Morgunblaðið - 30.06.2000, Síða 6
6 Ð FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
undurinn
BÍÓBLAÐIÐ
Frumsýning Stjörnubíófrumsýnirgamanmyndina Heilla- Frumsýning Háskólabíó sýnir Woody
Sean Penn og Uma Thurman.
Ailen djassar__
meoPenn
Handritshöfundurinn Steven Phill-
ips (Albert Brooks) er heiðraður
kvöld eitt í Hollywood fyrir fram-
lag sitt til kvikmyndanna. A meðal
viðstaddra eru kona hans (Andie
^MacDowell) og dætur. En Adam
var ekki lengi í paradís. Daginn
eftir hringir yfirmaður kvikmynda-
versins sem Steven starfar hjá og
segir honum að hann hafi misst
skáldagáfuna og segir samningi
þeirra upp. Steven missir skiljan-
lega allt sjálfstraust, hann vill
vinna en hvernig á hann að fara að
því ef það fréttist að hann sé búinn
að vera sem listamaður?
Hann heimsækir vin sinn Jack
Warrick (Jeff Bridges), sem einnig
er handritshöfundur, og hann segir
honum frá þessari mögnuðu konu,
sannkallaðri heilladís (Sharon
Stone), sem hjálpaði honum ákaf-
lega þegar hann sjálfur missti
sjálfstrausið. Steven fer á fund
þessarar konu og brátt taka að
gerast undarlegir atburðir.
Þannig er söguþráðurinn í nýj-
ustu gamanmynd Albert Brooks,
Heilladísinni eða The JVÍuse, en
Brooks skrifar bæði handritið,
leikstýrir og fer með eitt aðal-
hlutverkanna. Myndin er frum-
sýnd í Stjörnubíói og fara með
helstu hlutverk Sharon Stone,
Andie MacDowell og Jeff Bridges
en fjöldi þekktra manna úr
.draumaverksmiðjunni birtist í
myndinni eins og Martin Scors-
ese, James Cameron og Rob Rein-
er.
Þegar hann hafði lokið við hand-
rit Heilladísarinnar ásamt sam-
starfskonu sinni til margra ára,
Monica Johnson, tók Albert
Brooks að leita að aðalleikkonu
myndarinnar. Ein leikkona kom
fram í huga hans á undan öllum
öðrum og það var Sharon Stone.
„Eg sagðist vilja fá Stone í mynd-
ina“ er haft eftir Brooks, „en fólk
sagði við mig: Hún hefur aldrei
leikið í gamanmynd áður.“ Það er
reyndar ekki rétt því Stone lék á
árum áður í gamanstykki sem hét
Irreconcilable Differences og hún
Heiliadísina
hafði beðið eftir að leika í annarri
gamanmynd allar götur síðan.
Albert Brooks hringdi í leikkon-
una. „Hann byrjaði að segja mér
frá myndinni og ég bjóst við því að
hann vildi aðeins fá mig til þess að
sýna mig í myndinni. Eftir því sem
leið á samtalið kom annað í ljós.“
Brooks segir: Þegar ég hafði
lýst fyrir henni efni myndarinnar
spurði ég hana að því hvort hún
gæti hugsað sér að fara með aðal-
hlutverkið. Það kom svona fimm
sekúndna þögn í símann en svo
sagði hún: Ég skal vera heilladísin
þín.“ Sfone samþykkti að leika í
myndinni án þess að lesa handritið
fyrst. Eitt símtal dugði.
Brooks notaði sömu aðferð þeg-
ar hann fékk Andie McDowell í
myndina, hann hrindi í hana, og
hann hringdi einnig í Jeff Bridges.
Og það gekk eftir. í lok símtalsins
var hann búinn að samþykkja að
leika í myndinni."
Albert Brooks, Sharon Stone,
Andie McDowell og Jeff Brid-
ges.
