Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
BIOBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 D 7
EKKI IVIISSA AF ...
ALLIR Á LAUSU - EASTIS EAST,
BRESKA SMELLINUM I HÁSKÓLABlÓ -
SEM VARÐ FYRIR ÞEIM LEIÐU MISTÖK-
UM VIÐ VINNSLU BLAÐSINS Á GAGN-
RÝNI HILDAR LOFTSDÓTTUR AÐ FÁ
AÐEINS TVÆR OG HÁLFA STJÖRNU EN
ÁAÐ FÁ ★★★ %. ALLIRÁ LAUSU ER
ÞJÓÐFÉLAGSSATÍRA UM HIÐ LITRÍKA
SANFÉLAG ÞJÓÐARBROTA OG TRÚAR-
HÓPAÁ BRETLANDSEYJUM. H.L. SEG-
IR HANA HAFA ÓTRÚLEGA BREIÐA
SKÍRSKOTUN. ÁREKSTRAR ERU ÓUM-
FLÝJANLEGIR ER UNGA FÓLKIÐ DREGUR SIG SAMAN, MÚSLIMAR
OG KRISTNIR. FJÖLSKYLDA FRÁ PAKISTAN í FORGRUNNI.
H.L. SEGIR AÐ LOKUM: „ÞAÐ ERU ÓTRÚLEGA MARGIR GÓÐIR OG
STERKIR PUNKTAR í ÞESSARI MYND OG EKKIANNAÐ HÆGT EN AÐ
HALDAÁFRAM AÐ HUGSA UM HANA AÐ SÝNINGU LOKINNI... Æni
AÐ GETA KOMIÐ VIÐ FLESTA Á EINHVERN HÁTT.“ SVO SANNARLEGA
ÞRJÁR OG HÁLF.
NÝJAR MYNDIR
Lipur og lævís - Sweet And The
Lowdown
Háskólabíó: Alladaga kl. 6-8-10.
Aukasýning laugardag/sunnudag kl. 4
My, Myself and Irene
Bíóhöllin: Alla daga kl. 4 - 5:30 - 8 -10:20. Auka-
sýning föstudag kl. 12:40.
Regnboginn; Alla daga kl. 3:20 - 5:40 - 8 -10:20 -
11:45. Aukasýning föstudag kl. 2. e.m. Laugar-
dag/sunnudag kl. 2. e.h. ogkl. l.e.m.
Laugarásbíó; 4 - 5:30 - 8 - 10:20. Aukasýning
föstudag kl. 12:40, laugardag/sunnudag
kl.H50.
The Muse - Heilladísin
Stjörnubíó;Alladagakl. 6-8-10.
Frequency ★★% SPENNA
Ágætlega gerð tímaflakksmynd um
mann sem kemst í samband við lát-
innfööursinn.
Laugarásbíó; Alla daga kl. 8 -10:20.
Bíóborgin; Alla daga kl.5:30 - 8 -10:20.
The Next Best Thing ★ GAMAN
Furðulegt mynd um móðurina Ma-
donnu. Byrjar sem ærslaglens en
endarí réttardrama.
Háskóiabíó; Alla daga kl. 5:50 - 8 -10:15.
Englar alheimsins ★★★★ DRAMA
íslensk. 2000. Leikstjóri: Friðrik Þðr Friðriksson.
Handrit: Einar Már Guðmundsson. Aðalleikendur:
Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason,
Baltasar Kormákur, Bjöm Jörundur Friðbjörns-
son.
Friórik og hans fólk slær hvergi feil-
nótu í mynd um vandmeðfarið efni.
Háskólabíó. Sýndlaugardag/sunnudagkl. 4.
Toy Story 2 - Leikfangasaga 2
★★★% TEIKNIMYND
Bandarisk. 1999. Leikstjóri og handrit: John
Lassiter. Isl. talsetning. Raddir: Felix Bergsson,
Magnús Jónsson, Ragnheiður Elín Gunnarsdóttir,
Harald G. Haralds, Amar Jónsson, Steinn Ármann
Magnússon o.fl.
Framhald bráöskemmtilegrar og fjöl-
skylduvænnar teiknimyndar og gefur
henni ekkert eftir nema síður sé.
Dótakassinn fer á stjá oggullin lenda
í hremmingum útum borg og bý;
dæmalaust skemmtilegarfígúrur.
Bíóhöllin: ísl. tal. Alla daga kl. 4. Aukasýning
laugardag/sunnudag kl. 2.
Krlnglubió: ísl. tal. Alia daga kl. 4. Aukasýning
laugardag/sunnudag kl. 2.
East is East - Ghengis og fjöl-
skylda ★★★ Vz GAMAN
Bresk. 1999. Leikstjóri: Damien O'Donnell.
