Morgunblaðið - 09.08.2000, Page 4
Guðrún Arnardóttir hljóp í þriðja sinn á fjórum dögum undir 55 sek. í Linz í gær
„Ég er í skýjunum"
„ÉG er í skýjunum, þetta fór fram úr þeim vonum sem ég hafði
gert mér,“ sagði Guðrún Arnardóttir, hlaupakona úr Ármanni,
en hún setti glæsilegt íslandsmet í 400 m grindahlaupi á stiga-
móti Aiþjóða frjálsíþróttasambandsins í Lundúnum á laugar-
dag, kom í mark á 54,37 sekúndum. Bætti hún tveggja ára
gamalt íslandsmet sitt um 22/100 úr sekúndu. Tíminn kemur
Guðrúnu í 8. sæti heimsafrekalistans í greininni á yfirstand-
andi ári. Auk þessa sigraði Guðrún í sömu grein á alþjóðlegu
móti í Malmö á mánudag á 54,89 og setti vallarmet. Síðast en
ekki síst hafnaði hún í 2. sæti á alþjóðlegu móti í Linz í Austur-
ríki ígærá 54,78.
Þár með hefur Guðrún hlaupið
< þrisvar 4 fj órum dögum á
skemmri tíma en 55 sekúndum, en
það erframúrskarandi árangur. Þá
"'hljóp hún á 55,02 sekúndum í
Gautaborg á fimmtudaginn í síð-
ustu viku. Tími Guðrúnar í Linz í
gær er sá þriðji besti sem hún nær
á ferlinum og það að hún hleypur
með svo suttu millibili fjögur góð
hlaup gefur góð fyrirheit um fram-
haldið hjá henni, en til þess að kom-
ast í úrslit í þessari grein á Ólymp-
' íuleikunum þarf að hlaupa afar vel í
þrígang með mjög stuttu millibili.
Sandra Cummings-Glover kom
fyrst í mark í Linz í gær á 54,08 og
Andrea Blackett, Bahamaeyjum,
varð þriðja á 54,79. Fór Guðrún
fram úr henni með gríðarlegum
endaspretti en fáeinir metrar
skildu þær að við síðustu grind.
„Ég er svo ánægð að ég hef ekk-
ert velt fyrir mér þreytu enn þá,“
sagði Guðrún í gær aðspurð hvort
ekki væri farið að bera á þreytu
eftir mikið álag síðustu daga.
„Methlaupið gekk eins og best
varð á kosið, svona eins og ég hef
óskað að þetta hafi gengið svona
vel hundrað sinnum áður,“ segir
Guðrún um methlaupið í stigamóti
Alþjóða frjálsíþróttasambandsins í
Lundúnum á laugardag. „Eftir að
ég hljóp á 55,02 í Gautaborg á
fimmtudaginn þá fann ég að ég gat
gert talsvert betur. A laugardaginn
einbeitti ég mér að tækninni, að ná
réttum skrefafjölda á milli grind-
anna, þá hjálpaði það einnig veru-
lega að loksins tókst mér að ná al-
mennilegu viðbragði. Hlaupið var
tæknilega mjög gott. Auk þess þá
langaði mig svo að hlaupa hratt.
Þetta fór allt saman og þegar ég
kom inn í síðustu beygjuna þá var
ég í þriðja sæti. Því var ekkert ann-
að að gera en að auka hraðann á
lokakaflanum og það tókst,“ sagði
Guðrún sem hafnaði í öðru sæti í
hlaupinu, næst á undan ólympíu-
meistaranum í 400 m grindahlaupi,
Deon Hemmings, Jamaíku. Glover
varð fyrst á 53,92 og Hemmings
fékk tímann 54,69. „Tíminn kom
mér á óvart, þótt ég vissi að ég gæti
bætt mig þá átti ég ekki von á að ná
öðru sæti í þessu sterka hlaupi,“
sagði Guðrún.
