Morgunblaðið - 10.08.2000, Page 5

Morgunblaðið - 10.08.2000, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 B § VIÐSKIPTI Kaupréttarsamningar ryðja sér til rúms í kjölfar nýrra laga sem taka á skattlagningu þeirra SÉRFRÆÐINGAR í fyrirtækjarekstri og starfsmannamálum telja að kaupréttur starfsmanna á hlutabréfum í þeim fyrii-tækj- um sem þeir starfa hjá sé að verða algengur liður í kjörum starfsmanna hér á landi. Tölu- verður skriður hafi komist á þessi mál í fram- haldi af breytingu á lögum um tekju- og eignaskatt, sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor, þar sem tekið er á því hvernig kauprétt- ur á hlutabréfum er skattlagður. Nokkur fyrirtæki hér á landi hafa greint frá kaupréttarsamningum sem þau hafa gert eða hyggjast gera við starfsmenn sína um kaup þeirra á hlutabréfum í fyrirtækjunum. Nýjasta dæmið þar um er Landsbanki ís- lands. í síðasta mánuði gerðu bankaráð Landsbankans og stjórn Félags starfsmanna bankans samkomulag um kauprétt allra starfsmanna bankans og starfsmanna félaga innan sömu félagasamstæðu á hlutabréfum í bankanum samkvæmt sérstökum kaupréttar- samningi. Af því tilefni var þess sérstaklega getið að farið yrði eftir ákvæðum nýrra laga um kauprétt starfsmanna á hlutabréfum og skattahagræði sem þeim kaupum getur fylgt. Ánægja með lög um skattlagningu kaupréttar Guðjón Rúnarsson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Verslunarráðs íslands, segir að ráð- gjafarfyrirtæki sinni í auknum mæli ráðgjöf sem snýr sérstaklega að kaupréttarsamning- um fyrir fyrirtæki hér á landi. Hann segir að ljóst sé að töluvert af fyrirtækjum sjái sér nú hag í að gera slíka samninga við starfsmenn. Guðjón stýrði hópi á vegum verslunarráðs- ins sem á síðasta ári fór yfir ýmis skattaleg atriði er snúa að atvinnulífinu. Hópurinn beindi því til fjármálaráðherra að skattalög- um yrði breytt þannig að þau hvettu til gerð- ar kaupréttarsamninga og eyddu jafnframt þeirri óvissu sem var í þessum málum. Guð- jón segir að vinna hópsins hafi skilað því að fjármálaráðherra hafi lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignaskatt, sem samþykkt var síð- astliðið vor, en þar er m.a. að finna ákvæði um skattlagningu kaupréttarsamninga. Að sögn Guðjóns kom skattahópur verslunarráðsins sam- an fyrir nokkru og fór yfir þær breytingar sem gerðar voru á lög- unum varðandi tekju- og eignaskatt, sérstak- lega hvað varðar skattlagningu kaup- réttarsamninga. „Við hjá verslunarráðinu erum mjög ánægð með að þessi breyting hafi náðst fram, teljum hana mikið til bóta og að mestu í samræmi við það sem ráðið lagði til,“ segir Guðjón. „Nú er komin í lög megin- regla um hvernig með- höndla á kaupréttar- samninga almennt. Síðan er viðbótarregla sem segir að ef ákveðnum skilyrðum er fullnægt sé kaup- réttur skattlagður sem fjármagnstekjur en ekki launatekjur, eins og meginreglan segir til um. Eitt af þeim skilyrðum sem upp- fylla þarf tO að kaup- rétturinn verði skatt- lagður sem fjármagnstekjur er varðandi fjárhæðarmörk. Þau segja til um hámark kaupréttar hvers starfsmanns, sem gerir kaupréttarsamning við það fyrirtæki sem hann starfar hjá, og það er samkvæmt lögunum 600 þúsund krón- ur á ári. Segja má að fjárhæðarmörkin séu það eina sem verslunarráðið vildi breyta. Mörkin mættu vera hærri.