Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 2
2 B FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Eru sæti Wupp
ertal og Dorm-
agen tryggð?
Forráðamenn þýska handknatt-
leiksliðsins Gummersbach eru
afar ósáttir við afgreiðslu þá sem
þeir fengu hjá eftirlitsnefnd þýska
handknattleikssambandsins, að liði
fengi ekki starfsleyfi á næsta keppn-
istímabili. Forráðamennirnir full-
yrða að öll gögn séu í lagi og þeir
muni áfrýja úrskurði nefndarinnar.
Blöð í Wuppertal segja að þar með
sé sæti Wuppertal í 1. deild tryggt og
að Willstatt muni spila annaðhvort
við Göppingen eða Hildesheim um
tilverurétt í deildinni. Wuppertal er
með þannig samning við leikmenn-
ina Houlet og Chopkow hjá Gumm-
ersbach, að ef liðið fær ekki leyfi
munu leikmennirnir ganga til liðs við
Wuppertal. Markvörðurinn Stank-
owiz er einnig undir smásjá Wupper-
tal. Innan tveggja vikna þarf Gumm-
ersbach að vera búið að senda ný
gögn en eftirlitsnefndin hefur sagt,
að Willstatt muni fara í þessa auka-
leiki og ljóst að tíminn er að renna út
fyrir Gummersbach því aðeins einn
leikur er eftir í deildinni á sunnudag
- og verði ekki kominn önnur til-
kynning frá eftirlitsnefndinni fara
væntanlega leikmenn Wuppertal og
Dormagen, hvort liðið sem verður
þriðja neðst, í sumarfrí. Þá verður
erfitt að koma nýjum leikjum á,
bjargi Gummersbach sér enn einu
sinni fyrir hom.
Þess má geta að þegar ein umferð
er eftir í 1. deild er Dormagen með
eins stigs forskot á Wuppertal, sem
er í næst neðsta sæti. Wuppertal á
útileik gegn Schutterwals, sem er
fallið, en Dormagen leikur heima
gegn Nettelstedt.
Vormót
Hafnarfj arðar
í Golfi
Fyrsta opna golfmót sumarsins hjá Golfklúbbnum Keib
verður haldið laugardaginn 20 maí nk.
Keppt verður i tveimur flokkum, meistarfiokki karla og kvenna
og í opnum flokki karla og kvenna.
í meistaraflokki er leikinn höggleikur,
en f opnum flokki punktakeppni.
Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sætið f meistaraflokki
og 1. 2. 3. 4. og 5. sætið f opnum fiokki.
Hámarksgefín forgjöf 18 punktar.
Nándarverðlaun á 6. og 16. braut. • Tvenn verðlaun verða dregin úr skorkortum í mótslok
Ræst verður út frá kl. 8.00 • Keppnisgjald: 2500 kr.
ISkráning er í golfskála í síma 565 3360
*
HAFNARFJÖRÐUR
Morgunblaðið/Porkell
Sinisa Kekic, Grindavík, sækir að marki Stjörnunnar í fyrsta leik efstu deildar - Rúnar Páll Sig-
mundsson er til varnar en að baki Kekic eru Ásgeir G. Ásgeirsson og Ragnar Árnason.
KR-ingar hefja vöm
sína í Laugardalnum
KR-INGAR hefja titilvörn sína á íslandsmeistaratitlinum á Laug-
ardalsvellinum í kvöld er þeir sækja Fram heim. Það var einmitt í
Laugardalnum sem þeir gulltryggðu hinn langþráða meistaratitil
sinn í fyrra - í leik gegn Víkingi.
Meistaramir leika tvo leiki í röð á
Laugardalsvellinum þar sem
þeir leika heimaleik sinn gegn Kefla-
vík á vellinum á sunnudaginn. Þrír
aðrir leikir í efstu deild fara fram í
kvöld. Bjarni Jóhannsson fer með
lærisveina sina hjá Fylki á kunnug-
legar slóðir - til Eyja, þar sem hann
þjálfaði ÍBV sl. þrjú ár. Skagamenn
BYRJjlR
I KVOLD
KR-ingar hita upp
fyrir leikinn í kvöld
á Eiðistorgi
milli kl. 17 og 19.30
Sértilboð
jl Rauða
' Ljónsins
v - í mat og
drykk
KR-klúbburinn skráir
nýja félaga og afhendir
gögn til félagsmanna
Strætóferðir báðar leiðir
KR-INGAR! MUNH) AÐ TAKA
MED YKKURFÁNANA
taka á móti Leiftri og þarf mark-
vörðurinn og þjálfari Ólafsfirðinga,
Jens Martin Knudsen, að glíma við
fyrrverandi samherja sinn Uni Arge.