Handrit: Dyub Khan-Din. Aðalleikendur: Om Puri,
Linda Bassett.
Bráðfyndin skoðun á árekstrum
gjörólíkra menningarheima í mann-
lífsflórunni í Bretaveldi.
Háskólabíó: Alla daga kl.6-8-10.
Gladiator ★★★ SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Ridley Scott. Aðal-
hlutverk: Russell Crowe.
Fantagóður skylmingahasar með
sögulegu ívafi þar sem Crowe er frá-
bær sem skylmingakappinn og Scott
tekst að ná fram alvöru stórmynda-
blæ.
Laugarásbíó: Alla daga kl. 5-8-10.40.
Hundar eru étnir í Kína -1 Kina
spiser de hunde ★★★ GAMAN
Dönsk. 1999. Leikstjóri: Lasse Spang Olsen.
Handrit: Anders Thomas Jensen. Aðalleikendur:
Kim Bodina og Dejan Cukic.
Óvenju groddalegur og bleksvartur
danskur húmor um bankablók og
undirlægju sem gerist manndrápari
og sitthvaö fleira miður gott undir
handleiöslu stóra bróður síns,
krimmans.
Háskólabíó: Alla daga kl. 8-10.
101 Reylgavík ★★★ GAMAN
íslensk. 2000. Leikstjóm og handrit: Baltasar
Kormákur. Aðalleikendur: Victoria Abril, Hilmir
Snær Guðnason, Hanna María Karlsdóttir, Balt-
asar Kormákur.
Svört kynlífskómedía úr hjarta borg-
arinnar, nútímaleg og hress sem
skoöar samtímann í frísklegu og
fersku Ijósi raunsæis og farsa. Vel
leikin, einkum af hinni kynngimögn-
uöu Almodóvar-leikkonu Victoriu Abr-
il og eryfirhöfuð hin besta afþreying.
Háskólabíó: Alla daga kl. 6 - 8 -10. Aukasýning
laugardag/sunnudag kl. 4.
Man on the Moon ★★★ DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Milos Forman.
Handrit: Scott Alexander og Larry Karaszewski.
Aðalleikendur: Jim Carrey og Danny DeVito.
Forvitnileg mynd um mjög áhugaverð-
an mann, Jim Carrey er fæddur í hlut-
verkiö.
Bíóborgin: Alla daga kl. 5.45.
Erin Brockovich ★★% SPENNA
Bandarísk. 2000 Leikstjóri: Steven Soderbergh.
Handrit: Susannah Grant. Aðalleikendur: Julia
Roberts, Albert Finney, Marge Helgenberger,
Aaron Heckart.
Óvenjuleg kvikmyndahetja, einstæð
móðir með þrjú börn (Julia Roberts),
gerist rannsóknaraðili á lögfræöi-
stofu (Albert Finney) og hleypir af
stað stærsta skaðabótamáli í sögu
Bandaríkjanna. Jólasveinsleg en
sleppur, þökk sé meistara Rnney og
Roberts sem sýnir tilþrif í langri en
notalegri afþreyingu Stevens Soder-
bergh.
Regnboglnn: Alla daga kl. 8.
Stúart litli - Stuart Little ★★%
FJÖLSKYLDUMYND
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Rob Minkoff. Hand-
rit.: M. Night Shaymalan og Greg Brooker. Aðal-
leikendur: Geena Davis, Hugh Laurie, Jonathan
Lipnicki.
Músin Stúart er svo sæt og raunveru-
leg. Ágætis fjölskyldumynd sem vant-
ar örlítinn kraft og galdra.
Regnboginn; Alla daga kl. 4 - 6. Aukasýning laug-
ardag/sunnudagkl. 2.
Bíóhöllin; Meðísl.
Föstudag og mánudag kl. 3:45 Aukasýning laug-
ardag/sunnudagkl. 2.
Bíóhöllin; Með ensku tali alla daga kl. 6:15.
Stjörnubíó; Alla daga kl. 6. Aukasýning sunnudag
2-4.kl 2-4.
28 Days ★★ % DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Betty Thomas.
Handrit: Susannah Grant. Aðalleikendur: Sandra
Bullock, Viggo Mortensen, Steve Buscemi.
Sandra Bullock leikur vel í þessari
mynd sem annars er stefnulaust
melódrama.
Stjörnubíó: Alla daga kl.6-8-10.10
Undraland - Wonderland ★★ %
DRAMA
Bresk. 1999. Leikstjóri: Michael Winterbottom.
Handrit Laurence Coriat. Aðalleikendur: Shiriey
Henderson, Gina McKee, MollyParker.
Hversdagsamstur venjulegrar fjöl-
skyldu í London og þeirra sem tengj-
ast henni skoðað í heimildarmyndar-
legri og raunsærri mynd sem erýmist
forvitnilegeðaflöt.
