Morgunblaðið - 11.02.2000, Blaðsíða 3
2 B FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fj. leikja U T Stig Stig
NJARÐViK 16 13 3 1452:1234 26
GRiNDAVÍK 17 13 4 1484:1307 26
HAUKAR 17 12 5 1416:1287 24
TINDAST. 17 12 5 1431:1307 24
KR 16 11 5 1287:1173 22
KEFLAVlk 17 8 9 1563:1393 16
HAMAR 17 8 9 1327:1391 16
KFl 16 6 10 1279:1341 12
SKALLAGR. 17 6 11 1416:1523 12
SNÆFELL 17 5 12 1239:1367 10
ÞÓRAk. 17 5 12 1356:1563 10
ÍA 16 1 15 996:1360 2
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hamar - Kef lavík 87:88
Hveragerði, Islandsmótíð í körfuknattleik
- úrvalsdeild, 17. umferð, fimmtudaginn 10.
febrúar 2000.
Gangur leiksins: 4:7, 15:14, 22:16, 30:31,
40:37, 50:46, 55:48, 59:53, 68:53, 70:57,
73:65, 71:69, 79:73, 80:79, 80:81, 80:84,
87:88.
Stig Hamars: Brandon Titus 33, Pétur
Ingvarsson 15, Óiafur Guðmundsson 11,
Skarphéðinn Ingason 10, Óli Bardal 9, Óm-
ar Sigmarss. 5, Hjalti Pálsson 4.
Fráköst: 18 í vörn - 8 í sókn.
Stig Keflavíkur: Jason Smith 28, Gunnar
Einarsson 19, Hjörtur Harðarson 12, Guð-
jón Skúlason 8, Elentínus Margeirsson 8,
Halldór Karlsson 7, Fannar Olafsson 2,
Magnús Gunnarsson 2, Kristján Guðlaugs-
son 1.
Fráköst: 19 í vörn -17 í sókn.
Villur: Hamar 22 - Keflavík 16.
Dömarar: Jón Bender og Eggert Aðal-
steinsson, skiluðu sínum leik vel.
Áhorfendur: 450.
KR-Þór 79:71
íþróttahús KR:
Gangur lciksins: 2:0, 7:2, 7:9, 9:13, 13:18,
19:22, 25:26, 33:36, 40:38, 43:40, 46:49,
50:57, 52:60, 59:60, 62:62, 66:67, 72:67,
74:71,79:71.
Stig KR: Keith Vassell 26, Jesper Sörensen
14, Ólafur Jón Ormsson 14, Steinar Kaldal
9, Jakob Öm Sigurðarson 5, Amar Snær
Kárason 4, Guðmundur Magnússon 3, Ólaf-
ur Már Egilsson 3, Hjalti Kristinsson 1.
Fráköst: 15 í sókn - 20 í vöm.
Stig Þórs: Maurice Spillers 28, Sigurður
Sigurðsson 11, Konráð Óskarsson 9, Davíð
J. Guðiaugsson 9, Magnús Heigason 8,
Hafsteinn Lúðvíksson 6.
Fráköst: 4 í sókn - 23 í vöm.
Vilhir: KR 18-Þór29.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og
Björgvin Rúnarsson vora í heildina góðir.
Áhorfendur: Um 160.
UMFT - Skallagrímur 81:60
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 8:0,12:2,24:2, 28:8,32:16,
35:22, 41:27, 45:33, 53:43, 58:51, 65:55,
71:59,75:59,81:60.
Stig UMFT: Shawn Myers 23, Kristinn
Friðriksson 20, Svavar Birgisson 16, Frið-
rik Hreinsson 7, ísak Einarsson 6, Suna
Hendriksen 4, Valur Ingimundarson 3,
Flemming Stie 2.
Fráköst: 29 í vöm - 9 í sókn.
