Morgunblaðið - 11.01.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000 57
Hálfrar aldar afmæli
keppninnar um
Bermúdaskálina
Spilarar þurfa að gangast undir lyfjapróf
__________Brids_____________
Keppni um Bermúdaskálina og Fen-
eyjabikarinn fer fram á Bcrmúda í
tilefni af hálfrar aldar afmæli heims-
meistarakeppninnar í brids. 20 þjóðir
taka þátt í hvorum flokki. Hægt er að
fylgjast með mótinu á Netinu og er
slóðin:www.bermudabowl.com.
KEPPNI um Bermúdaskálina svo-
nefndu, heimsmeistaratitilinn í
brids, hófst á Bermúda á laugardag.
Fyrst var keppt um þennan titil á
Bermúda árið 1950 og á keppnin því
hálfrar aldar afmæli í ár. Venjulega
er mótið haldið á tveggja ára fresti,
og hefði samkvæmt því átt að vera í
haust, en í tilefni afmælisins var
ákveðið að fresta keppninni fram
yfir áramótin 2000 og halda hana á
Bermúda.
20 iið keppa í opnum flokki um
Bermúdaskálina að þessu sinni. Þá
keppa 20 kvennalið um svonefndan
Feneyjabikar, sem fylgir heims-
meistaratith í kvennaflokki en saga
þeirrar keppni er ekki eins löng og
keppninnar um Bermúdaskálina.
Islendingar, sem unnu Bermúda-
skálina 1991, ei-u ekki meðal þátt-
takenda, en það hefði þó verið við-
eigandi því Islendingar áttu kepp-
endur í Bermúda árið 1950, þá Ein-
ar Þorfinnsson og Gunnar Guð-
mundsson sem spiluðu með tveimur
sænskum pörum í úrvalsliði Evr-
ópu.
Á Bermúda er einnig keppt í öld-
ungaflokki, þar sem þátttaka er
óvenju dræm að þessu sinni. Þá
hafa 70 sveitir skráð sig í svonefnda
álfukeppni en þar þurfa sveitarfé-
lagai- ekki að vera frá sama landi og
þátttaka er talsvert frjálsleg.
Spilarar í lyfjapróf
Mótið stendur yfir í hálfan mánuð
og er nú í fyrsta skipti haldið eftir
að Alþjóða Ólympíunefndin viður-
kenndi brids sem íþrótt og sam-
þykkti að taka brids sem sýningar-
grein á vetrarólympíuleikunum í
Salt Lake City árið 2002. Raunar
standa vonir til að brids verði
keppnisgrein á vetrarólympíuleik-
unum árið 2006. Þess vegna er nú
farið að öllu eftir reglum Ólympíu-
nefndarinnar, þar á meðal um lyfja-
notkun og lyfjapróf og verða spilar-
ar í Bermúda því teknir í lyfjapróf.
Enn á eftir að sjá hvaða afleiðing-
ar þetta hefur, enda keppendur á
þessu móti margir komir fram yfir
miðjan aldur og kunna því að þurfa
á að halda lyfjum sem eru á bann-
lista. Pakistaninn Zia Mahmood,
sem að þessu sinni keppir fyrir
hönd Bandaríkjanna, sagðist þó á
blaðamannafundi fyrir mótið fagna
þessu: „Félagar mínir hafa oft sagt
að ég spili eins og ég sé í vímu. Nú
get ég sannað að þeir hafa rangt
fyrir sér!"
Sterkar Evrópuþjóðir
Keppnin um Bermúdaskálina
verður væntanlega mjög hörð að
þessu sinni. Evrópa sendir nú fimm
lið til leiks: Evrópumeistara Itala,
Norðmenn, Svía, Pólverja og
Búlgara, sem raunar urðu í 6. sæti á
síðasta Evrópumóti en komust til
Bermúda þegar ísraelsmenn, sem
enduðu í 5. sæti, hættu við þátttöku.
Þetta eru allt sterkar sveitir sem
gætu vel staðið uppi sem sigurveg-
arar. Bandaríkjamenn senda tvær
sveitir, annars vegar núverandi
heimsmeistara, þá Hamman,
Soloway, Mechstroth, Rodwell,
Nickell og Freeman; og hins vegar
sveit þar sem Zia Mahmood mun
væntanlega leika aðalhlutverkið.
Fyrst spila sveitirnar 20 einfalda
umferð með 20 spila leikjum. Átta
Martel
Paul
Soloway
efstu sveitimar halda áfram í úr-
slitakeppnina þar sem spflað verður
þar til ein sveit stendur eftir.