Háskólabíó: AHa daga kl. 5.50.
The Boiler Room ★★ SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri og handrit. Ben
Younger. Aðalleikendur: Giovanni Ribisi, Nia
Long, Ben Affleck.
Stemmningin er mjög trúverðug og ár-
eitin en annaö fellurí skuggann af því,
einsog persónusköpunin og fléttan.
Bíóhöllin;/\//a daga kl. 5:50 - 8 -10:10. Aukasýn-
ing föstudag kl. 12:20.
Deuche Bigelow ★★ GAMAN
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Mike Mitchell.
Handritshöfundur: Harris Goldberg. Aðalleikend-
ur: Rob Schneider, William Forsyth.
Amerísk gamanmynd um ólíklega
karlmellu, einstaka góð atriði en
heildarmyndin veik.
Bíóhöllln: Alla daga M. 4-6-8-10. Aukasýring
föstudag kl. 12.
Gone in 60 Seconds ★★ DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Dominic Sena.
Handrit: Scott Rosenberg. Aðalleikendur. Nicolas
Cage, Angelina Jolie.
Dæmigeröur Bruckheimer-sumar-
smellur. Óaðfinnanlegur útlits með
hörkugóöum spennuatriðum en
borðleggjandi framvindu og fyrisjáan-
legum endi.
Bíóhöllin; Alla daga kl. 5:30 - 8 -10:20. Aukasýn-
ing föstudag kl. 12:40. Laugardag/sunnudag kl.
2.
Kringlubíó: Alla daga kl4-6-6-10.
The Ninth Gate ★★ HROLLUR
Frönsk/spænsk 1999. Leikstjóm og handrit:
Roman Polanski. Aðalleikendur: Johnny Depp,
Frank Langella, Emmanuelle Seigner.
Upphafið er gott en fer hrakandi eftir
því sem á líöur og hvergi bólar á ieik-
Stjóra Rosemary's Baby, því miöur.
Krlnglubíó: A//a daga kl. 10.20.
Bíóborgin: Alla daga kl. 8 -10.20.
Rules of Engagement ★★ DRAMA
Bandarísk. 2000.Leikstjóri: William Friedkin.
Handrit: James Webb. Aððalleikendur: Samuel L.
Jackson, Tommy Lee Jones, Ben Kingsley.
Ein af Hollywood-myndunum seni
varpa Ijóma á bandariska herinn. Er’
of fyrirsjáanlegtil að vera spennandi
en Jackson og Jones báðir góðir.
Bíóhöllin; Alla daga kl. 8 - 10:20. Aukasýning
föstdagkl. 12:40.
Laugarásbíó; Alla daga kl. 5.30-8-10.30.
Three to Tango ★★ GAMAN
Bandarísk 2000. Leikstjóri og handrit: Damon
Santostefano. Aðalleikendur: Matthew Perry,
Neve Campbell, Dylan McDermott.
Perry leikur mann sem allir halda að
sé hommi í þokkalegum misskiln-
ingsfarsa.
Kringlubíó: Alla daga kl. 4 - 6 - 8 -10:20.. Auka-
sýning laugardag/sunnudag kl. 2.
Bíóhollin: Alla daga kl. 4 - 6 - 8 -10. Aukasýning
föstudagkl. 12., laugardag/sunnudag kl. 2.
Ordinary Decent Criminal ★ V4
SPENNA
írsk. 2000. Leikstjóri: Thaddeus ÓSullivan.
Handrit: Gerard Stembridge.
Aðalleikendur: Kevin Spacey, Linda Fiorentino.
Vont glæpagrín, byggt á róstusamri
ævi írska bófans Martins Cahills.
Sem fékk miklu betri meðhöndlun í
The General, e. John Boorman.
Regnboginn; Alla daga kl. 6-8-10. Aukasýning
föstudagkl. 12.
Hundurinn og höfrungurinn ★
FJÖLSKYLDUMYND
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: George Miller. Hand-
rit: Tom Benedek. Aðalleikendur: Steve Guttéfi*
berg, Kathleen Quinlan, Miko Hughes.
Illa skrifuð mynd undir slæmri leik-
stjórn, sem er hvorki fyrir börn né full-
orðna.
Kringtubíó: Laugardag/sunnudag kl. 2.
Kevin og Perry % GAMAN
Bresk. 2000. Leikstjóri: Ed Bye. Handrit: Dave
Cummins. Aðalleikendur: Harry Enfield, Kathy
Burke, Rhys Iffans.
Bresk dellumynd þar sem kúkur,
prump og gröftur er aöalskemmtiefn-
ið.
Regnboginn. Alla daga kl.4 -6-8-10-12. Auka-
sýning laugardag/sunnudag kl. 2.
