Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 1
+-
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA
l i
Atta íslenskir
þjálfarar hjá
Arsenal
2000
m FIMMTUDAGUR10. FEBRUAR
BLAÐ
ÁTTA íslenskir þjálfarar eru staddir hjá enska úr-
valsdeildarfélaginu Arsenal til þess að kynna sér
stai-f þess. Lúkas Kostic, sem er einn af þeim átta
sem eru staddir hjá Arsenal og fararstjúri ferðar-
innar, sagði að hópnum, sem hyggst dvelja í Lund-
únum fram á sunnudag, hefði verið tekið einstak-
lega vel og haim hefði meðal annars fengið að
fylgjast með leikjum varaliðsins og æfingum hjá
unglingaliði fólagsins.
Aðspurður um ástæður þess að hópurinn hélt til
Arsenal sagði Lúkas að hópurinn, sem hefði tekið
e-stig, eða lokaáfanga, í þjálfun í Þýskalandi síð-
astliðinn desember, hefði ákveðið að hittast og
fara ferð saman. Lúkas sendi bréf til Arsene
Wenger, knattspymustjóra Arsenal, um hvort
hópurinn mætti koma og kynna sér starfið hjá fél-
aginu og það reyndist auðsótt, að sögn Lúkasar.
„Því miður gekk ekki að fá allan hópinn með en
við vorum átta sem ákváðum að fara. Við höfum
fengið góðar viðtöku hjá félaginu og eiimig var
gaman að hitta Boro Primorac, sem er aðstoðai--
maður hjá Wenger, en Primorac lék á móti mér í
nnnum fyrsta leik sem atvinnumaður fyrir 20 ár-
um í Króatíu."
Þjálfaramir sem em hjá Arsenal era auk Lúk-
asar Kostic, Jónas Baldursson, Freyr Sverrisson,
Ásgeir Eh'asson, Úlfar Hinriksson, Þorlákur Áma-
son, Ólafur Jósepsson og Jóhann Gunnarsson.
Stjörnumenn höfðu ástæðu til að fagna í Víkinni í gærkvöldi. Þar tryggðu sér rétt til að leika til úr-
slita í bikarkeppni HSÍ eftir eiiefu ára bið - unnu Vfkinga 24:22. Stjarnan mætir Fram, sem lagði
HK 29:20, í bikarúrslitum laugardaginn 19. febrúar. Hér á myndinni fagna þeir Einar Einarsson
þjálfari, sem var bikarmeistari með Stjörnunni 1989, Ingvar Ragnarsson og Arnar Pétursson.
Átta félög skuld-
laus við HSÍ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heims-
met Trinu
ekki gilt
ALÞJÓÐA frjálsíþróttasambandið,
IAAF, viðurkennir ekki heimsmetið
sem Trine Hattestad frá Noregi setti
í spjótkasti kvenna á síðasta ári. Tri-
ne kastaði þá 68,19 metra á móti í
Bergen. Lyfjapróf var ekki tekið af
henni samdægurs heldur daginn eft-
ir. Norska íþróttasambandið leggur
blessun sína yfir slíka framkvæmd
en samkvæmt reglum IAAF er ekki
heimilt að standa þannig að málum.
Það er því Mirela Manjani-Tzelili
frá Grikklandi sem er handhafi
heimsmetsins eins og er en hún kast-
aði 67,09 metra á heimsmeistaramót-
inu í Sevilla í fyrra. Norska frjáls-
íþróttasambandið hefur óskað eftir
því að IAAF endurskoði afstöðu sína.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Handknattleikssam-
bands íslands, HSÍ, voru átta félög í
1. deild karla skuldlaus við HSI í
gær og níunda félagið búið að semja
um greiðslu skuldar sinnar. Hins
vegar fengust ekki upplýsingar um
hvaða félög væru skuldlaus og hver
ættu enn eftir að ganga frá sínum
málum og hversu mikið þau skuld-
uðu.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur blaðið heimildir
fyrir því að Fram, KA og UMFA
hafi hreint borð. Auk þess höfðu for-
svarsmenn FH, HK og ÍBV sam-
band við Morgunblaðið í gær og
sögðu þeir allir að félög sín skulduðu
HSÍ ekki neitt, þvert á móti ættu
þau inni ef eitthvað væri og m.a.
segjast Eyjamenn eiga inni 250.000
krónur hjá HSÍ samkvæmt yfirliti
sem þeir fengu fyrir þremur vikum.
Ekki fékkst heldur staðfest hjá
HSÍ gær hvort rétt væri að þessi
sex félög væru skuldlaus og vildi
fjármálastjóri HSÍ, Rósa Hjartar-
dóttir, hvorki játa því né neita að svo
væri. Síðar í gær sagði starfsmaður
HSÍ, Einar Þorvarðarson, að átta
félög væru nú skuldlaus og eitt hefði
auk þess samið um greiðslu skuldar
fyrir lokun skrifstofunnar. Hann
vildi ekki gefa upp hvaða félög
skulduðu og hver ekki. Þá fékkst
heldur ekki uppgefið hversu háa
upphæð væri um að ræða sem HSÍ
ætti enn útistandandi hjá félögum í
1. deild karla.
Einhver félög í 2. deild karla
standa einnig í skuld við HSI eftir
heimildum Morgunblaðsins og þá er
einnig eitthvað um að félög sem ekki
taka þátt í íslandsmótinu á þessu
keppnistímabili skuldi þátttöku- og
dómaragjöld vegna fyrri ára. Eru
jafnvel í þeim hópi félög sem eru
hætt keppni.
Ríkharður í
aðgerð á hné
RÍKHARÐUR Daðason, lands-
liðsmiðherji í knattspymu og
leikmaður með Viking Stavanger í
Noregi, fer í aðgerð á hné á mánu-
daginn kemur. Hann reiknar með
því að verða kominn á fulla ferð á ný
áður en norska deildakeppnin hefst
hinn 9. apríl.
„Ég fór í aðgerð á vinstra hné í
fyrra þar sem einn þriðji hluti liðþóf-
ans var skafinn burt. Það sem eftir
var af honum var farið að pirra mig
talsvert, hnéð var farið að læsast af
og til og við minni átök en áður. Eftir
að hafa ráðfært mig við lækni og
þjálfarann okkar ákvað ég að fara
strax í aðgerðina til að vera kominn í
góða æfingu á ný þegar deildakeppn-
in byrjar,“ sagði Ríkharður við
Morgunblaðið í gær.
Aðgerðin, svokölluð speglun, verð-
ur framkvæmd á einkastofu í Ósló og
fimm dögum síðar, laugardaginn 19.
febrúar, fer Ríkharður með Viking í
æfingabúðir á La Manga á Spáni.
„Við verðum þar í tvær vikur og
það er gott tækifæri fyrir mig til að
byrja að hlaupa á grasi og koma mér
smám saman í gang á ný,“ sagði Rík-
harður.
Hamburger SV í Þýskalandi hætti
við að kaupa Ríkharð í vetur vegna
gamalla hnjámeiðsla en hann segir
að það hafi ekkert með þetta að gera.
„Það voru brjóskskemmdir sem ég
hef ekki fundið fyrir í mörg ár. Núna
vita menn loksins nákvæmlega við
hvað er að eiga og ég ætti að gera
losnað við þessi óþægindi í eitt skipti
fyrir öll,“ sagði Ríkharður Daðason.
VALA FLOSADOTTIR FJORÐAISRANGARSTOKKII FRAKKLANDI/B3
H-