Morgunblaðið - 24.06.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.06.2000, Blaðsíða 4
Reuters Frönsku leikmennirnir fagna - Laurent Blanc og Thierry Henry, sem hefur leikið stórvel i fremstu víglínu Frakka og hrellt markverði með útsjónarsemi sinni. ÞAÐ hafa vaknað margar spurn- ingar í Evrópukeppni landsliða- fyrir leikina í 8-liða úrslitum, sem fara fram í dag og á morg- un. Ná Frakkarað fylgja heims- meistaratitlinum eftir? Þeir eru með eins öfluga vörn og miðju og á HM í Frakklandi 1998. Þá voru þeir ekki með öfluga mið- herja, en nú geta þeir valið um fjóra. Rætist draumur Hollend- inga um að standa uppi sem sig- urvegarar á heimavelli? Verður hægt að rjúfa varnarmúr ítala? Hvað komast skapbráðir Júgó- slavar langt? Verður Týrkjarán Niðurlöndum? Springa Spán- verjar á limminu enn einu sinni? Tekst galdramanninum Hagi að galdra fram kraftaverk með Rúmena? Hvað gera hinir ungu og léttleikandi Portúgalar þegar út í alvöruna er komið? Margir knattspyrnuáhugamenn muna eftir undanúrslitaleik Frakka og Portúgala í Evrópu- keppni landsliða sem fram fór í Frakk- EltirSigurð landi árið 1984. Þófólfsson Frakkar tryggðu sér 3:2 sigur í framleng- ingu og er leikurinn talinn vera einn af gullmolum knattspymusögunnar. Nú er allt útlit fyrir að liðið eigi góða möguleika til að gera enn betur. Að margra mati hefur Portúgal aldrei átt sterkara landslið en það sem þeir geta stillt upp í dag. Loksins eru til staðar framherjar sem skora mörk eftir pöntunum en það hefur aldrei verið skortur á góðum miðju- eða varnarleikmönnum í landsliði Portú- gala. Portúgalar eru taldir mun sig- urstranglegri í leiknum gegn Tyrkj- um sem fram fer í Amsterdam í dag. Stjömur Portúgala, þeir Luis Figo og Rui Costa, hafa staðið íyllilega undir þeim væntingum sem til þeirra vom gerðar fyrir keppnina. Þótti lið- ið sýna sálrænan styrk gegn Eng- lendingum og Portúgalar rúlluðu síðan upp Evrópumeistaraliði Þjóð- verja í lokaleik sínum í riðlakeppn- inni. Tyrkir hafa komið á óvart í keppn- inni til þessa. Hakan Sukur er stjama þeirra. Rúmenar í vandræðum Emerchi Jeneai, þjálfari rúm- enska landsliðsins í knattspyrnu, getur ekki stillt upp sínu sterkasta liði gegn ítölum í Bmssel í dag. Meiðsli og leikbönn setja strik í reikninginn hjá Rúmenum og útlit fyrir að miðvörðurinn sterki, Georg- he Popescu, leiki ekki meira með lið- inu í keppninni enn hann reif lær- vöðva í leik liðsins gegn Englendingum. Chelsea leikmaðurinn Dan Pet- rescu og Adrian Ilie, sem leikur með Valencia á Spáni, fengu báðir sitt annað gula spjald í keppninni og taka því út leikbann gegn Ítalíu ásamt varnarmanninum Cosmin Contra. Aðdáendur liðsins geta þó glaðst yfir því að Gheorghe Hagi kemur inn í liðið að nýju eftir leik- bann. Del Piero í byrjunarliði ítala Dino Zoff, landsliðsþjálfari ítala, hefur verið gagnrýndur fyrir slakan sóknarleik liðsins og samkvæmt fréttum frá Geel í Belgíu verður stórstjama Juventus Alessandro Del Piero í byrjunarliðinu gegn Rúmenum. Tveir miðvallarleikmenn Itala, þeir Luigi Di Biagio frá Ju- ventus og Angelo Di Livio frá