Morgunblaðið - 26.04.2000, Qupperneq 8
Eiður
Smári
undir
smá-
sjánni
EIÐUR Smári Guðjohsen,
leikmaður Bolton, er enn á
ný orðaður við félög í úr-
valsdeild í Englandi. tít-
sendarar frá Newcastle og
Middlesbrough fylgdust
með Eiði Smára í 3:0-
sigurleik gegn Hudders-
field um síðustu helgi. Þá
var Graeme Souness,
knattspyrnustjóri Black-
burn, á leiknum að skoða
leikmanninn, að því er
fram kemur í Netmiðlin-
um Soccernet. Bobby
Robson, knattspyrnustjóri
Newcastle, hefur haft
auga með Eiði Smára und-
anfarin tvö tímabil en Eið-
ur Smári lék áður undir
stjórn Robsons hjá PSV í
Hollandi. Eiður Smári er
sagður metinn á tæplega
600 milljónir ísl. króna en
Bolton hefur þegar neitað
tilboði Derby sem hljóðaði
upp á um 470 milljónir
króna.
Preston
uppí
1. deild
BJARKI Gunnlaugsson og félagar
hans í Preston leika í 1. deild í Eng-
landi á næstu leiktíð. Liðið hefur
þegar tryggt sér sigur í 2. deild þeg-
ar tvær umferðir eru eftir af keppn-
istímabibnu. Preston tapaði reyndar
fyrir Cambridge 2:0 en sá ósigur
kom ekki að sök því Wigan, sem er í
öðru sæti, gerði l:l-jafntefli við Lut-
on. Bjarki lék allan leikinn með
Preston. Hann gerði þriggja ára
samning við Preston fyrir skömmu
og mun leika með liðinu í 1. deild
næsta haust. Fimm íslenskir knatt-
spyrnumenn hafa leikið í 1. deild í
vetur: Guðni Bergsson og Eiður
Smári Guðjohnsen í Bolton, Sigurð-
ur Ragnar Eyjólfsson og Bjarnólfur
Lárusson í Walsall og Lárus Orri
Sigurðsson í WB A.
Stoke City, undir stjórn Guðjóns
Þórðarsonar, hefur enn tök á að
komast upp í 1. deild. Liðið er í
^sjöunda sæti 2. deildar en ef það
kemst í úrslitakeppni liða í 3.-6. sæti
getur það tryggt sér þátttökurétt í 1.
deild næsta haust. Þrír íslenskir
leikmenn leika með Stoke: Bjai'ni
Guðjónsson, Brynjar Björn Gunn-
arsson og Arnar Gunnlaugsson.
Heiðar Helguson liggur eftir viðureign við Patrick Viera.
Vieira sagður hafa
ráðist á Heiðar
GRAHAM Taylor, knattspyrnustjóri Watford, hefur lýst óánægju
sinni yfir því að Patrick Vieira, leikmaður Arsenal, verði ekki kærður
fyrir að ráðast að Heiðari Helgusyni, leikmanni Watford, í leik lið-
anna í úrvalsdeild á sunnudag. Atvikið hefur vakið mikið umtal í
fjölmiðlum í Englandi.
gult spjald í leiknum, skoraði eitt
mark fyrir Watford og átti að fá
vítaspyrnu í upphafi leiks er David
Seaman, markvörður Arsenal,
braut á honum.
Hilmar
til Fram
HILMAR Björnsson knatt-
spyrnumaður hefur gengið frá
tveggja ára samningi við Fram
og mun leika með liðinu í úr-
valsdeildinni í sumar. Hilmar
hefur verið hjá sænska úrvals-
deildarliðinu Helsingborg í eitt
og hálft ár en hefur lítið fengið
að spreyta sig með liðinu og fór
hann fram á að verða leystur
undan samningi. Hilmar lék
með Fram á síðustu leiktíð - fór
svo aftur til Svíþjóðar í haust og
tók þátt í undirbúningi Hels-
ingborg fyrir tímabilið en ákvað
að snúa heim þegar ljóst var að
hann var ekki inni í myndinni
hjá þjálfara félagsins.
■ HEIÐAR Helguson gerði eitt
mark fyrir Watford, sem tapaði 3:2
fyrir Arsenal í úrvalsdeild. Hann
hefur gert fjögur mörk fyrir liðið í
vetur. Jóhann B. Guðmundsson lék
síðustu mínúturnar fyrir Watford,
sem er fallið í 1. deild.
■ HERMANN Hreiðarsson og fé-
lagar í Wimbledon eru í fallhættu í
úrvalsdeild. Liðið tapaði fyrir Tott-
enham um helgina og lék Hermann
allan leikinn með Wimbledon.
Wimbledon og Bradford eigast við
um næstu helgi og það gæti verið
úrslitaleikur um hvort félagið fellur
í 1. deild.
