Morgunblaðið - 29.01.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000 B 3
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
istri: Ragnar Ólafsson, aðstoðarmaður landsliðsþjálfara, Staffan
slustjóri GSl, og Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ.
Hoddle knattspymu-
stjóri Southampton
GLENN Hoddle, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englendinga, var
í gær ráðinn knattspyrnustjóri Southampton. Hann tekur við af
Dave Jones, sem fær tólf mánaða leyfi frá störfum. John Gor-
man var ráðinn aðstoðarmaður Hoddles, en þeir störfuðu saman
þegar Hoddle var með enska landsliðið.
Rupert Lowe, stjórnarformaður félagsins, segir að Jones
hefði verið niðurdreginn þegar honum var tilkynnt um þetta.
„Ég talaði við Dave [Jones] í tvo klukkutíma í gærkvöldi og
hann var að sjálfsögðu vonsvikinn og vildi halda áfram. Ég held
við höfum gert rétt þegar við veittum honum 12 mánaða leyfi til
að hreinsa mannorð sitt, sem ég er viss um að hann gerir.“ Jones
hefur verið sakaður um misnotkun á börnum, en dæmt verður í
máli hans á næstunni.
KNATTSPYRNA
Helgi orðinn
lykilmaður
hja Mainz
Helgi Kolviðsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, er orðinn einn af
lykilmönnum hjá þýska 2. deildarlið-
inu Mainz - fær hann lofsamlega
dóma hjá knattspyrnutímaritinu
Kicker í úttekt blaðsins á liðinu eftir
fyni hluta keppnistímabilsins í
Þýskalandi. Sagt er að hann sé orð-
inn lykilmaður í vörn liðsins og hefur
fyllt skarð Júgóslavans Miroslav
Tanjga. Helgi og Peter Neustádter
hafl náð að mynda sterkan múr, sem
erfitt sé að ráða við. Þá er Helgi
einnig sterkur sem varnartengiliður
og getur tekið þátt í sókn liðsins.
Helgi er til fyrirmyndar inni á vellin-
DAVID Moyes, knattspyrnustjóri
Preston, lofar íslenska knattspyrnu-
menn og segir að íslenska landsliðið
sé á leið með að verða eitt af sterkari
liðum í Evrópu. Moyes kveðst upp-
rifinn af þeim fjölda íslenskra leik-
manna sem hafa gert strandhögg í
Englandi. Bjarki Gunnlaugsson, sem
leikur undir stjórn Moyes, hefur ver-
ið valinn í íslenska landsliðið eftir
tveggja ára fjarveru. Moyes kveðst
ánægður fyrir hönd leikmannsins
um, þar sem hann leikur mjög agað
og mikill baráttumaður. Helgi hefur
leikið alla 17 leiki Mainz á tímabilinu
og er fjórði hæsti leikmaður liðsins í
einkunnagjöf Kicker. Mainz, sem
byrjaði keppnistímabilið frekar illa,
en náði að rétta úr kútnum og kom-
ast í fjórða sæti eftir þrettán umferð-
ir, en er nú í tíunda sæti eftir sautján
umferðir, eða þegar keppni er hálfn-
uð. Köln er í efsta sæti með 40 stig,
Energie Cottbus er með 31 stig, en
Mainz er í tíunda sæti með 22 stig.
Keppnin í 2. deild hefst aftur í febr-
úar og leikur Mainz sinn fyrsta leik á
útivelli gegn Offenbach 12. febrúar.
enda hafi landsliðið yfir að ráða fjöl-
mörgum sterkum leikmönnum sem
leiki víða um Evrópu.
Moyes segir, á heimasíðu félags-
ins, að Bjarki sé ekki fyrsti íslenski
leikmaðurinn sem hafi spreytt sig
hjá Preston. Fyrir nokknim árum
hafi félagið fengið Heiðar Helguson
til æfinga. Þá hafi Heiðar verið 17
ára en snúið aftur til íslands. Segir
Moyes að þar hafi félagið misst leik-
manninn úr höndum sér.