Stig Skallagríms: Torrey John 18, Hlynur
Bæringsson 15, Enrique Charez 12, Birgir
Mikaelsson 9, Ari Gunnarsson 5, Sigmar
Egiissonl.
Fráköst: 11 í vöm - 7 í sókn’.
Villur: Tindastóll 14 - UMFS16.
Dómarar: Kristján Möller og Sigmundur
Már Herbertsson.
Áhorfendur: 340.
Haukar - Grindavfk 71:60
Iþróttahúsið Strandgötu:
Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 13:2, 18:4, 24:9,
24:15, 27:19, 34:21, 38:23, 40:23, 45:28,
45:36, 52:39, 57:44, 62:47, 62:58, 64:58,
66:60,71:60.
Stig Hauka: Guðmundur Bragason 20, Sta-
is Bosemann 17, Marel Guðlaugsson 15,
Bragi Magnússon 12, Ingvar Guðjónsson 2,
Jón Amar Ingvarsson 5.
Fráköst: 17 í sókn - 21 í vöm.
Stig Grindvíkinga:
Brenton Birmingham 23, Pétur Guð-
mundsson 10, Guðlaugur Eyjóifsson 9,
Bergur Hinriksson 9, Unndór Sigurðsson
5, Dagur Þórisson 4.
Fráköst: 8 í sókn -15 í vöm.
Villur: Haukar 14 - Grindavík 21.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Jón Hall-
dór Eðvaldsson.
Áhorfendur: Um 110.
Snæfell - Njarðvfk 77:99
Stykkishólmur:
Gangur leiksins: 8:4, 20:16, 22:23, 27:29,
33:39, 37:45, 41:56, 46:61, 53:73, 62:82,
68:84,75:84,77:89.
Stig Snæfells: Kim Lewis 28, Páimi F. Sig-
urgeirsson 16, Jón Þór Eyþórsson 14,
Adonis Pomonis 9, Baldur Þorleifsson 5,
Rúnar F. Sævarsson 5.
Fráköst: 20 í vöm -16 í sókn.
Stig Njarðvíkinga: Hermann Hauksson 24,
Teitur Örlygsson 19, Friðrik Ragnarsson
15, Keith Veney 11, Páli Kristinsson 10,
Friðrik Stefánsson 5, Gunnar Örlygsson 3,
Logi Gunnarsson 2, Ragnar Ragnarsson 2.
Fráköst: 24 í vöm - 9 í sókn.
Villur: Snæfell 16 - UMFN17.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Rúnar B.
Gíslason, voru í góðum takti við leikinn.
Áhorfendur: 175.
1. deild kvenna:
ÍS-KR..........................42:68
NBA-deildin:
Boston - Indiana 104:113
Philadelphia - New Jersey 92:90
Atlanta - Houston 116:100
Charlotte - Cleveland 103:95
Detroit - Toronto 115:108
■ Eftir framlengingu.
Miami - Golden State 115:100
Orlando - Washington 107:96
Milwaukee-NewYork 103:109
Dallas - Seattle 106:117
Denver - San Antonio 97:106
Utah - Chicago 113:86
Portland - LA Clippers 107:100
La Lakers - Minnesota 114:81
KNATTSPYRNA
Afríkukeppnin
Undanúrslit:
S-Afrika - Nigería...............0:2
Kamerún - Túnis..................3:0
Frakkland
Deildarbikar
N ancy - Sochaux.................2:1
■ Eftir framlengdan leik.