Ég, um mig,
^vinmvnrl JimCarreyergam-
OlljllllJIIU anleikari heimsins
EftírArnald nú um stundir.
Indriðason Hanngeturverið
óhemju skemmti-
legur trúður en eins og í öðrum trúð-
um blundar í honum alvara lífsins
sem rumskar í myndum á borð við
Trumanþáttinn og Manninn á tungl-
inu. í seinni tíð hefur Carrey helst
orðið kunnur fyrir það að hljóta ekki
útnefningu bandarísku kvikmynda-
akademíunnar til Óskarsverðlauna
fyrir áðurnefndar myndir. Það er
eins og verulega góður leikur hans í
verulega alvarlegum myndum skipti
akademíuna engu máli. Hann er
trúður og skal vera trúður.
íslendingar eru sérstaklega hrifn-
ir af gamanleikaranum Jim Carrey.
Það sýnir aðsóknin á myndir hans
hérlendis. Allt frá því hann lék gælu-
dýraspæjarann í fyrri Ace Ventura-
myndinni hefur íslenski ung-
dómurinn (og fullorðnir líka) flykkst
á myndir hans. Þær hafa allar verið í
einhverjum af efstu tíu sætum ís-
lenska metsölulistans, stundum jafn-
vel tvær í einu. Carrey hóf feril sinn
sem brandarakarl fyrir meira en
tuttugu árum á skemmtistöðum í
Toronto í Kanada en leikarinn er
I* I
kanadískur eins og reyndar svo
margir gamanleikararnir í Holly-
wood. Hann hætti í skóla fimmtán
ára gamall til þess að skemmta og
þegar hann hafði í fjögur ár fengið
landa sína til þess að hlæja flutti
hann til Los Angeles þar sem hann
tók að skemmta í þekktum klúbbum
brandarakalla. Það leið ekki á löngu
þar til hann var tekinn að koma fram
í sjónvarpsþáttum og loks bíómynd-
um. Fyrsta myndin var Once Bitten
þar sem hann lék á móti Lauren Hutt-
on. Um var að ræða auðgleymda
hryllingsgrínmynd. Hann fékk auka-
hlutverk í myndum eins og Þegar
Peggy Sue giftist eftir Coppola og
meira að segja tókst honum að leika
á móti Clint Eastwood í Dirty Har-
ry-myndinni The Dead Pool. Yegur
hans fór smám saman vaxandi. Hann
lék í sinni fyrstu alvarlegu mynd,
Doing Time on Maple Drive, þar
sem hann lék drykkjurút, og hann
var í gamanþáttunum In Living Co-
lor. Ace Ventura var myndin sem
kom honum á kortið. Fettur hans og
brettur, ólíkindalegur söguþráður-
inn og heimskuleg kómedían átti upp
á pallborðið; honum var og hefur síð-
an oft verið líkt við Jerry Lewis og
ekki að ósekju. Brandaramyndir þar
Jim Carrey
Jim Carreyer óhemju vinsæll
gamanleikari og eru íslending-
ar sérstaklega hrifnir af honum
en myndir Carreys hafa allar
lent á lista yfirtíu aðsóknar-
mestu bíómyndir hér á landi.
Hann er þó ekki aöeins gaman-
leikari heldur hefur
hann sýnt að hann
geturfarið með al-
varleg, dramatísk
hlutverk eins og
hver annar hafi
hann réttu menn-
ina til þess að
leikstýra sér;
Peter Weir og
Milos Forman
hafa hjálpað hon-
um að fóta sig í
dramatískum hlut-
verkum með eft-
irminnilegum
hætti í mynd-
unum Truman-
þættinum og
Manninum
átunglinu.
sem heimskan ein réði
ríkjum urðu allsráðandi
á þessum tíma og Carrey
barst áfram með þeirri
öldu eins og brimbretta-
kappi á sterum. Hann
fór með annað aðal-
hlutverkið í helstu mynd
þeirrar stefnu, Heimsk-
um, heimskari, eftir þá
Farrelly-bræður; Carrey
og Jeff Daniels léku tvo
heimskustu menn á jarð-
ríki sem eltu uppi fallegan
kvenmann þvert í gegnum
Bandaríkin að skila henni
tösku. Það þurfti ekki meira til.
Framtíð Carreys var ráðin.
í Igölfarið fylgdu myndir
eins og The Mask, The
Cable Guy, Batman For-
ever og mynd sem ekki
skyldi vanmeta, Liar,
Liar, þar sem stjarnan
fer á kostum. Næsta
mynd hans verður
How the Grínch Stole
Chrístmas sem
byggir á sögu eftir
Dr. Seuss en leik-
stjóri er Ron
Howard.