Morgunblaðið - 29.01.2000, Page 4

Morgunblaðið - 29.01.2000, Page 4
Engin vettlingatök Ólafur Stefánsson hefur gefið flestar stoðsendingar allra leikmanna á Evrópumóti landsliða í handknattleik í Króatíu. Hér sækja varnar- menn Slóvena hart að honum. Utreið S hjá Þjóð- í verjum ÞJÓÐVERJUM hefur líkt og Islendingum gengið af- leitlega á Evrópumótinu í Króatíu - mátt þola verstu útreið sem nokkurt þýskt lið hefiir fengið á stórmóti. Tvö jafntefli í fimm leilq- um. Landsliðsþjálfarinn Heine Brandt hefur sagt að hann muni láta nokkra leik- menn fjúka og gera breyt- ingar. Það getur farið svo að hann kalli á hinn 39 ára Pólverja Bogdan Wenta aft- ur í landsliðshópinn, en Wenta get ekki leikið með í Króatíu vegna meiðsla. Brandt hefúr verið gagn- rýndur fyrir slakan undir- búning og að liðið leiki afar slakan sóknarleik sem fyrr I- engin leikkerfi og þá eru upphlaup liðsins afar tilvilj- unarkennd. Þá brást varn- arleikurinn, sem hefur ver- ið eitt sterkasta vopn Þjóðverja, algjörlega í EM og markvarslan var eftir s því; slök. Þó svo að Brandt segist ætla að gera miklar breyt- ingar, sjá menn ekki þær breytingar fyrir sér. Ástæð- an er einfaldlega sú að bestu handknattleiksmenn Þýskalands léku í Króatíu. Morgunblaðið/Ásdís Ólafur með flestar stoð- sendingar ValurB. Jónatansson skrifarfrá Zagreb ÓLAFUR Stefánsson er með flestar stoðsendingar allra I mótinu eftir riðlakeppnina. Hann hefur gefið 15 stoðsend- ingar í fimm leikjum, eða þrjár að meðaltali í leik. Næstur honum kemur Svíinn Staffan Olsson með 13 stoð- sendingar, Carlos Resende, Portú- gal og Magnus Andersson, Svíþjóð, eru með 10 stoð- sendingar hvor. Næstur íslendinga á listanum kemur Patrekur Jó- hannesson í 12. sæti með 6 stoð- sendingar. Patrekur grófastur Patrekur Jóhannesson er gróf- asti leikmaður Evrópumótsins samkvæmt tölfræði mótshaldara. Hann hefur sex sinnum verið rek- ^inn út af í tvær mínútur, einu sinni verið útlokaður - fengið rauða spjaldið og fjórum sinnum áminn- tur - fengið gula spjaldið. Næstur honum kemur Norðmaðurinn Preben Vildalen með átta brottvís- anir. Rúnar Sigtryggsson er í tíunda sæti á þessum lista, með þrjár brottvísanir í jafnmörgum leikjum. Valdimar fjórði markahæstur Valdimar Grímsson er í fjórða sæti yfir markahæstu leikmenn mótsins - hefur skorað 32 mörk. Carlos Resende frá Portúgal og Oleg Velykyy frá Ukraínu eru markahæstir með 35 mörk. Prakk- inn Patrick Cazal er í þriðja sæti með 33 mörk. Ólafur Stefánsson er í 20. sæti yfir markahæstu menn, með 19 mörk. Valdimar hefur 69,57% skotnýtingu, eða 32 mörk úr 46 skottilraunum. Enginn af vai imi iciivui iiiii au iivyiija 10 mörk sem liðið fékk á sig að meðaltali Hér sést hvað íslenska landsliðið í handknattleik hefur fengið mörg mörk á sig að meðaltali í leik í stórmótum sem það hefur tekið þátt í frá 1992 1992 L. B-keppni — íAusturríki 1992 ÓLf Barcelona 1993 HMí Svíþjóð 1995 HM á islandi Meðaltal: 22,4 mörk mork 1997 HMí Japan 2000 EMí M Króatiu — þeim sem eru fyrir ofan hann á listanum er með betri skotnýtingu. Svensson besti markvörðurinn Sænski markvörðurinn Thomas Svensson hefur varið flest skot allra í keppninni. Hann er með 45 varin skot af 99 sem hann hefur fengið á sig í fjórum leikjum. Þetta er 45,45% markvarsla. Guðmundur Hrafnkelsson er í 16. sæti á listan- um með 41 skot varið af þeim 139 sem hann hefur fengið á sig. Það er 29,50% markvarsla. Portúgalar sækja fyrstir um HM 2003 PORTÚGALIR eru fyrsta þjóðin sem sækir um að halda heimsmeist- arakeppnina i handknattleik árið 2003. Forráðamenn handknattleiks- sambands Portúgal héldu kynningu þess efnis í Zagreb í gærkvöldi, þar sem íþróttamálaráðherra landsins var meðal gesta. Martin Bruno, markvörður þýska liðsins Wuppertal og þýska landsliðsins, hefur varið flest víta- skot allra markvarða í keppninni. Hann hefur varið sjö víti af þeim 15 sem hann hefur reynt við, sem er 46% árangur. Guðmundur Hrafnkelsson er í 14. sæti á þess- um lista með 3 víti varin í keppn- inni, en hann hefur reynt sig við 17 víti og hefur því varið 17,65% þeirra. íslenska liðið næstgrófast íslenska liðið er í næstneðsta sæti á háttvísilistanum, Fair Play. Liðsmenn hafa fengið 16 áminn- ingar, 26 brottvísanir (tvær mín.) og einu sinni útilokun - rauða spjaldið. í neðsta sæti á listanum er Port- úgal með 16 áminningar, 26 brott- vísanir og tvær útilokanir. Svíar eru hins vegar með prúðasta lið keppninnar, hafa fengið 16 áminn- ingar og 14 brottvísanir í þessum fimm leikjum riðlakeppninnar. Yoonog Gummersbach KYUNG-Shin Yoon, landsliðsmað- ur Suður-Kóreu, og aðalstjarna Gummersbach - einn albesti hand- knattleiksmaður heims, trúði ekki sínum eyrum þegar blaðamaður þýska blaðsins Express tilkynnti honum stöðu mála hjá Gummers- bach, en Yoon er um þessar mund- ir staddur í Asíu þar sem hann leikur með S-Kóreu um sæti á Ól- ympíuleikunum. Hann segist ætla að spila með Gummersbach fram í rauðan dauð- ann - „þar til ekkert er eftir,“ eins og hann orðaði það. Þessi hugsunarháttur hans sýnir enn og aftur hvað hann er traustur liðsmaður, eins og þegar hann samdi á ný við Gummersbach, sem var þá með slæma fjárhagsstöðu, þrátt fyrir að öll ríkustu lið Þýska- lands hafi gert honum mun betri tilboð. HANDKNATTLEIKUR/EM í KRÓATÍU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.