Morgunblaðið - 12.08.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.08.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 C 11 SKÓGRÆKTARFÉLAG ÍSLANDS 70 ÁRA Fræðslubæklingur með yfirliti yfir frædslustarf ársins er sendur öllum félagsmönnum í upphafi árs. Fræðslu- starf SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN standa fyi-ir umfangsmiklu fræðslustarfi. Fræðsla fyrir almenning um skógrækt og landgræðslu er eitt af markm- iðum skógræktarfélaganna. Búnaðarbanki íslands hefur styrkt það starf með öflugum fjárstuðningi undanfarín ár. Framlag bankans hefur gert félaginu kleift að vinna að markvissu fræðslustarfí, sem hefur að verulegu leyti byggt á fræðsluerindum, námskeið- um, opnum húsum, skógar- dögum og skógargöngum, auk ýmissa annarra liða. Útgáfustarf er einnig mikil- vægur þáttur í fræðslustar- finu. Sérstök bæklingaröð, sem nefnist Frækornið, er gefin út til þess að fræða og upplýsa áhugafólk. Þar eru settar fram ræktunarleiðbein- ingar á hagnýtan og mynd- rænan hátt. Fyrirtækið Bræð- urnir Ormsson og Beck’s umboðið hafa styrkt útgáfuna og gert hana mögulega. Opnun heimasíðu er nýjasti þáttur fræðslustarfsins, en nú síðar í sumar, á Aðalfundi Skógræktarfélags íslands, verður opnaður sérstakur vef- ur félagsins, þar sem áhuga- fólk mun geta sótt fræðslu og leiðbeiningar. Þekking er eins og tré. Til að geta vaxið og dafnað þarf hún sitt rétta umhverfi, sína næringu, sína rækt. Að rækta tré - að rækta skóg - að rækta þekkingu. Samnefnari alls þessa býr að baki útgáfustarfs skógræktarfélag- anna. Helstu útivistarsvæði skógræktarfélaganna Skógræktar- félag Helstu útivistarsvæði Skógræktar- félag Helstu útivistarsvæði Skógræktar- félag Helstu útivistarsvæði A-Húnvetninga Gunnfríðarstaðir Garðabæjar Sandahlíð Patreksfjarðar Drengjaholt Akranes Garðalundur Hafnarfjarðar Höfðaskógur Rangæinga Skógar A-Skaftfellinga Haukafell Heiðsynninga Hofsstaðaskógur Reyðarfjarðar Við Reyðarfjörð Austurlands Eyjólfsstaðaskógur (safjarðar Tunguskógur Reykjavíkur Heiðmörk Álftaness Almenningsskógur Kjalarness Mógilsá Seyðisfjarðar Hjallar Árnesinga Snæfoksstaðir Kjósahrepps Fossá Siglufjarðar Skarðdalur Barðaströnd Krossholt Kópavogs Guðmundarlundur Skagastrandar Spákonufell Bíldudals Ofan byggðar & v. Hálfdán Kvistur Bragðavellir Skagfirðinga Varmahlíð og Hólar Björk Barmahlíð Landbót Vopnaf. Ofan byggðar Skáta Við Úlfljótsvatn Bolungarvíkur Bolungarvík Limgarður Sveinseyri Skilmannahr. Selhagi Borgarfj. eystri Álfaborg Lurkur Við Bakkagerði Skógfell Háibjalli Borgfirðinga Daníelslundur Mosfellsbæjar Hamrahlíð Strandasýslu Hermannslundur Breiðdæla Staðarborg Mýrdælinga Gjögrar Stykkishólms Grensásskógur Dalasýslu Gröf í Miðdölum Mörk Stjórnarsandur Suðurnesja Sólbrekkur Djúpavogs Búlandsnes Neskaupstaðar Hjallaskógur Súgandafjarðar Ofan byggðar Dýrafjarðar Botn f Dýrafirði Nýgræðingur Ofan Stöðvarfj. S-Þingeyinga Fosselsskógur Eskifjarðar Ofan Eskifjarðar N-Þingeyinga Akurgerði V-Húnvetninga Kirkjuhvammur Eyfirðinga Kjarnaskógur Landv. u. Jökli Ingjaldshóll Vestmannaeyja Vesmanneyjum Eyrarsveitar Eiði Ólafsfjarðar Ofan Ólafsfjarðar Önundarfjarðar Klofningsreitur Fáskrúðsfjarðar Ofan byggðar Ólafsvíkur Við Ólafsvík íslands Vinaskógur Skarödalur Tunguskpjur^^^ ■ & Botn S Hermanns- Holar* Drengjaholt A - Á[undur „ ‘r Barmahlíð^. Taöf" Varrna!,liö S L. \ \ { . 