Morgunblaðið - 12.05.2000, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 73
FÓLKí FRÉTTUM
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Uma Thurman, Gerard Depardieu og Carole Bouquet mættu saman til frumsýningar Vatel í fyrradag.
almennt." í myndinni verður hann
ástfanginn af Onnu de Montausier,
en það rætist aldrei úr sambandinu
vegna þess að hún velur frekar að
halda stöðu sinni innan hirðarinn-
ar. Aðspurð hvernig hún hafí und-
irbúið sig fyrir hlutverkið, svarar
Uma Thurman: „Leikstjórinn
markar yfírleitt stefnuna og fylkir
saman leikhópnum. Ég nálgast
hlutverkið út frá því. Stemmningin
og boðskapur myndarinnar skín í
gegn í handritinu og því var ekki
erfitt fyrir leikhópinn að holdgera
söguna.“
Tíðindalítið
sjálfsmorð
Að sögn Joffés, sem er kunnast-
ur fyrir myndirnar „The Killing
Fields" og „Mission", var ekki lögð
mikil áhersla á að fylgja nákvæm-
lega sögulegum staðreyndum. „Það
skiptir mestu að áhorfendur upplifi
hugsunai’háttinn og lífernið hjá
franska aðlinum á 17. öld og
Jeanne hefur þekkingu og næman
skilning á því.“ Labrune var gagn-
tekin af sögu Vatels þegar hún
rakst fyrir tilviljun á bréf frá lafði
de Sévigné, sem var vel inni í slúð-
ursögunum við hirðina, og skrifaði
dóttur sinni um lítið atvik, sem
raskaði lítillega móttöku í Chant-
illy.
Venjulega vakti það sem fór
fram í eldhúsinu og hjá þjónustu-
liðinu ekki áhuga aðalsins, og
skipti þá engu hvort kokkurinn
fremdi sjálfsmorð, svo lengi sem
matur væri borinn á borð. I bréfí
Sévigné kom fram að konungurinn
hefði orðið að stytta dvöl sína í
húsakynnum prinsins af Condé eft-
ir sjáifsmorðið, vegna þess að þau
voru ekki viðurkennd af kirkjunni.
Því var líki Vatels holað ofan í
jörðina á skammri stundu og að-
stoðarmaður hans, Gourville, sett-
ur yfir eldhúsið. „Við borðuðum
mjög vel,“ var það eina sem Sév-
igné skrifaði um veisluna.
„Mér var mjög brugðið þegar ég
las bréfið,“ segir Labrune. „Eg fór
að kynna mér söguna og velta því
fyrir mér hvað ég hefði undrast
svo mjög. Mér fannst eins og kona
frá 17. öld væri að tala til mín, svo
ég lokaði mig af og skrifaði hand-
ritið á fimm dögum. Ég byggði það
alfarið á innblæstri, þótt ég kynnti
mér söguna síðar, þegar ég endur-
skrifaði handritið, til að gerast
ekki sek um augljósar staðreynda-
villur. Á vissan hátt var sautjánda
öldin leið mín að þeirri tuttugustu,
gagnrýni á samtímann, þar sem
allt snýst um peninga og völd.“
Kynlíf, matur og vín
Joffé tekur undir þetta. „Nú á
dögum finnst mér eins og við höf-
um glutrað niður hæfileikanum til
að skilja eigin orð, eins og sam-
band og ást. Við skiljum aðeins
orðin peningar og völd og ekkert
annað skiptir okkur máli.„ Hold-
gervingur þess er Julian Sands,
sem leikur Lúðvík fjórtánda. „Ég
naut þess að bera hárkolluna,"
segir hann. „Suma daga var ég
með tvær, eina ofan á annarri, auk-^
þess að ganga um á háum hælum,
sem var alveg yndislegt. Búninga-
hönnuðurinn vann mikið og gott
starf og mér fannst frelsandi að
upplifa þetta nýja lífsmynstur, sem
er ekki hluti af mínu hversdagslífi,
- þótt það gæti hæglega orðið það
í framtíðinni."
