Morgunblaðið - 06.05.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JSMlíí*1
B
2000
LAUGARDAGUR 6. MAI
BLAÐ
Kvennalið IBV í
Evrópukeppni
ÍSLANDSMEISTARAR ÍBV í handknattleik
kvenna ætla að taka þátt í Evrópukeppni meist-
araliða næsta haust. Þorvarður Þorvaidsson,
formaður hjá handknattleiksdeild ÍBV, staðfesti
það í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að
kvennaliðið hefði tvívegis áður tekið þátt í
Evrópukeppni, 1993 og 1994, og að stefnt væri á
að taka þátt aftur næsta haust. „Við viljum ýta
undir íslenskan kvennahandknattleik með því
að taka þátt í slfkri keppni og finnst miður að
engin handknattleikslið hafi tekið þátt í
Evrópukeppni siðustu tvö ár.“ Ekkert íslenskt
handknatt leikslið, karla og kvenna, hefur tekið
þátt í Evrópukeppni frá því að karlalið Aftur-
eldingar og KA tóku þátt veturinn 1997-98.
Siggeir
ræðir við
Stjömuna
Handknattleiksdeild Stjörnunnar
í Garðabæ hyggst ræða við Sig-
geir Magnússon, aðstoðarþjálfara
karlaliðs Aftureldingar í Mosfells-
bæ, um að taka að sér þjálfun
kvennaliðs Stjömunnar fyrir næsta
tímabil. Siggeir hefur verið aðstoð-
arþjálfari Aftureldingar undanfarin
misseri og varð í fyrra Islands- og
bikarmeistari með liðinu. Er búist
við að Siggeir ræði við forsvarsmenn
Stjömunnar um helgina. Eyjólfur
Bragason þjálfaði Stjömuna á síð-
ustu leiktíð en fljótlega eftir tímabil-
ið var Ijóst að hann yrði ekki áfram
með það.
HAUKAMAÐURINN Petr Baum-
ruk var besti leikmaðurinn á Is-
landsmótinu i handknattleik að
mati fþróttafréttamanna Morgun-
blaðsins. Bamrauk lét heldur bet-
ur að sér kveða í úrslitakeppninni,
jafnt í vörn sem sókn og hann fór
fyrir sínum mönnum í úrslitaleikj-
unum gegn Fram á dögunum þeg-
ar Haukar tryggðu sér Islands-
meistaratitilinn á eftirminnilegan
hátt í fyrsta skipti í 57 ár.
■ Eitt ár.../B4
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Petr Baumruk, leikmaður Hauka, ánægður með viðurkenningu Morgunblaðsins.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Teitur og Erla bestu
leikmennimir
Teitur Örlygsson, UMFN, og
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík,
vora k,jörin bestu leikmenn íslands-
mótsins í körfuknattleik en útnefn-
ing þeirra fór fram í lokahófi körfu-
knattleiksmanna á Hótel Sögu í
gærkvöldi. Leikmenn, þjálfarar og
forráðamenn félaganna í úrvals-
deild karla og 1. deild kvenna stóðu
að vanda að kjörinu.
Brenton Brimingham, UMFG, og
Ebony Dickinson, KFI, voru út-
nefnd bestu erlendu leikmenn nýlið-
ins Islandsmóts.
í hófinu var einnig upplýst að
besti nýliði ársins í karlaflokki væri
Ægir Hrafn Jónsson, ÍA, og Birna
Eiríksdóttir, UMFT, í kvennaflokki.
Einnig var upplýst hverjir höfðu
orðið fyrir valinu í fimm manna úr-
valslið úrvalsdeildar kai-la og
kvenna. Karlaliðið er skipað Teiti
Örlygssyni, UMFA, Ólafi Orms-
syni, KR, Svavari Birgissyni,
UMFT, Fannari Ólafssyni, Kefla-
vík, og _ Friðriki Stefánssyni,
UMFN. I kvennaliðinu era Erla
Þorsteinsdóttir, Keflavík, Alda Leif
Jónsdóttir, ÍS, Hanna Kjartans-
dóttir, KR, Sólveig Gunnlaugsdótt-
ir, UMFG, Guðbjörg Norðfjörð,
KR.
Þjálfari ársins í efstu deild karla
er Valur Ingimundarson, þjálfari
Tindastóls, en Ósvaldur Knudsen,
þjálfari ÍS, var valinn þjálfari ársins
í 1. deildkvenna.
Leifur Garðarsson, Haukum, var
valinn besti dómari úrvalsdeildar
karla.
Sigbjöm
samdi
við ÍBV
w jt
any
SIGBJÖRN Óskarsson,
þjálfari fslandsmeistara
kvennaliðs ÍBV, hefur end-
urnýjað samning sinn til
eins árs við félagið. Sig-
björn, sem tók við liðinu
fjrrir keppni í haust, stýrði
því til fyrsta Islandsmeist-
aratitils á vordögum. Þá
hefur IBV samið að nýju
við Lukrecija Bokan og
Amela Hegic, en þær léku
stórt hlutverk með ÍBV á
liðnu tímabili. Ekki hefur
verið gengið frá samning-
um við Mette Einarsen og
Anitu Andreasson, sem
báðar eru frá Noregi. Fé-
lagið er að Ieita hófana að
nýjum erlendum leikmönn-
um fyrir næsta tímabil.
Helgi Jón-
as og félag
ar í úrslit
Helgi Jónas Guðfinnsson, sem
leikur með belgíska körfu-
knattleiksliðinu Antwerpen, komst
í úrslit með félagi sínu um belg-
íska meistaratitilinn er það vann
Aalst 98:75 öðru sinni í undan-
úrslitum. Helgi Jónas lék lítið með
vegna veikinda. Hann gerði sjö
stig í fyrri leik liðanna. Antwerpen
mætir annaðhvort Orange Oost-
ende eða Spirou Charleroi. Ant-
werpen hefur gengið allt í haginn í
vetur og vann bikarmeistaratitil-
inn fyrir skömmu. Helgi Jónas
sagði að félagið hefði stefnt á að
vinna meistaratitilinn í haust og að
liðið væri því á réttri braut. „Liðin
í úrslitakeppninni eru jöfn að getu
og því mikilvægt að komast áfram
eftir tvo leiki,“ sagði Helgi, sem
hefur lítið leikið með félaginu í úr-
slitakeppninni, vegna veikinda og
meiðsla. Hann kvaðst gera sér
vonir um að ná sér fyllilega fyrir
úrslitaleikina. Helgi hefur ákveðið
að söðla um og leika með Ieper
næsta vetur. Hann gerði tveggja
ára samning við félagið og fylgdi
sex öðrum leikmönnum liðsins og
þjálfara Antwerpen til Ieper.
GLÆSILEGUR ÁRANGUR MANCHESTER UNITED/B2, B3