Morgunblaðið - 12.05.2000, Side 2

Morgunblaðið - 12.05.2000, Side 2
2 B FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000 GOLF MORGUNBLAÐIÐ Læra ekki skrifl án þess að hafa blýant „Ætli golfklúbbarnir heima að ná árangri í háum gæðaflokki verður aðstaða til kennslu að vera í lagi. Ef ekki, kemur ekki upp kynslóð með rétta sveiflu - leikurinn verður aldrei annað en hálfkák,“ sagði Arn- 7 ar Már Olafsson, þegar Viggó Sigurðsson sótti hann heim í Haren í Norður-Þýska- landi, þar sem hann er yfírkennari og hefur séð um uppbyggingu á glæsilefflim 18 holu golfvelli. ARNAR Már Ólafsson, sem er ís- lenskum golfunnendum að góðu kunnur, hefur starfað sem at- vinnugolfkennari í Þýskalandi síð- astliðin fjögur ár við góðan orðstír. Hann býr í Haren í Norður-Þýska- landi, við landamæri Hollands, ásamt eiginkonu sinni Helgu Lárus- dóttur og dætrunum Ástrós 7 ára og Sólrúnu 3 ára. Arnar er fyrsti íslendingurinn til að ljúka prófi frá sænska PGA-at- vinnukennaraskólanum - fetaði þar með í fótspor Þorvaldar Ásgeirsson- ar og varð annar íslendinga með golfkennaramenntun. Hvers vegna hélt Arnar Már í vík- ing, þegar mikil uppsveifla hefur verið í golfíþróttinni á íslandi? Var ekki nóg að gera fyrir Arnar Má heima? „Golfíþróttin hefur verið í sókn á íslandi, þannig að margir möguleik- ar voru fyrir hendi, en mig langaði að breyta til og víkka sjóndeildar- hringinn eftir að hafa verið við kennslu heima samfleytt í níu ár,“ sagði Arnar Már, sem er uppalinn í Kópavogi. „Það var hrein tilviljun að ég fór að æfa golf en ekki aðra íþrótt. Eg fékk áhugann þegar ég fór ungur með pabba á Hvaleyrina í Hafnar- firði, þar sem hann lék golf hjá Keili. Þegar ég var svo tólf ára fór ég dag- lega í strætisvagni til Hafnarfjarðar til að æfa og leika mér. Ég man að það vakti mikla athygli þegar ég rog- aðist með golfsettið í strætó - pok- inn var stærri en ég. Ferðin á Hval- eyrina tók á annan tíma. Já, það má segja að h'f mitt hafi fijótlega snúist um golf - ekkert annað en golf. Ég var allan daginn - langt fram á kvöld úti á velli við golfiðkun. Ég missti oft af síðasta strætisvagninum heim, þannig að ég varð að sníkja far. Oft þurfti klókindi til að koma sér heim.“ Mikil þörf fyrir golf kennara „Það er svo árið 1987, þegar Þor- valdur Ásgeirsson, sem þá var golf- kennari hjá Keili, lést, að ég tók að mér að leiðbeinenda byrjendum. En ekki leið á löngu þar til ég var bókað- ur allan daginn langt fram á kvöld - svo mikil var eftirspumin. Þá var mikil þörf fyrir starfandi kennara hjá golfklúbbunum og er enn. Ég var ekki ánægður með þessa þróun - að vera að kenna golf allan liðlangan daginn, án þess að hafa ekki réttindi til þess. Ég ákvað í kjölfarið að sækja um að komast að hjá sænska golfkennaraskólanum. Það var árið 1989 og það má með sanni segja að ég hafi haft heppnina með mér, ég komst strax inn í skól- ann,“ sagði Arnar Már, sem hélt áfram að kenna á fullum krafti hjá Keili, auk þess að vinna hjá golf- klúbbi Flugleiða. „Það starf létti mér verulega kostnað vegna flug- ferða til Svíþjóðar, sem auðvitað voru tíðar. Þá var ég líka í starfi framkvæmdastjóra hjá Bandalagi ís- lenskra sérskólanema." Amar Már segir að þegar hann hóf nám í PGA-skólanum í Svíþjóð var skólinn aðeins 5 ára gamall. „Það má kannski segja að ég hafi rutt brautina fyrir aðra sem á eftir hafa komið, eins og Sigurð Pétursson og fleiri. Það var ánægjuleg þróun sem þá fór af stað - að Islendingar með