Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 4
KNATTSPYRNA Sveinn fékk heið- urskross Morgunblaðið/JGK Sveinn og Elísabet Guðmundsdóttir, eiginkona hans. Morgunblaðið/JGK Stjórn KSÍ. Aftasta röð frá vinstri: Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri, Einar Friðþjófsson, Jón Gunnlaugsson, Jóhannes Ólafsson og Lúðvík Georgsson. Miðröð: Bjöm Friðþjófsson, Rafn Hjaltalín, Þórarinn Gunnarsson, Ástráður Gunnarsson og Guðmundur Ingvason. Fremsta röð: Ágúst Ingi Jónsson, Anna Vignir, Eggert Magnússon formaður, Halldór B. Jónsson og Eggert Steingrímsson. Á myndina vantar Jóhann Ólafsson. FRJALSIÞROTTIR Fijálsíþróttamenn koma á styrkleikalista SVEINN Jónsson, fyrrverandi formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur, var sæmdur heið- urskrossi Knattspyrnusam- bands íslands, sem er æðsta heiðursmerki sambandsins, þegar ársþing KSÍ fór fram í Reykjavík um sl. helgi. Sveinn, sem var formaður KR 1975 til 1991, var kunnur knatt- spyrnumaður á árum áður og lykil- maður í gullliði KR upp úr 1959, þegar KR-ingar urðu íslandsmeistarar með fullu húsi stiga sem frægt var. Sveinn, sem var einnig fastamaður í landslið- inu á þessum árum, varð formaður knattspyrnudeildar KR 1969 og einn- ig var hann um tíma þjálfari meistara- flokks KR. Sveinn hefur undanfarin ár stjórnað árþingum KSÍ með mikilli röggsemi. KR-ingar voru með prúð- asta liðið í efstu deild karla og fengu Drago-styttuna. Fylkir var með prúð- asta liðið í 1. deild karla og fengu Fylkismenn einnig Drago-styttu. Breiðablik fékk kvennabikarinn, sem KSÍ veitir fyrir vel unnin störf í kvennaknattspyrnu. Valtýr Bjöm Valtýsson, íþrótta- fréttamaður hjá íslenska útvarpsfé- laginu, var heiðraður og fékk hann Knattspymupenna KSÍ. Nýr samn- ingur við Heklu KnaUspyrnusamhand ís- lands og Hekla hf. undirrit- uðu um sl. helgi nýjan sam- starfssamning til tveggja ára, eða út 2001. Samstarf Heklu og KSÍ hefur staðið óslitið frá því í byrjtin árs 1995 og hefur það verið árangursríkt. Með samn- ingnum verður Hekla áfram einn af aðalsam- starfsaðilum KSÍ. Opinber- ar bifreiðar KSÍ eru frá Heklu. Þá er allur æfinga- fatnaður landsliða merktur Heklu, auglýsingaspjöld frá fyrirtaekinu verða á landslcikjurn og úrslita- leikjum bikarkeppni KSÍ. Bifreiðar frá Heklu verða kynntar á Laugardalsvelli í tengslum við landsleiki og KSIog Hekla standa fyrir happdrætti á landsleikjum. Atveggja daga fundi stjómar Al- þjóða frjálsíþróttasambands- ins, IAAF, í Mónakó um liðna helgi var ákveðið að taka upp styrkleika- lista innan íþróttagreinarinnar, líkt og þekkist t.d. í golfi og tennis. Ekki var gefið upp eftir hvaða reglum yrði farið við röðun á listann, en þó kom fram að hann verði ekki flokkaður eftir íþróttagreinum og líklega yrði kynjum blandað saman þannig að úr yrði einn styrkleikalisti. Talsmaður IAAF, Giorgio Rein- eri, sagði eftir fundinn að nánari til- högun yrði kynnt þegar liði á árið en stefnt væri að því að skráning hæfist á þessu ári og fyrsti listinn yrði birt- ur í árslok. An þess að fara útí eftir hvaða reglum yrði raðað á listann sagði Reineri að samkvæmt þeim vinnureglum sem samþykktar hefðu verið þá hefði Bandaríkjamaðurinn Maurice Green orðið efstur á listan- um ef slíkur listi hefði verið gefinn út fyrir sl. ár. Greene setti heimsmeti í 100 m hlaupi karla á sl. sumri auk þess að verða heimsmeistari í 100 og 200 m hlaupi. Þá sagði Reineri ennfremur að rætt hefði verið með hvaða móti væri hægt að stytta keppni í hástökki og stangarstökki. Sú hugmynd að kepp- endur yrðu í leik þegar þeir hefðu alls fellt sex