Fior- entina, era á sjúkralista þessa dag- ana en það lítur út fyrir að Di Biagio verði klár í slaginn á laugardaginn. Spánverjar hafa aldrei sigrað Frakka á stórmóti Spánverjar komust með sigri á Júgóslövum í sögulegum leik þar sem Alfonso Perez, leikmaður Real Betis, skoraði sigurmark leiksins á elleftu stundu. Spænskir fjölmiðlar gera mikið úr viðureign Spánverja gegn nágrönnum sínum og núver- andi heimsmeistaraliði Frakka á morgun. „Við eram sannfærðir um að við vinnum leikinn, við eram með gott lið sem leikur skemmtilegan fót- bolta,“ sagði Ivan Helguera, miðvall- arleikmaður Spánverja. Markmaður spænska liðsins, Santiago Canizares, er ekki eins sigurviss. „Franska landsliðið blandar skemmtilega sam- an baráttu og gæðum. Þeir era tákn um nútímaknattspymulið sem er vænlegt til árangurs." Bixente Lizarazu, vinstri bakvörð- ur heimsmeistaranna, segir að spænska liðið sé óútreiknanlegt. „Vandamálið er að maður veit aldrei við hverju má búast frá spænskum liðum, það vantar stöðugleika í liðin frá Spáni,“ sagði Lizarazu. Cruyff gagnrýnir hollenska landslíðið Johan Crayff, fyrrum stjarna hol- lenska landsliðsins, hefur gagnrýnt landa sína opinberlega og segir að liðið hafi ekki styrk til að fara alla leið í Evrópukeppni landsliða. „Staða liðsins er sannarlega góð eftir riðlakeppnina, fullt hús stiga, en það skiptir engu máli í framhaldinu,“ sagði Crayff við blaðamenn. Edgar Davis fær ekki góða dóma ásamt framherjum liðsins. „Edgar var góð- ur í að elta leikmenn Frakka í seinni hálfleiknum, en ég hef áhyggjur af því að hann geti ekki haft stjórn á skapi sínu. Dennis Bergkamp virðist ekki vera í sínu besta formi og þótt að Patrick Kluivert hafi skorað gott mark gerði hann lítið annað leikn- um.“ Dennis Bergkamp var fljótur að svara gagnrýni Crayffs. „Talaðu við okkur en ekki í gegnum fjölmiðl- ana. Hinir svokölluðu sérfræðingar era flestir fyrram atvinnumenn og ættu að sjá sóma sinn í að tala beint við leikmenn. Kannski ættum við byrja að leika betur og fá færri stig, er það betra?“ sagði leikmaður Ars- enals, Dennis Bergkamp. Frank Riikjard, þjálfari liðsins, er bjartsýnn og telur að liðið sé líklegt til að gera góða hluti í leiknum gegn Júgóslövum í Rotterdam á morgun. „Júgóslavar eru með baráttulið og frábæra einstaklinga.Við þurfum að vera sérstaklega á varðbergi er þeir fá hom- og aukaspymur.“ Vujadin Boskov, þjálfari Júgó- slava, er í vandræðum með að stilla upp sínu sterkasta liði gegn firna- sterkum Hollendingum. Varnarmað- urinn Goran Djorovic er meiddur og leikur líklega ekki meira með í keppninni og það sama á við um mið- vallarleikmanninn Vladimir Jugovic. Ungi framherjinn Mateja Kezman tekur út leikbann á móti Hollending- um en hann afrekaði það að vera vís- að af leikvelli á 88. mínútu gegn Nor- egi eftir að hafa verið skipt inná á þeirri 87. Slavisa Jokanovic er einnig í leikbanni. Það mun því mæða mikið á Savo Milosevic, sem er marka- kóngur keppninnar til þessa, með 4 mörk, og Lazio leikmanninum Sinis- ia Mihajlovic sem er óumdeildur aukaspymusérfræðingur Júgóslava. ■ CHRISTOPH Daum og