Morgunblaðið - 11.01.2000, Side 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, simi 530 1919
5 t
KVIKMYND EFTIR
FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
HANDRIT
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON
BYGGT Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU
,Besta íslenska kvikmyndin til þessa*
★★★★ ÓHT Rás2
★ ★★★ SVMBL
★ ★ ★ 1 /2 Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 4.30, 6.45 og 9.
AUGASTEININN
ÞINN
Sýnd kl. 6.45 og 9.
LIFE
Sýnd kl. 4.30 og 11.15.
Sýnd kl. 5 og 7.
ALLT UM
MÓÐUR MÍNA
Sýnd kl. 11.15.
A SIMPLE PLAN
Sýnd kl. 11. síö. sýn.
www.haskolabio.is
FYfilfi
980 PUNKTA
FEfiBU I Bt'Ó
■mtáÆi BðjglB -mmjúMíi -aiMiJki
NÝn OG BETRA
Alfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905
★ ★★★ SVMBL
★ ★★l/2 Kvikmyndir.is
KVIKMYND EFTIR FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
handrit EINAR MAR GUÐMUNDSSON
BYGGT Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU
Sýnd kl. 5, 6.50, 9 og 11.10. B.i. i6.atriDiGn'AL
Sýnd ki. 5, 7, 9 og 11.05. ■mnGETAL
" ’ • ;
fjnm*
jjj lifP ★ A ★ Rás2 tk'íVÍtíTtaÝv -
jÁbnrisihh «■•1
Kl. 5 og 9. B.i. 16. | WLIO.'1”' Kl. 5 og 7.10. (sl. tal. Sýnd kl. 9 og 11. Sýnd kl. 5 og 7. ísl. tal. Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 1 | og 11.10. B.i. 16. |
www.samfilm.is
Reuters
Sjötta skilningarvitið var kosin besta spennumynd ársins og
hér eru leikararnir Bruce Willis og Hayley Joel Osmond með
leikstjdra myndarinnar, M. Night Shyamalan, við verðlaunaaf-
hendinguna.
Læknirinn Mark Green eða réttara sagt.
leikarinn Anthony Edwards sést hér taka
á móti verðlaunum ásamt meðleikurum
sinum í Bráðavaktinni.
Peoples Choice-verðlaunin
Adam Sandler
sigursæll
AP
Adam Sandler sést hér lyfta tveim-
ur verðlaunagripum sinum á hátíð-
inni á sunnudag.
Á SUNNUDAGINN voru veitt
verðlaun fólksins, eða Peoples’
Choice Awards, í 26. skipti, en
verðlaunin eru veitt til þeirra
kvikmynda og sjónvarpsþátta
sem þykja hafa verið öðrum vin-
sælli á árinu. Oft er því gengið
þvert á dóma kvikmyndagagnrýn-
enda, enda eru dómar þeirra ekk-
ert endilega beintengdir við vin-
sældir almennings.
Það varð enda raunin á sunnu-
daginn þegar kvikmyndin „Big
Daddy“ með Adam Sandler var
kosin vinsælasta gamanmynd árs-
ins, en myndin hafði hlotið fremur
V*lælega dóma bandarískra gagn-
rýnenda. Ekki nóg með það því
myndin var einnig kosin vinsæl-
asta mynd ársins óháð undir-
flokki. Ádam Sandler fékk einnig
klapp á öxlina frá dómnefnd fólks-
ins fyrir að hafa sýnt hvers hann
er megnugur í gamanleik. „Sjötta
skilningarvitið" með Bruce Willis í
aðalhlutverki var kosin vinsælasta
spennumynd ársins, en í þeim dómi
voru Verðlaun fólksins í takt við
gagnrýnendur því myndin hefur
hvarvetna hlotið góða dóma.
^ Þrátt fyrir að hvorki „Runaway
BTide" né „Notting Hill“ hafí verið
verðlaunuð á sunnudaginn var aðal-
leikkona beggja mynda, Juiia
Roberts, kosin vinsælasta leikkona
ársins. Við það tækifæri steig leik-
konan á svið og hlaut dynjandi lófa-
tak þegar hún sagði að hún tryði því
ekki að hún væri að fá þessi verð-
-I&un, því enginn hefði tekið eftir
henni þegar hún var í skóla. Harri-
son Ford hlaut sambærileg verðlaun
í karlaflokki, og ætti víst fáum að
koma á óvart, því nánast allar mynd-
ir hans njóta fádæma vinsælda.
