Morgunblaðið - 24.06.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.06.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 3n*v$tutH«feife B 2000 LAUGARDAGUR 24. JUNI BLAÐ ■ - ■'■■ ............ i ! ....... Lewis ætlar að verða sá fljótasti BANDARÍKJAMAÐURINN Brian Lewis sigr- aði í 100 raetra hlaupi á gullmóti aiþjdða frjálsíþrdttasambandsins sem fram fdr í París f gærkvöldi. Lewis hljdp á 10,10 sekúndum og er þetta í annað sinn á stuttum tíma sem hann kemur fyrstur í mark á stdrmóti, en hann gerði það einnig í Finnlandi á dögunum. „Eg er mjög ánægður með sigurinn og að hafa náð besta tíma mínum í ár. Það sýnirmér að ég sé á réttri leið og nú veit ég að ég get hlaupið hraðar og ég ætla að gera það, verða sá fljdtasti," sagði Lewis eftir sigurinn, en hann hefur best hlaupið á 10 sekúndum slett- um. Hann sagðist tejja að til að komast í Ól- ympíulið Bandaríkjanna í 100 metra hlaupi yrði hann að hlaupa á 9,95 eða 9,96 sekúnd- um. Gaddafi ogBen Johnson til íslands SAADI Gaddafi, sonur Moammars Gaddafis Líbýuforseta, er geng- inn til liðs við Birkirkara, meistara Möltu, sem mæta KR-ingum í fyrstu umferð meistaradeiidar Evrópu í knattspyrnu í næsta mán- uði. Hann kemur með liðinu hingað til lands og með í för verður Ben Johnson, spretthlauparinn gamalkunni, sem er einkaþjálfari Gaddafis yngri. Saadi Gaddafi hefur leikið með A1 Ahli í heimalandi sínu, en samningar hafa tekist við hann um að spila með Birkirkara í Evrópu- keppninni. Hann er sagður afar sterkur miðjumaður og samkvæmt fréttum á Möltu hefur Perugia á Italíu rætt við hann um samning. Þar er enn fremur sagt að Gaddafi dreymi um að gerast leikmaður Internazionale í Milano og leika þar við hlið vinar síns, Ronaldo. Þátttaka hans í leikjunum gegn KR er liður í að koma honum betur á framfæri í evrópskri knattspyrnu. metnaðarfullir, þeir eru með 5 fastamenn í landsliðinu og ætla sér stóra hluti. Þeir segja að Gaddafi sé geysilega flinkur leikmaður og þátttaka hans í leiknum gegn okkur á Möltu þýði að honum verði sjón- varpað beint um öll arabaríkin. Það er búist við 8 þúsund manns á völl- inn og við megum reikna með því að spila í 35 stiga hita,“ sagði Magnús Orri Schram sem var fulltrúi KR- inga við bikardráttinn í Genf í gær. ■ Evrópudráttur/B2 t Reuters Brian Lewis fagnar besta tíma sínum á árinu í 100 metra hlaupi, 10,10 sekúndum, sem dugðu til sigurs í Parfs. Bæði leikmaður og forseti knattspyrnusambandsins Saadi Gaddafi er ekki aðeins leikmaður, heldur er hann forseti líbýska knattspyrnusambandsins. Hann er með einkaþjálfara fyrir út- haldsþjálfun sem er heldur betur þekktur en það er enginn annar en Ben Johnson, fyrrum spretthlaup- ari frá Kanada, sem varð heims- þekktur í lok níunda áratugarins, fyrst fyrir að slá heimsmetið í 100 metra hlaupi og síðan fyrir að vera sviptur ólympíugulli sínu vegna lyfjaneyslu. Saadi Gaddafi hefur þegar verið gerður að heiðursforseta Birkir- kara og ljóst er að koma hans til fé- lagsins þykir mikill viðburður á Miðjarðarhafseynni sólríku. „Forráðamenn Birkirkara stað- festu við mig að Gaddafi yngri væri kominn í þeirra raðir og hann og Ben Johnson kæmu báðir til Is- lands í 130 manna hópi frá félaginu. Möltubúarnir eru greinilega mjög Blóðtaka hjá Blikum EINHVERJAR breytingar verða á leikmannahópum nokkurra kvennaliða í knattspyrnu áður en keppnistímabilið er úti. Mestar breytingar verða hjá Breiðabliki því ekki færri en þrír leikmenn hafa fengið tilboð um skólavist í Bandaríkjunum og munu af þeim sökum hverfa til Vesturheims í kringum 10. ágúst, en þá hefst skólaárið á þeim slóðum. Leikmennirnir sem hér um ræðir eru þær Þóra B. Helgadóttir, markvörður, Hjördís Þorsteinsdótt- ir, vamarmaður og sóknarleikmað- urinn Eyrún Oddsdóttir. Þóra hefur þekkst boð Duke háskólans í Norður Karólínu um að leika með þeim næstu fjögur árin en Þóra fékk til- boð frá nokkrum háskólum í kjölfar frábærs árangurs í landsleik gegn Bandaríkjunum í apríl sl. Þær Hjör- dís og Eyrún hafa einnig fengið fjög- urra ára skólastyrk frá Birmingham Southern College í Alabama. Til við- bótar þessu hefur Rakel Ögmunds- dóttir verið undir smásjá ítalska stórliðsins Lazio og ákveði hún að fara til Italíu er ekki víst að hún nái að ljúka tímabilinu hér heima frekar en Bandaríkjafararnir þrír. KR-ingar munu einnig missa leik- mann en Edda Garðarsdóttir fer til University of Richmond í Virginiu um svipað leyti. Á móti kemur að Ásthildur Helgadóttir mun ná að ljúka tímabilinu hér heima, en hún hefur þurft að fara utan um þetta leyti sl. þrjú ár. Þá mun markvörður Stjörnunnar og íslenska landsliðsins, María B. Ágústsdóttir, einnig hafa fengið tilboð frá bandarískum háskóla. María sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins í gær að það væri ekki víst hvort hún þekkist boð þeirra. „Þetta veltur fyrst og fremst á gengi Stjörnunnar hér heima. Okkur gengur mjög vel núna og ég er ekki viss um að ég sé tilbúin til að fórna því. Þá kemur það líka til að ég kem ekki til með að geta tekið þátt í þeim landsliðsverkefnum sem eru fram undan í haust, hvort sem það er landsliðið eða átján ára liðið, svo fremi að ég verði valin. Við höfum aðeins heimild til að vera fjarver- andi í ákveðið marga landsleiki á hverju ári og leikir landsliðanna á þessum tíma eru einfaldlega of margir. Hins vegar er það einnig ljóst að ég verð að fara að taka ákvörðun í þessu máli og ég reikna með að það muni skýrast á næst- unni,“ sagði María. Þá hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að Valsarinn íris Andrés- dóttir sé jafnvel á leið til Bandaríkj- anna. ÍA OG ÍBV LEIKA EVRÓPULEIKINA í LAUGARDAL/B2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.