sinnum, hafi komið fram og hlotið allnokkurn hljómgrunn og ekki væri ósennilegt að hún yrði samþykkt þegar fram liðu stundir. Með þessu móti væri hægt að flýta verulega keppni í þessum greinum sem oft vill taka fleiri klukkustundir, einkum á stórmótum. Nú gilda þær reglur í þessum tveimur stökkgrein- um að keppandi er fyrst úr leik þeg- ar hann hefur fellt sömu hæð þrisvar sinnum. ■ LOTHAR Mattháus setur eflaust heimsmet í fjölda landsleikja í knattspyrnu þegar Þjóðverjar mæta Hollendingum í vináttu- landsleik í næstu viku. ■ ERICH Ribbeck, landsliðsþjálf- ari Þjóðverja valdi í gær landsliðs- hóp sinn fyiir leikinn og þar á með- al er Matthaus sem nú hefur leikið 143 landsleiki, jafnmarga og Svíinn Tomas Ravelli lék iyrir Svía á sinni tíð. ■ RONALDO er byrjaður að æfa á ný með Inter Milano eftir að hafa farið í skurðaðgerð á hné í nóvem- ber sl. Enn er óvíst hvenær hann leikur með félagi sínu á nýjan leik. ■ MUZZY Izzet, félagi Arnars Gunnlaugssonar hjá Leicester reiknar með að leika sinn fyrsta landsleik fyrir Tyrkland gegn Tékklandi í apiíl. Izzet, sem gat valið að leika með enska landsliðinu eða því tyrkneska valdi hið síðar- nefnda á dögunum. ■ IAN Wright hefur yfmgefið her- búðir Celtic og gert samning við enska 2. deildarliðið Burnley. Wright gerði samning við Burnley til loka leiktíðarinnar í vor. ■ MARK Fish, leikmaður Bolton tilkynnti að lokinni Afríkukeppn- inni um helgina að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér í landslið S-Af- ríku framar. Ástæðan er sú að hann er ósáttur við stjórnendur landsins. Fish hefur leikið 58 lands- leiki fyrir þjóð sína. ■ MARC Overmars hefur gefið það í skyn að hann hugsi sér til hreyf- ings frá Arsenal í sumar takist fé- laginu ekki að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leik- tíð. ■ DENNIS Bergkamp, landi Overmars, er heldur rólegri og segist gjarnan vilja vera áfram í herbúðum Arsenal. Hann á 18 mánuði eftir af samningi sínum við Arsenal og segist vonast til þess að forráðamenn liðsins bjóði honum nýjan samning. ■ DWIGHT Yorke verður ekki með Manchester United gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni næsta sunnu- dag. Yorke er um þessar mundir að leika með Trínidad og Tobago í Ameríkukeppni landsliða. ■ DAVID Batty leikur væntanlega ekki með Leeds í ofangreindum leik, en vonir hafa staðið til þess að hann yrði klár í slaginn fyrir leik- inn. Batty hefur verið fjarri góðu gamni í þrjá mánuði vegna meiðsla í hásin og kálfa. ■ WIM Jansen, Hollendingurinn sem þjálfaði Celtic fyrir tveimur árum og gerði liðið að meistara í Skotlandi, segist vera reiðubúinn að koma til liðsins á ný. Það verði hins vegar aðeins gert á hans for- sendum. Jansen var sagt upp starfi viðþjálfun liðsins nokkrum dögum eftir að það varð skoskur meistari, eftir að hann hafði verið upp á kant við stjóm félagsins meira og minna alla leiktíðina. ■ JANSEN hefur verið sterklega orðaður við Celtic allt frá því að John Barnes var látinn taka þjálf- arapoka sinn hjá Celtic í síðustu viku. ■ COLIN Hendry hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Rangers á síð- ustu vikum og vill hann nú komast frá félaginu. Hafa West Ham, Shef- field Wednesday, Watford, Man- chester City og Blackburn öll lýst yfir áhuga á að fá Hendry leigðan til loka leiktíðarinnar. Ekkert er þó fast í hendi enn sem komið er. ■ ÞAÐ er löngu orðið uppselt á leik Bæjara og Real Madrid í meistaradeild Evrópu, sem fram fer 8. mars nk. í Miinchen. Það verður kveðjuleikur Lothar Matt- haus á heimavelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.