Holland
Eindhoven - Ajax.................4:0
Roda - Utrecht................. 3:2
Ítalía
Bikarkeppni, undanúrslit:
Lazio - Feneyjar.................5:0
SKÍÐI
Heimsbikarinn
Santa Caterína, ítatíu:
Bmn kvenna:
Isolde Kostner (Ítalíu) 1:25.85
Regina Haeusl (Þýskal.) 1:25.87
Corinne Rey-Bellet (Sviss) 1:25.90
Martina Ertl (Þýskl.) 1:26.02
Michaela Dorfmeister (Austurr.) 1:26.05
Renate Goetsch (Austurr.) 1:26.07
Warwara Zelenskaja (Rússi.) 1:26.08
Regine Cavagnoud (Frakkl.) 1:26.12
Kirsten Clark (Bandar.) 1:26.17
Brigitte Obermoser (Austurr.) 1:26.19
IKVOLP
Handknattleikur
1. deild karla:
Austurberg: ÍR - VOdngur..........20.30
Valsheimih: Valur - Fylkir........20.30
Vestmannaeyjar: ÍBV-UMFA.............20
2. deild karla:
Selfoss: Selfoss - Breiðablik........20
Strandgata: ÍH-ÍRb...................20
1. deild kvenna:
Valsheimili: Valur - KA...........18.30
Körfuknattleikur
Úrvalsdcildin:
ísafjörður: KFÍ - ÍA.................20
1. deild karla:
Borgames: Stafholtstungur - ÍR.......20
Hamakova keppir við Völu
PA VLA Hamakova, stangarstökkvari frá Tékklandi, hefiir þeg-
ið boð Frjálsíþróttadeildar ÍR um að koma á stórmót félagsins 5.
mars og etja þar m.a. kappi við Völu Flosadóttir, íslands- og
Norðurlandamethafa.
Hamakova hefur tekið miklum framforum síðustu misseri og
m.a. bætt sig um 8 sentímetra á yfirstandandi keppnistímabili,
stökk hæst 4,43 metra í Wuppertal í Þýskalandi á dögunum.
Vala hefur svifið hæst yfir 4,31 metra í vetur, en íslands- og
Norðuriandamet hennar frá því í fyrra er 4,45 metrar.
Vala og Hamakova er jafngamlar, fæddar 1978. Þær hafa
einu sinni mæst á stökkbrautinni í vetur, þá stukku þær sömu
hæð, 4,30 metra.
Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri þekktir stangarstökkv-
arar bætist í hóp keppenda og efji kappi við Völu í Laugar-
dalshöllinni 5. mars.
Njarðvík á
sigurbraut
NJARÐVÍK hafði góðan sigur á Snæfelli í Stykkishólmi, 91:77, í
gærkvöldi. Þar með náði liðið efsta sæti úrvalsdeildarinnar þar sem
Grindavík tapaði í heimsókn sinni í Hafnarfjörðinn. Leikurinn var
hraður og skemmtilegur allan tímann. Hólmararnir voru mun frísk-
ari en Njarðvíkingarnir til að byrja með og höfðu frumkvæðið fram í
miðjan fyrri hálfieikinn. Þá herti UMFN tökin á leiknum og hafði 8
stiga forskot í hálfleik, 45:37.
Iliði Snæfells munaði mest um það
að Pálmi F. Sigurgeirsson fékk
sína fjórðu villu eftir 12 mínútna leik
og hvíldi það sem
eftir var hálfleiks.
Hrafnkelsson En hann hafði leikið
skrífar mjög vel fram að
þeim tíma..
í upphafí síðari hálfleiks var leikur
Njarðvíkinga skínandi góður en á
sama tíma var sóknarleikur Snæfells
stirður. Munurinn varð mestur 20
stig á liðunum, upp úr miðjum hálf-
leiknum. Eftir það var aldrei vafi um
það hvar sigurinn lenti. En á þessum
kafla fór Hennann Hauksson á kost-
um í liði UMFN. Heimamönnum
tókst þó að minnka muninn í 7 stig
þegar 2 mínútur voru eftir en lengra
komust þeir ekki. Það sem varð
Snæfelli helst að falli í leiknum, var
að liðið Iét UMFN teyma sig i hrað-
an leik, en það hentar Njarðvíking-
um afar vel að keyra upp hraðann.