■ BJARKI Gunnlaugsson gæti
þurft að sitja á bekknum hjá
Preston er liðið mætir Everton í
fimmtu umferð ensku bikar-
keppninnar um helgina. Preston
lagði mikla áherslu á að halda
Bjarka fyrir leikinn í stað þess að
hann færi með landsliðinu í æf-
ingaleiki á La Manga á Spáni.
Búist var við að Bjarki yrði jafn-
vel í byrjunarliði félagsins en nú
er talið að hann vermi bekkinn.
■ GEORGE Graham, fram-
kvæmdastjóri Tottenham, er á
höttunum eftir Matt Holland,
miðvallarleikmanni Ipswich
Town, sem metinn er á um 400
milljónir ísl. króna. Graham vill
styrkja leikmannahópinn en
margt bendir til að Darren And-
erton yfirgefi félagið er samning-
ur hans rennur út í sumar.
■ RATI Alexidze, fyrirliði geor-
gíska liðsins Dynamo Tblisi, segir
að hann hafi fengið atvinnuleyfi í
Bretlandi og gæti því hafi viðræð-
ur við úrvalsdeildarliðið Chelsea.
■ NEWCASTLE hefur fest kaup
á Diego Gavilan, nítján ára pilti
frá Paragvæ, fyrir um 230 mil-
ljónir ísl. __króna, en samningur
hans er til þriggja og hálfs árs.
Félag Gavilans í Paragvæ, Cerro
Porteno, fær að auki greitt allt
150 milljónir ísl. króna frá
Newcastle eftir því hvað hann
mun_leika mikið með liðinu.
■ BÚLGARSKI landsliðsmaður-
inn og miðvallarleikmaðurinn Mi-
len Petkov hefur gert þriggja ára
samning við AEK Aþena, sem
Arnar Grétarsson leikur með.
Petkov, sem er 26 ára, sem var
orðaður við Celtie í Skotiandi sl.
sumar, hefur verið fyrirliði CSKA
Sofía.
■ SEPP Blatter, forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA,
hefur gefið í skyn að Þýskaland
sé í forystu í kapphlaupi sínu við
Englendinga um að halda heims-
meistarakeppnina í knattspyrnu
árið 2006. „Þjóðverjar reka besta
knattspyrnusérsamband heims
um þessar mundir,“ sagði Blatter
er hann var viðstaddur hundrað
ára afmæli þýska knattspyrnu-
sambandsins í gær.
Lofsyngur
íslenska
leikmenn
Engar líkur taldar á að steralyfið nandrolone berist í íþróttamenn úr matvælum
Fæðubótarefni undir grun
LYFJAMAL
BRESKIR vísindamenn hafa nú útilokað að ástæða þess að stera-
lyfið nandrolone hafi fellt svo marga íþróttamenn á síðustu miss-
erum sé sú að efnið hafi borist I þá úr matvælum, s.s. kjöti, ávöxt-
um og grænmeti. Þar með ertalinn avókadó-ávöxturinn, en hann
hefur legið undir sérstökum grun um að vera uppspretta nandro-
lones.
Viðamiklar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar undanfarna mánuði
í kjölfar þess að margir íþrótta-
menn féllu á lyfjaprófi á síðasta ári
vegna þess að hið ólöglega steralyf
nandrolone fannst í líkama þeirra.
Meðal þeirra eru Lindford Christ-
ie, Merlene Ottey, Frank Bau-
mann og Doug Walker. Á Bret-
landseyjum einum féllu 17
íþróttamenn á síðasta ári á lyfja-
prófi og voru dæmdir í keppnis-
bann eftir að nandrolone fannst í
líkama þeirra. Allir eiga íþrótta-
mennirnir það sameiginlegt að
geta enga skýringu gefið á því
hvers vegna lyfíð fannst í sýnum
þeirra, oft á tíðum í gífurlegu
magni. Hafa sumir þeirra viljað
kenna um matvælum, en nú hefur
sú kenning verið útilokuð. Þess í
stað gjalda sérfræðingar sérstak-
an varhug við notkun ýmissa bæt-
iefna, bæði duftefna og taílna, því í
þessum efnum kann að finnast
nandrolone þótt þess sé ekki getið
í innihaldslýsingum. Einkum er
varað við ýmsum gylliboðum frá
fyrirtækjum sem selja á Netinu,
því þar sé stundum verið að selja
efni sem fáir þekki deili á og óljóst
geti verið um framleiðsluaðila.
