Morgunblaðið - 15.01.2000, Page 4
J.
Sargic kemur aftur
vík og hefur aldrei leikið í efstu
deild í knattspymu.
Meiðsli hjá Liverpool
Liverpool hefur gengið vel í und-
anfömum leikjum og er í fimmta
sæti deildarinnar. Michael Owen
verður i fremstu víglínu liðsins á ný
en hann hefur verið meiddur í hnés-
bótarsin og var í meðferð í Þýska-
landi, en virðist búinn að ná sér ef
marka má enska fjölmiðla. Hins
vegar em Robbie Fowler, Jamie
Redknapp, Erik Meijer og hugsan-
lega Veggard Heggem meiddir. Þá
er Rigobert Song ekki í liði Liver-
pool vegna þess að hann er að leika
með landsliði Kamerún. Einnig er
David Thompson fjarverandi en
honum var vikið af leikvelli með
varaliði Liverpool gegn Leeds og
hefur hlotið fjöguma leikja bann.
Jóhann Guðmundsson um nýja samherja sinn hjá Lundúnaliðinu Watford
■ EIÐUR Smárí Guðjohnsen og
Guðni Bergsson verða báðir í liði
Bolton sem sækir QPR heim í 1.
deild ensku knattspyrnunnar í
dag. Leikurinn verður erfiður fyr-
ir Bolton þar sem QPR er eina
liðið í deildinni sem ekki hefur
tapað heimaleik og er í efri hluta
deildarinnar.
■ HERMANN Hreiðarsson verð-
ur að vanda í vörn Wimbledon
sem mætir Coventry á útivelli í
úrvalsdeildinni. Egil Olsen, knatt-
spyrnustjóri Wimbledon, sagði í
gær að hann væri mjög smeykur
við Marokkómennina hjá Covent-
ry, þá Mustapaha Hadji og Yous-
sef Chippo, sem báðir hafa leikið
frábærlega með liðinu í vetur.
■ LÁRUS Orrí Sigurðsson leikur
ekki með Stoke gegn Port Vale í
1. deildinni í dag þar sem hann
tekur út leikbann.
■ BJARNÓLFUR Lárusson á
ekki víst sæti í byrjunarliði Wals-
all, sem mætir Sheffield United í
1. deild, þrátt fyrir glæsimark sitt
gegn Gillingham í bikarnum um
síðustu helgi. Tveir miðjumenn
sem ekki voru löglegir í bikarnum
koma aftur inn í hópinn í dag.
■ DERBY County vinnur að því
að framlengja lánssamninginn við
ísraelska landsliðsmanninn Avi
Nimni til vorsins. Félagið fékk
miðjumanninn lánaðan frá
Maccabi Tel Aviv til febrúarloka
og hann hefur staðið vel undir
væntingum.
■ TONY Puiis var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri 1. deildarliðs
Portsmouth. Hann tekur við af
Alan Ball sem var rekinn
skömmu fyrir áramótin.
■ GEORGE Graham, knatt-
spymustjóri Tottenham, er sagð-
ur hafa áhuga á að kaupa Chris
Sutton frá Chelsea, en þó aðeins
á niðursettu verði. Chelsea keypti
Sutton frá Blackburn fyrir 1.170
milljónir króna síðasta sumar en
honum hefur ekkert gengið í her-
búðum Lundúnaliðsins.
■ BEN Thatcher, varnarmaður
Wimbledon, missti af sæti í enska
landsliðinu þegar hann sló Nicky
Summerbee hjá Sunderland í leik
liðanna fyrir skömmu.
■ KEVIN Keegan, landsliðsþjálf-
ari, segir að þetta atvik hafí orðið
til þess að hann ákvað að velja
Thatcher ekki í hópinn fyrir leik
Englands gegn Argentínu í febr-
úar. Hann segir að Thatcher
komi hinsvegar vel til greina sem
einn af framtíðarleikmönnum
enska landsliðsins.
■ KEEGAN hefur einnig gefið til
kynna að hinn 18 ára gamli Joe
Cole hjá West Ham komi til
greina í enska landsliðshópinn
fyrir úrslitakeppni EM næsta
sumar. Keegan segir að Cole sé
alls ekki of ungur fyrir enska
landsliðið.
Gary Croft bar
rafrænt belti í leik
GARY Croft, leikmaður enska 1. deildar félagsins Ipswich
Town, varð fyrsti atvinnuknattspyrnumaðurinn í Englandi til
þess að bera rafrænt belti í keppni. Hann tók þátt í leik með
varaliði félagsins gegn Gillingham á miðvikudag. Croft, sem var
dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ítrekuð umferðar-
lagabrot, fékk reynslulausn eftir mánuð er hann samþykkti, líkt
og Jonathan Aitken, fyrrverandi ráðherra í Bretlandi, til þess
að bera rafrænt belti þess í stað, en þannig geta yfírvöld fylgst
með ferðum Croft með hjálp miðunartækja. Crofts lét það ekki á
sig fá þó að hann þyrfti að nota beltið og kvaðst glaður að geta
aftur um frjálst höfuð strokið.