Þeir hafa breiddina til þess en Snæ-
fell ekki. Fyrir þetta varð leikurinn
góð skemmtun.
I liði Snæfells lék Kim Lewis vel
að vanda, sterkur á öllum sviðum
körfuboltans, einn alskemmtilegasti
leikmaðurinn í úrvalsdeildinni. Þá
átti Pálmi F. Sigurgeirsson mjög
góðan leik, er liðinu mjög mikilvæg-
ur baráttumaður, tók t.a.m. 10 frá-
köst, þar af 5 í sókn.
Hjá UMFN stóð Teitur Örlygsson
upp úr í fyrri hálfleik, alltaf traustur
leikmaður. I síðari hálfleik var Her-
mann Hauksson sjóðandi heitur um
tíma og skoraði 17 stig í hálfleiknum.
Páll Kristinsson fór vel af stað í
leiknum en dalaði þegar á leið.
Fljótafgreitt hjá Tindastóli
Tindastóll fagnaði 21 stigs sigri á
Skallagrími á heimavelli í gær-
kvöldi, lokatölur 81:60. Grunninn að
ggggggggggf sigrinum lögðu
heimamenn öðrum
Bjömsson fremur með mJög
skrifar góðum leika í fyrri
hálfleik. Við góðri
byrjun heimamanna áttu leikmenn
Skallagríms engin svör og tókst ekki
að ógna gestgjöfum sínum.
Ahorfendur á Sauðárkróki hafa
ekki áður orðið vitni að eins frábær-
um upphafsmínútum í leik Tindast-
ólsmanna og nú í leik þeirra gegn
Skallagrímsmönnum frá Borgamesi.
ísak Einarsson skoraði fallega körfu
strax í annarri sókn, en síðan fór
Kristinn Friðriksson á kostum og
setti niður tvær þriggja stiga körfur
í röð, og þegar staðan var 8:0 tóku
gestimir leikhlé. En þrátt fyrir það
gekk allt á afturfótunum hjá þeim
meðan heimamenn léku á als oddi,
fimasterk vöm undir forystu Shawn
Myers, sem varði fimm skot í röð,
stoppaði allar sóknir gestanna og
þegar 8 mínútur voru eftir af hálf-
leiknum var staðan 24:2 og þar af
hafði Kristinn Friðriksson skorað 4
þriggja stiga körfur.
I síðari hálfleiknum var Ijóst að
Torrey John ætlaði að selja sig dýrar
en í þeim fyrri, og nú lék hann vel
fyrri hluta hálfleiksins, skoraði 16
stig, en datt þá niður og varnarmenn
Tindastóls sáu til þess að hann gerði
þeim ekki fleiri skráveifur. í síðari
hálfleiknum sýndu heimamenn
nokkurt kæmleysi um miðbik leiks-
ins og misstu þá forskotið niður í 7
stig, en lengra komust gestimir
ekki. í liði Tindastóls átti Shawn
Myers stórleik bæði í vörn og sókn.
Kristinn Friðriksson sýndi enn einu
sinni hvers hann er megnugur og
barðist mjög vel., í liði Skallagríms
vom Birgir Mikaelsson og Hlynur
Bæringsson bestir.
KR hrissti af sér slenið
Stefán
Stefánsson
skrífar
Þórsarar frá Akm-eyri mættu
vígreifir í Vesturbæ Reykjavík-
ur í gærkvöldi og gerðu heiðarlega
tilraun til að leggja
KR-inga að velli.
Lengi vel leit út fyr-
ir að sú yrði raunin
en á endasprettinum
hristu heimamenn af sér slenið og
skomðu 13 stig á móti fjóram síðustu
mínútumar, sem skilaði þeim 79:71-
sigri. Gestirnir frá Akureyri réðu
ferðinni fram eftir leik en tókst
aldrei að stinga Vesturbæingana af.
