Morgunblaðið - 19.01.2000, Qupperneq 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari heldur
með sveit sína á Evrópumótið í Króatíu
ðir ekkert
senda ný-
liða á stórmót
a
séu tæpir vegna meiðsla kom aldrei
tO greina að fá nýja menn í hópinn.
Þá hefði ég einfaldlega þurft að
skera meira niður. Við höfum ein-
faldlega ekki úr mörgum leikmönn-
um að velja. Evrópukeppni er miklu
erfiðari heldur en heimsmeistara-
keppni og það þýðir ekkert að senda
neina nýliða á stómót. Hópunnn
sem ég gat valið úr var ekki stór og
fáir leikmenn sem komu til álita ut-
an þeir sem ég var þegar búinn að
velja. Eg tel að þetta sé besti hópur-
inn.“
Veikir það landsliðshópinn að
geta ekki notað Aron Kristjánsson
ogBjarka Sigurðsson í keppninni?
„Aron og Sigurður voru í leikjun-
um í Makedóníu en þá var Dagur
ekki með. Valdimar var heldur ekki
með á móti Makedóníu en Bjarki lék
í þeim leikjum. Það er slæmt að geta
ekki notað fyrmefnda leikmenn. En
það eru til leikmenn sem geta tekið
við hlutverki þeirra."
Það hlýtur að teijast áhyggjuefni
hve fáa leikmenn þú gast hugsað
þér aðfátil liðs við hópinn ?
ÚRSLIT
Knattspyrna
England
Bikarkeppnin, 4. umferð:
Wolves - Sheff. Wed..............0:0
■ Shef. Wed vann 4:3 í vítaspyrnukeppni.
Bikarkeppni neðri deildar, 2. umferð:
Oldham - Stoke...................0:1
Barnet - Reading.................1:2
Ítalía
Bikarkcppnin, 8-liða úrslit, fyrri leikur:
Feneyjar - Fiorentina............0:0
Körfuknattleikur
Washington - Boston..........101:105
Atlanta - Milwaukee .........101:107
Philadelphia - New Jersey.....101:96
LA Lakers - Seattle ...........81:82
Golden State - Orlando.......113:100
NewYork-Detroit...............105:94
Charlotte - Toronto...........115:94
Minnesota - Indiana .........101:100
Dallas - Houston ............111:121
LA Clippers - San Antonio......93:99
„Þegar nokkrir eru meiddir er
slæmt að hafa ekki úr fleiri leik-
mönnum að moða. Það er bagalegt
að hafa ekki nokkra leikmenn sem
eru á þröskuldi þess að komast í
hópinn, en það stendur vonandi til
bóta. Eg nefni leikmenn 18 ára
landsliðsins, en margir leikmenn
liðsins eru þegar famir að spila í 1.
deildinni. Þegar þessir leikmenn
verða eldri verður úrvalið vonandi
meira.“
íslenska liðið leikur þrjá erfíða
leiki, gegn Svíum, Portúgölum og
Rússum, á jafnmörgum dögum í
upphafí móts. Ætiar þú að nota
sama hópinn íþeim leikjum ?
„Eg býst við að nota sömu leik-
mennina í fyrstu leikjunum. Nú em
leikmenn að búa sig undir að taka
þátt í þremur leikjum á jafn mörg-
um dögum. Síðan fáum við einn
hvíldardag. Eftir þessa leiki kemur í
ljós hve mikið við getum notað sama
hópinn.“
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, dró að til-
kynna landsliðshópinn, sem keppir á Evrópumótinu í Króatíu,
fram á síðustu stundu vegna meiðsla lykilmanna. Hann segir að
þrátt fyrir meiðsli hafi ekki komið til greina að stækka þann hóp
sem æfði fyrir keppnina þar sem hann hafi ekki haft úr mörgum
leikmönnum að velja.
Þorbjöm sagði ástæðu þess að
hann ákvað að draga að velja
hópinn á Evrópumótið í Króatíu þar
til á mánudag þá að
óvíst var hvort
Þorsteinsson Valdimar Grímsson
skrifar og Dagur Sigurðs-
son yrðu leikfærir.
Þegar þeir voru sagðir tilbúnir hafi
hann ákveðið að velja Ragnar Ósk-
arsson, sem var í 17 manna hópi,
ekki til fararinnar.
„Það sem var þyngst á metunum
var að Ragnar er ekki nægilega góð-
ur vamarmaður og að Dagur virðist
búinn að ná sér og ég treysti honum
til að leika þá leiki sem framundan
eru. Þá hef ég leikmann eins og Sig-
urð Bjamason, sem er vanur að
leika á miðjunni og leysti það hlut-
verk af hendi gegn Makedónum í
fyrra, til þess að taka við af Degi. Þá
er vel hægt að stilla Patreki Jóhann-
essyni á miðjuna ef við mætum 6-0-
vöm. Við höfum nokkra möguleika í
stöðunni."
Þú telur þig því hafa full not af
leikmönnum eins og Degi Sigurðs-
syni og Valdimari Grímssyni, sem
hefur lítið leikið undanfarið, í
keppninni?
