Morgunblaðið - 11.01.2000, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
ÞRIÐJU DAGUR 11. JANÚAR 2000 63
--------------------------r
Misstir þú af aldamótunum?
Frá Inga Hans Jónssyni:
MISSTIR þú af aldamótunum?
Hún er ákaflega einkennileg um-
ræðan um aldamótin. Þó það sé ef
til vill að bera í bakkafullan lækinn
að halda þessu áfram nú er það vert
þar sem svo margir misstu af alda-
mótunum vegna boðskapar há-
lærðra manna. Þú, lesandi góður,
skalt nú leggja það á þig að lesa
þetta hvaða skoðun sem þú hefur á
málefninu. Hér verða efnistök
byggð á raunsönnum lýsingum og
tilvitnunum sem eru mjög venjuleg-
ar, líttu á. í eina tíð var ungur
drengur að ganga til prests til ferm-
ingarundirbúnings. A þeim tíma var
alsiða að maður var manns gaman.
Gárungar nokkrir spurðu strákinn
að því hvenær Jesús hefði fæðst.
Strákurinn hugsaði sig um ör-
skotsstund og svaraði: „Þegar árið
var ekki neitt.“ Gaman var hent að
svari stráksins en er fram liðu
stundir áttuðu menn sig á hve ótrú-
lega snjallt þetta svar var. Það verð-
ur notað hér sem útgangspunktur.
Eftir og fyrir Krists burð
Allir þekkja þá viðmiðun að talað
er um að atburðir hafi gerst ein-
hverjum árum fyrir Krists burð en
svo aðrir einhverjum árum eftir
Krists burð. Þar sem árin eitt fyrir
Krist og eitt eftir Krist mætast
hlýtur að vera núll. Með öðrum orð-
um, þessi tvö ár hljóta að innihalda
sína 365 dagana hvort eða samtals
730 daga. Núllið er því í miðjunni
þar sem hin ætlaða fæðing á að hafa
átt sér stað. Og það sem fermingar-
strákurinn, Jesús Kristur, ég og þú
lesandi góður eigum sameiginlegt
er að öll erum við fædd jafn gömul.
Og við fæðinguna hefst okkar fyrsta
ár sem lýkur á einsársafmælinu, þá
hefst annað árið okkar og þannig
koll af kolli, þangað til við fyllum
fyrsta tuginn. Á 10 ára afmælinu
höfum við lifað í full 10 ár og erum
komin á annan áratuginn.
Fimmtugsafmælið
Maður nokkur á Seltjarnarnesi er
fæddur 16. mars 1950, hann verður
því fimmtugur 16. mars næstkom-
andi. Hann hefur þá lifað í full 50 ár.
Þá verður honum að öllum líkindum
árnað heilla með klassísku gríni um
hvemig það sé nú að hafa verið
rúmlega fertugur í næstum tíu ár og
vera svo allt í einu kominn á sext-
Glataðar
pantanir
(a Garðari
Cortes)
Frá Pórarni Stefánssyni:
VEGNA bilunar í tölvu glötuðust all-
ar netpantanh’ sem áhugamenn um
sönglist Garðars Cortes höfðu gert
vegna sértilboðs á nýútkomnum
geisladiskum hans og Eriks Werba
sl. haust. Útgefandi, Polarfonia
Classics, biður þá sem eiga óaf-
greiddar pantanir innilegrar afsök-
unar vegna óþæginda sem af þessu
hafa hlotist. Þeir sem enn hafa áhuga
á að eignast geisladiskana á því til-
boðsverði sem gefið var upp vinsam-
legast endurnýið pöntun ykkar í net-
fangi ts@itn.is.
f.h. Polarfonia Classics
ÞÓRARINN STEFÁNSSON
ugsaldur. Já, nákvæmlega á fimm-
tugsafmælinu hefst sextugsaldur-
inn. Þetta hefur ekki vafist fyrir
mönnum til þessa. Þannig lauk líka
tuttugustu öldinni um síðustu ára-
mót og tuttugasta og fyrsta öldin
hófst. Það sem mér þykir einkenni-
legast er að flestir andstæðingar
nýafstaðinna aldamóta fallast á að
um árþúsundamót hafi verið að
ræða. Sé á það fallist gengur tuga-
talið þannig upp að nýtt árþúsund
hefst um leið og nýr áratugur og
þar af leiðandi nýtt árhundrað.