Akureyringurinn Maurice Spillers
fór á kostum, hirti fráköst með til-
þrifum og raðaði niður körfum án
þess að Keith Vassell og félagar hans
í KR fengju rönd við reist. Heima-
menn gættu þess þó að missa gesti
sína aldrei of langt frá sér og þegar
Þórsarar slógu aðeins af síðustu
mínútur fyrri hálfleiks, minnkaði KR
muninn svo þrjú stig skildu liðin í
leikhléi.
Eftir hlé bættu KR-ingar varnar-
leikinn til muna og Ijóst að gestfrnir
yrðu að hafa sig alla við. Það gekk
eftir þar til rúmar þrjár mínútur
vom eftir en þá breyttu KR-ingar
stöðunni úr 66:67 í 72:67 sér í hag.
„Við áttuðum okkur á því í lokin að
við væram að tapa og komumst þá í
gang en þetta var alltof tæpt því þeir
komu sterkari til leiks en við áttum
von á,“ sagði Steinar Kaldal, sem
gerði góða hluti fyrir KR undir lokin.
Jesper Sörensen var þeirra bestur,
meðal annars með 6 stoðsendingar,
Keith reyndi sitt besta og tók 13 frá-
köst en átti í meiðslum og Ólafur Jón
Ormsson kom ferskur inn í síðari
hálfleikinn en það var deyfð yfir lið-
inu.
Bikarmeistararnir lagðir
ÆT
IStrandgötunni í gærkvöldi áttust
við Haukar og nýkrýndir bikar-
meistarar Grindavíkur. Endaði leik-
urinn með sann_
Fre gjörnum sigri
Bjamason heimamanna, 71:60.
skrífar Haukarnir mættu
grimmir til leiks
strax frá fyrstu mínútu leiksins og
náðu fljótlega góðri forystu. Eftfr
skamman tíma var staðan orðin 11:2
og skelkaðir Grindvíkingar sáu sér
þann kost vænstan að taka leikhlé.
Það varð þó ekki til þess að kynda
upp í þeim baráttuandann, því
heimamenn vora alls ekki á þeim
buxunum að gefa tommu eftfr. Náðu
þeir að halda slökum Grindvíkingum
vel fyrir aftan sig allan fyrri hálfleik-
inn og var munurinn jafnan tíu til
fimmtán stig. Hálfleikstölur, 38:23;
og vekur þar athygli ótrúlega lágt
stigaskor Grindvíkinga.
Haukarnir byrjuðu síðari hálfleik-
inn vel og skoraðu fyrstu körfuna, en
skömmu síðar náðu Grindvíkingar
ágætum kafla og skoraðu 8 stig í röð
og náðu að minnka muninn niður í 9
stig. Lengra komust þeir þó ekki í
bili því brátt var munurinn aftur orð-
inn hinn sami og áður. Það var ekki
fyrr en um 5 mínútum fyrir leikslok
að Grindvíkingar tóku við sér. Með
mikilli þrautseigju náðu þeir að
skora 10 stig í röð og skyndilega var
staðan orðin 64:60 og allt gat gerst.
En allt kom fyrir ekki. Heimamenn
gáfu sitt ekki eftir á lokasprettinum
og lokatölurnar, 71:60, staðreynd.
„Þetta var fyrst og fremst mikil-
vægur sigur,“ sagði Guðmundur
Bragason, fyirverandi leikmaður og
þjálfari Grindvíkinga, kampakátur
að leik loknum. „Við töpuðum fyrir
þeim í undanúrslitum bikai’keppn-
innar og kom því ekki til greina að
tapa fyrir þeim aftur. Okkur hefur
gengið vel á móti toppliðunum og
gefur þessi sigur okkur byr undir
báða vængi. Nú eram við komnfr í
toppbaráttuna þar sem við eigum
heima,“ sagði Guðmundur sem var
traustur á lokakaflanum fyrir Grind-
víkinga, einmitt þegar mest á reið.