Heftrúá
Heiðari
HEIÐAR Helguson, sem skrifaði undir samning við enska úrvals-
deildarliðið Watford í vikunni, verður í byrjunarliði liðsins gegn
Liverpool á heimavelli dag - í leik sem verður sýndur beint á Stöð
2. Jóhann B. Guðmundsson verður í leikmannahópnum. Hann
segir gaman að annar íslendingur skuli vera kominn í herbúðir
liðsins.
óhann B. hefur ekki fengið
mörg tækifæri með Watford
og í síðasta leik gegn Derby var
hann ekki einu sinni í hópnum. „Eg
var í byrjunarliðinu á móti Sout-
hampton í leik sem við unnum. Eg
taldi mig hafa skilað ágætum leik
þá, en í næsta leik á eftir, sem var
gegn Derby, var ég ekki einu sinni í
hópnum. Þetta er upp og ofan í
þessum bransa og ekkert annað að
gera en taka því og reyna að gera
enn betur næst þegar maður fær
tækifæri," sagði hann.
Jóhann gerði tveggja ára samn-
ing við Watford fyrír tveimur ár-
. um, en endurnýjaði samning sinn í
fyrra til fjögurra ára og á því þrjú
ár eftir af gildandi samningi. „Eg
er auðvitað óhress að hafa ekki
fengið fleiri tækifæri með liðinu.
En það þýðir ekkert að svekkja sig
á því,“ sagði hann.
Watford er í næstneðsta sæti
deildarinnar með 14 stig eftir 21
leik, hefur unnið fjóra, gert tvö
jafntefli og tapað 15 leikjum. „Það
getur ekki gengið eins illa hjá okk-
ur núna síðari hluta mótsins og í
fyrri hlutanum. Við náðum ekki að
sigra í fjórtán leikjum í röð og það
var erfiður tími fyrir liðið. Það hafa
verið batamerki í leik okkar að und-
anförnu og ég á von á því að betur
gangi núna með hækkandi sól. Auð-
"vitað eru allir leikir erfiðir fyrir
okkur og markmiðið er sem áður að
halda sér í deildinni," sagði Jóhann.
„Það er gott að fá Heiðar hingað
og nú fæ ég einhvern til að tala við
íslensku á æfingum. Eg hef trú á að
Heiðar eigi eftir að standa sig vel
með Watford," segir Jóhann B.
Guðmundsson.
Heiðar byrjar leikinn
Heiðar, sem er 23 ára, sagði í við-
tali við Morgunblaðið á dögunum
að gaman yrði að leika fyrsta leik-
inn gegn Liverpool því það hefði
alltaf verið uppáhaldsfélagið sitt á
Englandi. Honum varð að ósk sinni
því Graham Taylor knattspymust-
jóri Watford tilkynnti að hann yrði
annar tveggja í framlínu Watford,
hinn er Frakkinn Gravelaine. Tayl-
or gerir tvær breytingar frá tap-
leiknum við Derby í síðustu um-
ferð. Heiðar kemur inn fyrir
Ngonge og Des Lyttle fyrir Micah
Hyde. Margir leikmenn Watford
hafa átt við meiðsli að stríða í vetur
og liðið verður án nokkurra lykil-
manna í leiknum í dag. Má þar
nefna Neil Cox og Micah Hyde.
Heiðar kom til Watford í vikunni
og hefur því haft skamman tíma til
að laga sig að nýjum aðstæðum,
hann hefur einungis æft þrívegis
með liðinu auk þess sem hann hefur
ekki spilað alvöruleiki síðan norska
tímabilinu lauk í lok október. Heið-
ar sló í gegn með félagi sínu Lil-
leström síðasta sumar og skoraði
JÚGÓSLAVNESKI
knattspy muþj álfar-
inn Velimir Sargic er
á leið til Keflavíkur á
nýjan leik til að taka
við starfi yfirþjálfara
yngri flokka félags-
ins. Sargic mun einn-
ig koma að þjálfun
yngri leikmanna í
meistaraflokkshópi
Keflavíkur.
Sargic starfaði hjá
Keflavík í sjö ár en
hefur tvö síðustu ár
verið þjálfari ungl-
ingalandsliðs Möltu.
Knattspymusamband
Júgóslavíu hugðist
senda hann til starfa í
Kína ásamt fleiri
þjálfurum, til að
launa Kinverjum að-
stoðina við Júgóslava
í stríðinu á Balkans-
kaga, en Sargic ósk-
aði eindregið eftir því
að fara aftur til Kefla-
víkur og fékk það í
gegn.
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
Guðjón Þórðarson og Velimir Sargic ræða málin á Möltu, þar sem þeir
hittust í fyrra er Guðjón var með íslenska landsliðið þar.
Reuters
Jóhann B. Guðmundsson, sem sést hér í leik með Watford á
síðasta keppnistímabili, er í átján manna hópi liðsins, sem
mætir Liverpool í dag. Heiðar Helguson er í byrjunarliði Wat-
ford í fyrsta leik sínum með félaginu.
16 mörk og lagði upp níu mörk í 25
leikjum og vakti athygli margra
liða, meðal annars Bordeaux í
Frakklandi en úr varð að hann
gekk til liðs við Watford. Heiðar lék
tvö tímabil með Lilleström en þar
áður með Þrótti í Reykjavík og Dal-