Morgunblaðið - 06.05.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.05.2000, Blaðsíða 4
Petr Baumruk pússaði rykið af „fallbyssunni" þegar mest á reyndi Eitt ár í viðbót PETR Baumruk, leikmaður íslandsmeistara Hauka, var besti leik- maður nýliðins íslandsmóts í handknattleik að mati íþróttaf rétta- manna Morgunblaðsins. Það var ekki síst í úrslitarimmunni gegn Fram um íslandsmeistaratitilinn sem Baumruk sýndi hvers hann er megnugur. í fjarveru Óskars Ármannssonar tók Baumruk af skarið og vilja margir meina að frammistaða hans hafi vegið þyngst á metunum að Haukarnir unnu langþráðan íslandsmeist- aratitil. Baumruk, sem var eins og klettur í vörninni hjá Haukum á keppnistímabilinu, tók fram „fallbyssuna" og sýndi að hann hafði engu gleymt í skothæfni. Guðmundur Hilmarsson skrifar Eg lít á þessa útnefningu sem mikla viðurkenningu fyrir mig og ekki síst fyrir Hauka. I mínum huga eiga Hauka- menn, bæði leik- menn, stjóm og stuðningsmenn liðs- ins, sem eru frábær- ir, þátt í þessum Islandsmeistaratitli og um leið þessari viðurkenningu," sagði Baumruk þegar hann tók á móti bikar að gjöf frá Morgunblað- inu. Fáir Haukamenn fögnuðu meira en Baumruk þegar íslandsmeistara- titillinn var í höfn enda hafði kappinn stefnt að þessu allar götur frá því hann gekk í raðir Hauka fyrir 10 ár- ' um. A þessum áratug hefur Baum- rauk leikið gríðarlega stórt hlutverk í Haukaliðinu og verið kjölfestan í leik liðsins. Af mörgum erlendum leikmönnum sem hafa í gegnum tíð- ina leikið með íslenskum félagsliðum er Baumruk án efa einn sá besti. Frábær samstaða og sterk liðsheild „Þetta var frábær stund þegar við unnum titilinn og að þessu hafði ég stefnt. Ég vissi að þetta gæti orðið síðasti möguleiki minn á að verða meistari með Haukum. Það var stór stund þegar við urðum deildarmeist- arar áríð 1994 og bikarmeistarar 1997 en auðvitað jafnast ekkert á við að vinna íslandsmeistaratitilinn. Þegar tímabilið hófst var ég ekkert að hugsa um neina titla og byrjunin hjá okkur gaf kannski ekkert tilefni til þess. Þegar liðið small svo loks saman sá ég alveg fyrir að við gætum náð langt en við pössuðum okkur á að taka eitt skref í einu.“ Hvað gerði útslagið að Haukar urðu íslandsmeistarar? „Það er mjög erfitt að segja. Fyrst og fremst held ég að gríðarlega góð- ur liðsandi og samstaða í liðinu hafi gert það af verkum að við fórum alla leið. Sum lið eru með afburðaeinsta- klinga í sínum röðum en hjá okkur unnust leikirnir á hðsheildinni. Guð- mundur þjálfari náði upp góðri sam- • stöðu í liðinu, mórallinn var góður og menn voru tilbúnir að fórna sér í leikina. Eftir því sem fór að ganga betur eftir áramótin jókst sjálf- straustið hjá mönnum og það hefur að sjálfsögðu mjög mikið að segja. Ég verð líka að segja að við Haukar eigum frábæra stuðningsmenn sem mæta ekki bara á heimaleikina held- ur fjölmenntu þeir á útileikina og veittu okkur öflugan stuðning. Við leikmennimir eigum þessum stuðn- ingsmönnum mikið að þakka.“ Hungraður í að vinna titilinn Þegar Óskar meiddist tókst þú heldur betur af skarið í sókninni. Margir vilja halda því fram að þú hafir átt stærstan þátt í að Haukar urðu meistarar? „Það vinnur ekkert lið svona mót á einum manni. Við þurftum að bregð- ast við því þegar Oskar meiddist og það kom í minn hlut að leika stærra hlutverk í sókninni. Ég notaði tím- ann sem gafst til að æfa skotin enda vissi ég að Frammaramir myndu leggja meiri áherslu á að stöðva Halldór og Kjetil. Fyrir vikið losnaði meira um mig. Þá held ég að það hafí hjálpað mér að ég var mjög hungrað- ur í að vinna titilinn." Baumruk fluttist ásamt fjölskyldu sinni til íslands frá Tékklandi árið 1990. Hugmyndin var sú að dvelja hér í nokkur ár en fjölskyldunni hef- ur líkað lífið vel hér á landi og hefur sest hér að. Fyrir fjómm ámm fékk fölskyldan