Lið Hauka var jafngott allan leik-
inn, en þó má nefna frammistöðu
Marels Sigurðssonar sem hitti körf-
una vel og gafst aldrei upp.
Grindvíkingar vora hins vegar
fjarri sínu besta.
Naumt í Hveragerði
Ekkert var gefið eftfr í Hvera-
gerði í sannkölluðum „4ra-
stiga“ leik þar sem úrslitin réðust á
síðustu sekúndum,
Anton lokatölur 88:87 fyrir
Tómasson Keflavík. Leikmenn
skrífar beggja liða byrjuðu
af krafti og hittnin í
fyrri hálfleik var í góðu lagi. Hjörtur
sýndi sínar bestu hliðar hjá Keflvík-
ingum en allt í öllu hjá Hamri var
Brandon Titus sem hitti úr nær öll-
um skotum í fyrri hálfleik og setti
alls 6 3ja stiga í hálfleiknum. Síðustu
körfuna skoraði hann á síðustu sek-
úndunum og var hann nær miðju en
3ja stiga línunni. Staðan í hálfleik
var 55:48 fyrir heimamenn.
í seinni hálfleik fóra taugarnar að
segja til sín, sem og villurnar sem
heimamenn vora öllu duglegri við að
safna. Hamarsmenn byrjuðu af
krafti og í stöðunni 59:53 stal Skarp-
héðinn Ingason boltanum af Keflvík-
ingum og tróð. Við það vora Keflvík-
ingar ekki sáttir og tæknivilla dæmd
og Hamarsmenn héldu boltanum eft-
ir 2 víti ofan í. Heimamenn breyttu
þarna stöðunni í 68:53 og allt ætlaði
um koll að keyra. Seint skal afskrá
Keflvíkinga og með mikilli baráttu
og pressuvörn náðu þeir að saxa á
forskot Hamarsmanna jafnt og þétt.
Hér vora Keflvíkingar komnir með
skotrétt en heimamenn ekki, auk
þess sem meiri breidd var í Keflavík-
urliðinu og fleiri leikmenn spiluðu
leikinn. Keflvíkingar með Jason
Smith undir körfunni hirtu fleiri frá-
köst í vörn og sókn. Staðan breyttist
úr 73:63 í 74:69 þegar um 3 mínútur
vora eftir. Síðustu mínútumar vora
hreint út sagt æsispennandi og þeg-
ar um 1 mín. og 30 sekúndur vora
eftir komust Keflvíkingar yfir 80-81
og stuttu síðar 80:84 en Pétur Ing-
vars svaraði jafnharðan með 3ja
stiga körfu. Þegar um 20 sekúndur
vora eftir og staðan 87:88 lögðu
Hamarsmenn í sína síðustu sókn en
þeir náðu ekki að brjóta vörn Kefl-
víkinga á bak aftur og síðasta skotið
rétt geigaði. Keflvíkingar fögnuðu að
vonum vel í leikslok en Hamarsmenn
sáu enn einu sinni á eftir 2 stigum í
jöfnum heimaleik.
Hjá Keflavík var Hjörtur Harðar-
son áberandi í fyrri hálfleik en yfir
heildina var Jason Smith öryggið
uppmálað undir körfunni. Brandon
Titus varbestur Hamarsmanna eins
og svo oft áður og fór hreinlega á
kostum í fyrri hálfleik.
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2000 B 3
ÍÞRÓTTIR
Collymore
til Leicester
FRAMHERJINN Stan Colly-
more gekk til liðs við Leicest-
er City frá Aston Villa í gær.
Hann mun því væntanlega
keppa um stöðu í framlínu
liðsins við Amar Gunnlaugs-
son. Hann skrifaði undir 18
mánaða samning og mun fá
um 2000 pund f vikulaun.
