Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
■ÞROTTIR
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 C 3
Ljósmynd/David Stevens
iinni í bikarúrslitaleiknum við Bristol City á Wembley.
Nistelrooy frá
í átta mánuði
vísu óheppið í bikarkeppninni og á
enn veika von um að fara í úrslita-
keppnina um úrvalsdeildarsæti, en
á næstu árum mun Bolton hraka all-
verulega, einfaldlega vegna þess að
það hefur ekki fjárhagslegt bol-
magn til að gera meira. Leicester er
aftur á móti komið í hóp bestu liða
Englands og það var því stórt stökk
hjá mér upp á við að fara þangað,
stærra en margir gera sér grein
fyrir. Ég var búinn að spila hálft
tímabil með Bolton, og það er í raun
það eina sem ég hef gert af viti síð-
ustu 2-3 árin. En Leieester er bara
stærra félag, mér var boðinn samn-
ingur hjá Bolton sem var ekki nógu
góður og ég greip því tækifærið
þegar úrvalsdeildarlið í þessum
styrkleikaflokki sýndi mér áhuga.
Það var í sjálfu sér ekki erfið
ákvörðun. Það hefur gengið á ýmsu
hjá mér en ég verð núna að sýna
karakter, halda áfram og sanna mig
að nýju.“
Gaf Wembley-miðana
án þess að velta því fyrir mér
- Þú varst fyrir skömmu dæmdur
í 2 milljón króna sekt vegna þess að
miðar frá þér á úrslitaleik deiida-
Grindvíkingar munu sjá á eftir
tveimur leikmönnum sem léku
með liðinu í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik á nýafstöðnu tímabili.
Hinn 41 árs gamli Alexander Er-
molinskij hefur ákveðið að ljúka löng-
um og farsælum ferli og Bjami Magn-
ússon hefur hyggju að leggja skóna á
hilluna vegna þrálátra bakmeiðsla.
Einar áfram þjálfari
Einar Einarsson mun þjálfa
Grindavíkurliðið áfram á næstu leik-
tíð. Hann tók við liðinu fyrir tímabilið
og stýrði því til sigurs í bikarkeppn-
inni en hans menn urðu svo undir
gegn KR í baráttunni um íslands-
meistai’atitilinn.
bikarsins í fyrravetur komust í
hendur stuðningsmanna Totten-
ham. Hver var í raun þinn þáttur í
þessu máli?
„Það var skandall hvernig knatt-
spyrnusambandið tók á þessu.
Þetta tók heilt ár og var gert að
miklu meira máli en það í rauninni
var. Staðreyndin er sú að það voru
ekki til neinar fastar reglur og það
var ákveðið að dæma þetta svona til
að við yrðum að ákveðnu fordæmi
fyrir aðra.
Ég held að það hafi komið upp sá
misskilningur heima að við hefðum
verið að selja miða á svörtum mark-
aði til að hagnast á því. Þetta gerð-
ist einfaldlega þannig að margir
sem ég þekki, og jafnvel fólk að
heiman sem ég þekkti ekki neitt,
báðu mig um miða á leikinn og ég
gaf þá án þess að velta þessu eitt-
hvað fyrir mér. Síðan kom upp atvik
á leiknum, kona var barin og mynd
af því birtist í blaði, og það var ekki
einu sinni nálægt þeim sætum sem
okkar miðar voru stílaðir á. En ég
ætla að sætta mig við þennan dóm,
það er reyndar áfrýjun í gangi en ég
býst ekki við að neitt komi út úr
henni,“ sagði Arnar Gunnlaugsson.
Eyjólfur Guðlaugsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Grindavíkur,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að Grindvíkingar hefðu mikinn áhuga
á að fá Bandaríkjamanninn Brenton
Birmingham aftui- á næsta tímabili en
ómögulegt væri að segja á þessari
stundu hvort það tækist. „Brenton er
reyna að komast að í Evrópu þar sem
meiri peningar eru auðvitað í spilinu
en vissulega vonum við að hann verði
með okkur,“ sagði Eyjólfur.
