Morgunblaðið - 04.02.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.02.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2000 C 3 ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA Sjö leikmenn Leicester sakaðir um miðabrask Amar yfirheyrður ENSKA knattspyrnusambandið hyggst yfirheyra Arnar Gunn- iaugsson og sex félaga hans í úrvalsdeildarfélaginu Leicester City fyrir ólöglega dreifingu á aðgöngumiðum á úrslitaleik liðsins í deildabikarkeppninni á síðasta ári. Þrír starfsmenn félagsins eru sakaðir um samskonar athæfi. Astæðan fyrir rannsókn enska knattspymusambandsins er sú að til óláta kom á Wembley- leikvanginum á úrslitaleik Totten- ham og Leicester í fyrra er hópur stuðningsmanna Tottenham kom sér fyrir þar sem stuðningsmenn Leicester voru staðsettir á áhorf- endapöllum. Til átaka kom milli hópanna en lögregla og vallar- starfsmenn náðu að skakka leik- inn. Svo virtist sem þeir sem lentu í átökum hafi komist yfir miða sem voru komnir frá Leicester, en enska knattspymusambandið lítur málið alvarlegum augum. Þeir leikmenn sem enska knatt- spymusambandið hyggst yfir- heyra vegna málsins em auk Arn- ars, Steve Guppy, Neil Lennon, Graham Fenton, Stuart Campell, Tony Cottee og Andy Impey. Yfir- heyrslur fara fram 15. mars. Arnar sagði í samtali við Morg- unblaðið að leikmenn og starfs- menn Leicester hefðu keypt allt að því 75 miða og gefið eða selt þá til fjölskyldumeðlima og vina. „En svo virðist sem að nokkrir af þeim sem fengu merkta miða frá And- rew Impey og Tony Cottee hafi lent í átökum við stuðningsmenn Leicester. Þá vora aðdáendur Tottenham með merkta miða frá leikmönnum Leicester, meðal ann- ars 15-20 manns með miða frá mér. Ég veit ekki betur en að þeir hafi hegðað sér vel, en ég hef látið enska knattspymusambandið vita að um stuðningsmenn Tottenham væri að ræða. Forsvarsmenn enska sambandsins hafa gert við það einhverjar athugasemdir. Auð- vitað hefði verið æskilegt að láta einungis stuðningsmenn Leicester fá þessa miða en enginn velti því fyrir sér á sínum tíma. En ég get ekki séð að um sé að ræða neitt stórmál. Ég svara spurningum sambandsins þegar kemur að þess- um fundi með þeim í mars.“ Amar sagðist ekki eiga von á að hann mundi lenda í vandræðum af þess- um sökum innan síns eigin félags, en sagði að málið væri litið alvar- legum augum innan þess. „Ef ein- hverjir verða sakfelldir fá þeir sekt og fá ekki að kaupa miða í einhvem tíma en ég vona að ég lendi ekki í þeim hópi.“ Enska knattspymusambandið hefur tilkynnt að leikmenn og starfsmenn Tranmere og Leicest- er, sem leika til úrslita í deildabik- arkeppninni 27. febrúar, fái ein- ungis að kaupa 25 miða hver í stað 75. Félögin verða einnig að gefa skriflega yfirlýsingu um hvemig miðunum verður varið. Tíðindi ef Morgunblaðið/Porkell Bragason, besti leikmaður Hauka, iáað igham ná góðum leik,“ sagði Brenton Birm- ingham. Birmingham sagði að KR væri sýnd veiði en ekki gefin, liðið væri eitt af bestu liðunum í deildinni og hefði leikið vel það sem af væri vetri. „Þeir urðu fyr- ir áfalli er þeir misstu Jónatan Bow en þeir hafa sýnt fram á að þeir geta brúað bilið og því held ég að það komi Grinda- vík ekkert til góða þó að hann verði fjar- verandi í úrslitaleiknum. Þeir munu sjálfsagt leggja sig enn frekar fram og reyna að vinna leikinn fyrir hann.“ Grindavík komst í úrslitaleikinn eftir að liðið lagði Hauka með sigurkörfu á síðustu sekúndunum. Birmingham kvaðst ekki vonast eftir að leikurinn gegn KH yrði á sömu nótum. „Við vorum um 20 stigum undir í hálfleik gegn Haukum og á tímabili í leiknum fór ég að velta því fyrir mér hvort við væram bún- ir að tapa leiknum, það sama hafa áhorf- endur án efa haldið. En þá tóku félagar mínir í liðinu af skarið og við fóram áfram. Ég vona að við lendum ekki í öðr- um eins leik gegn KR og ég geri mér vonir um að við getum knésett þá fyrr í leiknum en það er ekki hægt að spá fyrir um úrslit, ekki síst í bikarúrslitaleik. Það má búast við miklum atgangi liða á milli áður en yfir lýkur.