Ottmar Hitzfeld gætu orðið næstu þjálfar- ar þýska landsliðsins. Tillaga þess efnis kom fram í gær og það var Manfred Schneider, fram- kvæmdastjóri Bayer lyfjasam- steypunnar sem kom með hana. Daum þjálfar Leverkusen, þar sem Bayer er aðalstyrktaraðilinn og Hitzfeld er þjálfari Bayern Miinchen. Þeir félagar vildu ekk- ert láta hafa eftir sér um þetta í gær. ■ BENFICA hefur gengið frá kaupum á hollenska sóknarmann- inum Pierre van Hooijdonk frá Vitesse Arnheim fyrir 460 milljón- ir króna. Þetta er hæsta verð sem portúgalskt félag hefur greitt fyrir knattspyrnumann, en þess má um leið geta að þetta er sama verð og Chelsea lagði út fyrir kaupunum á Eið Smára Guðjohnsen á dögun- um. ■ VITESSE Amheim seldi annan leikmann í gær, það var sóknar- maðurinn Martin Reuser og það voru nýliðarnir í ensku úrvals- deildinni, Ipswich Town sem keypti kappan á 72 milljónir króna, en Reuser var í láni hjá félaginu síðustu þrjá mánuði síðasta keppn- istímabils og þótti standa sig ág- ætlega. Haldi Ipswich sér í deild- inni þarf félagið að greiða Vitesse aukalega um 20 milljónir króna ■ CHRIS Hutchings hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Brad- ford, en hann var aðstoðarmaður Paul Jewell, sem er farinn til Sheff. Wed. ■ TXETXU Roja, nýráðinn þjálf- ari hjá Athletico Bilbao, verður í leikbanni í níu fyrstu leikjum liðs- ins á næsta keppnistímabili. Roja, sem var þjálfari Real Zaragoza á síðasta keppnistímabili, var dæmdur í leikbann fyrir að hafa ráðist á dómara eftir leik Zara- goza og Valencia. ■ MEISTARARNIR hjá Man- chester United eru efstir á blaði hjá veðbönkum í London, sem enskir meistarar 2001, með 8-11. Arsenal kemur næst á blaði með 4-1, þá koma Liverpool 5-1, Chels- ea 13-2 og Leeds 10-1. ■ BERTIE Vogts, fyrrverandi landsliðsþjálfari Þýskalands, er kominn í umræðurnar sem næsti landsliðsþjálfari Þjóðveija. Hann var látinn fara þegar hann ætlaði að fara að yngja upp þýska liðið fyrir tveimur árum. ■ JUPP Heynckes, þjálfari Ben- fica, og fyrrverandi heimsmeistari með Þýskalandi - 1974, hefur einnig verið nefndur; svo og Hol- iendingurinn Louis van Gaal, sem hætti hjá Barcelona á dögunum. ■ STOKE City tilkynnti formlega í vikunni að félagið hefði gert þriggja ára samning við Stefán Þór Þórðarson frá Akranesi. Það var þó strax um síðustu mánaða- mót sem jjóst var að Stefán færi til enska íslendingaliðsins. Fyrsti leikur Stefáns með Stoke verður væntanlega gegn ÍA á Akranesi þann 14. júlí. ■ STOKE hefur hinsvegar misst af framherjanum Michael Ricketts sem félagið ætlaði sér að kaupa af Walsall. Ricketts, sem er 21 árs, hefur ákveðið að fara í staðinn til 1. deildarliðs Bolton, þar sem hann tekur væntanlega stöðu Eiðs Smára Guðjohnsens, sem var seld- ur til Chelsea á dögunum. ■ LEE Westwood, sem varð efstu evrópubúa á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi á dögunum, hefur fjögurra högga forystu á móti í Englandi. Hann lék fyrsta hringinn á Staley Hall á 68 högg- um, fjórum undir pari þrátt fyrir mikinn vind og efiðar aðstæður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.