íslenskt ríkisfang. Baum- mk og eigkona hans, Jarka Baum- mk, eiga þrjú börn, Petm 14 ára, Katarinu sem er 12 ára og Hauk, 6 ára, sem er skírður í höfuðið á Hauk- um. Fjölskyldan hefur einnig tékkn- esk vegabréf og það kemur í veg fyr- ir að íslenska landsliðið í hand- knattleik geti notað krafta Baum- mks. En hver var kveikjan af því að hann kom til Islands til að spila með Huukum? „Ég lék með tékkneska landslið- inu í Laugardalshöllinni árið 1988 og eftir þá leiki settu Haukarnir sig í samband við mig. Mér leist ekkert allt of vel á að flytja til íslands en Haukamir gáfust ekki upp. Þeir héldu áfram að hringja í mig og tveimur ámm síðar kom Viggó Sig- urðsson, sem þá þjálfaði Hauka, ásamt stjórnarmönnum út til Prag og gengu frá samningi við mig. Mér finnst hafa orðið miklar framfarir í íslenskum handbolta frá því ég byrj- aði að spila hér á landi og ég held að framtíðin sé bara björt. Það era margir ungir strákar að koma upp og félögin verða að passa sig á því að gefa þeim tækifæri," segir Baumrak. Evrópumeistari og íþróttamaður ársins Baumrak hefur verið hollur sínum félögum en á löngum og glæsilegum Morgunblaðið/Jim Smart Petr Baumruk og Norðmaðurinn Kjetil Ellertsson fagna meist- aratítli Hauka. ferli hefur hann einungis spilað með tveimur liðum, Dukla Prag og Hauk- um. Með Dukla Prag vann Baumrak allt sem hægt er að vinna. Hann varð 8 sinnum tékkneskur meistari, 8 sinnum bikarmeistari og árið 1984 varð hann Evrópumeistari með lið- inu þegar Dukla Prag vann júgó- slavneska liðið Metaloplastica í úr- slitaleik þar sem úrslitin réðust í vítakeppni. Baumrak lék um árabil með tékkneska landsliðinu og var lykilmaður þess í mörg ár. Hann fékk margar viðurkenningar fyrir frammistöðu sína en hæst bar þegar hann var kjörinn íþróttamaður árs- ins í Tékklandi árið 1986 og hand- knattleiksmaður ársins árið 1988. Nú verður þú 38 ára gamall ísum- ar. Hvernig ferð þú að því að halda þér í svona góðu formi, kominn á þennan aldur? „Lykillinn að því er að æfa vel og mikið og það hef ég reynt að gera all- an feril minn. Ég lyfti lóðum reglu- lega allt árið og yfir sumartímann hef ég haldið mér í formi með því að spila tennis og þá hef ég alltaf æft í einn mánuð með Dukla Prag þegar ég hef verið þar í heimsókn. Ég neita því ekki að leikirnir gegn Fram tóku mikinn toll enda spilaði ég mjög mik- ið í þessum leikjum. Ég hef alltaf reynt að leggja mig hundrað prósent fram bæði í æfingum og leikjum." Ætlar þú að vera með á næsta tímabili? „Já ég ætla að taka eitt ár til við- bótar. Það er mikið að gerast hjá Haukum á næstunni. Félagið er að fá nýtt og glæsilegt íþróttahús og auð- vitað verður maður spila í því. Þá er mjög gaman að Viggó skuli vera að koma aftur og þjálfa liðið en hann var fyrsti þjálfarinn sem ég var hjá þegar ég kom til Hauka. Ég hef ékk- ert hugsað lengur fram í tímann. Einhvem tímann kemur að því að við flytjum aftur til Tékklands en hve- nær það verður er ómögulegt að segja. Þeir hjá Dukla Prag hafa oftar en einu sinni boðið mér að þjálfa og hver veit nema að komi að því ein- hvern tímann.Við hjónin og börnin eram ákaflega ánægð að búa á ís- landi. Það tók eðilega sinn tíma að komast inn í hlutina hér á landi, læra tungumálið og lifa með veðrinu hérna en í dag erum við mjög sátt,“ sagði Baumrak að lokum. Vinnur Ingibergur fimmta árið í röð? ÍSLANDSGLÍMAN, keppnin um Grettisbeltið, fer fram í dag í íþróttahúsinu í Grafar- vogi og hefst klukkan 14.15. Sex glímumenn eru skráðir til keppni, þar á meðal sigur- vegari keppninnar undan- farin fjögur ár, Ingibergur Sigurðsson, Ungmennafólag- inu Víkverja, UV. Auk Ingi- bergs glíma Arngeir Friðriks- son, HSÞ, Óiafur Kristjánsson, UV, Sigmundur Þorsteinsson, UV, Sigurður Nikuiásson, UV, og Stefán Geirsson, HSK. Ingibergur er glímukóngur undanfarinna