Morgunblaðið - 17.02.2000, Page 2
2 B FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
URSLIT
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
England
l.deild:
Wolves - Tranmere.............4:0
Skotland
Deildabikarinn, undanúrslit:
Celtic - Kilmarnock...........1:0
Moravcik 66.
Þýskaland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Bayem Miinchen - Hansa Rostock.3:2
Santa Cruz 58., 66, Samuel Kuffour 76. -
Hilmar Weilandt 75, Peter Wibran 82.
Frakkland
Efsta deild:
Nancy-Metz.......................0:0
Monaco - Bordeaux................1:0
Auxerre - Strasbourg.............0:1
Lens-Bastia......................4:0
St Etienne - Montpellier.........5:4
Le Havre - Troyes................2:0
Sedan - Rennes...................2:1
Grikkland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, fyrri leikur:
Olympiakos - AEK...............1:1
Spánn
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Compostela - Espanyol............1:0
Vallecano - Atletico Madrid......2:2
Barcelona - Osasuna..............2:0
■ Espanyol, Atletico og Barcelona eru
komin í undanúrslit.
Tyrkland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Antalyaspor - Bursaspor............2:0
Ankaragiicú - Galatasaray..........0:2
Ítalía
Bikarkeppnin, undanúrslit, seinni leikur:
Venezia - Lazio...................2:2
Fabian Valtolina 54., Runar Berg 89. - Si-
mon Inzaghi 2., 74.
■ Lazio í úrslit, 7:2 samanlagt.
Holland
Bikarkcppnin, 8-liða úrslit:
Utrecht-Roda....................0:1
NEC Nijmegen - Dordrecht.........2:0
RKC Waalwijk - Vitesse..........0:1
Ameríkukeppnin
C-riðill:
Trínidad - Guatemala.............4:2
Staðan:
Trínidad 2 1 0 1 4:6 3
Guatemala 1 0 0 1 2:4 0
D-riðilI:
Kanada - Suður-Kórna... 0:0
Staðan:
Kanada 2 0 2 0 2:2 2
1 0 1 o 2:2 1
Suður-Kórea 1 0 1 0 0:0 1
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Breiðablik - Þór Þ..............47:81
NBA-deildin:
Philadelphia - Charlotte........93:95
Toronto - New York..............91:70
Miami - LA Clippers............107:88
Atlanta - New Jersey...........103:86
Cleveland - SA Spurs............92:81
Chicago - LA Lakers.............76:88
Minnesota - Denver........(frl.) 104:107
Dallas - Milwaukee.............99:112
Houston - Detroit.............107:102
Utah-Boston....................99:101
Seattle - Washington...........114:85
Golden State - Portland.........83:92
Sacramento - Phoenix..........108:117
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrsiit:
Minden - Bad Schwartau.........28:23
Frankfurt - Wuppertal..........34:31
Kiel - Magdeburg...............29:27
í KVÖLP
Körfuknattleikur
tírvalsdeild karla:
Akureyri: Þór-Hamar.................20:15
1. deild karla:
Kennaras.: íS - Stafholtstungur.....20:15
1. deild kvenna:
Grindavík: Grindavík - KR..............20
FELAGSLIF
Árshátíð Hauka
Haukar verða með árshátíð sína í Hraun-
holti við Dalsbraut annað kvöld, fostudag
18. febrúar. Húsið opnað kl. 19.30, Mil-
ljónamæringamir leika íyrir dansi.
Miðar fyrir dómara
Starfandi handknattleiksdómarar, sem
hafa hug á að fara á bikarúrslitaleikina,
verða að sækja miða sína kl. 16-18 í dag í
íþróttahúsi Fram við Safamýri.
