Morgunblaðið - 12.05.2000, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Pétur H. Blöndal um frumvarp um afnám skattfríðinda forseta íslands
„80-90% líkur á að þetta
frumvarp verði samþykkt“
FRUMVARP til laga um afnám
lagaákvæða um skattfrelsi forseta
íslands var lagt fram á Alþingi í gær.
Flutningsmenn þess eru Pétur H.
Blöndal, Sjálfstæðisflokki, Ámi
Steinar Jóhannsson, Vinstrihreyf-
ingunni - grænu framboði, Guðjón A.
Kristjánsson, Frjálslynda flokknum,
og Ólafur Örn Haraldsson, Fram-
sóknarílokki.
Forseti Alþingis hefur ákveðið að
setja frumvarpið á dagskrá Aiþingis í
dag og segist Pétur H. Blöndal gera
sér miklar vonir um að frumvarpið
Vinnueftirlitið minnir
sveitarfélög á reglur
um vinnu barna
Bannað að
ráða yngri
en 13 ára
VTNNUEFTIRLIT ríkisins hefur
sent bréf til allra sveitarfélaga á
landinu þar sem vakin er athygli á
því að þeim er óheimilt lögum sam-
kvæmt að ráða börn yngri en 13 ára
til vinnu í vinnuskólum sínum. Að
sögn Sigþrúðar Þorflnnsdóttur, lög-
fræðings hjá vinnueftirlitinu, er til-
efni bréfsins að spurnir hafa borist
af því að víða, einkum úti á landi, sé
börnum á þrettánda ári boðin vinna í
vinnuskólunum sveitarfélaganna. I
bréfi vinnueftirlitsins kemur fram að
engin lagaheimild er til að miða við
fæðingarár bama í stað fæðingar-
dags við ráðningu í vinnu.
Reglurnar skipta
árganginum upp
Reglumar hafa í raun þá þýðingu
að ráða má hluta þess árgangs sem
lýkur 7. bekk hverju sinni til starfa í
vinnuskólunum, þ.e. þá sem orðnir
em þrettán ára, en hina má ekki
ráða.
Sigþrúður segir að fulltrúar nokk-
urra sveitarfélaga hafi haft samband
við vinnueftirlitið til að fá nánari út-
skýringar á reglunum sem gilda um
vinnu bama. Hún segist hafa heyrt á
fulltrúum þeirra sveitarfélaga sem
samband hafi haft að þeim sé illa við
að skipta árganginum upp og ætli því
að falla frá því að ráða böm úr hópn-
um í vinnu og bjóða jafnvel upp á ein-
hvers konar tómstundastarf í stað-
inn.
verði að lögum. „Ég held að það séu
80-90% líkur á að þetta fmmvarp
verði samþykkt," sagði hann.
Að sögn Péturs fékkst enginn
þingmaður Samfylkingarinnar til að
að vera meðal flutningsmanna
fmmvarpsins. „Mörgum þeirra var
boðið að vera með en þeir vildu það
ekki,“ sagði Pétur.
í greinargerð frumvarpsins segir
að á undanförnum ámm hafi oftsinn-
is kviknað umræða í þjóðfélaginu um
að óeðlilegt sé að forseti lýðveldisins
sé undanþeginn greiðslu skatta og
FRÉTTAVEFUR Morgunblaðsins,
mbl.is, opnar í dag vef helgaðan
Landssímadeildinni í knattspymu.
Á vefnum er að finna upplýsingar
um liðin sem keppa um Islan-
dsmeistaratitilinn íknattspymu og
leikmenn þeirra. Upplýsingar
verða færðar inn jafnharðan og
leikir fara fram og því ævinlega
hægt að sjá stöðu liða hverju sinni
og markaskor. Þá er hægt að kalla
fram ýmsar tölfræðilegar upp-
lýsingar, s.s. fjölda marka leik-
manna og liða, spjöld o.s.frv.
opinberra gjalda. f síðustu forseta-
kostningum hafi einnig allir forseta-
frambjóðendur lýst þvi yfir í sjón-
varpsumræðum að þeir væm
hlynntir því að skattfrelsi forseta og
maka hans yrði afnumið.
