Morgunblaðið - 31.03.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ÍSÍ mælir með
hnefaleikum
FRAMKVÆMDASTJÓRN fþrótta- og Ólympíu-
sambands Islands, ISI, mælir með því að fhim-
varp um lögleiðingu ólympiskra hnefaleika
verði samþykkt. Frumvarpið liggur nú fyrir Al-
þingi og fékk framkvæmdastjómin það til um-
sagnar á dögunum. Heilbrigðisnefnd ÍSI styður
einnig að bann við ólympískum hnefaleikum
verði afnumið og telur að þessi tegund hnefa-
leika sé ekki skaðlegri en margar aðrar íþróttir.
í þessu sambandi vill ÍSÍ benda á að frá því að
lög um bann við hnefaleikum var samþykkt
1956 hafi hnefaleikar tekið miklum breytingum
og aðskildir hafi verið annarsvegar atvinnu-
hnefaleikar og hins vegar ólympískir hnefaleik-
ar og að síðamefnda greinin sé viðurkennd af
Alþjóða-ólympíunefndinni. Auk þess séu ólymp-
ískir hnefaleikar á meðal keppnisgreina á Öl-
ympíuleikum.
Kristinn sló fýrsta draumahögg árþúsundsins
KRISTINN Eymundsson, kylf-
ingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur,
gerði sér lítið fyrir og fór holu í
höggi er hann var við leik ásamt
Sveinbimi Kristjánssyni, einnig
úr GR, á Mill Ride-vellinum í
Ascot á Suður-Englandi. Kristni
og Sveinbimi var boðið til þátt-
töku á innanfélagsmóti golf-
klúbbsins hinn 4. mars sl., á með-
an á tíu daga dvöi þeirra stóð. í
mótinu fór Kristinn holu í höggi á
8. braut, sem er rúmir 140 metr-
ar að lengd. Hann notaði trékylfu
nr. 7, en þaraa var örlítili mót-
vindur, að sögn Kristins. Þetta er
í annað sinn sem Kristinn fer
holu í höggi. Hann gerði það
fyrst á 12. braut gamla vallarins
á Korpúlfsstöðum, þá með 8-
járni. „Þetta sannar að fyrra
skiptið var ekki glópalán,“ sagði
Kristinn og hló.
Kristinn er fyrsti íslendingur-
inn sem tilkynnir afrek sitt til
Einheijakiúbbsins og verður því
að teljast sá fyrsti sem fer holu í
höggi á nýju árþúsundi. Árangur
Kristins í mótinu var sá besti með
forgjöf, en þar sem íslendingam-
ir tóku þátt sem gestir gátu þeir
ekki tekið við verðlaunum. Hins
vegar spurðist afrek Kristins
fjjótt út. „Það vom ótrúlegustu
menn og konur að óska mér til
hamingju á meðan ádvölinni
stóð,“ sagði Kristinn, en hann og
Sveinbjöm gistu í góðu yfirlæti í
kiúbbhúsi Mill Ride-golfklúbbs-
ins.
AlltHM-
liðið gegn
íslandi
April Heinrichs, þjálfari banda-
ríska heimsmeistaraliðsins í
knattspyrnu kvenna, hefur val-
ið gífurlega sterkan þrjátíu
manna hóp til undirbúnings
fyrir Ólympíuleikana í Sydney.
Hópurinn kemur saman á
mánudaginn kemur og fyrstu
verkefnin eru landsleikirnir
tveir gegn íslandi í Charlotte 5.
og 8. apríl.
w
Ihópnum er allt byrjunarliðið sem
lék úrslitaleik HM á síðasta ári
og níu leikmannanna hafa leikið 100
landsleiki eða fleiri. Kristine Lilly
hefur leikið 197 leiki og verður því
að öllu óbreyttu fyrsti knattspyrnu-
maður heims til að ná 200 leikjum.