Amar hjá Anderlecht
ARNAR Grétarsson fór í morgun
frá Grikklandi til Belgíu þar sem
liann hittir forráðamenn belgíska
knattspymustórveldisins And-
erlecht.. Belgamir hafa fylgst vel
með Amari undaufarin ár, eftir
að hann gerðist leikmaður með
AEK í Grikklandi, og gerðu til-
boð í hann fyrir tveimur árum,
sem var hafnað.
„Ég er kominn með skriflegt
leyfi frá stjórn AEK og má vera í
Belgíu til mánudags. Ég átti að
fara síðasta mánudag en þá vildi
þjálfari AEK hafa mig í leik-
mannahópnum fyrir bikarleik-
inn gegn Olympiakos, sem var í
dag. í Belgíu hitti óg for-
ráðamenn Anderlecht og um-
boðsmanninn Sören Lerby, sem
hefur sóð um mfn mál, og það
ætti því að skýrast betur á næstu
dögum hvert ég fer,“ sagði Am-
ar við Morgunblaðið í gærkvöid.
Amar var í liópi varamanna
AEK í gær en kom ekki inn á í
Ieiknum, sem endaði 1:1. „Ég
átti ekki von á að spila, þjálfa-
rinn er að byggja upp lið fyrir
næsta tfmabil og því skiljanlegt
að hann noti mig ekki,“ sagði
Araar. Samningur hans við AEK
rennur út í vor og því síðustu
forvöð fyrir féiagið að seija
hann, ætli það sér ekki að sjá á
bak honum án greiðslu.
Christie og
Ottey íbann
Stjórn Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandsins, IAAF, ákvað um
helgina að allir þeir frjálsíþrótta-
menn sem fallið hafa á lyfjapróf!
vegna steralyfsins nandrolone, færu
í keppnisbann á meðan sérstakur
gerðardómur fjallaði frekar um mál
þeirra. Gerðardómurínn skal taka
fyrir mál Merlene Otteys, Linfords
Christies, Dougs Walkers og Garys
Cadogans. Komi ekkert nýtt fram í
þeirri rannsókn sem sannar að þau
hafí ekki með vilja og vitund notað
steraefnið verða þau öll dæmd til
þyngstu refsingar, tveggja ára
keppnisbanns. Auk þess bíða a.m.k.
þrjú önnur mál hjá breska og þýska
frjálsíþróttasambandinu vegna
nandrolone-notkunar.
A meðan gerðardómurinn er að
störfum ætlar IAAF í samvinnu við
nokkur landssambönd að hefja ítar-
AÐEINS 381 áhorfandi sá stjörnum
prýtt lið Lazio tryggja sér sæti í bik-
arúrslitunum í ítölsku knattspyrn-
unni í gærkvöld. Lazio gerði þá jafn-
tefli, 2:2, við Venezia í Feneyjum en
úrslitin voru nánast ráðin fyrirfram
því Lazio vann fyrri leikinn, 5:0.
Þessi ótrúlega lága áhorfendatala
bendir hinsvegar til þess að aukið
framboð á knattspyrnu síðustu miss-
erin sé farið að leiða til þess að fólk
velji og hafni í ríkari mæli en áður og
láti nú bikarleiki mæta afgangi.
Jafnvel þótt sæti í úrslitaleik sé í
húfi.
lega rannsókn á nandrolone og
hvort möguleiki sé á að efnið geti
borist í íþróttamenn í gegnum mat-
væli ellegar þá fæðubótarefni, en
sum þeirra eru sérstaklega undir
grun.
Það að gerðardómur skuli taka
málin fyrir er nokkur sigur fyrir þá
íþróttamenn sem segjast ekki hafa
óhreint mjöl í pokahorni sínu þrátt
fyrir að talsvert magn nandrolones
hafi fundist í líkama þeirra. Reynd-
ar hafði David Morcroft, fram-
kvæmdastjóri breska frjálsíþrótta-
sambandsins, óskað eftir að IAAF,
setti málin í salt á meðan rannsókn
á efnini stæði yfir og íþróttamönn-
unum verði heimilt að keppa á með-
an. IAAF heldur hins vegar fast í þá
stefnu sína að hafi íþróttamaður
fallið á lyfjaprófi þá skuli hann fara
í keppnisbann, allt að tveimur árum.