Heppilegnr tími nú
Pétur sagði að ástæða þess að
frumvarpið væri lagt fram nú væri sú
að nú væri heppilegur tími til að af-
nema skattfríðindin þar sem kjör-
tímabili forseta væri að ljúka. Skv.
lögum er óheimilt að breyta launa-
Gestum vefjarins er boðið að
skjóta á úrslit leikja, en þeir geta
spáð um úrslitin í hverri umferð.
GSM-sími frá Landssímanum er í
boði í hverri umferð fyrir þá sem
spá rétt um flesta leiki umferðar-
innar.
Einnig geta gestir svarað spum-
ingum um ýmis atriði sem ber á
góma.
í tilefni af opnun vefjarins bregð-
ur mbi.is á leik með íslandsmeistur-
um síðasta árs, KR, en með því að
svara léttum spumingum um liðið
kjörum forseta á kjörtímabili hans.
Pétur sagði að sumir hefðu gagn-
rýnt það hvað frumvarpið kæmi seint
fram og því gæfist ekki mikill tími til
að ræða efni þess. Hann sagðist ekki
telja mikla þörf á löngum umræðum
um frumvarpið því málið væri í sjálfu
sér mjög einfalt og varðaði það hvort
forsetinn ætti að greiða skatta eins
og aðrir borgarar landsins eða ekki.
„Ég hef engan heyrt, að einum eða
tveimur undanskildum, mæla með
því að forsetinn sé skattfrjáls," sagði
Pétur.
geta heppnir unnið nýju KR-
búningana og eintök af KR-
disknum sem kemur út í næstu viku.
Líkt og síðustu sumur verður
fylgst með öllum leikjum og lýsing-
ar á þeim settar inn jafnharðan og
tilefni gefst, auk þess sem beinar
útsendingar verða frá leikjum eftir
því sem verkast vill.
Slóðin að nýja vefnum er
www.mbl.is/sport/landssimadeild/
en einnig er hægt að nálgast hann
með því að smella á sérstakan
hnapp á forsíðu mbl.is.
Hæstiréttur
Ekki
bætur
vegria 32
hunda
HÆSTIRÉTTUR hefur sýkn-
að Reykjavíkurborg af skaða-
bótakröfum manns, sem rækt-
aði hunda í húsi sínu í
Laugardal, en hundarnir voru
teknir af honum við húsleit lög-
reglu.
Maðurinn hafði fengið und-
anþágu árið 1988 frá banni við
hundahaldi fyrir þrjá hunda í
Reykjavík. Hann ræktaði
hunda á heimili sínu og var yf-
irleitt með fleiri hunda en und-
anþágan náði til, að því er fram
kemur í dómi Hæstaréttar.
Hann sótti þó ekki um sérstakt
starfsleyfi fyrir starfsemina.
Lögregla og heilbrigðiseftir-
lit höfðu oft afskipti af hunda-
haldi mannsins og í júlí 1996
var leyfi hans til hundahalds
fellt niður vegna vanskila á
leyfisgjaldi. Hann sinnti ekki
áskorun um að afhenda hunda
sína hundaeftirlitsmanni. Lög-
regla gerði húsleit hjá honum í
september það ár, til að kanna
hvort hann héldi hunda ólög-
lega. 32 hundar voru á heimil-
inu og voru þeir fjarlægðir.
Maðurinn taldi töku hundanna
ólögmæta og krafðist bóta.
Samkomulag ósannað
Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að maðurinn hefði
ekki sýnt fram á að hundarækt-
un hefði verið atvinnustarfsemi
hans, á þann veg að hún hefði
notið verndar 75. gr. stjórnar-
skrárinnar, enda hefði hann
ekki haft leyfi að lögum til
þeirrar starfsemi. Þá taldi rétt-
urinn ósannað, að gert hefði
verið samkomulag við manninn
þess efnis að hann greiddi ein- j
ungis leyfisgjald af tveimur til
fjórum hundum á ári en hefði
heimild til að halda mun fleiri
hunda vegna hundaræktunar
sinnar. Loks sagði Hæstiréttur
óumdeilt, að leyfi mannsins til
að halda þrjá eða fjóra hunda
hefði verið fallið úr gildi, þegar
lögregla fjarlægði hundana af
heimili hans. Aðgerðir gagn-
vart honum hefðu verið rétt-
mætar og samkvæmt lögum.
