Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 1

Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 1
EEp FOSTUDAGUR 18. FEBRUAR 2000 ______■ FRISKAR KONUR MEÐ BUTAPEST/2 ■ SALUHJALP A SKJÁ/3 ■ BERNSKUBREK/4 ■ MEÐ Á NÓTUNUM/6 ■ NAUMHYGGJA, SNÍÐASNILLD OG ÆVINTÝRAKJÓLAR/7 ■ LESIÐ í MÁLVERK/8 ■ Ólgandi líf í SKÆRI, froða, vax, litir og blástur. Hressi- legur blástur. Vorvindar eru nú teknir að leika um hárgreiðslustóla landsins og eins og svo oft áður styttast línurnar eftir því sem sól hækkar á lofti. „Það er ekkert nýtt að fólk kjósi styttri línur með vorinu, enda er ekkert nýtt undir sólinni í hárgreiðslu frekar en öðru,“ segir Alli í Kompaníinu. „Það sem ber hins vegar hæst um þessar mundir er viss úrvinnsla úr þeim straumum sem verið hafa ríkjandi síð- ustu þijá áratugi eða svo. Ur þeirri blöndu koma ferskar línur, en það krefst vissulega talsverðr- ar kunnáttu hjá fagmanninum að tvinna ólíkar aðferðir saman svo _________ vel fari.“ Alli nefnir sem dæmi að í fatatísku gæti nú áhrifa hippastíls 7. ára- tugarins, en um Ieið örli á pönkáhrifum frá 9. áratugnum. Hið sama eigi við um hártísk- una. „Nú eru léttar styttur mjög í tísku, en með því að halda toppnum síðum og ýfa styttumar er vísað í fyrmefnda strauma." Annað meginþema hártískunnar um þess- ar mundir er áhersla á litun, og segir Alli út- færslu sína á hári Silju vera lýsandi dæmi. „Þar er dökkur litur undir en léttari litir, ljóst og brúnt, yfír. Við búum til skugga með því að ýkja litina, þyngja þá í rótina en lýsa efri lögin. Þetta helst vel í hendur við fata- tískuna, bjartir litir og léttar klippingar fara Framtíðarlínur með fortíðarblæ LOKKUM vel með ljósum og litríkum fötum sem verða áberandi í sumar.“ Loks er komið að þriðja þættinum sem ramrnar inn hártísku vors og sumars ásamt klippingu og strípum, en það er áferðin. Ef fólk vill ná réttri áferð á hárið er nauðsyn- legt að vera vel vopnaður hárvörum. „Almenningur í dag notar minnst þijár gerðir hárvara. I fyrsta lagi froðu eða gel sem sett er í hárið eftir þvott. Þá vax til þess að stjúka hárið í strimla, og að lokum spray __________ til þess að halda í horfinu. Nú dugir sem sagt ekki að hlaupa út á morgnana með blautt og slétt hárið,“ segir Alli kankvís- lega og bendir á að permanent- ið sem löngum hafí lyft haddi fólks í hæðir sé enda fjarri góðu gamni. Það sé ekki í náðinni þessa dagana hjá tísku- frömuðum og engin teikn á lofti um endur- komu þess. „I staðinn er það blásarinn sem gildir - hann er ómissandi til þess að ná sem mestu út úr klippingunni." Alli bætir því við að þótt styttri kollar þyki eftirsóknarverðir, séu ekki síður fjölbreytt- ar klippingar á boðstólum fyrir sítt hár. „Sítt hár er ekki lengur bara sítt hár, heldur gefur það möguleika á styttum, litum og skemmtilegum útfærslum," segir hann og minnir um leið á að líhurnar sem hann hafí hér tæpt á komi beint úr herbúðum Int- ercoiffure, alþjóðlegra samtaka hár- greiðslufólks. „Alþjóðlegt teymi hár- greiðslufólks, ásamt gestaklippurum frá ólfkum heimshomum, útfærir Iínur Int- ercoiffure tvisvar á ári í París. Island á fast- an fulltrúa í hópnum, Elsu Haraldsdóttur, en samtökin leggja mikið upp úr samvinnu hár- greiðslufólks á heimsvísu. Þau hafa að markmiði að auka virðingu hárgreiðslufags- ins í heiminum og því þarf fagfólk að upp- fylla ákveðnar kröfur til þess að fá aðild að samtökunum. Sem stendur em 15 íslenskar hárgreiðslustofur aðilar að Intercoiffure og hefur starfsfólk þeirra staðgóða þekkingu á þeim hárti'skulínum sem að framan hefiir verið lýst,“ segir Alli sem er listrænn ráð- unautur fslandsdeildar Intercoiffure. Síður toppur, styttur og þrenns konar strípur; ljósar, gyllt- ar og dökkrauðar. Hár Guðrúnar vann Arnar á Salon VEH í Glæsibæ fyrir Intercoiffure. Ljósmynd/Bára Kristinsdóttir Ójafn toppur, ýfður kollur og dökkur litur í kanti og undir- lögum á móti björtu efsta lagi. Hár Silju vann Alli í Komp- anfinu fyrir Intereoiffure.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.