Guðrún lét ekki þar við sitja
heldur vann ólympíumeistarann á
ný á alþjóðlegu móti í Malmö á
sunnudag, kom í mark á 54,89,
Hemming varð önnur á 55,11 og
Tany Jarrett, Jamaíku, varð þriðja
á 56,36. „Ég er líka mjög ánægð
með hlaupið í Malmö, þar vann ég
Hemmings á lokasprettinum. Hún
tiplaði við síðustu grind og þá vissi
ég að möguleiki væri á að vinna
hana,“ sagði Guðrún, sem viður-
kenndi að það væri uppörvandi að
vinna ólympíumeistarann í tvígang
með suttu millibili.
Fjórtán ára gamalt Norður-
landamet Ann-Louise Skoglund,
Svíþjóð, í 400 m grindahlaupi er
54,15 og nú vantar Guðrúnu 22/100
upp á að slá það. Guðrún segist
ekki velta því mikið fyrir sér. „Ég
hef það bak við eyrað,“ svaraði hún
aðspurð hvort hún myndi gera at-
lögu að Norðurlandametinu áður
en keppnistímabilið væri úti.
Birgir
Leifur
sigraði
eftir
bráða-
bana
Birgir Leifur Hafþórsson, at-
vinnukylfingur frá Akranesi,
sigraði á Canon-golfmótinu á Keilis-
velli í Hafnarfirði á mánudaginn. Þar
tóku þátt sterkustu kylfingar lands-
ins auk erlendu atvinnumannanna
Patrick Sjöland frá Svíþjóð og Eng-
lendingsins Barry Lane.
Birgir Leifur og Ólafur Már Sig-
urðsson voru jafnfr eftir átján holur
á 72 höggum, einu höggi yfir pari
vallarins, og þurfti því bráðabana til
þess að skera úr um sigurvegara.
Þar hafði Birgir betur.
Aðstæður á Keilisvelli voru mjög
góðar en um tíma var nokkuð sterk-
ur vindur sem gerði kylfingum erfitt
um vik. Völlurinn var í frábæru ásig-
komulagi og hrifust Lane og Sjöland
mjög að vellinum.
Ottó Sigurðsson,Sigurður Péturs-
son og Barry Lane léku á 73 högg-
um, Sigurjón Amarson, Haraldur H.
Heimisson og Patrik Sjöland á 74 og
Björgvin Sigurbergsson og Helgi
Birkir Þórisson á 75. Öm Ævar
Hjartarson lék holurnar átján á 76
höggum, Úlfar Jónsson á 77, Krist-
inn Amason og Pétur Ó. Sigurðsson
á 78 höggum. Lestina ráku Sigurður
Hafsteinsson og Auðunn Einarsson
á 79 höggum hvor.
Þetta er í annað sinn sem Lane
kemur hingað til lands, hann lék sem
áhugamaður á golfmóti hér á landi
1979, áður en atvinnumannaferill
hans hófst.
d fvutt'ww
Morgunblaðið/Kristínn
Birgir Leifur Hafþórsson tekur eítt upphafshögga sinna á Keilisvellinum á mánudaginn.
Færri á lands-
móti en áður
Sigurjón orð-
inn ahuga-
maður a ný
SIGURJÓN Amarsson, kylf-
ingur úr GR, verður meðal
keppenda á Landsmóti kylf-
inga. Sigurjón reyndi fyrir
sér sem atvinnumaður í
Bandaríkjunum á árunum
1993-96 en hefur ekkert
keppt sem atvinnumaður
síðan og fékk í gær áhuga-
mannaréttindin á ný og
verður því meðal keppenda
á Jaðarsveili á Akureyri þar
sem meistarafiokkar heQa
keppni á fimmtudaginn.
Nokkru færri kylfingar skráðu
sig til leiks á landsmótinu í
golfi sem hefst í dag á Akureyri,
Sauðárkróki og Húsavík. Kepp-
endur verða 305 talsins en í fyrra
voru þeir alls 417.
Þetta er í síðasta sinn sem
landsmót verður með þessu sniði,
það er að segja með flokkaskipt-
ingu, því næsta ár verður opinn
flokkur þar sem 120 forgjafa-
lægstu kylfingar taka þátt og 30
bestu konurnar.