Einn hæstaréttardómari af
fimm, Hjörtur Torfason, skilaði
séráliti og sagði m.a. að báðum
aðilum málsins hefði verið
nokkur vorkunn vegna skorts á
reglum eða leiðbeiningum um
hundahald í atvinnuskyni.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Vefur um Landssímadeildina
o
Black Notice
Bók
Cori®
Líkið, sem byijað var að rotna, gaf Dr. Kay Scarpetto
engar visbendingar um dánarorsökina. En sérkennilegt
húðflúr leiddi rannsóknina til höfuðstöðva Interpool og
þaðan gat hún vatið tvær teiðir. Önnur leiðin verndaði
feril hennar - hin tá til sannleikans.
Mögnuð spennusaga eftir Patridu ComwetL
BLACK
NOTICE
Erlendar bækur
daglega
1.080
|kr.
John Crisham-
The Testament
Stephen King-
H«rh In Atfantls
l vnuindssoii
£>J1 1130* Krimjlunm 533 11.30 • H.ifnariifði í>‘j$ 004S
Leiðangur til Græn-
lands bar ekki árangur
LEIÐANGUR fimm björgunar-
sveitarmanna úr Björgunarsveitinni
Súlum á Akureyri til austurstrandar
Grænlands bar ekki árangur, en
freista átti þess að ná upp líki Hol-
lendings sem féll í jökulsprungu í
Gunnbjornsfjalli á föstudag í síðustu
viku.
Ingimar Eydal formaður Björgun-
arsveitarinnar Súlna sagði að vel
hefði gengið að komast á staðinn, í
um 2.000 metra hæð í íjallinu.
Sprungan hefði verið þröng efst, en
þegar sigið var niður í hana kom í
Ijós að hún víkkaði mikið og var hún
heljarstór.
Leiðangursmenn voru með 50
metra línu meðferðis og sigu eins
langt og unnt var ofan í sprunguna.
Talið var að maðurinn væri á 10 til 15
metra dýpi í sprungunni, en sigið var
mun neðar en það.
Fundu skíðastaf
„Þeir fundu einn skíðastaf ofan í
sprungunni, en annað sáu þeir ekki.
Þeir fóru eins langt niður og hægt
var en sáu ekki til botns, sagði Ingi-
mar. Hann sagði að líklegast væri að
maðurinn hefði fallið þessa 10 til 15
metra ofan í sprunguna í fyrstu, en
síðar hefði hann fallið lengra, jafnvel
alla leið niður.
„Það má vera að hægt sé að kom-
ast alla leið niður í sprunguna, en til
þess þarf stórvirk tæki og árangur af
slíkri ferð er heldur ekki tryggur,"
sagði Ingimar.
Fimmmenningamir sem þátt tóku
í leiðangrinum héldu niður af fjallinu
og í aðalbúðir hóps fjallgöngumanna
sem dvalið hafa á Grænlandi við fjall-
göngur síðustu daga. Hollendingur-
inn sem leitað var að var úr þeirn
hópi. Leiðangursmenn tjölduðu við
búðimar í fyrrinótt og var ætlunin að
fljúga með skíðavél Flugfélags ís-
lands til Akureyrar síðdegis í g®r
eða gærkvöld, en vélin var upptekin
við ákveðin verkefni og óvíst hvenær
hægt yrði að leggja af stað heimleið-
is.
Að sögn Ingimars mun trygginga-
félag ferðaskrifstofunnar sem skipu-
lagði ferðina til Grænlands greiða
kostnað við leiðangur Akureyring-
anna.