Þá eru Grindvíkingar vongóðir um
að Páll Axel Vilbergsson verði með
liðinu á næstu leiktíð en hann er kom-
inn heim frá Belgíu, þar lék hann með
félagi í 2. deildinni.
FOLK
■ HENNING Jarnskor, færeyski
landsliðsmaðurinn sem gekk til liðs
við 1. deildarlið Vals í knattspymu
fyrir nokkrum vikum, er hættur hjá
Hlíðarendaliðinu og farinn heim.
Hann þótti ekki standa undir vænt-
ingum, miðað við tilkostnað.
■ PÓL Thorsteinsson, landi Henn-
ings, hefur enn ekkert getað leikið
með Val vegna meiðsla. Tveir
reyndustu menn liðsins, Kristinn
Lárusson og Guðmundur Brynj-
ólfsson, eru einnig meiddir og ólík-
legt að þeir verði tilbúnir fyrir
fyi'sta leik Islandsmótsins sem er
gegn Þrótti R. hinn 19. maí.
■ BALDUR Þeyr Bragason, vara-
markvörður knattspyrnuliðs ÍA, er
kominn heim eftir að hafa dvalið í
þrjá daga hjá færeyska liðinu B36.
Færeyingamir vonuðust eftir því
að ná samningum við Baldur og að
hann myndi leika með þeim næsta
deildaleik á sunnudag, en ekkert
varðafþví.
■ B36 fékk Jens Martin Knudsen,
markvörð og þjálfara Leifturs, lán-
aðan í fyrsta deildaleik sinn á dög-
unum og átti einnig í viðræðum við
Albert Sævarsson, markvörð
Grindavíkur og er nú í miklum
vandræðum með markvarðarstöð-
una.
■ ÖRLYGUR Helgason skoraði öll
þrjú mörk Leiftursmanna þegar
þeir sigraðu KA, 3:1, í æfingaleik á
KA-vellinum á miðvikudagskvöldið.
■ GUNNAR Einarsson, sem KR-
ingar fengu frá Brentford á dögun-
um, er kominn með leikheimild og
getur spilað með meisturanum
gegn KA í 16 liða úrslitum deilda-
bikarsins á mánudag.
■ HINN 43 ára gamli knattspyrnu-
stjóri hjá Coventry, Gordon
Strachan, gæti óvænt tekið fram
skóna að nýju í dag en hann er al-
varlega að spá í að velja sjálfan sig í
leikmannahópinn sem mætir
Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.
■ MIKIL meiðsli eru í leikmanna-
hópi Coventry og á Strachan í erfið-
leikum með að velja 16 manna hóp.
Fari svo að hann komi við sögu í
leiknum gegn Newcastle verður
hann elsti útileikmaðurinn sem leik-
ur í ensku úrvalsdeildinni frá upp-
hafi.
■ LES Ferdinand framherji Tott-
enham fór undir hnífinn í gær en
meiðsli í hásin hafa verið að hrjá
leikmanninn. Þetta er önnur að-
gerðin sem Ferdinand gengst undir
vegna meiðslanna á skömmum tíma
en hann hefur aðeins byrjað fimm
sinnum inn á í liði Tottenham á leik-
tíðinni.
■ FERDINAND, sem er 33 ára
gamall, vonast til að verða orðinn
góður af meiðslunum fyrir næstu
leiktíð og að nálgast sitt fyrra form
en þessi öflugi leikmaður var kjör-
inn leikmaður ársins árið 1996.
■ IIERBERT Prohaska var í gær
vikið úr starfi þjálfara hjá austur-
ríska 1. deildarliðinu Austria Vín.
Prohaska er níundi þjálfari félags-
ins á síðustu átta árum.
