Morgunblaðið - 11.01.2000, Page 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Nýstúdentar sem útskrifaðir voru frá Framhaldsskólanum í Eyjum.
Framhaldsskólinn í Eyj-
um brautskráir nemendur
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
HAUSTÖNN Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum var slitið
skömmu fyrir jól. Skólinn fagnaði á
' önninni 20 ára afmæli því 10. sept-
ember 1979 var framhaldsskólinn í
Eyjum settur í fyrsta sinn. A haust-
önninni stunduðu 270 nemendur
nám við skólann og útskrifuðust 24
UNDANFARIN tvö ár hafa Holl-
vinasamtök Háskóla fslands haldið
Háskólaball í samvinnu við kennara-
. félög Háskólans. Hollvinasamtökin,
Félag háskólakennara og Félag pró-
fessora standa saman að ballinu.
Auk þess hefur borizt liðsauki frá
þeirra við lok annarinnar.
Flestir útskrifuðust sem stúdent-
ar, 14 talsins, sex af náttúrufræði-
braut, fímm af félagsfræðibraut og
þrír af hagfræðibraut. Níu véla-
verðir voru brautskráðir og einn
lauk 2. stigi vélstjórnar. Þá var einn
útskrifaður sem múrsmiður.
nýju félagi starfsfólks í stjórnsýslu
Háskólans.
Arshátíðin verður laugardaginn
22. janúar nk. í Súlnasal Hótels Sögu
og miðar eru seldir á skrifstofu
Hollvinasamtaka Háskóla Islands í
Stúdentaheimilinu við Hringbraut.
Fyrirlest-
ur á veg-
um líf-
fræði-
skorar HI
DR. SIGURÐUR Ingvarsson
líffræðingur mun flytja fyrir-
lestur um sameindalíffræði
ristil- og brjóstaæxla á vegum
líffræðiskorar miðvikudaginn
12. janúar kl. 16 á Grensás-
vegi 12.
I fréttatilkynningu segir:
„Ýmsar gena- og litninga-
breytingar eru vel þekktar í
ristil- og brjóstaæxlum. I
ákveðnum gerðum æxla, eink-
um ef um ættlægan sjúkdóm
er að ræða, verða skemmdir í
genum DNA-viðgerða. Æxlis-
frumur með slíkar breytingar
hafa einkennandi svipgerð,
einkum m.t.t. skemmda í
erfðamenginu.
I fyrirlestrinum verður
gerð grein fyrir áhrifum
gena- og litningaskemmda á
svipgerðareinkenni æxlis-
fruma.“
Sigurður lauk BS-prófi í líf-
fræði frá Háskóla Islands
1979 og doktorsprófi við
krabbameinslíffræðideild (Tu-
mor Biology) Karolinska
Institutet í Stokkhólmi 1989.
Hann hefur starfað síðastliðin
níu ár á Frumulíffræðideild
Rannsóknarstofu háskólans í
meinafræði og verið dósent
við læknadeild Háskóla Is-
lands síðan í janúar 1998.
Fyi’irlesturinn er öllum op-
inn.
Árshátíð hollvina Hí
Valinn leiðarvísir
menningarborgar
NYLEGA undirrituðu Þórunn Sig-
urðardóttir, stjómandi Reykjavíkur -
Menningarborgar Evrópu árið 2000,
og Benedikt Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Talnakönnunar hf.,
samning um að ritið Reykjavík This
Month skuli vera opinber leiðarvísir
menningarborgarinnar fyrir erlenda
ferðamenn sem koma til Islands.
Ritið Reykjavík This Month tekur
við af Around Reykjavík og verður
það af þessu tilefni stækkað og út-
gáfutíðni aukin á árinu 2000.
Talnakönnun, sem einnig gefur út
Fijálsa verslun, er stærsti útgefandi
á kynningarefni fyrir ferðamenn hér
á landi. Auk frétta af dagskrá menn-
ingarborgarinnar og viðburðadaga-
tals er í ritinu að finna allar almennar
upplýsingar fyrir ferðamenn, s.s. um
veitingahús, söfn, sundlaugar, gist-
ingu, bílaleigui’ og ferðamöguleika í
nágrenni Reykjavíkur.
I ritinu er leitast við að allar upp-
lýsingamar séu hnitmiðaðar svo að
erlendir ferðamenn hafa í þessum
eina bæklingi flest þau heimilisföng
og símanúmer sem þeir þurfa á að
Þórunn Sigurðardóttir, sljórn-
andi Reykjavíkur - Menningar-
borgar Evrópu árið 2000 og
Benedikt Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Talnakönnunar
hf. við undirritunina.
halda í dvöl sinni í höfuðborginni, auk
korta af Reykjavík og nágrenni.
Ritstjóri Reykjavík This Month er
Þóra Gylfadóttir og auglýsingastjór-
ar þau Sigríður Hanna Sigurbjöms-
dóttir og Ottó Schopka.
