efnajafnvægi vatns-
ins; (2) svæðisbundin áhrif á fugla á
mögulegum gryfjusvæðum í Syðri-
flóa; (3) hugsanleg áhrif námu-
graftar á botnlæga kísilþörunga (en
í skýrslunni kemur framað þeir
standi undir 2/3 af frumframleiðslu
vatnsins). Eins gera þeir ekki til-
raun til að meta áhrif breyttra set-
flutninga á lífríkið, en um þýðingu
lífræns sets fyrir lífríki vatna er
mjög mikið vitað.
Skýrsla hinna norrænu vatnalíf-
fræðinga hefur ekki breytt hug-
myndum okkar um hið einstæða líf-
ríki Mývatns og áhrif námugraftar
á það. Skýrslan staðfestir í megin-
atriðum það sem áður var ljóst. Vís-
indamenn hafa einbeitt sér að
tveimur þáttum: Annars vegar
sveiflunum, vegna þess að þær gefa
okkur innsýn í orsakasamhengi líf-
ríkisins; hins vegar tilfærslu lífræns
sets, vegna þess að gröfturinn hefur
sannanleg áhrif á það og lífræna
setlagið á botninum er undirstaða
fæðukeðjunnar í vatninu.
Einstakt tækifæri
á nýrri öld
Einn þekktasti og besti bílalúgustður borgarinnar er til sölu strax.
Er við mikla umferðargötu þar sem umferðin fer stöðugt vaxandi
og verslunin líka. Einnig mjög mikið af nýbyggingum að rísa við
hliðina á staðnum. Allar innréttingar mjög nýlegar eins og staðurinn.
Stór veitingasalur með mörgum sætum og vínbar. Svona staðir eru
sjaldan til sölu og ekki á góðum kjörum eins og þessi. Margar bílal-
úgur og malbikað plan og allt mjög snyrtilegt. Gott eldhús. Frábær
fjárfesting og góðir tekjumöguleikar fyrir duglegt fólk.
Mikið af fyrirtækjum á skrá. Þú ert ávallt velkominn.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YBIRTÆKIflSALAIM
SUOURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755. REYNIR ÞORGRÍMSSON.
mm
Ég lofa að
grennasf.
Við erum með sérfræðinga sem geta
ráðlagt þér og aðstoðað þig við að
grennast á heilbrigðan hátt. Við bjóðum
ekki upp á neinar skyndilausnir heldur
aðstoðum þig við að ná raunhæfum
markmiðum án þess að misbjóða
líkama þínum.
Komdu við í næstu verslun Lyf & heilsu
og við aðstoðum þig við að efna
áramótaheitin.
i
„jft 1
Lyf&heilsa
Kringlan • Kringlan 3. hæð • lijödd • Glæsibær • Melhagi • HSteigsvegur
• Hraunberg • Hveragerði • Kjarni - Selfossi • Hafnarstraeti - Akureyri
SPINNING- 0G ÞREKHJÓL í mörgum gerðum ásamt mesta úrvali
landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
ÞREKHJOL 105p
Þrekhjól sem kemur þér í gott form.
Polar-púlsmælir, stööugt ástig,
kasthjól, fullkominn tölvumælir.
Stgr. 41.798
kr. 43.998
Stærö: L. 115 xbr. 61 x h. 110
örninnF*
STOFNAÐ1925
ViSA
(D
RAÐGREIÐSLUR
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588-9890