Vinirnir vinsælastir
Þegar vinsælustu gamanþættimir
í sjónvarpi voru valdir kom í ljós að
Vinir áttu mest ítök í fólki en Bráða-
vaktin var vinsælust í flokki drama-
tískra þátta þrátt fyrir brotthlaup
George Clooney úr hlutverki Ross
læknis. Gamanleikarinn Drew Carey
var kosinn vinsælasti gamanleikari
sjónvarpsins í þáttum sínum „The
Drew Cary Show“ og Calista Flock-
hart var kosin vinsælasta gamanleik-
REUTERS
Julia Roberts trúði áhorfendum
fyrir því að enginn hefði tekið
eftir sér í skóla og því tryði hún
því varla að hún væri svona vin-
sæl í dag.
konan úr sjónvarpi fyrir túlkun sína
á Ally McBeal.
Kosið er einnig um vinsældir með-
al nýrra dagskrárliða og hlaut Jenni-
fer Love Hewitt verðiaun sem besta
nýja sjónvarpsleikkonan í gaman-
þætti í þáttaröðinni „Time of Your
Life“, en leikkonan vakti fyrst at-
hygli í sjónvarpsröðinni „Party of
Five“. Billy Campbell hlaut sam-
bærileg verðlaun karlpeningsins fyr-
ir leik sinn í nýju þáttaröðinni „Once
and Again“.
í tónlistardeildinni var það hinn
blóðheiti Ricky Martin sem átti vin-
sælasta lag ársins, „Livin’ La Vida
Loca“, samkvæmt könnuninni, en
einnig var sveitasöngkonan Shania
Twain nefnd og strákasveitin
Backstreet Boys.
Verðlaun fólksins eru íramkvæmd
af Gallup-fyrirtækinu og eru 5000
manns í úrtakinu sem spurðir eru
um bestu myndir og sjónvarpsþætti
ársins. Talið er að valið endurspegli
skoðanir rúmlega 200 milljóna
Bandaríkjamanna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Andrea Gylfadóttir í góðum ham ásamt Einari Rúnarssyni og Þor-
valdi Bjarna á Gauki á stöng.
Todmobile spiiaði á Gauk á stöng
Kominn tími á safnplötu
HLJÓMSVEITIN Todmobile var
til margra ára ein af allra vinsæl-
ustu hljómsveitum landsins, en
síðan 1996 hefur einungis ör-
sjaldan heyrst til hennar. En að-
dáendum sveitarinnar til mikill-
ar gleði steig Todmobile á svið
og hélt tónleika á Gauk á Stöng
sl. fimmtudag og föstudag.
„Við spilum alltaf í kringum
jólin á hverju ári, en komum síð-
an ekki til með að spila aftur
saman fyrr en í haust,“ segir
Andrea Gylfadóttir söngkona
sem skipar harðasta kjarna
sveitarinnar ásamt Þorvaldi
Bjarna Þorvaldssyni, Eiði
Arnarssyni og Kjartani Valdi-
marssyni. „Þá er ætlunin að gefa
út safnplötu með bestu lögunum
af þeim sex diskum sem við höf-
um gefið út í gegnum tíðina. Og
þá verðum við að sjálfsögðu með
tónleika í kringum það. Það hef-
ur lengi staðið til að gefa út
þessa plötu og svo þegar bandið
varð tíu ára á liðnu ári
ákváðum við að það væri kom-
inn tími á þetta."
- Eigið þið ekki marga aðdá-
endurennþá?
„Jú, jú, þeir eru um allt. Við
höldum alltaf árlegt 800 manna
jólaball í Keflavfk; það er alltaf
uppselt. Og svo var stemmningin
á Gauknum alveg frábær.“
Reuters
Vinir Tijóta gífurlegra vinsælda
vestanhafs og hér sjást þau
Matthew Perry, Lisa Kudrow,
Jennifer Aniston og David
Schwimmer taka við verðlaun-
unum á sunnudaginn.
Calista Flockhart þykir
skemmtileg sem Ally Mc Beal.