Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 4
 Sigurinn tileinkað ur öllum TVrkjum GALATASARAY braut í gær- kvöldi blað í tyrkneskri knatt- spyrnusögu þegar það varð fyrst tyrkneskra liða til þess að vinna Evrópukeppni í knatt- spyrnu. Leikmenn Galatasaray vann Arsenal, 4:1, í vítaspyrn- ukeppni í leik á Parken í Kaup- mannahöfn, en markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Breytti engu þótt leikmenn Arsenal væri einum • fleiri á leikvellinum í 27 mínútur í f ramlengingunni eftir að Gheorghe Hagi var rekinn af leikvelli fyrir að ganga of hart fram í einvígi við Tony Adams. Þetta var um leið síðasti leikur þessa rúmenska knattspyrnu- manns, sem ákvað fyrir nokkru að draga saman seglin í iok leik- tíðar. Gleði Tyrkja var fölskvalaus í leikslok, bæði utan vallar sem innan dönsuðu menn og fögnuðu sem 'rog á götum Istanbúl og fleiri borga í landinu. Leikmenn liðsins fengu að launum um 11 milljónir hver í sigur- laun sem þeim var heitið af tyrk- neska knattspyrnusambandinu, fé- laginu og styrktaraðilum þess, en þessir aðilar slógu saman og hétu á liðsmenn tækist þeim að leggja Ar- senal að velli og brjóta blað í sögu tyrkneskrar knattspyrnu. Þetta var í annað sinn sem Arsen- al tapar úrslitaleik í Evrópukeppni í vítspyrnukeppni, en árið 1980 tapaði liðið fyrir Valencia, 5:4, í vítaspymu- keppni í úrslitaleik í Brussel Evróp- ukeppni bikarhafa. Þá var það fyrir- liði Arsenal, Graham Rix, sem brást bogalistin. Að þessu sinni voru það ' Davor Suker og Patrick Viera sem tókst ekki að skora úr spyrnum sín- um. Suker tók fyrstu spyrnu Arsen- al, skaut í stöng en Viera skot Viera hafnaði í slá en það var þriðja spyma liðsins. Gheorghe Popescu innsiglaði sig- urinn er hann skoraði úr fjórðu spymu tyrkneska liðsins. Þess má geta að Popescu lék eitt sinn með helsta andstæðingi Arsenal í Lund- únum, Tottenham, en þetta er í ann- að sinn sem fyrrverandi leikmaður liðsins skorar sigurmark gegn Ar- senal í úrslitum Evrópukeppni því Nayim, sem eitt sinn lék með Totten- ham gerði sigurmark Real Zaragoza er það lagði Arsenal, 1:0, í úrslitaleik Evrópukeppni bikarkhafa 1995. Arsenal lék betur framan af leik í gær, en þegar á leið komu leikmenn Galatasaray meira og meira við sögu undir stjórn Hagis. Bæði lið fengu nokkur færi, en leikmenn höfðu ekki heppnina með sér. Martin Keown fékk opið færi á vítateig en skaut yfir og Thierry Henry átti hörkuskalla að marki af stuttu færi á 107. mínútu sem Caludio Taffarel varði stór- glæsilega úti við stöng. Tafarel var útnefndur maður leiksins í leikslok. Hinum megin fékk Hagan Sukur besta færið í síðari er hann komst einn inn fyrir vörn Arsenal, en skaut í stöng. Faith Terim, þjálfari Galatasaray sagði að leikslokum að hann tileink- aði öllum Tykjum þennan sigur, ekki bara liði sinu. „Margir landar okkar Fögnuður hjá Helga Jónasi Reuters Gríðarlegur fögnuður braust úr á meðal leikmanna Galatasaray þegar Gheorghe Popescu skoraði úr fjórðu vítaspymu liðsins og innsiglaði þar með sigurinn. hafa átt og eiga um sárt að binda vegna jarðskálftana í fyrra og sigur- inn færir þeim tækifæri til þess að gleðjast og lýsir um leið lífi þeirra. Eg og allir leikmenn liðsins erum í sjöunda himni og gleðjumst, ekki síst yfir því að geta lífgað upp á lífið heima í Tyrklandi, þar veit ég að allir standa að baki okkar, hvaða liði sem þeir annar fylgja dags daglega. Um leið tókst okkur að gefa tyrkneskri knattspyrnu byr undir báða vængi,“ sagði Terim í leikslok. Arsene Wenger, knattspymu- stjóri Arsenal, gagnrýndi í leikslok að hlutkesti réði því ekki hvorum megin vallarins vítaspyrnukeppnin væri haldin, heldur væri það í hönd- um dómarans að ákveða það. Víta- spyrnukeppnin fór fram þeim megin vallarins sem stuðningsmenn Gala- tasaray voru. „Það hafði gríðarlega mikið að segja að vítaspyrnukeppnin var þeim megin vallarins. Báðar víta- spyrnur okkar sem fóru í súginn hittu markstangirnar, það