Morgunblaðið - 19.01.2000, Page 4

Morgunblaðið - 19.01.2000, Page 4
KÖRFUKNATTLEIKUR Annað tap Lakers á fjórum dögum GARY Payton freistaði þess að tryggja liði sínu, Seattle Sup- erSonics, sigur á efsta liði NBA-deildarinnar í körfuknatt- leik, Los Angeles Lakers, upp * á eigin spýtur er liðin mættust í Kaliforníu í fyrrinótt. Payton, leikstjórnandi Seattle, skoraði sigurkörfuna úr þriggja stiga skoti er tæpar sextán sekúnd- ur voru til leiksloka. Leikar fóru 82:81, gestunum í hag. Stundum þegar ég einbeiti mér al- farið að því að leita félaga mína uppi eigum við erfitt uppdráttar. Ég verð því að láta meira að mér kveða í sókninni,“ sagði Payton, nafntogað- ur varnarmaður. Þetta var fimmti ' sigur Seattle í röð, en þar áður tap- aði liðið einmitt fyrir Lakers eftir að hafa náð nítján stiga forskoti í þriðja og næstsíðasta leikhlutanum. Ron Harper, leikmaður Lakers og fyrrverandi NBA-meistari með Chicago Bulls, sem gætti Paytons á lokamínútunum, komst ekki í gegn- um hindrun, sem félagar Paytons settu fyiir hann í aðdraganda sigur- körfunnar. Payton fékk því ogið skotfæri. „Ég tek sökina á mig. Ég hræðist það ekki,“ sagði Harper. „Ég hélt að hann myndi ekki taka þriggja stiga skot, en hann gerði það og hitti.“ Harper lýsti einnig óánægju sinni með frammistöðu nokkurra félaga sinna. „Ég legg mig allan fram á hverju kvöldi. Ef við eig- um að ná árangri verða allir að leggja hönd á plóginn." Los Angeles Lakers hafði sigrað í fjórtán heimaleikjum í röð áður en Seattle kom, sá og sigraði. Sealy hetja Minnesota Malik Sealy var hetja Minnesota Timberwolves í sigri liðsins á Indi- ana Pacers, efsta liði austurdeildar, 101:100. Sealy gerði sigurkörfuna úr erfiðu færi handan þriggja stiga lín- unnar um leið og leiktíminn rann út. Minnesota, sem lék án helsta leik- stjórnanda síns, Terrell Brandon, virtist ekki eiga sér viðreisnar von eftir að Mark Jackson, leikstjóm- andi Indiana, skoraði af stuttu færi er 1,7 sekúndur lifðu leiks. „Það er kaldhæðnislegt að segja frá því að ég átti að taka innkastið og gefa á Sam Mitchell, en þar sem Sam hafði setið á varamannabekknum dágóða stund og var því stirður ákváðum við að skipta um hlutverk," sagði Sealy. Phills minnst með stórsigri Leikmenn Charlotte Hornets minntust látins fyrirliða síns, Bobby Phills, með viðeigandi hætti á heima- velli sínum í fyrrinótt í stórsigri á Toronto, 115:94. Þetta var fyrsti ‘ leikur liðsins eftir fráfall Phills, sem lést í bílslysi í síðustu viku. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að við gleymum því sem gerst hefur, en þetta er okkur mikil hvatning," sagði Paul Silas, þjálfari Charlotte. Steve Francis, nýliði Houston, Gary Payton, leikstjórnandi Seattle, skorar án þess að Rick Fox hjá Los Angeles Lakers komi vörnum við. Rashad Lewis stendur álengdar. Payton gerði sigurkörfu Seattle er tæpar sextán sekúndur lifðu leiks. skoraði 31 stig og gaf ellefu stoð- sendingar er lið hans bar sigurorð af keppinautum sínum í miðvestur- riðli, Dallas Mavericks, 121:111. Francis segist njóta góðs af leiðsögn miðherjans Hakeem Olajuwons, sem lék með Houston í fyrsta sinn síðan í nóvember eftir að hafa jafnað sig á brjósklosi. „Hann bendir mér ávallt á að vera ákveðinn og hika hvergi," sagði Francis um Ola- juwon. „Hann er svo hæíileikarfkur," sagði miðheijinn. „Svo virðist sem hann eigi aldrei slæman leik. Ef það hendir hann einhvem tíma yrði frammistaða hans eflaust á við góðan leik hjá flestum okkar.“ Viðureign Philadelphia og New Jersey bar að stórum hluta merki um óhóflega markaðsvæðingu NBA- deildarinnar, allt þar til varnarjaxl- inn Aaron McKie sannaði gildi varn- arleiks er hann tryggði Philadelphia Góður leikur Herberts HERBERT Arnarson lék vel þegar lið hans, Donar Groningen, vann góðan útisigur á Kroon, 67-82, í hollensku úrvalsdeildinni í körfuknai tleik uni siðustu helgi. Herbert skoraði 11 stig í leiknum og átti 10 stoðsendingar á sam- heija sína. Donar er í 5.