Leikstjóri:
Albert Brooks
Real Life, Modern Romance, Mot-
her, Lost in America, Defending
YourLife
Leikarar:
Albert Brooks er höfundur, leik-
stjóri og leikari í Heilladísinni.
Emmet Ray (Sean Penn) er þekktur
djassgítaristi á þriðja áratugnum,
djassöldinni. Hann er allt í öllu, elsk-
aður og dáður, þekkir gangsterana
og tónlistarmennina en stendur áv-
allt í skugga hetju sinnar, Django
Reinhardts.
I þessari mynd, Sweef and
Lowdown, sem frumsýnd er í Há-
skólabíói, tekur Woody Allen fyrir
djassskeiðið á þriðja áratugnum í
Bandaríkjunum og lýsir því með
augum Emmet Rays. Sean Penn
leikur aðalsöguhetjuna en með önn-
ur hlutverk fara Anthony LaPaglia,
Samantha Morton, Uma Thurman og
John Waters. Það er Woody sem
leikstýrir og skrifar handritið en
gömlu félagarnir hans í framleiðsl-
unni, Jack Rollins og Charles H.
Joffe, standa að baki myndarinnar.
Allen er þekktur fyrir að safna að
sér stórum hópi þekktra leikara og
það hefur hann gert í Sweet and
Lowdown. „Ég hafði mikia ánægju
af því að leika með hverjum og ein-
um í þessum hópi,“ er haft eftir hon-
um, „og við skemmtum okkur vel við
tökurnar á myndinni. Ég er hreyk-
inn af því að hafa fengið að starfa
með Sean Penn, sem er frábær leik-
ari. Samantha Morton var líka frá-
bær og það sama er að segja um
Uma Thurman. Mér fannst mjög
gaman að vinna með leikhópnum og
gerð myndarinnar var góð reynsla
fyrir mig.“
Djassinn hefur alltaf leikið stórt
hlutverk í myndum Woody Allens.
Aðalpersónan í Sweet and Lowdown,
Emmet Ray, er uppdiktuð en hún
byggist á mörgum þeim skrautlegu
persónuleikum sem djassöldin ól af
sér og Allen þekkir sem djassari.
Penn hafði aldrei snert á gítar áð-
ur en hann tók að sér hlutverkið en
lærði fingrafimina fyrir einhver 30
djasslög sem leikin eru í myndinni.
„Ég hefði ekki fengið betri leikara í
hlutverkið," er haft eftir Woody All-
en. Penn hefur leikið fyrir marga
fremstu leikstjóra Bandaríkjanna en
þetta er í fyrsta skipti sem hann er í
Allen-tnynd.
Penn er einn af fremstu leikurum
Bandaríkjanna og hann hefur einnig
Bandaríska leikkonan Uma Thur-
man í hlutverki sínu í myndinni.
Sweef and Lowdown
Leikarar:______________________
Sean Penn, Samantha Morton,
Uma Thurman, James Urb-
aniak.
Leikstjóri:____________________
WoodyAllen
Take the Mortey and Run, Bananas,
Sleeper, Love and Death, Annie
Haii, tnteriors, Manhattan, Zelig,
Broadway Danny Rose, Hannah and
her Sisters og margar, margar fleiri.
fengist við leikstjórn. Hann stýrði
vini sínum Jack Nicholson í The
Crossing Guard en þar á undan
gerði hann myndina The Indian
Runner.
I hjarta myndarinnar er ástar-
ævintýri Emmet Rays og Hattie,
sem Allen fékk bresku leikkonuna
Samantha Morton til þess að leika.
Morton á að baki nokkuð fjölbreyti-
legan feril bæði í kvikmyndum og
sjónvarpi. Hún lék m.a. í sjón-
varpsþáttunum Cracker en hún hef-
ur leikið í myndunum Jesus’ Son og
Dreaming of Joseph Lees á móti
Rupert Graves.
