Morgunblaðið - 15.02.2000, Blaðsíða 1
1 ■ - ■
--------------------------------------
SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG
—I--——|—-
GARÐAR
—-— ----|—
FRÉTTIR
MARKAÐURINN
HYBYLI
Sparnaður,
öryggi,
þægindi
Góðar lausnir,
vandaðar vörur
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000
BLAÐC
Húsnæði í
Hafnarhvoli
Götuhæð Tryggvagötu 11 í Reykja-
vík er nú til sölu hjá Eignamiðlun-
inni. Húsnæðið er um 387 ferm og
er nú nýtt fyrir skrifstofu Islands-
pósts. Asett verð er 33 millj. kr.,
sem talið er sanngjarnt verð fyrir
gott húsnæði á götuhæð á þessu
svæði, en húsnæðið má nýta á ýms-
an hátt. / 3
Þekkt hús
í Firðinum
Húseignin Strandgata 41 í Hafnar-
firði er nú til sölu hjá Hraunhamri.
Þetta er timburhús, sem stendur á
steyptum kjallara, byggt 1907, en
hefur verið rækilega endurnýjað og
byggt var ofan á það í fyrra, þannig
að húsið er nú á fjórum hæðum.
Þetta hús á sér merka sögu í bæjar-
lífi Hafnfirðinga. /19
Ú T T E K T '
Búmenn
byggjaí
Blásölum
Nú eru hafnar framkvæmdir
við 39 ibúða fjölbýlishús við
Blásali 24 í Kópavogi. Þar er
að verki húsnæðissamvinnufé-
lagið Búmenn. Rétturinn, sem
þessar íbúðir veita, er sams
konar og búseturéttur félags-
manna f Búseta., en miðast við
50 ára og eldri.
„Fjármögnun þessara íbúða
hefur þegar veriðtryggð með
lánsloforðum frá Ibúðalána-
sjóði,“ segir Reynir Ingi-
bjartsson, framkvæmdastjóri
Búmanna í viðtalsgrein hér í
blaðinu í dag, þar sem einnig
er rætt við Þorgrím Stefánsson
tæknifræðing, sem hefur eftir-
lit með húsinu fyrir Búmenn.
Talsvert verður í þetta hús
lagt. Þannig verður það ein-
angrað að utan með steinull og
klætt með loftræstri veðrunar-
kápu með lituðum álplötum
sem yztu vöm. Gluggar verða
með állistum, en þeir verða
settir í tilbúnir.
Tvær lyftur verða í húsinu
og allar íbúðir hafa svalir og
glugga bæði í suður og vestur.
Svalir verða stórar, en þakið
verður bámjámsklætt og
vandaður frágangur í kringum
þakkanta og þakbrúnir.
Orri Ámason arkitekt hefur
hannað húsið, en byggingarað-
ili er byggingafyrirtækið Viðar
ehf. Ef áætlanir standast, ættu
íbúðimar að geta orðið tilbún-
ar í byijun næsta árs. / 22
Ójöfn skipting
íbúðar- og atvinnu
húsnæðis
Skiptingin milli íbúðar- og atvinnu-
húsnæðis í Reykjavík er ekki bara
ójöfn í heild, heldur er þessi skipting
líka mjög ójöfn eftir hverfum, eins og
fram kemur á teikningunni hér til
hliðar, sem byggist á upplýsingum úr
Árbók Reykjavíkur 1999. Hún er
nýkomin út og hefur að geyma marg-
vísjegan fróðleik.
Ibúðarhúsnæði í borginni er mun
meira en atvinnuhúsnæði, sem ekki
þarf að koma á óvart. Mest er af at-
vinnuhúsnæði í austurbæ en minnst í
Breiðholti. Þar er hins vegar mest af
íbúðarhúsnæði. Árbær er aftur á
móti eina hverfið, þar sem meira er af
atvinnuhúsnæði en íbúðarhúsnæði.
Sáralítið atvinnuhúsnæði er í
Breiðholti fyrir utan Mjóddina, en
þar er myndarlegur verzlunar- og
þjónustukjarni. Svipaða sögu má
segja um Grafarvogshverfin, sem eru
dæmigerð íbúðarhverfi en lítið þar
um atvinnuhúsnæði. í Grafarvogs-
hverfunum hefur húsnæði fyrir
verzlun, þjónustu og iðnaðarstarf-
semi ekki verið byggt með sama
hraða og íbúðarhúsnæði og oft hefur
mátt heyra raddir um, að sækja þurfi
margvíslega þjónustu út fyrir hverf-
ið.
Oft er eins og ný hverfi þurfi að ná
vissri stærð til þess að verzlunar- og
þjónustustarfsemi nái að búa þar um
sig fyrir alvöru.
Á síðustu árum hefur mikii upp-
bygging á atvinnuhúsnæði átt sér
stað á svokallaðri Gylfaflöt í Grafar-
vogi, en þar hafa nokkur stór fyrir-
tæki haslað sér völl. Svipuðu máli
gegnir um Spöngina svonefndu.
Það er mjög áberandi þáttur í
smíði nýs atvinnuhúsnæðis nú, að
það verður æ algengara, að fyrirtæki
byggi sérhannað húsnæði yfir starf-
semi sína.
íbúðar- og atvinnuhúsnæði
í Reykjavík 1.12.1998
Mælt í brúttófermetrum
I/
/•/
Vesturbær-;
Norðurbær
Austurbær r'
,---------jl /
-
/ lr/.
Suðurbær
}}&'
■J.
'*\X
fí
.*#
Grafarvogur ■ |
..x I
\ mtlljónir
\ ferm.
-----11,2
Árbær
- íbuðarhúsnæði
atvinnuhúsnæði
■
J
Breiðholt
-?-1
-b,o
-óio
-<5,8
X
§
C3 O
5» CC
[—1 lí § o
ZL
sr.r===.
JSfr
\0,6
>0,5
r0,4'
0,3
0,2
0,1
0,0
d
Ég er á leið í greiðslumat
Foreldrar vilja gjarnan aðstoða börnin á myndartegan
hátt þegar þau stíga sín fyrstu skref út í heim hinna
fullorðnu. En það stendur ekki alltaf vel á þegar stóra
stundin kemur. Við því er hægt að sjá.
Áskrift að verðbréfasjóðum Kaupþings er rétta
aðferðin við að byggja upp sjóð og tryggja ávöxtun
sem hæfir draumum þínum.
Áskrifendur að verðbréfasjóðum
Kaupþings njóta 50% afsláttar af
gengismun.
KAUPÞING
Kaupþing hf. • Ármula 13A • Reykjavík
s(mi 5151500 • fax 5151509 • www.kaupthing.is