“ tryggja okkur titilinn. Við höfum mætt þeim þrisvar í vetur og unnið í öll skiptin. En sigrar okkar á þeim vora langt frá því að vera öruggir, sem sýnir að Keflavíkurliðið verður að leggja sig fram til þess að hampa bikartitlinum," sagði Kristín Blön- dal, leikmaður og varafyrirliði Kefl- víkinga um úrslitaleikinn gegn ÍS. „Við verðum að leika eins-og við eigum að okkur og það skiptir máli að allir hlutir smelli saman. Annars verður leikurinn erfiður eins og þeir leikir sem við höfum leikið gegn þeim. Síðast er við mættum IS í deildinni unnum við að vísu með 10 stigum, 68:58, en voram að- eins einu stigi yfir þegar fimm mín- útur vora eftir af leiknum. Við náð- um ekki að hrista þær af okkur í leiknum en ég vona að við lendum ekki í svipaðri aðstöðu í úrslita- leiknum. Þá bjóðum við hættunni heim.“ Kristín sagði að miðað við stöðu liðanna í deildinni yrðu það tíðindi ef ÍS bæri sigur úr býtum og að margir hefðu talað um að hinn eig- inlegi úrslitaleikur hefði farið fram er Keflavík mætti KR í undanúrslit- um. „En stelpurnar í ÍS hafa sýnt að þær geta barið frá sér og eiga sjálfsagt eitthvað inni. Við eram ekki búnar að vinna leikinn en leggjum áherslu á að bikartitillinn verði sá fyrsti af þremur sem liðið hampar i vetur.“ ÍS-konur hungrar í titil „Ef tekið er mið af þeim fjölda landsliðskvenna sem eru í Keflavík ætti liðið að vinna okkur í ÍS auð- veldlega. Þær era til að mynda með fimm landsliðsmenn en við engan, en það skiptir litlu máli þegar út í bikarúrslitaleik er komið því þá get- ur allt gerst,“ sagði Hafdís Helga- dóttir, fyrirliði ÍS, um úrslitaleikinn í bikarkeppninni gegn Keflavík. Hafdís sagði að miklar breyting- ar hefðu orðið hjá ÍS undanfarin ár, ekki síst síðastliðinn vetur, og að hún væri eini núverandi leikmaður liðsins sem hefði unnið bikarinn með ÍS fyrir níu áram. Hún sagði að þrátt fyrir breytingar hefði liðið sýnt að það gæti vel staðið í Kefla- vík og benti á síðasta leik liðsins gegn Keflavík. íslenska knattspymu- sprengjan ENSKA dagblaðið The Guardian fjallaði í gær ítarlega um íslenska knattspyrnumenn og ótrúlegan framgang þeirra f breskri og evrópskri knattspyrnu á undanförnum árum. Með tæplega heillar siðu grein er birtur listi yfir þá 22 leikmenn frá islandi sem eru á mála hjá breskum félögum, sagt frá þeim helstu sem leika á meginlandi Evrópu, og rætt er við Kristin Rúnar Jónsson, þjálf- ara IBV, Ásgeir Sigurvinsson, tæknilegan ráðgjafa KSÍ, Guðna Kjartansson, þjálfara unglingalandsliðsins, Omar Smárason, starfsmann KSÍ, Ólaf Garðarsson, umboðsmann, og Magnús Orra Schram hjá KR um hinarýmsu hliðar á íslenskri knattspyrnu og ástæðurnar fyrir velgengni landsliðsins og leikmannanna. Greinina prýðir síðan stór mynd af íslenskum knattspyrnu- mönnum á æfingu barna að vetrar- lagi, tekin af Ragnari Axelssyni, ljósmyndara Morgunblaðsins. Tals- vert er fjallað um hinar erfiðu að- stæður sem leikmenn búa við á Is- landi, sérstaklega á undirbúnings- tímabilinu. Þær, lítil fjárráð íslenskra félaga og erfið veðurskil- yrði hafi staðið þeim mest fyrir þrif- um. ísland markar spor vítt og breitt um Evrópu í greininni segir meðal annars: „Sem betur fer er nýjasta spreng- ingin á íslandi ekki af völdum eld- fjallanna, heldur hefur hún orðið í búningsklefum og knattspymuvöll- um landsins. Ótrúleg frammistaða íslands á knattspyrnusviðinu hefur leitt til þess að ein minnsta og ein- angraðasta þjóð Evrópu hefur markað spor sín í íþróttinni vítt og breitt um álfuna." í viðtölum við íslendingana kem- ur m.a. fram að breyttar áherslur í þjálfun, sérstaklega í menntun þjálf- ara, eigi drjúgan þátt í þessari þró- un. Þá kemur fram að íslenskir knatt- spyrnumenn séu ódýrir en félög hafi ekki verið svikin af því að semja við þá. Verð á þeim fari þó hækkandi og Ólafur Garðarsson bendir á að Heið- ar Helguson hafi kostað Watford 180 milljónir en félagið hefði getað fengið hann fyrir um eða innan við 50 milljónir fýrir fáeinum misseram. FOLK ■ ERICH Ribbeck, landsliðsþjálfari Þýskalands í knattspymu, segist ekki