Frumsýning Regnboginn, Laugarásbíó, Sambíóin Álfabakka, Nýja bíó Keflavík
og Borgarbíó Akureyri sýna nýjustu mynd Jim Carreys, Ég, um mig, frá mértil írenu.
ank og^Charlie
Charlie Baileygates (Jim Carrey)
hefur í sautján ár starfað við lög-
regluna á Rhode Island í Bandaríkj-
unum. Charlie er hvers manns hug-
ljúfi, iðjusamur vel og hjálplegur
hveijum sem á þarf að halda. Hann
er einnig ástríkur faðir þriggja sona.
Því miður þjáist Charlie af per-
sónuleikaklofningi og ef hann tekur
ekki lyfin sín kemur annar og ólíkur
maður í Ijós. Hann heitir Hank
Baileygates (Jim Carrey) og er
sóðakjaftur, drekkur eins og svamp-
■*r, er sífellt að leita uppi vandræði
og er dónalegur og klámfenginn.
Þeir Charlie og Hank eiga ekkert
sameiginlegt nema Irenu Waters
(Renée Zellweger), fallega vinkonu
á flótta. Því miður falla þeir báðir
fyrir henni og það veit ekki á gott.
Þannig er söguþráðurinn í nýj-
ustu mynd þeirra Farrelly-bræðra,
Ég, um mig, frá mér til Irenu sem
frumsýnd er í dag í fimm kvik-
myndahúsum; Regnboganum,
Laugarásbíói, Sambíóunum Álfa-
bakka, Nýja bíói Keflavík og Borg-
arbíói Akureyri. Leikstjórar eru
þeir Peter og Bobby Farrclly en
með aðalhlutverkin fara Jim
Carrey, Renée Zellweger, Robert
Forster, Richard Jenkins og Chris
Cooper.
„Ég held ekki að fólk noti oft orðið
þroskaðir þegar það talar um mynd-
irnar okkar,“ er haft eftir Bobby
Farrelly. „En hvort sem þið trúið
því eða ekki eru það persónurnar í
myndunum okkar sem við hugsum
fyrst og fremst um en ekki brandar-
amir.“ Bobby og bróðir hans, Peter,
eiga að baki gamanmyndir eins og
Heimskur, heimskari, Kingpin og
There’s Something About Mary,
sem notið hafa mikilla vinsælda hér
á landi. Gamansemi þeirra hefur
hneykslað marga en þeir gefa ekki
mikið út á það. „Við erum bara að
reyna að fá fólk til þess að hlæja,“
heldur Bobby áfram. „Það er erfitt
að ná þeim árangri í dag án þess að
fara yfir strikið. Maður verður alltaf
að ganga lengra eða gera eitthvað
sem er gersamlega óvænt. Ég vona
Eg, um mig,
frá mér tii írenu.
Leikarar:_______________________
Jim Carrey, Renée Zellweger,
Robert Forster, Richard Jenkins
og Chris Cooper.
Leikstjórar:____________________
Peter og Bobby Farrelly
Dumb and Dumber, Kingpin,
There’s Something About Mary
að okkur auðnist að gera það og að
við séum fremstir í þess konar
gamansemi."
„Auðvitað móðgum við sumt
fólk,“ segir bróðir hans, Peter. „En
grundvallarreglan er sú að ef það
eru fleiri sem móðgast en móðgast
ekki þá klippum við brandarann út.
Við komumst að því á prufusýning-
um mynda okkar að fólk hlær ekki
ef því er verulega misboðið."
Handritið að myndinni er gamalt,
var upprunalega samið árið 1990 en
þeir bræður tóku það upp úr skúff-
unni þegar There’s Something
About Mary náði feiknavinsældum.
Þeir ætluðu fyrst að gera myndina
Stuck On You, sem verður þeirra
næsta mynd, en þegar Jim Carrey
sýndi áhuga á að fara með aðalhlut-
verkið í írenu settu þeir allt í gang.
*