„Dagur á að vera búinn að ná sér
af meislum í hné en Valdimar er
ekki kominn í sitt besta form, eftir
að hann fékk sýldngu í hné. Hann er
svolítið þreyttur og við þurfum að
sjá til hvemig honum reiðir af, en
hann fær hvíld, eins og aðrir leik-
menn, fram að keppninni. En ég hef
í sjálfu sér engar áhyggjur af Vald-
imari. Njörður Ámason hefur skilað
hlutverki sínu í þeim leikjum sem
hann hefur leikið í hægra hominu
og það kemur okkur einfaldlega til
góða þegar Valdimar fer að leika
með okkur. Þó að nokkrir leikmenn
Svíar líta á okkur sem
tiltölulega auðvelda bráð
íslendingar mæta Svíum í fyrsta
leik í keppninni á föstudag. Ertu
búinn að taka ákvörðun um hvemig
liðið kemur til með að mæta heims-
meisturunum?
„Eg er ekki búinn að fastmóta
leik okkar, en það getur vel farið svo
Morgunblaðið/Sverrir
Mikið mun mæða á landsliðsmönnum á Evrópumótinu í hand-
knattleik, einkum þeim Julian Róbert Duranona og Degi Sig-
urðssyni.
Morgunblaðið/Gísli Þorsteinsson.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari íslands, og Bengt Johansson, landsliðsþjálfari Svía, hittust í
Frakklandi fyrir skömmu. Þeir mætast á ný er landslið Svía og íslendinga etja kappi í fyrsta leik á
EM í Króatíu.
að við leikum 6-0-vöm gegn þeim
eins og 3-2-1-vöm. Við náðum að
spila okkur saman í tveimur æfinga-
leikjum gegn Hafnarfjarðarúrvali
og IBV en eigum enn eftir að leggja
íyrir okkur hvemig við tökum á
Svíum. Þeir em með reynslumikið
lið og hafa spilað á móti mörgum
varnarafbrigðum. Það skiptir því
ekki höfuðmáli hvaða leikaðferð við
notum heldur hvemig okkur tekst
að verjast þeim. Aðalatriðið er að
taka fyrir leikmenn sem geta unnið
leiki fyrir þá á eigin spýtur, eins og
Stefan Lövgren, Magnus Wislander
og Magnus Andersson geta gert.
Þessir leikmenn skipta miklu máli í
leik þeirra og nauðsynlegt að stöðva
þá.“
Nú gera Svíar ekki ráð fyrir að
íslendingar verði ofariega á EM, ef
marka má orð Bengts Johanssonar,
þjáifara Svía, sem teiur að Danir og
Sióvenar verði ofar okkur íriðlinum.
Hvað fínnst þér um viðhorf sænska
þjálfarans ígarð íslenska liðsins?
„Ég held að það sé okkur í hag að
Svíar geri ekki ráð fyrir mikilli mót-
spyrnu af okkar hálfu. Þeir líta á
okkur sem tiltölulega auðvelda
bráð, enda hafa þeir alltaf unnið
okkur. Þeir telja að engin breyting
verði þar á. En við ætlum að reyna
að koma þeim á óvart, enda höfum
við engu að tapa.“
I KVOLD
Handknattleikur
1. dcild kvcnna:
Austurberg: ÍR - Víkingur ......20
KA-heimili: KA - Fram ..........20
Varmá: Afturelding - FH..........20
Körfuknattleikur
1. deild kvenna:
Keflavík: Keflavík - KR.........20
1. deild karla:
Vestmannaeyjar: ÍV - Breiðablik .20
Júgóslavía og Makedónía áfram
Júgóslavar og Makedóníumenn
urðu um síðustu helgi fyrstu
þjóðirnar til að komast áfram úr
forkeppni heimsmeistaramótsins í
handknattleik sem fram fer í
Frakklandi á næsta ári.
Þessar tvær grannþjóðir eru
því meðal mögulegra andstæð-
inga íslendinga í úrslitaumferð
Evrópu næsta haust en Islending-
ar og níu aðrar þjóðir sátu hjá í
forkeppninni. Það eru einmitt lið-
in sem taka þátt í úrslitum EM í
Króatíu sem fara beint í þessa úr-
slitaumferð, nema Svíar og
Frakkar sem fara beint á HM
sem heimsmeistarar og gestgjaf-
ar.
í úrslitaumferðinni verða tíu
einvígi, heima og heiman, um
jafnmörg sæti Evrópu á HM í
Frakklandi. Liðin tíu sem sátu
hjá dragast gegn hinum tíu sem
komast áfram úr forkeppninni.
Júgóslavía og Makedónía eru
saman í riðli og hafa þar fullt hús
stiga fyrir tvær síðustu umferð-
irnar sem fram fara nú í vikunni
og um helgina. Staðan í riðlum
forkeppninnar er þessi:
1. riðill: Ungverjaland 6, Aust-
urríki 5, Búlgaría 3, Litháen 2.
2. riðill: Tékkland 6, Slóvakía 4,
Rúmenía 4, Italía 2.
3. riðill: Sviss 8, Hvíta-Rúss-
land 4, ísrael 4, Georgía 0.
4. riðill: Júgóslavía 8, Makedón-
ía 8, Grikkland 0, Belgía 0.
5. riðill: Pólland 7, Tyrkland 6,
Holland 3, Lúxemborg 0.