Líka fáir f Miinchen
Svipað var upp á teningnum í
Þýskalandi í gærkvöld, þótt tölurnar
væru aðeins hærri. Aðeins 10.500
manns mættu á hinn stóra Ólympíu-
leikvang í Miinchen og sáu Bayern
sigra Hansa Rostock, 3:2, í hörku-
spennandi undanúrslitaleik í þýsku
bikarkeppninni. Santa Cruz, hinn 18
ára gamli sóknarmaður frá Paragu-
ay, skoraði tvö marka Bayem. Lið
hans er komið í úrslit þriðja árið í röð
og mætir Werder Bremen í úrslita-
leiknum í Berlín hinn 6. maí.
FOLK
■ SANDOR Popovic frá Ung-
verjalandi var í gær ráðinn þjálf-
ari belgíska knattspyrnufélagsins
Geel, sem Guðmundur Bene-
diktsson leikur með. Hann tekur
við af Paul Put sem var rekinn í
síðasta mánuði. Dimitri M’Buyu,
sem stýrði liðinu til bráðabirgða,
verður nú framkvæmdastjóri fé-
lagsins.
■ BÚLGARIR, sem leika með ís-
landi í riðli í undankeppni HM í
knattspyrnu, gerðu jafntelli, 1:1,
við Ástralíu á alþjóðlegu móti í
Chiie í gær. Búlgarir höfðu áður
unnið Slóvakíu en tapað fyrir
heimamönnum.
■ FABRIZIO Ravanelli, „silfur-
refurinn“ hjá Lazio, er í slæmum
málum eftir að hann skallaði mót-
herja í bikarleik gegn Venezia í
gær. Ravanelli og Francesco
Pedone, varnarmanni Venezia,
lenti saman í lok leiksins og þeir
fengu báðir rauða spjaldið.
■ JOHN Arne Riise, Norðmaður-
inn ungi sem lék sinn fyrsta
landsleik gegn íslandi á La
Manga á dögunum, skoraði stór-
glæsilegt sigurmark fyrir Món-
akó gegn Bordeaux í frönsku
deildakeppninni í gærkvöld.
Þrumuskot af 30 metra færi sem
tryggði enn frekar stöðu Mónakó
á toppnum.
■ GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, var þakklátur
stuðningsmönnum félagsins sem
fjölmenntu á bikarleikinn í Chest-
erfield í fyrrakvöld þrátt fyrir
leiðinlegt veður. „Við höfum
fengið góðan stuðning í útileikj-
unum og þetta var frábært,"
sagði Guðjón við The Sentinel.
Hann lofaði jafnframt stuðnings-
mönnum Stoke að þeir fengju að
sjá liðið á Wembley í vor.
■ EKKI er hægt að sjá að Real
Madrid sé á flæðiskeri statt fjár-
hagslega, ef marka má tilboð í
hina og þessa leikmenn. Nú síð-
ast hefur Real gert Herthu Ber-
lín stórtilboð í efnilegasta leik-
mann Þjóðverja, Sebastian
Deisler.
■ TILBOÐ Real hljóðar upp einn
milljarð króna, en Hertha keypti
Deisler frá Mönchengladbach í
upphafi tímabilsins fyrir 150
milljónir króna. Deisler er aðeins
20 ára og segir Dieter Höness,
framkvæmdastjóri Herthu, að
leikmaðurinn sé ekki til sölu
sama hvaða upphæð sé nefnd.
■ HÖNESS segir að lið eins og
Juventus og Inter Mfianó hafi
þegar fengið afsvar við sínum til-
boðum og svo verði einnig um
Real.