Frá Háskólanum
í Almanaki sem Háskóli íslands
gefur út er birtur eftirfarandi texti:
„Tímatal kristinna manna á það
sameiginlegt með öllum öðrum
tímatölum mannkynssögunnar að
fyrsta árið er auðkennt með tölunni
1, annað árið með tölunni 2 og svo
framvegis. Ef fylgt er rithætti höf-
undar tímatalsins heitir fyrsta árið
(á latínu) Anno Domini Nostri Jesu
Christi 1, sem þýða mætti „fyrsta ár
herra vors Jesú Krists“. Af því leið-
ir að fyrstu öldinni lauk ekki fyrr en
árið 100 var á enda, og 20. öldinni
lýkur ekki fyrr en árið 2000 er á
enda. Ný öld gengur því ekki í garð
fyrr en 1. janúar árið 2001.“
Annar skilningur
Takið eftir þýðingu Háskólans á
frumtextanum „Fyrsta ár herra
vors Jesú Krists" að framansögðu
þarf ég ekki neina háskólamenntun
til að skilja þetta á þveröfugan hátt.
Og vitna þá aftur til þess að við öll
erum fædd jafngömul Jesú Kristi.
Ég velti því nokkuð fyrir mér á
hvern hátt þýðing txtans gæti skil-
ist á þann hátt sem háskólamennt-
aðir menn skilja hann. Mér er það
gjörsamlega fyrirmunað að snúa
þannig út úr þessari þýðingu að ég
fái það út að tímatalið byrji á árinu
eitt. En að það hefjist á fyrsta ári
hljóta allir að geta verið sammála
um og það vill nú þannig til að al-
mennur lesskilningur á 1. ári er þeir
365 dagar sem líða frá því að eitt-
hvað verður til þangað til það er
eins árs gamalt. Ný öld fæddist á
nýársnótt og verður 100 ára á
nýársnótt árið 2100. Eins og sagt
verður um manninn á Seltjarnanesi
að hann verði kominn á sextugs-
aldur, eins er tímatalið komið á tutt-
ugustu og fyrstu öld. Þó gömul vald-
boð segi annað.
Kertin hans Þórs
Eitt atriðið í þessari aldamóta-
kómedíu var þegar Þór Jakobsson
þröngvaði kertasögu sinni upp á
landsmenn í veðurfréttatíma. Ég
erfi það ekki við hann og vil ekki að
veðurfræðingar né aðrir búi við rit-
skoðun. Til upplýsingar fyrir þá
sem ekki sáu nefnt atriði lýsti Þór á
ákaflega einfaldan hátt skoðun sinni
með því að stilla upp kertum mis-
Brúðhjón
borðbunaöur - Glæsileg gjafavara - Brúðhjónalistar
brunnum. Kertin táknuðu hvert sitt
árið og þannig brenndi hann eitt
kerti á ári. Og byrjaði auðvitað á
kerti númer eitt sem tákn um fyrsta
ár aldarinnar. Mér varð strax Ijóst
að þessari líkingu mætti snúa við á
þann hátt að þú tekur kveik og dýfir
í vax á hverjum degi og ert kominn
með fyrsta kertið eftir 365 daga og
hefst þá handa við annað kertið
o.s.fr.v. Þannig þroskuðumst við öll
og þannig heldur líf okkar áfram.
Stutt fyrirspurn
Hér er svo stutt fyrirspurn til há-
skólans í Reykjavík: Hve mörgum
árum hefur fyrstaársnemandi eytt
við Háskóla íslands?
INGI HANS JÓNSSON,
Hlíðai-vegi 11,
Grundarfirði.
Skuldin við
Reykjalund
Frá Sigrúnu K. Ái-nadóttur:
ÉG ER ein þeirra þúsunda, sem
hafa komist til heilsu á Reykjalundi
og þess vegna er skuld mín við
Reykjalund stór. Þessa skuld getum
við, sem heilsu hlutum, byrjað að
greiða með því að kaupa sem ílesta
miða í Happdrætti SÍBS. Happ-
drættið hefur í fimmtíu ár kostað
framkvæmdir á Reykjalundi og því
er vandfundin sú fjölskylda í land-
inu að einhver úr henni hafi ekki
fengið þar heilsubót og komist til
starfa í þjóðfélaginu til framfærslu
sér og sínum.
