Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 4
Keith Vassell
segir ekki loku
fyrir það skotið
að hann komi
næsta haust og
leiki með KR-
ingum á ný.
Vildi efma
loforðið
Þegar Keith Vassell kom hingað til lands
til þess að leika með KR fyrir tveimur og
hálfu ári segist hann hafa lofað Gísla
Georgssyni, formanni körfuknattleiksdeild-
arinnar, að félagið yrði Islandsmeistari.
„Hann hafði nú ekki mikla trú á orðum mín-
um - kannski ekki að undra því ég var ekki
í mína besta formi,“ segir Vassell í samtali
við Gísla Þorsteinsson. „Mér tókst ekki
að efna loforðið fyrstu tvö árin en það var
eins og þungu fari væri af mér létt þegar
það tókst í þriðju atrennu.“
ASTÆÐUR þess að Keith kom
hingað til lands að leika körfu-
knattleik má rekja til þess að hann
hafði ekki tryggt sér samning hjá
félagi veturinn 1997 því að hann
hafði ætlað sér að fylgjast með fæð-
ingu dóttur sinnar. „Móðir hennar
bjó í bænum Thomson í Manitoba og
þar var ekki hægt að æfa körfubolta
og ég gat því ekki haldið mér í for-
mi. Dóttir mín fæddist í október og
sg kom hingað til lands um áramótin
1997-98 og ekki í góðri æfíngu. Mér
gekk reyndar ekki sérlega vel í
fyrstu leikjunum og vissi að þeir
voru farnir að hafa efasemdir um
getu mína en síðan náði ég mér á
strik. Liðið var í níunda sæti þegar
ég kom til þess en því gekk betur er
á leið veturinn og það endaði í öðru
sæti í deildarkeppninni. Jón Sig-
urðsson hafði tekið við liðinu
skömmu áður en ég kom til þess og
hann gerði marga góða hluti þann
tíma sem hann þjálfaði liðið. Við
mættum Njarðvfk í úrslitum en töp-
uðum og mér fannst, er ég hélt af
landi brott, að Gísli ætti hönk upp í
bakið á mér.“
Þungu fargi af mér létt
Keith samþykkti að taka að sér
þjálfun liðsins veturinn eftir en
hafði Inga Þór [Steinþórsson] með
sér til aðstoðar; við þjálfun og til að
stjórna liðinu í leikjum. KR hafnaði í
fímmta sæti í deildinni en féll úr
keppni gegn Grindavík í átta liða úr-
slitum. „Það var hrikalegt að tapa
gegn Grindavík og ég minntist enn
þess sem ég lofaði Gísla. Ég fór um
sumarið til Frakklands og reyndi
fyrir mér hjá nokkrum liðum en það
gekk ekki upp og ég sló því til er
■*KR-ingar höfðu samband við mig á
ný og báðu mig um að koma og spila.
Það gekk á ýmsu yfir veturinn, við
lentum í miklum meiðslum og áttum
að brattann að sækja undir lok
deildarkeppninnar en að endingu
tókst okkur að hampa titlinum. Það
var því eins og þungu fargi væri af
mér létt þegar ég gat loks uppfyllt
loforð mitt.“
Aðspurður hvað hafi orðið þess
valdandi að KR-ingum tókst loks að
tryggja sér titilinn segir Keith að
samheldni leikmanna og heppni
hefði ráðið miklu þar um. „Hlutirnir
hefðu hæglega getað þróast á sama
veg og árið á undan en nú óx liðið við
hverja raun. Við áttum erfítt verk-
efni fyrir höndum er við mættum
Tindastóli í átta liða úrslitum
keppninnar en unnum og þá fóru
hlutirnir loks að gerast. Við vorum
staðráðnir að standa af okkur alla
þá erfiðleika sem dundu yfir liðið en
við vorum líka heppnir. Við vorum
ætíð án heimaleikjaréttar og þurft-
um því að vinna að minnsta kosti
einn útileik til þess að komast
áfram. Við þurftum því ætíð að
sanna okkur og ég held að það hafi
hjálpað okkur. Það kom í ljós í leikj-
unum gegn Grindavík og Njarðvík."