sýnir hversu litlu getur munað og einnig að bestu mönnum getur brugðist bogalistin." „ÞAÐ er allt öðruvísi að verða meistari hér í Beigíu en heima á íslandi, en sælutilfinningin sem fylgir titli er samt til staðar,“ sagði Helgi Jónas Guðfinnsson í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann varð í fyrrakvöld Belgíu- meistari með Antwerpen er liðið vann Oostende 63:61 í fjórða leik liðanna og sigraði þar með 3:1. „Það var mikill fógnuður hér þegar við tryggðum okkur sigur- inn enda hefur liðið komist í úrslit síðustutvö ár en ekki náð að sigra. Ég gæti trúað að það hafi verið um þrjú þúsund áhorfendur á leiknum og það var fagnað langt fram eftir nóttu og þetta var rosa- lega gaman. Þetta er samt ekki eins og að verða meistari heima enda ber maður ekki sömu tilfinn- ingar til þessa félags og Grinda- víkurj“ sagði Helgi Jónas sem varð Islandsmeistari með Grinda- vík 1996. „Heima er maður áhugamaður og í vinnu með en hér í atvinnu- mennskunni verður gleðin öðru- vísi. Maður er búinn að puða og púla til að ná þessu marki og það er rosalega gaman að það skuli takast,“ sagði meistarinn sem nú heldur heim á leið en þarf að vera kominn til Belgíu í lok júlí til að hefja æfingar með sínu nýja fé- lagi, Flvatholon Leper, en félagið keypti sjö sterkustu leikmenn Antwerpen á dögunum. Lokeren vill fá Ríkharð BELGISKA liðið Lokeren hefur gert Ríkharði Daða- syni þriggja ára tilboð, sem hann verður að svara á laugardaginn. Samningur Ríkharðs við Viking í Stav- anger rennur út eftir þetta keppnistímabil í Noregi. Norska blaðið Rogalands Avis segir að Ríkharður fái góða peningaupphæð að skrifa undir sainninginn við Lokeren og síðan laun, sem eru miklu betri en hjá Viking. Ríkharður sagði í viðtali við blaðið, að hann myndi ekki svara neinu tilboð fyr- ir leik Vikings við Váler- enga á sunnudaginn. FOLK ■ RÓBERT Sighvatsson, hand- knattleiksmaður hjá Dormagen var valinn í úrvalslið fyrir þýsk handknattleikslið í suðausturhluta landsins, en það mætir úrvalsliði norðvesturhlutans í svokölluðum stjörnuleik sem fram fer í Múnster 26. maí. ■ ÓLAFUR Stefánsson hjá Magdeburg kom til greina í lið norð-vesturhlutans en hlaut ekki nógu mörg atkvæða í vali sem fram fór á Netinu. ■ GRAEME Souness, knattspyrn- ustjóri Blackbum, hefur gengið frá kaupum á norska landsliðsmannin- um Stig Inge Björnebye frá Liver- pool. Hann er 30 ára og hefur leikið 70 landsleiki fyrir Noreg. ■ ÞÁ HEFUR Souness tilkynnt að sóknarleikmaðurinn Nathan Blake og vamarmaðurinn Darren Pea- cock fari frá liðinu. ■ VRATISLAV Lokvenc, landslið- smiðvörður Tékka, sem hefur leik- ið með Sparta Prag, hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Kaiserslautem. ■ PATR Gabríel, vamarleikmaður hjá Sparta, fer einnig til Kaiser- slautern og þá er miðvallarleik- maðurinn Miroslav Baranek á leið til Köln. Allir þessir þrír leikmenn leika með landsliði Tékklands, sem mætir ísiandi í undankeppni HM í haust. ■ GEORGI Nemsadze, fyrirliði landsliðs Georgíu, hefur skrifað undir þriggja ára samning við skoska liðið Dundee. Hann er 28 ára miðvallarspilari, sem hefur leikið 49 landsleiki. ■ MANCHESTER United er að reyna að krækja í franska landsliðsmarkvörðinn Fabien Barthez og er félagið tilbúið að greiða 1,1 milljarð króna fyrir leik- manninn. Forráðamenn United vonast til að geta gengið frá samn- ingi við Barthez íyrir helgi eða áð- ur en hann kemur á móts við franska landsliðshópinn. ■ TEDDY Sheríngham hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Manchester United um eitt ár en vangaveltur hafa verið í gangi um að þessi 33 ára gamli framherji sé á fömm frá félaginu. ■ JOSEP Nunez, forseti Barcelona sl. 22 ár tilkynnti í gær að hann ætlaði að segja starfi sínu lausu í sumar, þrátt fyrir að hann eigi enn tvö ár eftir af kjörtímabili sínu. Nunez er 68 ára og ætlar að sitja eitthvað áfram í stjóm félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.