“ Guðjón segir að reglumar um skattlagn- ingu kaupréttar séu í heildina í takt við það sem þekkist í þeim löndum sem eru komin lengst í þessum efnum, svo sem í Banda- ríkjunum og Bretlandi, og að ísland sé komið fram úr hinum Norðurlöndunum hvað þetta varðar. Það sé helst að skattlagning kaup- réttar í Danmörku líkist þeim reglum sem gilda nú hér á landi. Verslunarráðið sé því í megindráttum ánægt með þær reglur sem settar hafa verið hér á landi. Lögin mismuna fyrirtækjum Friðgeir Sigurðsson, lögfræðingur hjá PriceWaterhouse Coopers, segir að eftir því Henta nýjum fyrirtækjum sérstaklega vel Kaupréttur starfsmanna á hlutabréfum í þeim fyrir- tækjum sem þeir starfa hjá verður frekar regla en und- antekning er fram líða stundir að mati sérfræðinga í fyrirtækjarekstri og starfsmannamálum. Ráðgjafarfyr- irtæki sinna í auknum mæli ráðgjöf sem snýr sérstak- lega að kaupréttarsamningum fyrir fyrirtæki. Tölur um fjölda fyrirtækja sem bjóða upp á slíka samninga liggja þó ekki fyrir. Ný lög sem Alþingi samþykkti síð- astliðið vor, þar sem tekið er á skattlagningu kauprétt- arsamninga, eru líkleg til að auka gerð kaupréttar- samninga á næstunni. Þau nýtast nýjum fyrirtækjum betur en fyrirtækjum á hlutabréfamarkaði og er talið að stór hluti nýrra fyrirtækja, sérstaklega á tæknisviði, bjóði að minnsta kosti hluta starfsmanna nú þegar upp á kaupréttarsamninga. Tölur um fjölda fyrirtækja sem bjóða starfsmönnum sínum upp á kaupróttarsamninga liggja ekki fyrir. Sérfræðingar sem þekkja til þessara mála telja Ifldegt að kaupréttur verði algengur þáttur í kjörum starfsmanna margra fyrirtækja er fram líða stundir. sem hann viti best sé hvergi að finna upp- lýsingar um fjölda þeirra fyrirtækja sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmennn sína. Hann segir að þau lög sem samþykkt voru á Alþingi síðastliðið vor um skattalega meðferð kaupréttarsamninga gagnist nýjum fyrirtækjum en ekki gamalgrónum fyrirtækj- um. Fjárhæðarmörkin séu hins vegar of lág. „Ef við hugsum um kaupréttarsamninga sem kerfi til að virkja hinn almenna starfs- mann sem launauppbót og koma að hluta til í stað launa held ég að fjárhæðarmörkin í lög- unum séu nokkuð viðunandi," segir Friðrik. „Þá er einnig hægt að kaupa nokkuð drjúgan hlut í nýjum fyrirtækjum fyrir það verð sem ákvarðast af fjárhæðarmörkunum, þar sem gengið er oftast lágt í byrjun í slíkum fyrir- tækjum. A móti kemur hins vegar að verið er að mismuna fyrirtækjum, því ekki er víst að það sé hægt að nota kaupréttarsamninga í eins ríkum mæli hjá gamalgrónum fyrirtækj- um, þar sem verðið á hlutabréfunum er hærra.“ Ný fyrirtæki sem ekki eru með kauprétt fylgjast ekki með Að sögn Árna Harðarsonar, lögfræðings hjá Deloitte & Touch, er erfitt að áætla hve mörg fyrirtæki hér á landi hafa tekið upp kaupréttarsamninga við starfsmenn. Tölur þar um liggi ekki á lausu. Hins vegar sé víst að þetta sé mjög útbreitt í nýjum fyrirtækj- um, sérstaklega í tæknigeiranum. Hann segir að Deloitte & Touch hafi kynnt þetta fyrir- komulag fyrir stjórnendum fjölmargra fyrir: tækja og mikill áhugi sé á þessu hér á landi. I mörgum tilvikum sé fyrirtækjum ekki endi- lega ráðlagt að fara út í ákveðið kaupréttar- kerfi þótt þau geri kaupréttarsamninga við einstaka starfsmenn. Hann segir að það henti alls ekki öllum fyrh-tækjum að taka upp slíkt kerfi. „Þau nýju fyrirtæki sem eru ekki með kaupréttarsamninga fylgjast einfaldlega ekki með,“ segir Árni „Skattamódelið passar lang- best fyrir nýju fyrirtækin. Sem dæmi má nefna að ef rótgróið fyrirtæki ætlar að fara út í einhverja nýja starfsemi er ekki sniðugt að stofna nýja deild og gera kaupréttarsamn- inga við nýju starfsmennina. Miklu betra er að stofna nýtt fyrirtæki. Til að fá nýja starfs- menn inn í slíkt nýtt fyrirtæki er hægt að gera það með því að bjóða þeim lægri laun en að þeir fái hins vegar hlutdeild í hagnaðinum með kaupréttarsamningum, sem ekki væri hægt að gera á sama hátt með kaupréttar- samningum við rótgróið fyrirtæki. Þetta byggir á því að nýju fyrirtækin eiga frekar möguleika á að margfaldast í verði og hagn- aður starfsmannanna sem eru með kauprétt- arsamninga þar með. Ég held að þetta eigi eftir að aukast og fyrirtækjum verði frekar skipt upp.