Annar markvarðahrellir mætir
Fram - KR
Laugardalsvöllur, 1. umferð,
fimmtudaginn 18. maí kl. 20.
Dómari: Egill Már Markússon.
Aðstoðardómarar: Einar Guð-
mundsson og Haukur Ingi Jónsson.
Fram: Allir klárir, að sögn Guð-
mundar Torfasonar, þjálfara.
KR: David Winnie og Þórhallur
Örn Hinriksson í leikbanni. Arnar
Jón Sigurgeirsson meiddur.
Fyrri leikir: Frá því félögin mætt-
ust í fyrsta leik íslandsmótsins 1912
hafa þau leikið 121 leik. KR hefur
unnið 55, Fram 37, en 29 hafa endað
með jafntefli. KR hefur skorað 246
mörk, Fram 189.
■ KR hefur unnið 9 af síðustu 11
leikjum liðanna í efstu deild og 2 hafa
endað með jafntefli. Fram vann KR
síðast árið 1993,4:1 á KR-vellinum.
■ KR hefur unnið fimm af síðustu
sex leikjum liðanna á Laugardals-
vellinum, síðast 2:0 í fyrra með
mörkum Arnars Jóns Sigurgeirsson-
ar og Guðmundar Benediktssonar.
■ Fram vann hinsvegar KR fimm
sinnum í röð á Laugardalsvellinum á
árunum 1988 til 1992.
■ KR og Fram skildu jöfn, 1:1, í
fyrsta leik íslandsmótsins árið 1912.
KR vann síðan hreinan úrslitaleik
liðanna um titilinn, 3:2.
fyrrverandi samherjum. Kjartan
Einarsson hjá Breiðabliki sækir
sveitunga sína í Keflavík heim.
Hér fyrir neðan eru nánari upp-
lýsingar um leiki kvöldsins.
Akranesvöllur, 1. umferð, fimmtu-
daginn 18. maí kl. 20.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðs-
son, Sigurður Þór Þórsson.
fA: Alexander Högnason í banni.
Leiftur: Ingi Hrannar Magnússon
meiddur.
Fyrri leikir: Af 12 viðureignum
liðanna í efstu deild hefur í A unnið 5,
Leiftur 2, en 5 hafa endað með jafn-
tefli. ÍA hefur skorað 19 mörk en
Leiftur 9.
■ Leiftur hefur aldrei sigrað í 6
leikjum á Akranesi og ekki skorað
mark þar í 360 leikmínútur síðan
1995, þegar tvö mörk á lokamínútun-
um tryggðu Ólafsfirðingum 2:2 jafn-
tefli. Þrír leikir liðanna þar frá þeim
tíma hafa endað 0:0 og ÍA vann 1:0
árið 1998.
■ Leiftur hefur aðeins náð að
skora tvö mörk í síðustu sex viður-
eignum liðanna.
■ Uni Arge leikur sinn fyrsta
deildaleik með ÍA og spilar í fyrsta
skipti gegn sínum gömlu félögum í
Leiftri sem hann lék með 1997 og
1998.
■ Uni er markahæsti leikmaður
Leifturs í efstu deild með 13 mörk
ásamt þremur öðrum.
■ Utlit er fyrir að 5 Færeyingar
spili á Akranesi, fjórir með Leiftri,
og þeir hafa aldrei verið fleiri í leik
íslenskra liða.
AÐSTOÐARÞJALFARI
— KNATTSPYRNA
Knattspyrnudeild Breiðabliks vantar aðstoðarþjálfara fyrir 4. og 5.
flokk karla, sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes Sveinbjörnsson,
símar 564 1077 eða 892 4919.