útiloka það að hann velji And- reas Möller og Thomas HSssler í landslið sitt fyrir Evrópukeppnina næsta sumar. mARSENE Wenger, knattspym- ustjóri Arsenal, hefur í hyggju að bjóða Lee Dixon og Nigel Winter- bum áframhaldandi samning en núverandi samningar þeirra renna út í sumar. „Báðir eiga leikmenn- imir talsvert eftir,“ segir Wenger. ■ ARSENE Wenger segir að ekk- ert sé hæft í þeim sögum að Arsenal hafi í hyggju að gera Manchester United tilboð í David Beckham eins og sögur hafa gengið um í vikunni. „Við höfum ekki gert tilboð í Beck- ham og það stendur ekki til,“ sagði Wengerígær. rnJOHN Elsom, forseti Leicester, neitar því að Stan Collymore sé á leið til félagsins frá Aston Villa. John Gregory, knattspymustjóri Aston Villa, sagði eftir leik félags- ins við Leicester í undanúrslitum deildabikarsins í fyrrakvöld að Coll- ymore væri að leið til Leicester. ■ ÞÁ þvertekur Martin O’NeilIfyr- ir að Émile Heskey sé á leið til Li- verpool frá Leicester fyrir 12 mil- Ijónir punda. ■ NEVILLE Southall, hinn 41 árs fyrrum markvörður Everton og velska landsliðsins, er orðinn vara- markvörður þjá úrvalsdeildarliði Bradford. Honum var sagt upp hjá 3. deildarliði Torquay í vikunni en Southall hefur verið í herbúðum Torquay síðan 1998 og var valinn leikmaður félagsins á síðustu leik- tíð. Hann á 977 deildaleiki að baki. ■ SERGEI Bubka, heimsmethafi í stangarstökki karla, keppti í Va- lencia í fyrrakvöld. Það var hans fyrsta móta í 17 mánuði. Bubka stökk manna hæst í Valencia, 5,60 metra, 55 sentímetrum frá heims- meti sínu. mMERLENE Ottey segist vera staðráðin í að keppa á Ólympíuleik- unum í Sydney í haust. Það verði hennar síðasta mót enda sé nú mál til komið að rifa seglin. Ottey verð- ur fertug í maí og á yfir höfði sér keppnisbann hjá Alþjóða fijáls- íþróttasambandinu, IAAF, vegna ólöglegrar lyfjaneyslu. Verður mál hennar tekið fyrir hjá IAAF síðar í þessum mánuði. ■ OTTEY segist vera saklaus af notkun ólöglegra lyfja og vera sann- færð um að hún verði ekki dæmd í keppnisbann og geti þar með tekið þátt í Ólympíuleikunum í Sydney, 20 áram eftir að hún tók fyrst þátt í þeim, í Moskvu 1980. ■ DANIEL Stephan, leikmaður Lemgo og handknattleiksmaður ár- sins í heiminum 1999, gengst undir uppskurð á hendi þann 15. febrúar. Hann leikur ekki meira eftir það á þessu tímabili, missir af leikjum Þýskalands og Póliands í júní um sæti á HM og óvíst er að hann verði búinn að ná sér fyrir Ólympíuleik- ana í Sydney í haust. Pétur ekki með í dag Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspymu, gerði fímm breyt- ingar á byijunarliði íslands sem mætir Færeyingum á Norður- landamótinu á La Manga í dag. Það er þriðji og síðasti leikur Is- lands í þessari töm en liðið er með 4 stig eftir tvo fyrstu leikina og hefur ekki fengið á sig mark. Pétur Marteinsson og Bjami Þorsteinsson geta ekki leikið vegna meiðsla. Hermann Hreið- arsson, Heiðar Helguson og Þórður Guðjónsson em farnir til sinna félagsliða, þannig að 16 leikmenn em leikfærir og verða allir í hópnum. Ólafur Öm Bjarnason leikur sinn fyrsta leik í ferðinni, Helgi Kolviðsson fer af miðjunni í stöðu miðvarðar og Tryggvi Guðmundsson verður frammi með Ríkharði. Byijunar- Uðið er þannig: Birkir Kristinsson í markinu, Auðun Helgason, Helgi Kolviðs- son, Þórhallur Hinriksson og Amar Þór Viðarsson í vöminni, Bjarki Gunnlaugsson, Ólafur Öm Bjarnason, Rúnar Kristinsson og Einar Þór Damelsson á miðjunni og frammi em Ríkharður Daða- son og Tryggvi Guðmundsson. Ámi Gautur Arason leysir Birki af hólmi í markinu í hálfleik. Fjarvera Péturs Marteinsson- ar er nokkurt áfall. „Þetta byrj- aði á innanhússmóti um daginn þar sem leikið er á geiwigrasi. Ég missteig mig en kláraði leikinn og síðan tvoaðra leiki næstu Qóra daga. Ökklinn bólgnaði all- af í leikjunum en ég náði mér góðum á milU, nú vfrðist mér þetta hins vegar vera að versna og þvi best að reyna að ná sér góðum,“ sagði Pétur í gærkvöldi. Leikurinn hefst kl. 13 og er lýst beint á mbl.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.