Morgunblaðið - 11.01.2000, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Númi frá Þórodds-
stöðum vinsæll hjá
tamningamönnum
Tamning og þjálfun þeirra hrossa sem
væntanlega munu gera garðinn frægan á
sumri komanda er óðum að fara í gang.
Þessi mikilvægi þáttur í undirbúningnum
fyrir glæsilegar sýningar er fyrsti þátturinn
í myndun þeirrar spennu sem væntanlega
nær hámarki þegar hrossin eru lögð undir
mælistiku haukfránna dómara. Valdimar
Kristinsson spjallaði við nokkra kunna
tamningamenn og forvitnaðist um hvaða
efnivið þeir myndu moða úr í vetur.
MorgunblaðiðAfaldimar Kristinsson
Tamningamönnura þykir eftirsóknarvert að fá að þjálfa Ntíma frá Þór-
oddsstöðum. Hér er það Þórður Þorgeirsson sem situr við stjórn en
hann tamdi klárinn og sýndi til hárra einkunna.
j Á undaní'örnum árum hefur mynd-
ast nokkur keppni um það milli
góðra reiðmanna að fá sem efnileg-
ust eða góð hross til þjálfunar og hef-
ur það undirstrikað vel hversu hörð
samkeppnin er og fá með því góða
auglýsingu í keppni og sýningum.
Nýjasta dæmið um slíkt er stóðhest-
urinn Númi frá Þóroddsstöðum sem
á að baki glæsilegan feril í kynbóta-
sýningum undanfarin ár. Nokkrir
sýndu áhuga á að fá hestinn til þjálf-
unar í vetur og bar þar hæstan hlut
Daníel Jónsson. Bauðst hann til að
hafa hestinn í þjálfun og hirðingu
fyrir 12 þúsund krónur á mánuði
sem er algengt verð sem greitt er
fyrir básaleigu, fóður og hirðingu á
hrossum á höfuðborgarsvæðinu svo
dæmi sé tekið.
Boðin fríþjálfun
Birgir Árnason, tamningamaður á
Melgerðismelum þar sem er tamn-
ingastöð Hrossaræktarsamtaka
Eyfirðinga og Þingeyinga, hafði boð-
ist til að hafa hestinn frítt en stjórn
sambandsins ákvað hinsvegar að
taka tilboði Daníels. Sagði Birgh- að
líklega hefði sitt tilboð komið of seint
fram en menn í Eyjafirði hefðu al-
mennt reiknað með því að Númi yrði
. fyrir norðan í vetur. Guðmundur
Birkir Þorkelsson, formaður
Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga
og Þingeyinga, sagði að eignaraðilar
hefðu verið sammála í haust um að
hafa Núma í léttri þjálfun í vetur og
skoða möguleika á að sýna hann aft-
ur ef hann hefði eitthvað bætt sig í
hæfileikum og sýna hann við sérstök
tækifæri til kynningar. Hann vildi
litlu svara um það hvort mikil ásókn
hefði verið hjá tamningamönnum í
að fá Núma til þjálfunar í vetur en
tók þó fram að sér fyndist það mjög
eðlilegt að menn reyndu að fá góða
hesta í þjálfun.
Númi fer ekki á landsmót
Númi er í eigu ofangreinds sam-
* bands og hrossaræktarsamtaka Suð-
urlands sem á 66% í hestinum en þar
sem hann verður í húsnotkun fyrir
norðan næsta vor eiga norðanmenn
að sjá um hann í vetur. Nýlega sam-
þykkti stjórn Sunnlendinga fyrir sitt
leyti að ekki yrði stefnt með Núma á
landsmót í sumar né aðra keppni en
með samþykktinni þó ekki útilokað
að hann kæmi fyrir almenningssjón-
ir á einhverjum sýningum fyrri hluta
ársins. Kristinn Guðnason, formaður
Hrossaræktarsamtaka Suðurlands,
sagði það meðmæli með hestinum
þegar margir sæktust eftir að fá að
þjálfa hann og sér virtist að öllum
þeim sem hefðu kynnst hestinum af
eigin raun líkaði mjög vel við hann.
Númi vakti strax mikla athygli
fjögurra vetra gamall á sýningu
stóðhestastöðvarinnar 1997 og hlaut
þá háa einkunn, 8,17. Þá um vorið
kaupa þessi tvenn samtök klárinn á
7,5 milljónir króna og voru þau kaup
nokkuð gagnrýnd en síðan virðist
Númi hafa vaxið í vinsældum og á
það ekki síst við um tamningamenn.
Hann stóð efstur á landsmótinu á
Melgerðismelum í flokki fimm vetra
stóðhesta. Númi er undan Svarti frá
Unalæk og Glímu frá Laugarvatni.