-7. sæti ásamt tveimur öðrum liðum þegar tvær umferðir eru eftir af deildakeppninni en sex efstu liðin kom- ast í úrslitakeppnina um hollenska meistaratitilinn. sigur á síðustu andartökum leiksins. Lokatölur urðu 101:96. MiHjarðamennirnir féllu í skuggann Rúmlega tuttugu þúsund áhorf- endur mættu í höllina í Philadelphia, flestir til að berja einvígi heima- mannsins Allen Iversons og Stephon Marburys hjá New Jersey augum. Þess í stað stal McKie senunni, þótt tveir fyrsttöldu leikmennimir, sem gerðu báðir samninga við félög sín að andvirði rúmra fimm milljarða króna, hafi báðir rofið þrjátíu stiga múrinn. Tilraunir Marburys til að jafna metin undir lok leiksins staðnæmd- ust á McKie, sem vann boltann og innsiglaði síðan sigur Philadelphia með góðri körfu. „Menn fá ekki fimm milljarða fyrir að spila varnarleik," sagði McKie og skírskotaði þannig í samningagerð bakvarðanna tveggja, sem eyddu lunganum úr leiknum eins fjarri hvor öðmm og hægt var, áhorfendum til mikils ama. Óákveðið með Hauk Inga TOM Nordlie, þjálfari norska knattspymuliðsins Válerenga, sagði í gær að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvort reynt yrði að fá Hauk Inga Guðnason til liðs við félag- ið frá Liverpool. Eins og áður hefur kom- ið fram var Haukur hjá norska félaginu við æfing- ar í siðustu viku en hann er farinn aftur til Liverpool. „Ef við ætluni að kaupa íslendinginn þurfum við að fara til Englands og skoða hann í leik með varaliði Liverpool. en það hefur ekki verið ákveðið enn,“ sagði Nordlie í viðtali á heimasíðu Válerenga. FOLK ■ MÍGUEL Angel Bríndisi frá Ar- gentínu var í gær rekinn úr starfi sem þjálfari spænska knattspymu- félagsins Espanyol en liðið er í harðri fallbaráttu. Við starfinu tek- ur þjálfari varaliðs félagsins, Paco Flores. ■ LEEDS United er að undirbúa tilboð í Carl Cort, knattspymu- manninn efnilega hjá Wimbledon og talið er að félagið sé tilbúið að greiða 900 milljónir króna fyrir þennan efnilega sóknarmann. ■ BEN Thatcher, vamarmaðurinn efnilegi hjá Wimbledon, er fótbrot- inn og leikur ekki meira með liðinu í ensku knattspymunni í vetur. Hann var talinn eiga möguleika á að kom- ast í landsliðshóp Englands fyrir úrslitakeppni EM í sumar. ■ HELGI Sigurðsson var áberandi í sóknarleik Panathinaikos þegar liðið vann Panionios, 2:1, í grísku knattspymunni í íyrrakvöld. Helgi lagði upp tvö dauðafæri fyrir félaga sína og hefði átt að fá vítaspymu þegar hann var felldur, samkvæmt grískum fjölmiðlum. ■ EDGARAS Jankauskas, einn fremsti knattspymumaður Litháa og helsti markaskorari Club Brug- ge í Belgíu, hefur samið við Real Sociedad á Spáni til hálfs fjórða árs. ■ BJÖRN Borg, tenniskappinn frægi sem nú er 43 ára, var í fyrra- kvöld útnefndur íþróttamaður ald- arinnar í Svíþjóð af sænsku íþrótta- forystunni. Skíðamaðurinn Ingemar Stenmark varð annar og síðan komu hnefaleikamaðurinn Ingemar Johansson og borðtennis- leikarinn Jan-Ove Waldner. ■ ROBERTO Di Matteo, ítalski knattspymumaðurinn hjá Chelsea, handleggsbrotnaði í leik liðsins gegn Leicester um síðustu helgi og verður frá keppni í sex vikur. Hann lék brotinn síðustu 10 mínútur leiksins. ■ UNNAR Sigurðsson, knatt- spymumaður úr Tindastóli, æfir nú með norska félaginu Strömsgodset, sem féll úr úrvalsdeildinni í íyrra. Unnar, sem er 24 ára vamarmaður, skoraði 12 mörk íyrir Tindastól í 2. deildinni í fyrra en hann hefur leikið með Keflavík í úrvalsdeildinni. ■ MARK Draper, miðjumaður enska knattspymuliðsins Aston Villa, hefur verið lánaður til Rayo Vallecano á Spáni út þetta tímabil. ■ REAL Madrid hefur lánað króa- tíska landsliðsmanninn Robert Jami til 2. deildarliðsins Las Pal- mas tU vorsins. 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.