Það vita allir, sem kynna sér end-
urhæfingarmál, að ekkert er þjóðfé-
laginu hagkvæmara en endurhæfing
og síðan verður bætt líðan fólks
aldrei metin til íjár.
Nú bíða þjálfunar á Reykjalundi
hundruð manna og því er brýn þörf
að bæta úr, enda stendur fyrir dyr-
um að byggja endurhæfingarhús
með sundlaug.
Því vil ég skora á alla landsmenn
að styrkja Reykjalund með því að
kaupa miða í happdrætti SÍBS. Þá
sakar ekki að geta þess, að vinning-
ar eru margir og stórir, fyrir lágt
verð miða.
Við skulum lækka skuldina við
Reykjalund.
SIGRÚN K. ÁRNADÓTTIR,
Árskógum 8,
Reykjavík.
yersujnin
Lttugavegi 52, s. 562 4244.
Auglýsing um fasteignagjöld
í Reykjavík árið 2000
>
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 2000 verða sendir út næstu daga,~-
ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna, og umsóknareyðublaði vegna
greiðslu gjalda með boðgreiðslum á greiðslukortum.
Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíró-
seðlana í sparisjóðum, bönkum eða á pósthúsum.
Fasteignagjöld skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, sorphirðugjald, vatnsgjald og
holræsagjald.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu lækkun á fasteignaskatti og hol-
ræsagjaldi á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun á þeim liðum árið 2000, að
teknu tilliti til tekju- og eignaviðmiðunar.
Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl lífeyrisþega eftir framlagningu skattskrár
Reykjavíkur. Úrskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og hol-
ræsagjaldi hjá þeim, er eiga rétt á þeim samkvæmt þeim reglum sem borgar-
stjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga,
ásamt 87. gr. vatnalaga nr. 15/1923, sbr. einnig lög nr. 137/1995. Verður viðkom-
andi tilkynnt um breytingar, ef þær verða.
Á fundi sínum þann 4. janúar sl. samþykkti borgarráð að hækka tekjuviðmiðun til af-
sláttar á árinu 2000, vegna fasteignaskatts og holræsagjalds sem nam u.þ.b. 8%.
100% lækkun:
Einstaklingar með (peninga) tekjur allt að kr. 930.000
Hjón með (peninga) tekjur allt að kr. 1.300.000
80% lækkun:
Einstaklingar með (peninga) tekjur allt að kr. 930.000 til kr. 1.025.000
Hjón með (peninga) tekjur allt að kr. 1.300.000 til kr. 1.415.000
50% lækkun:
Einstaklingar með (peninga) tekjur allt að kr. 1.025.000- til kr. 1.130.000-
Hjón með (peninga) tekjur allt að kr. 1.415.000- til kr. 1.600.000-
Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir, sem ekki fengu lækkun á sl. ári, sent fram-
talsnefnd umsókn um lækkun, (ásamt afriti af skattaframtali 2000).
Framtalsnefnd er til viðtals alla miðvikudaga milli kl. 16.00 og 17.00 í Ráðhúsi
Reykjavíkur, frá 2. febrúar til 26. apríl nk. Á sama tímabili verða upplýsingar veitt-
ar í síma 552 8050, alla þriðjudaga kl. 10.00 til 12.00.
Gatnamálastjóri, Skúlatúni 2, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og
breytingar á sorphirðugjaldi, í síma 567 9600, og í bréfsíma 567 9605.
Orkuveita Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 34, veitir þær upplýsingar sem snerta
álagningu og breytingar vatnsgjalds, í síma 585 6000 og bréfsíma 567 2119.
Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, gefur upplýsingar um álagningu annarra
fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563 2062 og í bréfsíma 563 2033.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 10.000 fyrir árið 2000 eru: 1. febrúar,'
1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 10.000 er
1. apríl.
N_________________________________________________________________________________A
Reykjavík 11. janúar 2000
Borgarstjórinn í Reykjavík