Daníel með Kólf
og Kjarnveign
Daníel verður við tamningar á Sel-
fossi í vetur en einnig verður hann
með hross í Langholti. Af öðrum
hrossum sem Daníel verður með má
nefna stóðhestinn Kólf frá Kjam-
holtum og systur hans Kjarnveigu
frá sama stað en hún er alsystir Kol-
finns og Kolbrár. Þá sagðist Daníel
verða með tvær efnilegar hryssur
frá Horni í Hornafirði undan Spuna
frá Miðsitju. Þá nefndi hann til sög-
unnar hryssuna Abbadís frá Síðu en
sú er undan Hrafni frá Holtsmúla og
Aldísi frá Kýrholti sem mun að sögn
Daníels vera alsystir stóðhestsins
Hrannars frá Kýrholti.
Oddssynir í öndvegi í Halakoti
Einar Oder Magnússon og kona
hans Svanhvít Kristjánsdóttir eru
óðum að koma sér fyrir í Halakoti í
Hraungerðishreppi þar sem þau
hafa byggt nýtt hesthús sem þykir
allnýstárlegt. Fluttu þau fyrstu
hrossin í húsið um helgina en þar
verða margir vel ættaðir stóðhestar í
þjálfun í vetur. Nefndi Einar fýrsta
til sögunnar í spjalli við hestaþáttinn
þrjá hesta undan Oddi frá Selfossi
sem allir hafa hlotið íyrstu verðlaun,
þá Hrímfaxa frá Hvanneyri, Fald frá
Syðri-Gróf og Þyril frá Kjarnholt-
um, sem er undan Kolbrá frá sama
stað. Sagðist Einar frekar stíla með
hann í gæðingakeppni en kynbóta-
dóma.
Þá munu þau Einar og Svanhvít
temja fola á fjórða vetur undan heið-
ursverðlaunahryssunni Leiru frá
Þingdal og Orra frá Þúfu. Sá heitir
Samúel og er Einar búinn að fara á
bak honum og finnst hann lofa góðu.
Alsystir Samúels verður einnig
þjálfuð í vetur en hún er á sjötta
vetri og stefnt með hana í kynbóta-
dóm í vor. Foli á fimmta vetri, Þjót-
andi frá Meðalfelli, verður einnig í
þjálfun hjá þeim en hann er undan
Svarti frá Unalæk og Eydísi frá
Meðalfelli sem gerði garðinn frægan
á fjórðungsmótinu ’96.
Að síðustu nefndi Einar hryssu
sem heitir Glóð frá Grjóteyri undan
Funa frá Skálá sem er afar góð klár-
hryssa en hátt boð kom í hana fyrir
allnokkru að sögn Einars. Auk hans
og Svanhvítar verða þau með eina
aðstoðarstúlku, Viðju Hreggviðs-
dóttur, í tamningum í vetur og tók
Einar fram að minna yrði um
kennsluferðir hjá sér utan í vetur en
undanfarin ár.
Þórður og Inga í nýtt
hesthús á Hellu
Þórður Þorgeirsson og Inga
Kristinsdóttir kona hans hafa einnig
staðið í hesthúsbyggingu á Hellu. Er
þar um að ræða 32 hrossa hús sem
þau hyggjast taka í notkun seinnip-
artinn í janúar. Hjá þeim verður að
venju fjöldi stóðhesta og hryssna
sem eiga að fara í kynbótadóm að
vori. Er þar fyrst að nefna Þyrni frá
Þóroddsstöðum sem er albróðir þess
kunna Hams. Orrasynirnir Dynur
frá Hvammi, Kvistur frá Hvolsvelli
og Stæll frá Miðkoti verða þar einnig
og Svartssonurinn Askur frá Kana-
stöðum en sá er undan Hervarsdótt-
GENGIÐ hefur verið frá samning-
um um sölu á stóðhestinum Erpi
Snæ frá Efstadal. Katrin Kukwa-
Lemmerz sem mun kaupá hestinn
fær hann afhentan sumarið 2001 en
hún á fyrir vekringinn Freymóð frá
Efstadal. Logi Laxdal, fyrrum
heimsmeistari í 250 metra skeiði,
mun hafa Erp Snæ undir höndum
fram að þeim tíma en ætlunin er að
hann stefni með hann í úrtökukeppni
íyrir heimsmeistaramótið í Austur-
ríki.
Það er fyrst og fremst mikið og
gott skeið og sérstakur litur sem
Erpur Snær hefur vakið athygli fyr-
ir. Hann er jarphöttuskjóttur eins og
það er orðað í gögnum Bændasam-
takanna og hefur hlotið meðal ann-
ars 9,5 fyrir skeið í kynbótadómi og
8,18 fyrir sköpulag og alls 8,06 í aðal-
einkunn. Hann er undan Svarti fró
Unalæk og Kötlu frá Flugumýri sem
er dóttir Þáttar frá Kirkjubæ. Þá
hefur vakið athygli að hann gefur
hvorki af sér rauð né rauðskjótt af-
kvæmi en aðra skjótta liti gefur hann
í ríkum mæli.