full réttindi fóru að leysa útlending: ana af hólmi við kennslu heima. í dag eru starfandi allt að tíu íslenskir golfkennarar í nær fullu starfi, sem sýnir okkur hvað uppsveiflan í golfi heima er hröð. Nú eru jafnvel uppi hugmyndir um að setja á stofn íslenskan golf- skóla - með sama fyrirkomulagi og sænski skólinn," sagði Amar Már. Aðstæður slæmar á íslandi Hann sagðist aldrei hafa verið fullkomlega ánægður heima - segir allar aðstæður yfirleitt mjög slakar, og sums staðar fyrir neðan allar hell- ur. „Erfitt var að vinna við golf- kennsluna í fullu starfi, vegna veðurs og ytri aðstæðna. Á sumrin var mað- ur að vinna við golfkennslu allt að fjórtán tíma á sólarhring, en síðan datt kennslan niður yfir vetrar- tímann vegna aðstöðuleysis. Það er ótrúlegt í allri þeirri þróun sem orðið hefur á golfinu - að að- staða kennaranna við klúbbanna hefur hreinlega gleymst. Aðstæður þeirra eru óviðunandi, og hreinlega fjandsamlegar. Ég var alltaf ánægð- ur hjá Keili, en fyrst í stað kenndi ég á fyrstu braut og þegar kylfingar í leik léku á vellinum urðu þeir að leita að boltunum sínum innan um alla æf- ingaboltana. Það voru að sjálfsögðu skrautlegar kringumstæður fyrir kennarann og ekki síst kylfingana. Ég þurfti svo að handtína alla bolt- ana að æfingu lokinni, eitthvað sem enginn léti bjóða sér í dag. Þá voru engar vélar til, sem hirtu boltana upp.“ Bjó til orðaforða á þýsku - með áttatíu orðum Arnar Már sagði að fyrir fjórum árum, 1996, hafi hann ákveðið að halda út - bæði til að geta sinnt kennslunni í fullu starfi og þróað sig sem golfleikara. „Ég komst í samband við John Prior sem er kennari í Bruchsal í Þýskalandi. Hann vantaði aðstoðar- mann, svo ég hugsaði mig ekki tvisv- ar um - sló til og fór út alfarinn til Bruchsal, sem er geysilega fallegur staður og völlurinn frábær. Þá er öll aðstaða þar til kennslu frábær. Það varð strax mikið að gera - mikill áhugi og fullbókað í alla tíma. Ég var alveg mállaus á þýsku, en tók þá ákvörðun strax að kenna á þýskunni samt sem áður. Ég fékk til liðs við mig Ríkharð Pálsson, tann- lækni, sem þarna var og talar málið. Ég tók hann í nokkra tíma og lét hann snara öllum helstu áherslum yfir á þýsku. Þegar ég taldi mig svo vera búinn að ná þessu helsta, bjó ég til orðaforða með áttatíu orðum. Þá tók ég Ríkharð aftur í tíma og kenndi honum svo á orðaforða mín- um í þýskunni - stakk mér svo í íska- ldan sjóinn. Mér var í raun ótrúlega vel tekið hér í Þýskalandi. Fólkið afar hlýlegt og ánægt að ég skyldi kenna á þýsku - þó svo ég kynni ekkert í málinu. Ég eignaðist góðan vinahóp, en fann samt sem áður að þetta var ekki al- veg það sem var í huga mínum þegar ég ákvað að gersta atvinnugolfkenn- ari. Ég vildi hafa meira að segja í starfinu og utan þess vildi ég vera höfuðpaurinn á staðnum." Draumastarfið í Haren „Þegar ég sá auglýsta lausa stöðu aðalkennara í Haren, Gut Duneburg, ákvað ég að sækja um hana. Það voru miklar áætlanir í gangi í Haren um uppbyggingu nýs vallar og nýs golfklúbbs, en ekkert enn farið í gang. Þó, öfugt við hlutina heima, KRR Reykjavíkurmót mfl. karla Gervigrasvöllur Laugardal ÚRSLIT FYLKIR - VALUR föstudaginn 12. maí kl. 20 Aðgangseyrir kr. 500 fyrir 16 ára og eldri Ókeypis fyrir 15 ára og yngri Völlurinn í Haren, Gut Duneburg, er sk •- mm Peter von Oeynl Amar Már Ólafsson ásamt eiginkonu sinni Helgu Lámsdóttur og dætrunum Ástrós 7 ára og Sólrúnu 3 ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.