Uma Thurman segist njóta þess
að heimsækja Cannes. „Héðan á
ég margar af mínum bestu minn-
ingum og þessi hátíð er ein af fáum
sem gerir listrænum metnaði og
mesta glamúr álíka hátt undir
höfði.“ Depardieu tekur jafnvel
enn dýpra í árinni. „Ég elska
Cannes af öllu hjarta. Maður heyr-
ir um að bíómyndir séu að breyt-
ast, ný tækni hafi verið fundin upp
og sér maður að allt er við það
sama, - engu að síður fullt af lífs-
þrótti.“
Sækirðu mikið í lífsnautnir? spyr
ungt sprund frá Norðurlöndum.
„Ertu að bjóða mér í kynlífssvall,"
spyr Depardieu á móti. „Ertu
kannski bara að spyrja mig um
hvað færir mér mesta ánægju?“
bætir hann við. „Ég nýt þess mest
að vera með áhugaverðu fólki sem
veitir mér innblástur og lífsfyll-
ingu. Svo nýt ég kynlífs, víns og
matar, alveg eins og tíðkaðist á^
sautjándu öld.“ Á þessum orðum
vínekrubóndans og leikarans Dep-
ardieus er viðeigandi að setja
punkt aftan við skrifin frá Cannes.
j. er rétti tíminn til
indinn er réttur og
ina í loftinu.
ÍissestæSíS
snuastumímyndfr.“
um allt eru eintómir brjálæðingar á
fylleríi alls staðar í snældugeggjun.
Það er svo margt að í þessu þjóðfé-
lagi sem skiptir máli að sé talað um.
Við erum rokkarar með meiningar,“
segir Bubbi og Mike tekur undir:
„Rokk hefur breytingamátt. Sjáðu
bara kúltúrbyltinguna sem Beat-
kynslóðin stóð fyrir. Hún hafði miklu
meira að segja um niðurrif Berlínar-
múrsins en hundrað gjammandi póli-
tíkusar."
Ætlið þið að semja ný lög með
Magnús: „Það er fullt af góðum
músíköntum í ReykjavfkenM
bara ekki nog. Utangarð^
er
menn gerðu miklu meira en
spila einhverja tónhst.
textum um þessi mál?
„Ég er alveg öruggur á því að við
munum búa til ný lög,“ svarar
Danny. „Það er engin spuming. Við
Morgunblaðið/Porkell
Utangarðsmenn á blaðamanna-
fundi í gær.
byrjum að æfa af fullum krafti í lok
júnímánaðar þegar bassaleikarinn
okkar, Rúnar Erlingsson, kemur
heim frá Danmörku."
Erþörf á Utangarðsmönnum íís-
lenskri tónlistarflóru?
„Nei, nei,“ svarar Bubbi. „Það er
ekkert endilega þörf á okkur. Við er-
um fyrst og fremst að gera þetta fyr-
ir okkur. Bæði af því þetta er
skemmtilegt og af því við munum
hafa góðar tekjur. Ég væri mesti
hræsnari í heimi ef ég neitaði því að
peningar spila inn í. Við erum allir
fjölskyldumenn með börn sem við
þurfum að brauðfæða. Þvi gerum við
þetta auðvitað ekki á sömu for-
sendum og í gamla daga þegar við
vorum aðeins 23 ára, bjuggum í æf-
ingahúsnæðinu og höfðum bai-a um
typpið á okkur að hugsa,“ segir
Bubbi.
Sannleikurinn rokkar
Á undanförnum árum hefur verið
gífurleg gi'óska í íslenskri tónlist og
flestir á einu máli um að sjaldan hafi
verið jafnmikill kraftur í bransanum.
Eru Utangarðsmenn ekki sammála
þessu? Finnst þeim rokkið í Reykja-
vík þurfa á sparki í rassinn að halda?
„Pólitískt eða samfélagsmeðvituð
HARMONIKUBALL
verður í ÁSGARÐI, Glæsíbæ við Álfheima,
á morgun, laugardagskvöldið 13. maí, kl. 22.