Meistaraflokkarnir hefja leik á
morgun og ljúka keppni á sunnu-
dag en aðrir flokkar Ijúka leik á
laugardag. Á Húsavík leikur 2.
flokkur karla og 3. flokkur karla á
Sauðárkróki en aðrir flokkar á
Akureyri.
Fækkun hefur orðið mest í
lægstu flokkunum og í 3. flokki
karla eru aðeins 32 keppendur og
61 í 2. flokki karla, en þetta hafa
verið fjölmennustu flokkar síð-
ustu árin.
Stökk4
metraá
Bíldudal
VALA Flosadóttir, stang-
arstökkvari ur ÍR, stökk 4
metra á alþjóðlegu stökk-
móti í tengslum við Ungl-
ingalandsmót UMFÍ í
Vesturbyggð á laugar-
daginn. Keppnin í stang-
arstökki fór fram á Bíldu-
dal. Sem áður sagði stökk
Vala yfir 4 metra og átti
ágætar tilraunir við 4,20
metra.
Charlotte Carlsson og
Marie Redin, Svíþjóð,
stukku 3,70 metra. Hol-
Ienski methafínn, Mon-
Iique de Wilt, felldi byij-
unarhæð sína, 3,80 metra.
Daninn Marie Rasmussen
hætti við keppni.
Varð þriðja í Malmö
Vala staldraði stutt við
á íslandi því á mánudag-
inn hafnaði hún í þriðja
sæti í stangarstökki á al-
þjóðlegu móti í Malmö,
varð jöfn heimsmethafan-
um og heimsmeistaran-
um, Stacy Dragila,
Bandaríkjunum, stökk
4,26. Cao Shuying, Kína,
Ístökk sömu hæð og sigr-
aði og Melissa Muller,
Bandaríkjunum varð önn-
ur, einnig með 4,26. Þær
notuðu hins vegar færri
tilraunir. Þórey Edda El-
Lísdóttir, FH, varð í 7. sæti,
lyfti sér yfir 4,06 metra.
mPAULO Wanchope er á leið til
Manchester City fyrir hæstu upp-
hæð sem félagið hefur nokkum
tíma greitt fyrir knattspyrnumann.
Forráðamenn City komust að sam-
komulagi við forráðamenn West
Ham og Wanchope sjálfan um
helgina og nemur kaupverðið 3,65
milljónum punda, eða um 440 millj-
ónum króna.
■ STEVE McManamann segist
ekki hafa uppi nein áform að yfir-
gefa raðir Real Madrid þótt ljóst sé
að hann eigi á brattann að sækja á
næstu leiktíð eftir að Luis Figo var
keyptur á dögunum fyrir metfé.
■ UTLITer fyrir að Leeds verði án
Harry Kewell og Mark Viduka í
sex vikur í upphafi ensku úrvals-
deildarinnar en þeir hafa hug á að
leika með Áströlum á Ólympíuleik-
unum í Sydney. Kewell á við smá-
vægileg meiðsl að stríða en hann
segist stefna að því að leika fyrsta
leik Leeds gegn Everton.
■ DAVID Batty leikur líklega ekk-
ert með Leeds á næstu leiktíð, en
hann lék síðast með liðinu 27. nóv-
ember í fyrra. Batty hefur ekki náð
sér góðum af hásinarmeiðslum.
■ EDU, sem Arsenal ætlaði að
kaupa, er aftur genginn til liðs við
Corinthians en hann var stöðvaður
á Heathrow-flugvelli fyrir helgi
með falsað vegabréf. Arsenal var
búið að komast að samkomulagið
við Corinthians um kaupverð sem
var 720 milljónir króna og þegar
Edu var að semja við enska félagið
hélt hann því fram að hann hefði
portúgalskt vegabréf og þyrfti því
ekki atvinnuleyfi í Bretlandi. Sam-
kvæmt brasilískum fjölmiðlum
verður ekkert af kaupunum og Edu
leikur því ekki með Ársenal.