■ HERMANN Gerland, þjálfari
Bielefeld, á ekki sjö dagana sæla.
Stjórn liðsins, sem er í vonlausu
sæti í deildinni, hefur marg lýst
því yfir að ekki verði skipt um
þjálfara og að Gerland verði
áfram. Þessu hafa áhangendur
liðsins mótmælt af krafti og nú er
svo að 15.000 færri áhorfendur
koma á heimaleiki liðsins en
venjulegt er. Nú er spurt hversu
lengi þjálfarinn haldi út.
Helga í stjóm EHF?
Helga Magnúsdóttir, fyrmm landsliðskona í handknattleik, mun
verða í framboði tii sljómarsetu í Handknattleikssambandi
Evrópu, EHF, á þingi sambandsins / næstu viku. Ný stjóm verður
kjörin til ijögurra ára, eða til ársins 2004.
Svfinn Staffan Holmqvist, sem hefur verið forseti EHF undan-
farin ár, gefur kost á sér til endurkjörs. Varaformaður sambands-
ins, Hans Jurgen Hinrichs frá Þýskalandi, ætlar hins vegar ekki að
gefa kost á sér áfram og hefur Norðmaðurinn Tor Lian ákveðið að
gefa kost á sér til embættis varaformanns.
Ólafur skoraöi 5
mörk gegn Kiel
ÍSLENDINGALIÐIN Magdeburg og Wuppertal féllu í gærkvöld út
í 8 liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. Enginn ís-
lendingur kemst því með liði sínu í undanúrslitin þetta árið.
Ólafur Stefánsson skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg, sem tapaði
fyrir meisturum Kiel í hörkuleik, en lokatölur urðu29:27. Höllin í
Kiel var troðfull að vanda og áhorfendur 7.250 talsins.
Wuppertal tapaði í Frankfurt 34:31 eftir 15:15 í hálfieik. Minden
komst áfram með því að sigra Bad Schwartau, en fjórði leikurinn,
milli Flensburg og Gummersbach, fer fram í kvöld.
Tómir pallar
í Feneyjum
Leikmenn
Leicester
sendir
heim
LEIKMENN Leicester vom sendir heim
í gær frá La Manga á Spáni eftir að þeir
liöfðu einungis verið í einn sólarhring.
Ástæðan er sú að nýjasti ieikmaður liðs-
ins, Stan Collymore, mun hafa sprautað
úr slökkvitæki á hóteli liðsins I fyrrinótt.
Því var ekki tekið með bros á vör og á
fundi aðstoðarknattspyrnustjóra
Leicester, Johns Robertsons og tveggja
þjálfara með Tony Coles, framkvæmda-
stjóra íþróttasvæðisins, var ákveðið að
leikmenn fæm heim til Englands.
„Á síðustu tveimur ámm höfum við
tekið á móti um 250 félögum og aidrei
haft nema gott eitt um þau að segja þar
til nú,“ sagði Coles.
Leicester ætlaði að vera með lið sitt á
La Manga fram á föstudag. Þar ætluðu
leikmenn að safna kröftum fyrir átökin
framundan i deildinni og ekki síst fyrir
úrslitaleik deildabikarsins um aðra
helgi. Martin O’Neal, knattspyrnusljóri
Leicester, fór ekki með liðinu en var
væntanlegur til Spánar í gær, en af för
hans varð ekki.
Collymore gekk til liðs við Leicester á
fimmtudaginn í siðustu viku og þótti
mörgum djarft teflt hjá O’Neal að kaupa
pilt. Eftir því sem fregnir herma mun
hafa verið einhver gleði á hótclinu þar
sem leikmenn Leicester bjuggu. Þegar
hún var úti, um kl. hálfþrjú í fyrrinótt,
tók Collymore næsta slökkvitæki og
sprautaði úr þvf. Á Sky-sjónvarpsstöð-
inni í gær var sagt að Collymore neitaði
sakargiftum.