Allir velkomnir
bönd eru ekki til á íslandi," segir
Bubbi. „Böndin eru mjög sjálfhverf
og allt snýst um ímyndir. Það eru ör-
fáir einstaklingar sem er að ein-
hverju leyti hægt að flokka undir það
að vera róttækir eða pólitískir. Páll
Óskar hafði til dæmis allt til þess að
bera að geta orðið mjög róttækur
músíkant en hann kaus glys og
ímynd í staðinn, sem er auðvitað
bara hans mál. En ef við skoðum all-
ar þessar hljómsveitir sem eru starf-
andi í dag, þá hafa þær ekkert að
segja. Rétt eins og Bylgjan hefur
ekkert að segja."
Magnús slær á sömu strengi og
segir Bubba vera rétta manninn til
að tala máli fólksins. „Bubbi hefur
mjög sérstakan hátt á að segja frá og
það þarf akkúrat þennan Bubba-hátt
til að syngja ofan á svona harða
rokktónlist," segir Magnús. „Það er
fullt af góðum músíköntum í Reykja-
vík, en það er bara ekki nóg. Utan-
garðsmenn voru að gera miklu meira
en að spila einhverja tónlist. Við
höfðum sérstakan boðskap að bera
fólkinu og höfum enn. Það er fyrst
og fremst þörf á einhverjum sem
þorir að segja sannleikann,“ segir
Magnús.
Utangarðsmenn hafa þó ekkert
við kraftinn í íslenskri rokktónlist
sem slíkri að athuga. Það eru ein-
ungis textarnir sem þeim þykja fá-
tækir að róttækum pælingum. „Það
er fullt af góðum böndum í gangi,“
segir Mike og Bubbi bætir við: „Mín-
us er til dæmis ofsalega kröftug.
Sama má segja um Botnleðju og
Ensími. Ég er sérstaklega hrifinn af
þessum böndum, en hvar heyrast
þau spiluð? Hvergi!"
Ef rokkið rúllar vel hjá ykkur í
sumar, stendurþá til að halda þessu
áfram?
„Það gétur vel verið,“ svarar
Bubbi. „Það getur líka verið að það
líði önnur 20 ár.“ Mike er alltaf jafn
einlægur og bætir við: „Við tökum
þetta bara „spontant“ og fylgjum
hjartanu. Við gerum þetta af enn
meiri krafti en fyrir tuttugu árum og
í þetta sinn án dóps.“
Nú þegar hefur Kristinn Sæ-
mundsson skipulagt fimm tónleika
með Utangarðsmönnum í júlí sem
hluta af hátíðinni „Lágmenningar-
borgin snýr aftur“ sem hann skipu-
leggur. „Ég treysti engum betur en
gömlu köllunum til að hrista upp í
lognmollunni sem ríkir í dag,“ segir
Kristinn. „Þrátt fyrir að allt kraumi
undir niðri þarf að sparka aðeins í
rassinn á okkur og það kunna engir
betur en Utangarðsmenn."
Fyrstu tónleikar Utangarðs-
manna verða haldnir 13. júlí á Hótel
Egilsbúð í Neskaupstað, þeir næstu
verða daginn eftir í Sjallanum á Ak-
ureyri og hinn 20. júlí í Félagsheimil-
inu Hnífsdal. 21. júlí verður rokkað í
Hreðavatnsskála í Norðurárdal og
lýkur túmum með stórtónleikum í
Reykjavík laugardaginn 22. júlí.
Dagskrá hátíðarinnar „Lágmenn-
ingarborgin snýr aftur“ er yfirfull
krassandi atriða og standa viðræður
yfir við íjölda þekktra hljómsveita og
tónlistarmanna.
Nœturgalinn simi 587 6080
Hinir frábœru Ari Jónsson oq
Úifar Siqmarsson leika í kvöld.
Frítt til miðnaettis
wr
Skemmtistaðurinn Bohem
Opið alla daga vikunnar frá kl. 20.
BOHE1M
Grensásveg 7 • Simar; 553 3311 / 896 3662
Erótískur skemmtistaður
Nú einnig opið á mánudagskvöldum.
Enginn aðgangseyrir.