1 \ \ / 1 Q\ ' A Fossels ‘r skógur Kjarna- skógur r~~-J S ( ) xr7) r* ' J Grensásskógur^ \M í tyjólfsstaöa- J§#ögur ■ J\ skógur V . Daníelslundur^ \ «• ✓ . \m* . / ( / '.■V V i í Heiömörk _/ ýÁv \ y r /\ /f T( 9 \ \ \ v. ^ Haukafell ^ Skógar Skólabörn á Álftanesi gróðursetja yrkjuplöntur í Breiðdal ofan Undirhlíða, YRKJUSJÓÐUR 1992 - 2000 Fjöldi grunnskóla '92 '93 ’94 '95 ’96 ’97 ’98 '99 ’OO Fjöldi nemenda 9.000 8.000------------- 7.000 - 6.000 Samtals 59.530 5.000 - 4.000- 3.000 - 2.000 1,000 0- - ’92 ’93 '94 '95 '96 ’97 ’98 ’99 '00 Fjöldi plantna Samtals341.594 ÚTI- VISTAR-, SVÆÐI SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN hafa mikinn metnað til þess að skóglendi þeirra séu sótt heim af sem flest- um, enda gegna útivistarskógar orðið mikilvægu hlutverki við þétt- býlisstaði landsins. Undanfarin ár hefur verið skipulega unnið að því að gera þau enn aðgengilegri gest- um og gangandi. Lagning skógar- stíga, uppsetning bekkja og borða,* smíði á grillum og frágangur skilta til leiðbeiningar eru verkefni sem félögin eru að fást við. Þessar fram- kvæmdir eru í mörgum tilvikum unnar í samvinnu við viðkomandi sveitarfélög. í þeim tilgangi að auka samstarf þessara aðila hefur verið komið á formlegu samstarfi Sambands íslenska sveitarfélaga og Skógræktarfélags íslands. M.a. í þeim tilgangi að fjölga þjónustu- samningum skógræktar- og sveitar- félaga en sameiginlegt markmiðið er að byggja upp góða útivistarað- stöðu í skóglendunum sem gagnast íbúum og ferðamönnum. Skóglendi skógræktarfélaganna eru mörg hver afar fjölsótt. Kunn^. svæði í umsjón félaganna eru Kjarnaskógur og Heiðmörk, svo dæmi séu nefnd. Á þessi tvö svæði koma árlega um 350 þúsund gestir samkvæmt talningum sem gerðar hafa verið. Þá er ótalinn fjöldi gesta í öll önnur skóglendi skóg- ræktarfélaganna um allt land. Var- lega má ætla að þeir gestir séu álíka margir þannig að í heild gætu heimsóknir verið um og yfir 700 þúsund. Eins og áður var minnst á hefur verið unnið markvisst að upp- byggingu þessara útivistarsvæða #■ undanfarin ár. Óhætt er að fullyrða að stuðningur Umhverfissjóðs verslunarinnar, sem hefur styrkt félögin myndarlega, hafi þar skipt sköpum. Eitt af því sem dregur fólk í skóginn eru matsveppir, en sveppa- tínsla er vaxandi áhugamál margra. Því er rétt að benda á að um þessar mundir er sveppatíminn í skóginum í hámarki og skógarlundir skó- græktarfélaganna setnir girnilegum náttúru ávöxtum. Verið velkomin í skóginn! YRKJU- SJÓÐUR Á 60 ára afmæli Vigdísar Finnboga- dóttur, fyrrverandi forseta, áttu nokkrir aðilar frumkvæði að því að gefa út bók henni til heiðurs. Bókin nefndist Yrkja og tóku skógræktar- félögin m.a. mikinn þátt í að selja bókina. Það var síðan ákvörðun Vig- dísar að ráðstafa tekjum vegna sölu á bókinni á þann hátt, að stofnaður væri sjóður, sem hefði það að markmiði að styrkja skógrækt skólabama. Þessi öflugi sjóður er í vörslu Skógræktarfélags Islands og eru um 70% af raunávöxtun hvers árs notuð til þess að kaupa trjáplönt- ur fyrir grunnskólana. Skógræktar- félag Islands á því ánægjulegt sam- starf um Yrkjusjóðsverkefnið við liðlega helming allra grunnskólanna í landinu og þúsundir skólabarnajk taka þátt í gróðursetningu. Með þessum hætti vex ný kynslóð íslend- inga úr grasi, kynslóð sem er í snert- ingu við trjágróður nánast frá blautu bamsbeini - ræktunarmenn framtíðarinnar! Ræktum skóg!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.