“ Ámi segist telja að velflest fyrirtæki á Verðbréfaþingi Islands séu með kaupréttar- samninga við einhverja starfsmenn, án þess þó að vera með ákveðið kerfi í gangi. Næsta víst sé hins vegar að kaupréttarkerfi verði, með einum eða öðrum hætti, algengari hér á landi á næstunni. Fyrirtæki sem byggja á hugviti verða öll með kaupréttarsamninga Sigurður Guðjónsson, lögfræðingur á fyrir- tækjasviði Kaupþings, segir að mörg fyrir- tæki séu að huga að því að koma upp ákveðnu kaupréttarkerfi fyrir starfsmenn sína eftir að lög um skattalega meðferð kaupréttarsamn- inga voru samþykkt á Alþingi síðastliðið vor. Hann telur að flest fyrirtæki verði komin með kaupréttarsamninga af einu eða öðru tagi áður en langt um líður. „Þetta hentar hins vegar misvel hjá fyrirtækjum," segir Sigurður. „Best hentar þetta í þeim fyrir- tækjum þar sem gengið getur tekið miklum breytingum, eins og hjá fyrirtækjum í hug- búnaðargeiranum. Þetta á hins vegar síður við hjá fyrirtækjum þai- sem flestir starfs- menn eru þess eðlis að þeir geta ekki haft áhrif á afkomu félagsins. í fyrirtækjum þar sem kannski helmingurinn af starfsmönnun- um eða þaðan af fleiri vinnur vinnu sem getur skapað mikil verð- mæti er ljóst að slíkir starfsmenn munu ekki sætta sig við annað en að fá kaupréttarsamn- inga í félaginu. Og ég held að nánast öll fyr- irtæki hér á landi sem byggja á slíku hugviti séu annað hvort kom- in með slíkt kerfi eða séu að koma því upp.“ Sigurður segh- að starfsmannamarkað- urinn hafi þróast þannig að tiltölulega erfitt sé að nálgast vel menntað starfsfólk en tilgangurinn með kaupréttarkerfi sé einmitt annars vegar sá að laða að gott starfsfólk og hins veg- ar, sem ekki sé síður mikilvægt, að halda í gott starfsfólk. Starfs- fólk sé því farið að gera kröfur um kaup- réttarsamninga. „Reyndar er einn galli á nýju skattalög- unum um kaupréttar- samningana. Þau mis- muna félögum, annars vegar skráðum félög- um og hins vegar óskráðum félögum. í skráðu félögunum má í kau pré ttarsam ni ng-í um ekki taka mið af en markaðsverð en í Morgunblaðið/Golli gengi sem er lægra óskráðu félögunum er alltaf auðvelt að miða við lágt gengi. Menn geta því í þeim tilvikum nýtt sér mjög háar fjárhæðir ef vel gengur, sem myndu falla undir fjármagnstekjuskatt en ekki launaskatt. Hins vegar má hafa í huga að skattlagning er til að mynda mun óhagkvæmari í flestum öðrum ríkjum á Norð- urlöndunum en hún er hér. Þar er tekju- skattur miklu hærri prósenta en hér á landi. Svo erum við oft borin saman við Bandaríkin, en þar greiða menn, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, fjármagnstekjuskatt af kaupréttj arsamningum. Fjármagnstekjuskatturinn þar er hins vegar miklu hærri en hér og þar er minni munur á fjármagnstekjuskatti og tekjuskatti." Sigurður segir að stjórnendur fyrirtækja hafí haldið að sér höndum áður en lögin um skattlagningu kaupréttarsamninga voru sett hér á landi en nú sé eins og menn séu að taka ákvörðun, ef þeir á annað borð hafa haft áhuga á slíku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.