fjögurra ára og einnig núverandi skjaldarhafi Ármanns. Hann hefur síðustu misseri í æ ríkari mæli lagt stund á júdó, en mætir eigi að síður ákveðinn til leiks. Aðal- smerki hans eru góð glímulok og tæknileg útfærsla bragð- anna. Ingibergur er að taka þátt í Íslandsglímunni f nfunda sinn. Ekki er ósennilegt að keppnin um Grettisbeltið standi á milli Ingibergs og Arngeirs sem hefur verið á meðal öflugustu glfmumanna landsins undanfarin ár og er á meðal keppenda í Islands- glfmunni í tfunda sinn. Arn- geir er núverandi Landsglím- umeistari og bikarmeistari Glímusambandsins og mun örugglega sækja fast að vinna Grettisbeltið, en það hefur hann aldrei unnið. ■ ÞORVALDUR Þorvaldsson, fyr- irliði handknattleiksliðs KA á sl. vetri, hefur flutt sig yfir í raðir Þórsara. mDARREN Anderton, miðvallar- leikmaður Tottenham, ætlar ekki að gefa kost á sér í landslið Eng- lands sem tekur þátt í Evrópu- keppninni í knattspymu í sumar. ■ ANDERTON hefur verið skipað að taka sér gott hlé í sumar til þess að ná sér af ýmsum meiðslum sem hafa hrjáð hann og plaga hann enn. ■ HERMANN Hreiðarsson og samherjar í Wimbledon fá Aston Villa í heimsókn í dag og þurfa nauðsynlega á sigri að halda svo þeir megi hanga í voninni um áframhaldandi veru í ensku úrvals- deildinni. ■ BAYERN Miinchen og Werder Bremen mætast í úrslitum þýsku bikarkeppninnar í knattspyi-nu í dag, en þetta era sömu liðin og átt- ust við í úrslitum keppninnar í fyrra, þá unnu Brimarbúar, 5:4, í vítaspyrnukeppni eftir að jafnt var, 1:1, að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. ■ BA YERN hefur tíu sinnum unnið þýska bikarinn í knattspymu frá því keppnin var tekin upp árið 1953. Brimarbúar hafa fjóram sinnum staðið í sömu sporum, fyrst 1961. Fjóram árum áður unnu leikmenn Bayem bikarinn fyrsta sinni. ■ OTTMAR Hitzfeld, þjálfari Bayern, hefur aldrei stýrt liði tO sigurs í þýsku bikarkeppninni. Hann hefur lofað að stilla upp sterkasta liði sem mögulegt er til þess að vinna. „Mig langar til þess að vinna bikarinn í fyrsta skipti," segir Hitzfeld. ■ ÞAR með ætlar Hitzfeld ekki að fara að tilmælum Franz Becken- bauers og Uli Höness, en báðir höfðu þeir sagt að félagið ætti ekki að leggja mikla áherslu á bikar- keppnina, heldur setja allan þunga í síðari leikinn við Real Madrid í Meistaradeild Evrópu sem fram fer á Ólympíuleikvanginum í Munchen á þriðjudagskvöldið. ■ OLEG Luzhny, leikmaður Ars- enal, er ekki vinsælasti maður í herbúðum Tottenham um þessar mundir eftir að hann lýsti því opin- berlega yfir að landa hans, Sergei Rebrov, væri hollast að ganga til liðs við stærra og öflugra félag en Tottenham, en Rebrov hefur öðr- um þræði náð samkomulagi við Tottenham um að ganga til liðs við félagið í sumar fyrir um 1.200 millj- ónir króna. ■ „ÞAÐ væri betra fyrir Rebrov að gang til liðs við stærra og öfl- ugra félag. Mín skoðun er sú að hann ætti að koma til Arsenal. Það hefur vakið undrun mína að hann skuli velja Tottenham," segir Luzhny, sem lék með Rebrov hjá Dinamo Kiev. „Ég var samherji hans í átta ár og ég vil honum að- eins það besta,“ bætti Úkraínumað- urinn við. ■ THIERRY Henry, sóknarmaður Arsenal, var valinn leikmaður apr- flmánaðar af styrktaraðilum ensku úrvalsdeildarinnar. Sir Alex Ferguson hreppti hnossið úr hópi knattspymustjóra deildarinnar. ■ TORE Andre Flo er sagður undir smásjánni hjá Rangers þessa dag- ana og félagið sé jafnvel tilbúið að greiða fyrir hann um 1.400 milijónir króna. Það er talsvert lægra verð en Chelsea hefur sett upp. ■ FABIEN Barthez, markvörður Mónakó, hefur útilokað að hann gangi til liðs við Manchester Unit- ed. Segist hann hafa jafnað ágrein- ing sinn við þjálfara Mónakó og vilji þar með standa við samning sinn við félagið, en af honum eru eftir þrjú ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.