■ Á MORGUN verður tilkynnt
hvaða leikmaður þykir hafa skarað
frammúr í ensku úrvalsdeildinni í
knattspymu í sumar. Flestir spá því
að Roy Keane, fyrirliði Manchester
United, verði fyrir valinu og einn
þeirra sem segist mundi hafa kosið
Keane er landsliðsþjálfarinn Kevin
Keegan. Harry Kewell leikmaður
Leeds er líklegastur til að verða
fyrir valinu sem efnilegasti leik-
maður deildaiinnar.
■ CHRISTIAN Karembeu, leik-
maður Real Madrid og franska
landsliðsins gæti verið á föram frá
félaginu til Middlesbrough. Rob-
sons hitti Karembu á dögunum og
mun Frakkinn vera nokkuð já-
kvæður. Hann hefur ekki fest sig í
sessi hjá Madridar-liðinu á leiktíð-
inni. Talið er að Robson verði að
reiða af hendi a.m.k. 5. milljónir
punda, tæplega 600 milljónir króna,
verði af kaupunum.
að á ekki af hollenska knatt-
spymumanninum Ruud Van
Nistelrooy að ganga. Á æfingu hjá
PSV í Hollandi í gær meiddist hann
aftur á hné og gekkst hann þegar
undir aðgerð.
Talið er að hann verði frá keppni í
allt að átta mánuði sem þýðir að
hann verður ekki með hollenska
landsliðinu á Evrópumótinu í sumar
og ekkert verður af því að hann
BARCELONA hefur verið dæmt í
eins árs bann í spænsku bikar-
keppninni í knattspymu eftir að
liðið mætti ekki til leiks á eigin
heimavelli í undanúrslitum bikar-
keppninnar gegn Atletico Madrid
siðasta mánudag. Barcelona vildi
fá leiknum frestað vegna mikilla
meiðsla þar sem aðeins 10 af leik-
mönnum Iiðsins væru leikfærir.
Því var hafnað og aðeins leikmenn
Atletico mættu til leiks en þeir
gangi í raðir Manchester United. At-
vikið í gær gerðist aðeins sólarhring
eftir að slitnaði upp úr samningsgerð
United og PSV um kaup ensku
meistaranna á Nistelrooy en hol-
lenska liðið meinaði læknaliði Man-
chesterliðsins að gera frekari prófun
á hægra hné leikmannsins.
Félögin höfðu náð samkomulagi
um kaupverðið sem átti að hljóða
upp á rúma 2 milljarða króna.
höfðu 3:0 forskot frá fyrri leik lið-
anna. Atletico hefur verið dæmd-
ur sigur og mætir Espanyol í úr-
slitum bikarsins. Barcelona fær
ekki að taka þátt í keppninni
næsta vetur og þarf að greiða eina
milljón króna í sekt. Félagið
hyggst áfrýja þessum úrskurði og
ætlar að leita til almennra dóm-
stóla ef það fær ekki refsinguna
fellda niður hjá spænska knatt-
spy rnusambandinu.
Enska Ijónið á mbl.is
< |
Fylgstu daglega með öflugustu
úrvalsdeild í heimi á mbl.is l i
^mbl.is
-ALLTAf= G!TTH\^AÐ NÝTT~
Ermolinskij og
Bjami hætla
Meistaraleikur
í KR-húsinu
ÍSLANDSMEISTARAR KR-inga í körfuknattleik áiið 1990 hafa
skorað á nýkrýnda íslandsmeistara í leik sem fram fer i fþrótta-
húsi KR á morgun, laugardag. Meistararair frá árinu 1990
munu mæta með fullt lið að því undanskildu að Axel Nikulásson
verður ekki með. Ungverjinn Laszlo Nemeth, sem stýrði KR-
liðinu til sigurs á Islandsmótinu fyrir 10 árum, mun stjórna
„gömlu mönnunum" á ný ásamt Rússanum Anatolij Kovtoun
sem lék með KR-liðinu á þessum árum. Nýbakaðir meistarar
verða án erlendu leikmannanna Jespers Sörensens og Keith
Vassels og það ætti bara að gera leikinn meira spennandi.
Okeypis aðgangur er að leiknum sem hefst klukkan 13.
Barcelona
í árs bann