A
Uthlutun úr Afreks-
mannasjóði IBH
AFREKSMANNASJÓÐUR ÍBH
úthlutaði styrkjum til aðildarfélaga
ÍBH sem sóttu um styrki í sjóðinn
og féllu undir reglugerð hans. Út-
hlutunin fór fram í Hafnarborg
laugardaginn 8. janúar
A grundvelli umsókna í sjóðinn
fengu eftirtaldir styrk.
Frjálsíþróttadeild FH 100.000
kr., Sundfélag Hafnarfjarðar
200,000 kr. og Fimleikafélagið
Björk 120,000 kr.
Að auki ákvað stjórnin að þessu
sinni að úthluta eftirtöldum félög-
um/deildum styrk sem hún kaus að
nefna sértækur styrkur. Eftirtalin
félög/deildir fengu þennan styrk að
þessu sinni: Handknattleiksdeild
FH. 360.000 kr., Handknattleik-
sdeild Hauka. 60.000 kr. og Ólymp-
íusjóður hafnfirskra íþróttafélaga.
SH, FH, Björk. 200.000 kr.
Skák
B ú d a p e s t
KHALIFMAN - LEKO,
SEX SKÁKA EINVÍGI
3.-9. jan. 2000
PETER Leko vann ömggan sigur í
sex skáka einvígi við Alexander
Khalifman, heimsmeistara FIDE,
sem fram fór í Búdapest í Ung-
verjalandi. Leko fékk 414 vinning
gegn IV2 vinningi Khalifman.
Khalifman vann ekki skák en tapaði
öllum þremur skákunum þar sem
hann hafði svart. Þessi úrslit sýna,
að núverandi fyrirkomulag heims-
meistarakeppni FIDE er ekki til
þess fallið að velja sterkasta skák-
mann heims, en fram til þessa hafa
heimsmeistarar í skák haft ótví-
ræða yfirburði yfir aðra skákmenn,
eða a.m.k. verið fremstir meðal
jafningja. Þriðja skákin í einvíginu
var æsispennandi. Upp kom Grún-
feld-vörn eins og í fyrstu skákinni.
Leko kom á óvart í áttunda leik,
tapaði viljandi tveimur leikjum til
að koma höggstað á peðastöðu
hvíts. Skákin tók óvænta stefnu í
16. leik þegar Khalifman valdi
áhættusamt framhald og lagði allt í
sölurnar til að jafna metin en sjón
er sögu ríkari.
Hvítt: Alexander Khalifman
(2628) Svart: Peter Leko, P (2701)
Grúnfeld-vöm fD97]
l.d4 Rf6 2.c4 g6 3.Rc3 d5 4.Rf3
Bg7 5.Db3 dxc4 6.Dxc4 0-0 7.Bf4
c6. Hér breytir Leko út af fyrstu
skák einvígisins þar sem framhald-
ið varð 7...Ra6 8.e4 c5 9.d5 Bg4
10.Be2 Rd7 ll.Db3 Db6 12.Dxb6
axb6 með flókinni stöðu. 8.e4 Da5!?
Athyglisverð hugmynd. Mun al-
gengara er að leika 8...b5 fyrst og
svo Da5, en svartur kærir sig kol-
lóttan þó drottningin verði hrakin
upp í borð aftur! 9.b4 Dd8 Með
þessu drottningaflani hefur svartur
Oruggur sigur Leko
gegn Khalifman
lokkað b-peðið fram og undirbýr nú
að grafa undan því með því að leika
b5 og a5.
lO.Hbl Annar möguleiki er
10. Hdl. Vafasamt væri 10.Be2?! b5
11. Db3 a5 og hvítur nær ekki að
valda peðið með a3 vegna hróksins
áal.
10.. .b5 1 l.Dd3 a5 12.a3 Rh5!?
Leko reynir að notfæra sér að hvít-
ur á eftir að hrókfæra 13.Be3 axb4
14.axb4 f5 lð.Ddl!? Ef maður vissi
ekki betur mætti halda að byijend-
ur væru að tefla! í síðustu 10 leikj-
um hefur hvítur hreyft drottning-
una fjórum sinnum. Eðlilegar
virðist 15.Be2, en kannski var hvít-
ur hræddur við 15...Ha3 16.Dc2
fxe4 17.Rxe4 Bf5 með gagnfærum.
15.. .fxe4
m M.
1 ,, ^ lii
f
HH
ÍjÉlH.JH
eBTa. I i- é
&
m
4 á |á|
"" W' a j*.
á JSl,
JKm_
s
mati hafa ílækjurnar verið hliðholl-
ar svörtum. Þó hvítur sé skiptamun
yfir hefur svartur peð upp í, auk
þess er b4 peðið veikt.
23.Bd2 Bf5 24.Í3 Rf6 25.Bd3
He8! Nákvæmast. Eftir 25...Rd5
26.Hal! Rdxb4 27.Bxb4 Bxb4+
28.Ke2 næði hvítur góðu mótspili.
26.g4! Nauðsynlegur leikur. Ef
26.0-0? Rd5 næði svartur þremur
samstæðum peðum.
