Morgunblaðið - 04.02.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.02.2000, Blaðsíða 1
i ' BLAÐ ALLRA LANDSMANNA JltoratitilMbiMfc 2000 m FOSTUDAGUR 4. FEBRUAR BLAÐ Landslið Zambíu horfið Slakur árangur í Afríkukeppni landsliða í knattspymu er greinilega háalvarlegt mál. Landslið Zambíu virðist hafa látið sig hverfa í heilu lagi eftir að því mistókst að komast í 8-Iiða úrslit keppninnar sem fram fer í Ghana og Nígeríu. Það átti að koma heim á miðvikudag en ekkert hefur spurst til þess. Lið Fílabeinsstrandarinnar var sett í ein- angrun af herforingjastjórn landsins þegar það féll úr keppninni í byrjun vikunnar, eins og sagt var frá í gær. Liðið var sent með rútu til höfuðborgarinnar, Abidjan, í gær en leikmennirnir vora þó ekki endan- lega Iausir úr prísundinni því þeir áttu þá eftir að hitta leiðtoga stjórnarinnar. Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur fordæmt aðgerðir herforingjastjórnarinnar en Inter Milano á Ítalíu leitaði til FIFA til að fá laus- an einn leikmanna sinna, Cyril Domoraud. Varamönn- um verði fjöigað í efstu deild TILLAGA um að fjölga varamönnum á leikskýrslu hjá liðum í efstu deild karla og kvenna og í leikjum liðanna í bikarkeppnum verður lögð fram á ár- sþingi Knattspyrnusambands ís- lands, sem verður haldið um aðra helgi. Tillagan er frá Knattspymufé- laginu Fram, um að leikmönnum á leikskýrslu verði fjölgað úr 16 í 18. Venslasamningar félaga Þá hyggst miiliþinganefnd KSÍ leggja fyrii- ársþingið tillögu um að leikmaður geti einungis skipt einu sinni um félag eftir að hann hefur spilað í bikarkeppni eða í deild í stað þess að hann geti skipt tvívegis á tímabilinu, eins og heimilt var á síð- asta leiktímabili. Taldi nefndin að þessu ákvæði í reglum KSÍ hafi verið misbeitt á þann hátt að leikmenn voru uppvísir að því að leika einn leik með félagi og hverfa síðan á braut í sitt gamla félag eða annað félag. Þá leggur nefndin til að félög í efstu deild og í neðri deildum geti gert venslasamninga sín á milli um að leik- menn liða geti gengið á milli þeirra án félagaskipta, en lagt er til að á slíkum samningum verði ákveðnar takmar- kanir en að stjórn KSÍ verði falið að vinna úr hugmyndinni. Morgunblaðið/ristinn Fjórir leikmenn íslenska landsliðsins, sem tekur þátt í Norðuriandamótinu á La Manga á Spáni, í hvíldarstöðu við spil - Sigurður Örn Jónsson, Bjarki Gunnlaugsson, Þórhallur Hinriksson og Einar Þór Daníelsson. Ósigur kemur ekki til greina „ÉG veit að Færeyingar ætla sér að vinna okkur, enda hafa þeir beðið ansi lengi eftir því, en það kemur ekki til greina að tapa fyrir þeim. Reyndar má segja að við séum með hálfgert hækjulið því það eru þrír famir heim og Pétur Marteinsson er eitthvað tæpur. En það skiptir ekki máli hveijir leika; við töpum ekki fyrir Færeying- um,“ sagði Sigurður Orn Jónsson um leikinn við Færeyinga í dag. „Ég hef bara spilað einu sinni við Færeyinga, það var á Höfn 1997 þar sem við unnum 1:0 í miklum baráttuleik. Þar var leikið mjög fast og ég geri fastlega ráð fyrir að það verði vel tekið á því hér þegar þjóðimar mætast, enda verður bara gaman að taka aðeins á Fær- eyingum," sagði Sigurður Öm. Hann sagði aðstöðuna á La Manga þá bestu sem hann hefði séð. „Ég hef farið í svona ferðir til Kýpur og Portúgals en þetta slær öllu við. Eg hef aldrei séð svona góða aðstöðu," sagði Sigurður Om. Eysteinn og Bjarki ÍKR í skiptum fyrir Gunnleif Gunnleifsson Keflvíkingarnir Eysteinn Hauks- son og Bjarki Guðmundsson markvörður eru á leið til ís- lands- og bikarmeistara KR í knattspyrnu. Þeir fara þangað í skiptum fyrir Gunnleif Gunn- leifsson, markvörð KR-inga, sem mun verja mark Keflavíkur í sumar. Viðræður milli félag- anna um skiptin hafa staðið undanfarna daga, eftir að Kefl- víkingar óskuðu eftir að fá Gunnleif í sínar raðir, og eru nú á lokastigi. Eysteinn er 25 ára miðjumaður frá Egilsstöðum sem hefur ver- ið lykilmaður í liði Keflavíkur undan- farin ár. Hann hefur leikið 84 leiki með félaginu í efstu deild og skorað í þeim 14 mörk en Eysteinn lék með Hetti áður en hann gekk í raðir Kefl- víkinga. Bjarki er 23 ára og hefur varið mark Keflavíkur frá miðju sumri 1997. Áður lék hann hálft tímabil með Þrótti í Neskaupstað. Hann á að baki 44 leiki í deildinni, auk þess sem hann var hetja Keflvíkinga í bikar- úrslitunum 1997 þegar hann varði þijár vítaspyrnur Eyjamanna, eina í leiknum sjálfum og tvær í vítaspyrn- ukeppni, og tryggði liði sínu bika- rinn. Gunnleifur er 24 ára og spilaði lengst af með HK en hefur leikið 11 leiki í marki KR í úrvalsdeildinni, tíu þeirra sumarið 1998. Hann var vara- markvörður fyrir Kristján Finn- bogason síðasta sumar og Bjarki fær nú það hlutskipti að keppa við Kri- stján um stöðuna hjá KR. Regensburg vill Alexander Þýska handknattleiksfé- lagið Regensburg vill fá Alexander Amarson, línu- mann úr HK, til liðs við sig fyrir næsta tímabil og reiknað er með að félagið geri tilboð í hann fljótlega. Alexander fór til Þýska- lands um síðustu helgi, lék tvo leiki með liðinu, og skoraði 6 mörk í hvorum. Regensburg, sem er í harðri baráttu um sæti í 2. deild, hefur einnig sýnt Hlyni Jóhannessyni, mark- verði HK, áhuga. i 1 MIKIÐ BREYTT BYRJUNARLIÐ ÍSLANDS GEGN FÆREYJUM/C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.