■ GUÐNI Bergsson og Eiður
Smári Guðjohnsen léku báðir með
Bolton, sem vann Huddersfield 3:0
í 1. deiidinni í Englandi. Boiton er í
áttunda sæti og á litla möguleika á
að komast í úrslitakeppni um sæti í
úrvalsdeild.
■ ÍVAR Ingimarsson lék með
Brentford sem tapaði 3:2 fyrir
Burnley í 2. deildinni. ívar var í
byrjunarliðinu en var skipt útaf á
86. mínútu.
■ BJARNI Guðjónsson, Amar
Gunnlaugsson og Brynjar Bjöm
Gunnarsson léku með Stoke, sem
vann Scunthorpe 2:0 í 2. deildinni.
■ STOKE er í 7. sætinu með 76 stig
eftir 43 leiki. Millwall og Gilling-
ham eru með 79 stig en hafa leikið
einum leik fleira en Stoke. Sjötta
sætið gefur sæti í aukakeppni um
laust sæti í 1. deildinni að ári.
■ GUÐMUNDUR Benediktsson
skoraði mark Geel í 1:1 jafntefli
gegn Lommel í belgísku 1. deild-
inni. Geel er í 16. sætinu en Lomm-
el er í neðsta sæti. Anderlecht
innsiglaði 25. meistaratitil sinn með
því að leggja Þórð Guðjónsson og
félaga í Genk að velli, 4:1.
Atvikið í leiknum, sem endaði
3:2 fyrir Arsenal, átti sér stað
undir lok leiksins. Vieira er sagður
hafa skallað í áttina að Heiðari,
sem féll í jörðina. Vieira fékk gult
spjald fyrir vikið en allt útlit er fyr-
ir að hann komist hjá leikbanni
þrátt fyrir að myndbandsupptökur
sýni að leikmaðurinn hafi mögulega
skallað Heiðar í andlitið. Vieira
hafði fyrir leikinn gegn Watford
fjórum sinnum farið út af með
rautt spjald og var dæmdur í sex
leikja bann er upptökuvélar sýndu
að hann hrækti á Neil Ruddock,
leikmann West Ham. Taylor,
knattspyrnustjóri Watford, telur að
það verði að útkljá hvort Vieira
hafi skallað Heiðar og kveðst undr-
andi á því að myndbandsupptökur
verði ekki skoðaðar af hálfu enska
knattspyrnusambandsins. „Ég get
ekki betur séð en að Vieira hafi
ætlað sér að nefbrjóta Heiðar,"
sagði Taylor í samtali við Daily
Star. Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, sagði að Vieira hefði
greinilega komið við Heiðar, en
ekki skallað hann. „Vieira brást
rangt við, en hann var í uppnámi
vegna atviks sem átti sér stað fyrr
í leiknum." Netmiðillinn Soccernet
greinir frá því að Heiðar hafi lent í
átökum við Horacio Carbonari,
leikmann Derby, fyrir tveimur vik-
um. Heiðar sagði í samtali við
Soccernet að hann væri þakklátur
fyrir það tækifæri sem hann fengi
með liðinu og því gæfi hann sig all-
an í leikinn. „Ég held að ég sé ekki
grófur. Ég berst einfaldlega fyrir
öllum boltum sem ég kemst í tæri
við. Ég væri hreinlega ekki sá sami
ef ég hætti því. Það er því mjög
mikilvægt fyrir mig að gefa mig
allan í leikinn.11 Heiðar, sem fékk
Erla skoraði gegn OB
ERLA Hendriksdóttir, leikmaður Fredriksberg í Danmörku,
skoraði eina mark liðs síns í 1:2 tapi gegn OB, efsta liði deildar-
innar, í dönsku úrvalsdeildinni á mánudag. „Við voi-um svekktar
að vinna ekki leikinn þar sem við stjórnuðum leiknum al-
gjörlega og þá sérstaklega í seinni hálfieik. Þjálfarinn okkar
ákvað að breyta um leikkerfi í þessum leik svo ég lék á miðjunni
og það gekk ágætlega," sagði Erla en hún er vön því að leika á
vinstri kanti eða sem vinstri bakvörður. Erla skoraði eina mark
Fredriksberg í fyrri hálfieik með skoti utan úr teig. „Það er allt-
af gainan að skora og í mínu tilfelli skemmir það ekki fyrir að
gera mark með hægri fæti,“ sagðiErla.
Edda Garðarsdóttir, sem einnig leikur með Fredriksberg, lék
á hægri kantinum og léku þær stöllur allan leikinn. Fredriks-
berg er sem fyrr í fimmta sæti dönsku deildarinnar. Liðið held-
ur enn í vonina um að komast alla leið í bikarúrslitaleikinn sem
verður 19. maí nk., en næsta miðvikudag leikur liðið gegn
Brondby í undanúrslitum bikarkeppninnar.