16.Rg5!? Vinningi undir í einvíg-
inu ákveður Khalifman að tefla á
tvær hættur. Eftir 16.Rxe4 Be6
mætti segja að staðan væri í „dýna-
mísku“jafnvægi.
16...e5! 17.Db3+ Kh8 18.Rf7+
Hxf7 19.Dxf7 exd4 20.Bg5! Df8
21.Dxf8+ Bxf8 22.Rxe4 Ra6
Öldurnar hefur lægt, en að mínu
Raxb4 29.Ke2 og nú h'tur 29...g5 út
fyrir að vera sterkt, því ef 30.Bxg5
Rc3+ vinnur svartur skiptamuninn
til baka með betri stöðu.
27. Bxe4 c5?! Betra er 27...Rxe4
28.fxe4 Hxe4+ 29.KÍ2 d3!, en eftir
30.K13 Hc4 31.Hhcl ætti Khalifman
að halda jafntefli.
28. bxc5 Rxe4 29.fxe4 Hxe4+
30.KÍ2 Rxc5 31.Hxb5 He8?! Hér
guggnar Leko skyndilega á að taka
peðið. Eftir 31...Hxg4! 32.KÍ3 Hh4
33.Bb4 Hh5 34.Hcl Hf5+ 35.Kg2
d3! 36.Bxc5 d2 37.Hdl Hxc5 er
staðan fræðilegt jafntefli.
32.KÍ3 Nú fær hvítur skyndilega
vinningsmöguleika.
32...Rd3 33.Hd5 Bg7 34.Hfl
Re5+ 35.Kg3 Rc4 36.Hel Re3!
37.Bxe3 dxe3 38.Kf3 Bh6 39.g5
Bg7 40.Hxe3 Hxe3+ 41.Kxe3 Kg8
26...Bxe4? Betra er 26...Bd7! með
hugmyndinni Rd5 27.h4! Rd5 28.h5
Þótt ótrúlegt megi virðast er
staðan jafntefli! Nákvæmlega sama
staða kom upp með skiptum litum
milli Ljubojevic og Keene í Palma
de Mallorca 1972. Þess má geta, að
stæði hvíta peðið á g4 í staðinn fyrii-
g5 væri hvíta staðan unnin.
42.Hd8+ Kf7 43.Hd7+ Kg8 44.h4
Bb2 45.KÍ3 Bg7 46.Kf4 Bf8 47.h5
Eftir 47.Kg4 h5+! 48.KÍ4 (48.gxh6
Bxh6 er einnig jafntefli) leikur
svartur 48.. .Bb4! og komist svartur
á skálínuna al/hl kemst hvítur ekk-
ert áfram. Eini möguleikinn virðist
því 49.Hd3 BfS! 50.Hd8 Kf7, en eftir
51.HXÍ8+ Kxf8 52.Ke4 Ke8 heldur
svartur andspæninu.
47...gxh5 48.Kg3 h6! 49.g6 Ba3
50.Kh4 Bcl 51.Kxh5 Bg5 52.Kg4
Bcl 53.KÍ5 Bg5 54.Ke6 Bh4
55.Hh7 Bg5 56.g7 h5 57.Hxh5 Bf6
58.Hh3 Bxg7 59.Ke7 Bb2 60.Hb3
Bd4 61.Hd3 Bb2 62.Hg3+ Kh7
63.Ke6 Kh6 64.Kf5 Kh7 65.Hg6
Bc3 66.Kg5 Bb2 67.Kh5 Bc3
68.Hg2 Bd4 69.Hd2 Bc3 70.Hc2
Bal 71.Hc7+ Kg8 72.Hd7 'k-'k
Skákforrit í ísraelsku
deildakeppninni
Frá og með næsta keppnistíma-
bili mega skákforrit tefla í ísraelsku
deildakeppninni. Hvert lið má nota
skákforrit á einu borði. Tvö mis-
munandi lið mega ekki nota sama
skákforritið. Þegar lið mætast sem
bæði nota skákforrit verða skák-
forritin látin tefla saman. Lið sem
ekki nota skákforrit geta ákveðið
hvaða liðsmaður teflh- gegn skák-
fomtinu hverju sinni. Þegar er
ákveðið að Fritz 6 forritið tefli fyrir
Elizur Petach-Tikqva og að Junior
6 tefli fyrir Club Kasparov þar sem
Gary Kasparov skipar efsta borðið.
Þetta eru nokkuð óvænt tíðindi,
en ástæðan fyrir þessari óvæntu
breytingu er varla skortur á skák-
mönnum í ísraelsku deildakeppn-
inni. Fyrirkomulagið bendir frekar
til þess, að hér sé um fjáröflunarleið
fyrir félögin að ræða. I stað þess að
greiða sterkum skákmönnum fyrir
þátttöku í keppninni fá félögin
greiðslu frá framleiðendum skák-
forritanna fyrir að auglýsa þau á
þennan hátt.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson