Morgunblaðið - 18.02.2000, Side 3

Morgunblaðið - 18.02.2000, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 D 3 Sáluhjálp á skjánum Morgunblaðið/Þorkell Jóhanna Viborg í Frú Bóthildi í frumskógi efna sem „klippt eru niður til þess eins að sauma þau saman aftur“ eins og óinnvígðir komast stundum að orði. teppi hún var í þann veginn að fara að sauma. Þetta vakti ákveðna spennu og á endanum mikla lukku,“ segir Jóhanna. Fíklarnir sækja skammtinn sinn Af svipuðum toga eru svokölluð áskriftarteppi sem Jóhanna segir njóta mikilla vinsælda meðal búta- saumsfólks um þessar mundir. „Já, nú er í tísku að vera áskrif- andi að teppum," segir hún og hlær að spurnarsvipnum sem kem- ur á blaðamann. „Þetta gengur þannig fyrir sig að bútasaumsfíkl- arnir koma mánaðarlega hingað í búðina og ná í skammtinn sinn,“ útskýrir hún á léttum nótum, en „skammturinn" er ákveðinn hluti af uppskriftinni ásamt tilheyrandi efni. „Uppskriftin kemur sem sagt í tólf hlutum þannig að það tekur heilt ár að klára eitt teppi. Ég er með þrjá svona klúbba í gangi núna, tveir þeirra byrjuðu um mitt síðasta ár og einn nú í ársbyrjun. Fyrsti klúbburinn sem fór af stað í janúar 1999 og lauk verkinu í síð- asta mánuði taldi tæplega fímmtíu manns, svo dæmi sé tekið. Kostur- inn við þessi áskriftarteppi er ann- ars sá að fólk getur byrjað hvenær sem er og fengið þá pakka númer eitt, enginn hefur þannig misst af neinu þótt ákveðnir hópar hafi byrjað á ákveðnum tímum.“ Og Jóhanna notar vísvitandi orð- ið „fólk“ því það eru ekki bara kon- ur sem sinna bútasaumi. „Það er til að mynda einn karlmaður í klúbbi hjá mér eins og er - sá er um fer- tugt en aldursdreifing bútasaums- fólks er annars nokkuð mikil. Þessi umræddi karlmaður byrjaði á sín- um tíma á því að prjóna Facette- peysur en leiddist svo út í þetta,“ segir Jóhanna, grafalvarleg, enda ekkert grín að ræða um tómstunda- mál sem er ólæknandi fíkn og getur gripið fólk á öllum aldri og af báð- um kynjum. Enginn er óhultur þeg- ar bútasaumur er annars vegar og meðferðarstofnanir hvergi til. NETIÐ snýst nú ekki _ _ lengur eingöngu um w * flæði upplýsinga, held- ur er flæði tilfinninga ^ orðið þar töluvert. f A Meðal nýjunga í þjón- ustu á Netinu eru viðtalstímar hjá sálfræðingum, sálfræðipróf og með- ferð við andlegri vanlíðan. Tilraunavefurinn www.- psychoinside.it var settur upp í Gregóríska háskólanum í Róm í haust og svaraði mikilli þörf. Fyrstu þrjá mánuðina heimsóttu 3000 manns spjallrásir vefjarins, þar sem (jórir sálfræðingar bregðast við vandamálum, og á jafnlöngum túna bárust 500 fyrirspurnir með tölv- upósti. Fólkið á línunni er í engu frá- brugðið því fólki sem finna má á venjulegri biðstofu sálfræðings, á eftir unglingi sem er óviss um kyn- hneigð sína kemur móðir sem þjáist af kvíðaköstum og þannig mætti áfram telja. Eitt greinir vefsjúkling- ana þó frá öðrum og það er tjáning- armátinn. Þar sem samskiptatækin eru lyklaborð og skjáir þróa þeir frumlegar leiðir til þess að koma líð- an sinni til skila. Sumir beita litum, aðrir sleppa greinarmerkjum og enn aðrir bæta brosandi eða dapur- legum andlitum inn í textann til þess að tjá líðan sína. í þessi tákn verða sálfræðingamir að ráða eftir bestu getu, enda ekki í aðstöðu til þess að meta þagnir, svipbrigði og hik í frá- sögnum. Á því kann þó að verða breyting því í ráði er að bjóða skjól- stæðingum að komast í „augnsa- mband" við sálfræðingana með þjálp netmyndavéla. tír hópi vefsjúklinganna þijú þús- und hafa tíu manns þegar verið valdir til tilraunameðferðar, sem fara mun fram í gegnum Netið. Einnig hyggjast vefstjóramir halda fyrstu sálfræðinetráðstefn- una, en fjöldi sálfræðinga hefur haft við þá samband í gegnum síðuna til þess að leita faglegra ráða. En rómversku netsálfræðingarnir láta ekki nægja að bjóða tölvutæka þjónustu, heldur rannsaka þeir at- ferii netveija af sérstökum áhuga. Á vefsíðunni leggja þeir spurninga- lista fyrir gesti þar sem spurt er um óþol, tilfinningarót, drauma og spennuföll í tengslum við notkun Netsins, og í fyrra gerðu þeir skipu- lega rannsókn á hópi netveija sem vafra í meira en 50 klst. á viku. f nið- urstöðum segir að einn af hverjum tíu slíkra notenda eigi á hættu að verða eins konar netkleyfhugi; án- eljast netveröldinni og lenda í árekstrum við veraleikann með of- skynjunum og óráði. „Þegar þetta fólk slekkur á skjá- um súium hellist yfir það þunglynd- istilfínning - það upplifir svarthol í sálinni sem lagast ekki fyrr en móta- ldið byijar að mala á ný,“ segir Ton- ino Cantelmi, einn sálfræðinganna á www.psychoinside.it, en segir erfitt að úrskurða hvort andlegt ója- fnvægi sé orsök eða afleiðing óhóf- legrar netnotkunar. „Netið sem mið- ill býr yfir sterku ginningarafli og kann ekki aðeins að afhjúpa geðræn vandamál heldur einnig að særa þau fram. I sumum tilfellum stafar sú hætta af mikilli netnotkun að undir- liggjandi geðbrigði magnist upp.“ SÞ Framleitt fyrir framtíðina - fæst í dag. BANG & OLUFSEN Að aftan og framan, frá byrjun til enda. Beovision 1 fæst núna í 6 fallegum litum með einstakri mattri áferð sem þekur alla fleti. Beovision 1 - ný upplifun í sjónvarpi. Beovision 1 með standi frá: 185.400,- Síðumúli 21. Reykjavík. Sími. 581 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.