Jafnvel er búist við að hann
leiki gegn Watford á Iaugar-
daginn. Fjórir leikmanna
Leicester; Neil Lennon, Muzzy
Izzet, Robbie Savage og Gerry
Taggart mega ekki fá gult
spjald gegn Watford ellegar
verða þeir í leikbanni í úrslita-
leik deildarbikarkeppninnar
gegn Tranmere. Collymore
má ekki leika úrslitaleikinn
þar sem hann lék með Fulham
í keppninni fyrr í vetur.
Collymore, sem er 29 ára,
var á sínum tíma dýrasti leik-
maðurinn í ensku knattspym-
unni er hann var keyptur til
Liverpool fyrir 8,5 milljdnir
punda frá Nottingham Forest
árið 1995. Hann náði sér ekki
á strik hjá Liverpool og var
seldur þaðan til Aston Villa
1997 fyrir 7 milljónir punda.
Collymore hefur verið til
vandræða hjá Aston Villa og
því vildi félagið losna við
hann. Collymore hefúr ekki
fengið tækifæri með Villa á
þessu tímabili og skoraði síð-
ast í deildinni í nóvember
1998.
Ríkharður
ekki tilbúinn
á La Manga?
FORRÁÐAMENN norska úrvalsdeildarfélagsins Vikings frá Stav-
anger teija að Ríkharður Daðason, leikmaður liðsins og íslenska
landsliðsins, hafi verið látinn leika alltof mikið með íslendingum
á Norðurlandamótinu á La Manga á Spáni. Þeir segja að leikmað-
urinn hafi ekki haft getu til þess að leika þrjá leiki á fimm dögum
og vílja ræða málið við Knattspyrnusamband íslands.
W
| Stavanger Aftenblad segir að Rík-
Morgunblaðið/Kristinn
Maurice Spillers frá Þór Akureyri var í miklum ham í Vesturbænum í gærkvöldi en varð að sætta sig við tap.
Hér stingur hann sér framhjá KR-ingnum Keith Vassell.
harður leiki með Viking gegn
Bryne á laugardag en fari í speglun á
mánudag. Segir að hann verði frá að
minnsta kosti í 14 daga. Hann fari
með liðinu til La Manga í mánuðin-
um en muni ekki leika með því æf-
ingaleiki. í blaðinu er ekki sagt að
meiðsli Ríkharðs megi rekja til leikja
hans með landsliðinu en Bjame
Berntsen, hjá Viking, segist óánægð-
ur með að Knattspyrnusamband Is-
lands hafi notað leikmanninn í öllum
leikjunum þremur gegn Finnum,
Norðmönnum og Færeyingum. Rík-
harður lék í 79 mínútur gegn Finn-
um, í 74 mínútur gegn Norðmönnum
og í 80 mínútur gegn Færeyingum.
Segir Berntsen að leikmaðurinn hafi
ekki verið í stakk búinn að leika
svona lengi hvern leik. Hann segir
jafnframt að Ríkharður hafi átt að
koma skilaboðum Benny Lennarts-
son, þjálfara Vikings, áleiðis til ís-
lenska liðsins um að hann ætti ekki
að spila mikið i þessum leikjum.
Berntsen segir að félagið hyggist
ræða við KSI og að þjálfari íslenska
landsliðsins og Vikings verði að ræða
saman um ástand leikmanna áður en
kemur að landsleikjum í framtíðinni.
Atli Eðvaldsson, þjálfari íslenska
landsliðsins, kvaðst ekki vita til þess
að Viking hefði haft samband við
KSÍ og benti á að norska félagið
hefði ekki haft samand á meðan mót-
ið stóð yfir. Hann sagði að þess hefði
verið gætt að leikmenn ofreyndu sig
ekki á La Manga. „Við spurðum Rík-
harð, sem er einn af máttarstólpum
liðsins, fyrir mótið hvort hann gæti
leikið og hann svaraði á móti að hann
myndi láta okkur vita ef hann treysti
sér ekki til þess að leika. Við létum
leikmenn ekki leika ef þeir urðu fyrir
einhverjum meiðslum, meðal annars
hvíldum við Heiðar Helguson og
Auðun Helgason er þeir meiddust
lítillega gegn Noregi."