Logi Laxdal segir að ef grunur
hans reynist réttur um vekurð verði
Erpur Snær næsti HM-kandídat
sinn en að því er hann best viti hafi
aldrei verið tekinn tími á honum á
skeiði. Hann er nú kominn til Loga
og hefur hann hafið þjálfun hans fyr-
ir skeiðkeppni sumarsins.
Logi sagði ekki afráðið hvort Erp-
ur Snær verði geltur en hann sé
keyptur fyrst og fremst sem vekr-
ingur svo það komi alveg eins til
greina að gelda hann. Katrin þessi á
urinni Öskju frá Miðsitju. Spegill frá
Kh'kjubæ verður hjá þeim og einnig
nefndi Þórður rauðblesóttan, gló-
fextan fola frá Kjarri sem Þengill
heitir en sá er undan Stjörnugný frá
Kjarri og Þrumu frá Selfossi sem
voru systkin. Þá verður hann með
fola undan Sprota frá Hæli sem
Dropi heitir og er frá Stóradal en sá
fékk 7,95 í fyrra og gekk ekki heill til
skógar þegar hann var sýndur og
vænti Þórður þess að hann myndi
bæta sig verulega í vor. Þá sagðist
hann vera með mörg efnileg trippi
undan Elra frá Heiði og þar á meðal
tvo efnilega stóðhesta.
En trompið í ermi Þórðar verður
11 vetra hestur, Flótti frá Borgar-
hóli, undna Hektor frá Akureyri og
Pílu frá Borgarhóli hélt Þórður.
„Menn eiga eftir að súpa hveljur
þegar þeir sjá þennan hest í vor.
Hann er rosalega góður, feikna yfir-
ferðarhestur," sagði Þórður að end-
ingu. Með honum og Ingu í tamning-
unum í vetur verður Ólafur Þórisson
frá Miðkoti.
Kjartansstaðahrossin fyrirferð-
armikil hjá heimsmeistaranum
Heimsmeistarinn í tölti, Jóhann
R. Skúlason, er sem kunnugt er
annan kunnan vekring, Sóta frá
Strönd, auk Freymóðs en sá á best-
an tíma 13,74 sek. i 150 metra skeiði.
Hún hefur mikinn áhuga á skeiði en
vill þó að hestar sínir séu góðir reið-
hestar sem hún geti notið í útreiðum
en geti þeytt þeim á hvínandi skeið-
sprett þegar svo ber undir. Logi seg-
ir að hún eigi marga góða íslenska
reiðhesta en hún telji að Freymóður
sé tvímælalaust hennar besti reið-
hestur.
Seljandi er Björg Ingvarsdóttir,
kominn heim frá Danmörku og verð-
ur við tamningar á Kjartansstöðum í
Flóa í vetur. Af hestakosti hans ber
sjálfsagt hæst Töfra frá Kjartans-
stöðum sem hefur nú þegar vakið
mikið umtal þótt aðeins þriggja
vetra sé. Bíða sjálfsagt margir fullir
eftirvæntingar eftir að sjá þennan
hest í reið í vor. Hann er undan Óð
frá Brún og Ternu frá Kjartansstöð-
um. Þá verður Jóhann með Tvífara
frá Kjartansstöðum en hann er und-
an Ternu og Trostan frá Kjartans-
stöðum sem einnig er undan Ternu.
Tývar frá Kjartansstöðum verður til
að byrja með hjá Jóhanni er fer síðar
til Sigurðar V. Matthíassonar. Þá
verður hjá Jóhanni enn einn Kjart-
ansstaðahestur er Heikir heitir og er
undan Hrafni frá Holtsmúla og Sögu
frá Kjartansstöðum. Að síðustu
nefndi Jóhann til sögunnar stóðhest
undan Gloríu frá Hafnarfirði og
Tandra frá Kjartansstöðum en sá
hestur væri í eigu Huldu Sigurðar-
dóttur sem er búsett í Noregi.
Víða um land eru menn að setja
þjálfun í fullan gang og víst er að
spenna á eftir að magnast eftir því
sem nær dregur vori og ljóst verður
hverjir eru útvaldir og hverjir kall-
aðir.
Efstadal. Þá hefur stóðhesturinn og
gæðingurinn Geysir frá Dalsmynni
verið seldur til Svíþjóðar en hann
hefur staðið framarlega í keppni A-
flokksgæðinga á mótum undanfarin
ár.
Var hann til dæmis í fjórða sæti í
A-flokki á landsmótinu á Melgerðis-
melum. Geysir sem nú er 11 vetra er
undan Hervari frá Sauðárkróki og
Tinnu frá Vatnsholti. Seljandi er
Arngrímur Ingimundarson í Dals-
mynni.
Erpur Snær næsti HM-
kandídat Loga Laxdal
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
Ef að Iíkum lætur mun Logi Laxdal stefna með Erp Snæ frá Efstadal í
tírtöku fyrir næsta heimsmeistaramót 2001. Hér er hins vegar Þórður
Þorgeirsson sem tekur gamminn til kostanna.