Mia Hamm, vinsælasti leikmaður
liðsins, er með 188 leiki og hefur
skorað í þeim 116 mörk. Michelle
Akers, sem hefur skorað 104 mörk í
148 leikjum, missir þó sennilega af
leikjunum þar sem hún fór úr axlar-
lið fyrir skömmu.
Eftir leikina gegn íslandi fá
bandarísku stúlkurnar einnai- viku
frí en síðan fara þær í æfingabúðir í
Kalifomíu og dvelja þar fram í júní.
Áætlað er að liðið leiki um tuttugu
landsleiki fram að Olympíuleikun-
um.
„Ég stend frammi fyrir skemmti-
legu vandamáli því allir leikmenn-
imir sem léku á Algarve-mótinu í
Portúgal á dögunum spiluðu frábær-
lega. Það verður mikil samkeppni
um að komast í sjálfan ólympíuhóp-
inn,“ sagði April Heinrichs þjálfari.
Morgunblaðið/Golli
Systkinin sigursælu frá ísafirði, Katrín og Ólafur Ámabörn, sigruðu í 5 km göngu kvenna og 10
km göngu pilta á Skíðalandsmótínu, sem hófst í gær í Skálafelli. Viðtöl við þau eru á C4.
Færeyingar
til liðs við Val
KNATTSPYRNUDEILD Vals
hefur samið við færeysku lands-
liðsmennina Pól Thorsteinsson
og Henning Jamskor. Leikmenn-
irnir vom á reynslu hjá félaginu
fyrir skömmu og vora Valsmenn
ánægðir með frammistöðu þeirra
og er gert ráð fyrir að samið
verði við þá báða til þriggja ára.
PÓI, sem er 26 ára, kemur frá VB
í Færeyjum en hann var nýkom-
inn til félagsins frá B36. Henn-
ing, sem er 27 ára, kemur frá GÍ
í Gotu. Valsmenn hafa áður feng-
ið tvo erlenda leikmenn fyrir
keppnistimabilið í 1. deild: gert
þriggja ára samning við banda-
ríska markvörðinn John Mills, og
Besim Haxhiajdini frá Júgó-
slavíu. Keppni í 1. deild karla
hefst 19. maí en þá leika Vals-
menn á móti Þrótti Reykjavík.
Guðjón Valur má ekkert
reyna á sig á næstunni
Guðjón Valur Sigurðsson, leik-
maður KA í handknattleik,
leikur ekki meira með liðinu á
þessum vetri. Augnlæknir til-
kynnti honum í gær að hann mætti
ekki reyna á sig næstu vikurnar.
Guðjón Valur lenti í samstuði
við Egidijus Petkevicius, mark-
vörð FH, á miðvikudagskvöldið og
skaddaðist á auga við það. Læknar
búast fastlega við að hann nái sér
að fullu en vilja að hann hvíli sig.
Þriðja leik KA og FH í átta liða
úrslitum, sem vera átti í gær-
kvöldi, var frestað og er fyrirhug-
að að leika hann í kvöld. Atli Hilm-
arsson, þjálfari KA, var ekki
ánægður með þessi málalok.
„Þetta kemur sér illa fyrir okkur
þvi það eni leikir í þriðja flokki um
helgina og eins í yngri flokkum
þannig að sumir þjálfarar liðanna
komast ekki með þeim,“ sagði Atli.
Hann benti einnig á að óvenju-
legt væri að leikjum væri frestað
svo snemma dags, en leiknum var
frestað um miðjan dag í gær.
„Þegar við förum suður er alltaf
beðið eins lengi og hægt er áður
en leik er frestað og ef okkur
seinkar lítillega eru leikirnir færð-
ir aftur um hálfa klukkustund.
FH-ingar ætluðu að koma með
íslandsflugi norður, en félagið
flaug ekki, en Flugfélagið er búið
að fljúga hingað í dag,“ sagði Atli.
SNÓKER: KRISTJÁN HELGASON FAGNAÐISIGRI í ABERDEEN/C2