„íþróttamenn eiga ekki að taka
fæðubótarefni nema þeir hafi full-
komna vitneskju um efnainnihald-
ið,“ segir Vivian James, sem
stjómaði rannsókninni. „Allir ættu
að ráðfæra sig við lækna á þessu
sviði áður en þeir láta ofan í sig
einhver efni sem þeir þekkja ekki
nákvæm deili á.“ David Morcroft,
framkvæmdastjóri frjálsíþrótta-
sambands Bretlands og fyrrver-
andi heimsmethafi í 5.000 metra
hlaupi, sagði að íþróttamenn ættu
einfaldlega að sniðganga öll þessi
efni, þau væru óþörf.
Segja má að sprenging hafi átt
sér stað í notkun nandrolones í lok
árs 1998 og ekki síst á síðasta ári,
því aldrei hafa verið greind eins
mörg tilfelli þar sem nandrolone
kemur við sögu, en efnið hefur
hingað til ekki verið „vinsælt" hjá
þeim sem á annað borð vilja fara
ólöglegar leiðir við uppbyggingu
líkama síns vegna íþrótta. Var það
ein ástæða þess að rannsókninni
var ýtt úr vör.
Breska frjálsíþróttasambandið
hafði frumkvæði að henni til þess
að hafa einhver áreiðanleg gögn í
höndunum ef til lögsóknar íþrótta-
manna vegna keppnisbanns skyldi
koma. Eru menn minnugir þess er
sambandið stóð uppi varnarlaust í
máli sem hlaupakonan Diana
Mondal höfðaði gegn fyrrverandi
frjálsíþróttasambandi landsins
vegna keppnisbanns sökum lyfja-
neyslu. Það mál vann Mondal
vegna slakrar málsmeðferðar sam-
bandsins og í framhaldi af því var
sambandið úrskurðað gjaldþrota.
Hingað til hefur verið talið að
mannslíkaminn framleiddi ekki
nandrolone. Allt frá því að það var
framleitt fyrst á efnafræðistofu í
Hollandi hefur það verið notað við
ýmsar lækningar s.s. til þess að
byggja upp líkama manna eftir
erfiða sjúkdóma, vegna beinþynn-
ingar eftir tíðahvörf og við
brjóstaki-abba eftir tíðahvörf svo
fátt eitt sé nefnt. Hins vegar segir
í skýrslunni að ekki sé hægt að
útiloka að líkaminn geti framleitt
þetta efni, en ítarlegri rannsóknir
þurfi til að leiða það í ljós og um
leið hvort hann geti framleitt eins
mikið af þessu efni og fundist hef-
ur í nokkrum íþróttamönnum. Þar
sem langt er um liðið síðan efnið
var fundið upp eru öll einkaleyfi
útrunnin og því getur nú hver sem
er framleitt það sem á annað borð
hefur tæki til.
„Framleiðsla og sala á fæðubót-
arefnum er stór atvinnugrein og
margar vörur eru ekki undir neinu
eftirliti, þannig að menn eru oft
ekki vissir um hvað þeir eru að
kaupa og láta ofan í sig,“ segir
Michelle Verroken, einn frammá-
manna í lyfjanefnd breska íþrótta-
sambandsins. Hvatti hún framleið-
endur til að koma böndum yfir
framleiðsluaðila sem hefðu hugs-
anlega óhreint mjöl í pokahorninu.
Eftir því sem fram kemur í frétt
BBC á Netinu er áætluð velta í
sölu bætiefna 1 heiminum um 350
milljarðar ár hvert. Þá kemur
fram að salaþessara efna í Banda-
ríkjunum hafi aukist um 1.000
prósent á milli áranna 1998 og
1999. Er það einkum rakið til þess
að ein mesta hetja hafnaboltans
þar í landi, Mark McGwire, viður-
kenndi notkun bætiefnis sem inni-
héldi m.a. bannað steralyf, and-
rostenedione. Það er á lista
Alþjóða ólympíunefndarinnar yfír
ólögleg lyf, en lögsaga nefndarinn-
ar nær ekki til hafnaboltamanna í
Bandaríkjunum.