Magdeburg steinlá
MAGDEBURG steinlá, 27:19, fyrir Lemgo á heimavelli í gærkvöldi íþýsku 1.
deildinni í handknattleik. Þetta var fyrsta tap Magdeburg á heimavelli á leik-
tfðinni. Liðið er nú í 4. sæti deildarinnar, hefur 28 stig eftir 20 leiki. Flensburg
er efst með 32 stig, Lemgo hefur 30 stig, og Kiel er með 29 stig. Öll hafa liðin
leikið 20 leiki. Ólafur Stefánsson lék allan leikinn með Magdeburg en skoraði
ckki mark. Hann lék ailan leikinn á miðjunni í sókn.
Lemgo náði öruggri forystu strax og var sem leikmenn Magdeburg, undir
stjórn Alfreðs Gíslasonar, væru annars hugar. Staðan í hálfleik var 15:7,
Lemgo í vil. í byrjun síðari hálfleiks lék Magdeburg vörnina framar, náði
þannig að minnka muninn í 18:12, en lengra komst liðið ekki.
Kostner sterk heima
ISOLDE Kostner kunni vel við sig
á heimavelli er hún sigraði í bruni
kvenna sem fram fór í Santa Cat-
erina á ftalíu í gær. Þetta var
fjórði sigur hennar í keppninni í
vetur. Hún hefur alltaf staðið sig
best í mótum á Ítalíu og hefur
unnið þar fimm af níu heimsbikar-
mótum sínum á ferlinum.
Kostner kom í mark á 1.25,85
mín. og var aðeins 0,02 sek. á und-
an Reginu Haeusl frá Þýskalandi,
sem varð önnur. Corinne Rey-
Bellet varð þriðja, aðeins 0,03 sek.
á eftir Haeusl.
Michaela Dormeistar frá Aust-
urríki, sem varð fímmta í gær,
heldur forystu í heildarstiga-
keppninni. Hún er með 802 stig,
sem er 60 stigum meira en Renate
Goetschl frá Þýskalandi sem er í
öðru sæti.
FOLK
■ WALSALL hefur samþykkt að
lána Sigurð Ragnar Eyjólfsson til
Chester í einn mánuð til viðbótar,
en hann hefur verið hjá 3. deildar-
liðinu síðan í byrjun árs. Sigurður
hefur hins vegar ekki enn lagt
blessun sína yfir málið og hyggst
ræðaþað við umboðsmann sinn.
■ MONAKÓ verður án tveggja '
sterkra leikmanna um nokkurn
tíma, en félagið er í efsta sæti
frönsku 1. deildarinnar. Marcello
Gallardo og Marco Simone meidd-
ust báðir í leik við Lyon um síðustu
helgi, en leikurinn þótti sérlega
grófm-.
■ GALLARDO er frá keppni eftir
að hafa fengið harkalegt spark frá
Sonny Anderson, en fyrir vikið
fékk Anderson rautt spjald.
■ SIMONE er markahæsti leik-
maður Mónakó á leiktíðinni, hefur
skorað sextán mörk. Auk Simone
og Gallardo er ljóst að David
Trezeguet og Sabri Lamouchi
verða ekki í liði Mónakó um næstu
helgi vegna meiðsla.
■ ROBERT Schwan, forseti knatt- .
spyrnuliðsins Herthu Berlín, sem
Eyjólfur Sverrisson leikur með,
hefur ráðið sér tvo lífverði eftir að
honum hefur ítrekað borist morð-
hótanir síðustu vikur. Schwan er 78
ára og ætlar ekki að sækjast eftir
áframhaldandi setu í forsetastóli
þegar ný stjóm félagsins verður
kjörin í maí.