Efth- sex umferðir í undankeppn-
inni var staða efstu þjóðanna þessi:
Pólland 124
Indónesía 122
Bandaríkin 1 109
Brasilía 103
Búlgaría 98,5
Svíþjóð 97
Ítalía 96,5
Noregur 96
Bandaríkin 2 92
Suður-Afríka 90
Ekki er ólíklegt að þessar 10
þjóðir, auk Frakka sem eru í 11.
sæti, komu til með að berjast um
úrslitasætin átta.
ur tígui
trompin.
kóng heima og spilaði
laufagosa og henti
spaða í borði. Zia Ma-
hmood í austur fékk á
drottninguna og sagn-
hafi komst síðan ekki
hjá því að gefa tvo
slagi á spaða í viðbót.
Við hitt borðið var
Chip Mai-tel sagnhafi í
suður, og hann fór rétt
í laufið í öðrum slag:
spilaði tvistinum á gos-
ann og ás vesturs. Jeff
Meckstroth í vestur
spilaði trompi og Mar-
tel drap í borði, tromp-
aði tígul heima, tromp-
aði laufi í borði og aft-
heim. Síðan tók hann
Norður
* 1098
V -
* G8
* -
Vcslur
AÁ65
V8
♦ -
♦ 8
Austur
* KG2
V -
♦ ~
* D7
Suður
♦ D3
¥G
♦ -
*KG
Góð byrjun Dana
I kvennaflokki berjast einnig 20
þjóðir um Feneyjabikarinn, þai- af
fimm Evrópuþjóðir. Danir byrjuðu
mjög vel á Bermúda og höfðu 99
stig af 100 mögulegum eftir fjórar
umferðir en hafa síðan gefíð örlítið
eftir. Dönsku konurnar ættu hins
vegai’ að vera öruggar í úrslita-
keppnina sem og hinar Evrópuþjóð-
imar fjórar. Bandaríkin senda
einnig tvö sterk lið og Kínverjar
koma örugglega einnig til með að
blanda sér í baráttuna.
Þetta var staða efstu liða eftir 6
umferðir:
Bandaríkin 1 138
Danmörk 133
Austurríki 125
Þýskaland 119
Frakkland 117
Holland 114
Bandaríkin 2 98
Kanada 95,5
Kína 93,5
Bretland 88.
Þessi lokastaða kom einnig upp í
leik Breta og Kínverja í kvenna-
flokki. Þegar sagnhafarnir tóku síð-
asta trompið og hentu tígli í borði
var austur í vandræðum. Hann
mátti ekki henda laufi og ef hann
henti spaðatvisti gat sagnhafi spilað
spaða og endaspilað austur sem yrði
að spila frá laufadrottningunni.
Austur gat heldur ekki hent spaða-
gosa og spilað sig út á tvistinn því
þá yrði vestur að gefa sagnhafa tvo
síðustu slagina.
Kínverjinn Wang var hins vegar
ekki með stöðuna alveg á hreinu og
hún lagði nú niður laufakónginn i
þeirri von að drottningin félli undir.
Þegar sú von brást fór hún einn nið-
ur. Martel og Heather Dhondy spil-
uðu sig hins vegar út á spaða og
unnu sitt spil.
Guðm. Sv. Hermannsson
Stiklusteinn
Sömu spil eru að sjálfsögðu spiluð
í öllum leikjum undankeppninnar.
Þetta spil kom fyrir í fyrstu umferð-
inni og þar kom upp afbrigði af svo-
nefndri stiklusteinsþvingun.
Norður gefur, NS á hættu
Norður
A 109874
V ÁD
♦ ÁG865
* 2
Yfir 1.500 notendur
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 * Sínii 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Vcstur Austur
*Á65 * KG2
V 8652 V 7
♦ KD3 ♦ 10972
*Á85 * D7643
Suðiir
A D3
V KG10943
♦ 4
* KG109
Lokasamningurinn var víðast
hvar 4 hjörtu og vestur spilaði út
tígulkóng. I leik bandarísku sveit-
anna valdi Poul Soloway við annað
borðið að spila laufi á kónginn í öðr-
um slag. Michael Rosenberg í vest-
ur drap með ás og skipti í tromp.
Soloway yfirdrap drottninguna með
SffilP
KLUKKUR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Vefsíða: www.oba.is
V
AUKA
VELGENGNI
ÞÍNA?
ÐALE CARNEGiE s
NÁMSKEIÐIÐ HJÁLPAR PÉR AÐ:
♦ VERÐA HÆFARI í STARFI
♦ FYLLAST ELDMÓÐI
♦ VERÐA BETRI í
MANNLEGUM SAMSKIPTUM
♦ AUKA SJÁLFSTRAUSTIÐ
♦ VERÐA BETRI RÆÐUMAÐUR
♦ SETJA ÞÉR MARKMIÐ
♦ STJÓRNA ÁHYGGJUM OG KVÍÐA
VERTU VELKOMINN A
KYNNINGARFUND Á SOGAVEGI
FIMMTUDAGINN 13. JAN. KL. 20
STJORNUNAR?
KÓUNN
SOGAVEGI 69 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 581 2411
Brúðhjón
Allur borðbiinaður - Glæsileg gjafavara - Briíðhjönalislar
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.