Sérstök tilfinning
að leika með KR
Keith tekur undir að fáir hafi
vænst þess að KR mundi hampa titl-
inum að lokum en segir að leikmenn
hafi ætíð haft trú á að þeir gætu
unnið mótið. „Það er sérstök tilfinn-
ing að leika með KR. Liðið býr yfir
mikilli hefð og er umdeilt, því ann-
aðhvort ertu með því eða á móti. Ég
er í sérstakri aðstöðu umfram alla
erlenda leikmenn sem hingað koma;
að komast að hjá liði sem hægt er að
líta á sem sitt. Mér þykir vænt um
þá hefð og sögu sem fylgir þessu fé-
lagi og hef ætíð átt góð samskipti við
forráðamenn og tel mig ekki frá-
brugðinn öðrum leikmanni í liðinu.
Það er engum vafa undirorpið að
staðföst trú okkar á eigin getu hafi
hjálpað okkur að vinna titilinn."
Keith bendir jafnframt á að Ingi
Þór hafi gert ótrúlega hluti með KR
á sínu fyrsta ári sem þjálfari liðsins,
en viðurkennir að það hafi reynst
sér erfitt í upphafi að hverfa úr
starfi þjálfara í að vera leikmaður á
ný. „Mér þótti í upphafi erfitt að
koma hingað sem leikmaður en Ingi
Þór tók framförum sem þjálfari
þegar á leið veturinn og traust mitt í
hans garð jókst. Ég vissi að hann
væri hæfileikaríkur að stjóma og
skipuleggja æfingar en spurningin
var hversu góður hann væri við að
stjórna liðinu í leikjum. Hann varð
hins vegar sífellt betri eins og raun
ber vitni.“
Stendur á krossgötum
Keith, sem er 29 ára og hefur leik-
ið undanfarin fjögur ár með aðal-
landsliði Kanada, segir að hann hafi
reynst farsæll á sínum ferli og áork-
að flestu sem hann hafi einsett sér.
Hann segir engu að síður ekki ætla
að sitja auðum höndum er hann
heldur til Kanada því hann þurfi að
undirbúa sig fyrir úrtökumót um að
komast í landsliðið í lok maí. „Ég hef
leikið sem bakvörður með kanad-
íska landsliðinu en oftar sem fram-
herji með KR og þarf að æfa bak-
varðarstöðuna betur áður en kemur
að úrtökumótinu. Að vísu hafa
meiðsli í hné gert mér erfitt fyrir en
ég ætla að freista þess að komast í
liðið í stað þess að fara í uppskurð."
Keith segir að hann hafi ætíð sett
sér háleit markmið sem leikmaður í
körfubolta og náð þeim flestum og
standi á krossgötum á sínum ferli.
Hann segir að eina takmarkið sem
hann eigi eftir að áorka_ sé að ná að
leika með landsliðinu á Ólympíuleik-
um. „Ef ég kemst með liðinu til
Sydney er óvíst hvað ég mun gera í
framhaldi þvi þá hef ég áorkað öllu
sem ég stefndi að. Svo gæti farið að
Morgunblaðið/Jim Smart
ég muni hætta með landsliðinu og
leika aðeins eitt tímabil til viðbótar.
Þá yrði KR mér ofarlega í huga. Ég
hef mikinn áhuga á að koma hingað
aftur og leika með liðinu, en hef
einnig metnað til þess að komast að
hjá liði í Evrópu. Spánn kæmi sterk-
lega til greina. Ég lék þar eitt tíma-
bil með Vina Costeira Verin, sem er
þriðju deildarlið, áður en ég kom
hingað til lands. Mér líkaði lífið á
Spáni og liðinu gekk vel á þeim tíma
en mér fannst ég geta leikið betur
og langar að mörgu leyti að snúa
þangað aftur til þess að gera betur.
Ég er með kennaramenntun en er
ekki viss um hvort ég vilji nýta mér
þá menntun strax. Ég hef einsett
mér að fá samning hjá liði í síðasta
lagi í ágúst og ef það gengur ekki
upp mun ég glaður koma aftur til
KR.“